Víkurfréttir - 14.09.1989, Qupperneq 18
ÍÞRÓTTIR
Garðar flaug framúr
Kjartani í lokamótinu
Garðar K. Vilhjálmsson, vallar-
starfsmaður í Leirunni, varð stiga-
meistari Golfklúbbs Suðurnesja
1989. Hann skaust fram úr Kjart-
ani knattspyrnukappa Einarssyni
með því að vinna sigur í síðasta
stigamóti sumarsins, Samkaups-
mótinu. Þar lék Garðar manna
best með forgjöf, á 67 höggum,
sem tryggði honum fyrsta sætið og
jafnframt 10 stig. Kjartani brást
bogalistin á síðustu holunum sem
gerði það að verkum að hann náði
aðeins 10.-12. sæti með forgjöf og
aðeins 0,33 stig. Garðar varð því
efstur að stigum með 31,5 stig,
Kristinn S. Gunnarsson skaust
einnig upp fyrir Kjartan, hlaut
27,5 stig og loks Kjartan í 3ja sæti
með 27,33 stig. Garðar hlaut að
launum utanlandsferð með Flug-
leiðum fyrir sigurinn í stigamótun-
um.
Veðrið lék ekki beint við kylf-
inga í Samkaups-mótinu á laugar-
daginn. Rigning og rok en engu að
síður mættu rúmlega 30 kylfingar
til leiks. Garðar Vilhjálmsson sigr-
aði, eins og áður segir, með for-
gjöf, á 67 höggum, annar varð
Grétar Björnsson á 70 höggum og
Kristinn S. Gunnarsson þriðji á 73
höggum.
5kn forgjafar sigraði Páll Ketils-
son á 82 höggum og í 2.-3. sæti
komu þeir Júlíus Jónsson og
Arnar Astþórsson á 84 höggum.
Aukaverðlaun fyrir að vera næstur
holu hlaut Þorsteinn Sigurðsson,
en hann sló kúlu sinni 6 metra frá
stöng.
Sport-molar
• Denis Matica, þjálfari
Grindvíkinga í körfuboltan-
um, þykir mjög snjall og er
mikil ánægja með hann í her-
búðum UMFG-liðsins. Þeir
sem fylgdust með leikjum
UMFG um helgina í Reykja-
nesmótinu sáu að Denis býr
einnig yfir góðum leikara-
hæfdeikum, því ef honum lík-
aði ekki dómgæslan tók hann
sig til og hreinlega setti á svið
skilaboð sín til dómaranna.
• Mjög góð aðsókn var að
leikjum í Reykjanesmótinu í
körfubolta, sem fram fóru í
íþróttahúsi Keflavikur um
helgina. Má gera ráð fyrir því
að margir hafi verið spenntir
að sjá hvernig kanarnir kæmu
út með sínum liðum. Mótið
heldur áfram á föstudag og
lýkur næsta miðvikudag.
Helgarskák-
mót í Keflavík
Helgarskákmót verður
haldið í Keflavík dagana 22,-
25. september. Verður margt
góðra gesta á móti þessu og
m.a. kemur í heimsókn
danskur stórmeistari, Bent
Larsen að nafni. Munum við
gera þessu betri skil síðar.
Úr leik ÍBK og UMFG á Reykjanesmótinu sl. sunnudagskvöld.
Ljósm.: hbb.
UMFG og
ÍBK-Reynir
144:61 (76:33)
Reynismenn, nýliðar í úrvalsdeild,
sáu aldrei til sólar í sínum fyrsta
leik við ÍBK í mótinu. ÍBK lék hins
vegar á alls oddi og skoraði 144
stig á móti 61 stigi Reynis.
Stig ÍBK: Guðjón Sk. 33, Falur 23,
Nökkvi og Hjörtur 16 hvor.
Stig Reynis: David Grisson 23,
Ellert 15 og Sveinn 13.
Haukar-UMFN
95:98 (50:46)
Þetta var hörkuleikur tveggja
mjög sterkra liða sem munu ör-
ugglega verða í baráttunni um Is-
landsmeistaratitilinn í vetur. Liðin
skiptust á að hafa forystu og var
munurinn aldrei mikill. Leikurinn
var skemmtilegur og þeir Pálmar
Sigurðsson, Haukum, og Teitur
Örlygsson, UMFN, áttu báðir
stjörnuleik og má segja að Teitur
hafi haft betur, en hann skoraði
hvorki fieiri né færri en 43 stig.
Njarðvíkingar voru sterkari í lok-
in og sigruðu með 3ja stiga mun.
Stig UMFN: Teitur 43, Mike
Clark 14.
Stig Hauka: Pálmar 38, James
Bow 19.
Haukar-UMFT
81:77 (44:34)
Haukarnir unnu nokkuð öruggan
sigur, þó svo að munurinn hafi al-
drei verið mjög mikill, mest lOstig
í fyrri hálfleik, 22:12. Tindarnir
náðu að komast yfir í seinni hálf-
leik, 59:58, en þá fóru Haukarnir
UIVIFN efst
aftur í gang og voru sterkari á
lokasprettinum;
Stig Hauka: ívar Asgríms 17,
James Bow 18, Pálmar 15.
Stig UMFT: Bo Heyden 32, Valur
I. 22.
UMFN-Reynir
113:66 (54:33)
Það er ljóst að árið verður erfitt
fyrir Reynismenn. Þeir eru skör
neðar en önnur lið í þessu móti. I
þessum leik var aldrei spurning
hvort liðið ynni þrátt fyrir góða
viðleitni Reynis í byrjun og slakan
leik UMFN, sem gerði hann jafn-
ari en hann hefði átt að vera. Engu
að síður stórsigur UMFN.
Stig UMFN: Mike Clark 25, Frið-
rik Rún. 17, Ástþór 15, Teitur 14.
Stig Reynis: David Grisson 18,
Ellert 15, Sveinn 17.
ÍBK-UMFG
83:85 (36:43)
Grindvíkingar sýndu ótrúlega
baráttu gegn Tindastóli og sama
var uppi á teningunum hér. Þeir
unnu góðan sigur á Kefivíkingum
sem voru alltaf skrefinu á eftir í
leiknum. Það var aðeins Guðjón
Skúlason sem lék virkilega vel en
það dugði þeim ekki þrátt fyrir
hans 40 stig, mörg hver glæsileg.
Guðmundur Bragason og félagar
hans í Grindavikurliðinu unnu
sanngjarnan sigurogsýndu þaðað
þeir verða sterkir í vetur.
Stig ÍBK: Guðjón 40, John Verga-
son 17.
Stig UMFG: Guðmundur Braga
28, Jeff Null 26.
\íkurfréttir
14. sept. 1989
Reykjanesmót í körfu:
Guðjón stigahæstur
Stigahæstir að loknum 2
umferðum:
Guðjón Skúlason ÍBK 77
Bo Heyden UMFT 57
Teitur Örlygsson UMFN 57
Guðmundur Braga UMFG 46
Pálmar Sigurðs Haukum 53
David Grisson, Reyni 41
Stefán Arnarson ÍBK:
Kanarnir ekki eins
áberandi
„Kanarnir eru ekki eins
áberandi og síðast þegar þeir
léku í íslenskum körfubolta.
Ég held að aðal skýringin sé
sú að islensku leikmennirnir
eru betri en einnig er hugsan-
legt að liðin hafí ekki vandað
nóg valið, þó svo að ég telji að
það sé ekki hægt að dæma um
það ennþá. Tilkoma kananna
verður þó líklega til að lífga
upp á körfuboltann í vetur og
að deiidin verði jafnari."
-Nú töpuðuð þið gegn
UMFG. Hvernig fannst þér
leikurinn?
„Við gerðum fleiri mistök
og hittum verr úr vítunum,
það gerði gæfumuninn.
Grindvíkingar eru með gott
lið og verða sterkir í vetur.
Byrjunin í mótinu lofar góðu
fyrir framhaldið. Leikirnir
hafa verið spennandi og
skemmtilegir,“ sagði Stefán
Arnarson, liðsstjóri ÍBK.
„Alltaf gaman að
vinna ÍBK“
„Það er alltaf gaman að
vinna Keflavík, eins og gerðist
í kvöld. Við vorum ákveðnir
og lékum oft ágætlega.
Við erum með frábæran
þjálfara, þann besta sem ég
lu f haft, og kaninn okkar hef-
ur komið vel út. í síðustu
tveimur leikjum höfum við
notað 11 leikmenn af 12, sem
sýnir að við höfum góða
breidd, á meðan IBK og
UMFN hafa notað mun færri
leikmenn í sínum leikjum.
Annars á ég von á því að Is-
landsmótið verði jafnara í vet-
ur en oft áður. Érlendu leik-
mennirnir lífga þetta en þeir
eru ekki sömu yfirburða-
mennirnir í liðunum og var
hér áður,“ sagði Guðmundur
Bragason, einn besti leikmað-
ur Grindavíkurliðsins í körfu-
knattleik.
jjSl'r ðtrúleg lokahelgi í
Einhver mest spennandi knatt-
spyrnuhelgi fer nú í hönd. Úrslit
leikja í íslandsmótinu í knatt-
spyrnu um helgina munu ráða því
hvaða lið munu falla og hvaða lið
mun sigra. Kefivíkingar hafa ekki
verið nær falli úr 1. deild síðan lið-
ið lék í 2. deild árið 1968. Svo mik-
il spenna er bæði á toppi og botni
1. deildar að ekki er hægt að segja
til um hvort ÍBK dugi jafntefli,
verði að sigra eða megi tapa, því
allt kemur til greina. Við skulum
þó vona að hvernig sem leikur ÍBK
gegn KA á laugardaginn fer, þá
nái liðið að halda sér í 1. deild.
Víðismenn „stabílir“
Víðismenn hafa sýnt það í sum-
ar að þeir eru „stabilt" og reynslu-
mikið lið, sem hefur komið vel í
ljós í sex 1:0 sigrum liðsins í sumar.
Víðismenn eru nú í þeirri erfiðu
(og leiðinlegu) aðstöðu að þurfa að
stóla á annað lið, ætli þeir að kom-
ast upp í 1. deild að nýju. Víðir er
með einu stigi færra en ÍBV, sem
má þar af leiðandi ekki sigra í sín-
um síðasta leik, gegn UBK, sem
Víðir vann um helgina, 5:2. Af
þeim sökum er maður ekki nógu
bjartsýnn fyrir hönd Garðsliðsins,
sem hefur staðið sig frábærlega vel
í sumar.
Sá möguleiki er fyrir hendi að
þrjú Suðurnesjalið verði í 2. deild á
næsta ári. Hafa sumir haft það á
orði-að þá ætti að kalla^deildina
Suðurnesjadeildina. Þó svo aðþað
gæti orðið að sumu leyti skemmti-
legt, þá fyndist mér það mikil aft-
urför fyrir knattspymuna á Suður-
nesjum að eiga ekki lið í 1. deild á
næsta ári.
UMFG hélt haus
Grindvíkingar héldu haus í
ótrúlegri lokabaráttu í 3. deild og
tryggðu sér 2. deildar sæti í fyrsta
skipti í sögu félagsins. Eins og vel
er að málum staðið á allan hátt í
kringum fótboltann (og reyndar
körfuna líka) í Grindavik, þá skýt-
ur það skökku við að frétta af því
að sex af fastamönnum liðsins fóru
erlendis og mis: a þar með af báð-
um úrslitaleikjunum gegn KS um
meistaratitil 3. deildar. UMFG
stóð sig engu að síður vel í fyrri
leiknum miðað við þetta og náði
2:2 jafntefii í Grindavík'sl. laugar-
knattspyrnunni
dag. Seinni leikurinn er um helg-
ina á heimavelli Siglfirðinga.
Stefnir í góða körfu
Reykjanesmótið í körfu hófst
um helgina en það fer fram í Kefla-
vik. Liðin léku nú í fyrsta sinn í 7
ár með erlenda leikmenn og sýndu
sumir þeirra ágætis tilþrif, en það
gerðu íslensku leikmennirnir líka.
Það er ljóst af þessu að íslands-
mótið verður mjög jafnt og
skemmtilegt.
Golfvertíð fer nú að Ijúka og eru
aðeins nokkur mót eftir. Óhætt er
að segja að veðrið hafi ekki leikið
við kylfmga í sumar, sem engu að
síður hafa verið duglegir við golf-
leik og hefur mikil fjölgun átt sér
stað í klúbbunum.
Æfingar eru hafnar hjá nýju
sundfélagi, Suðurnesi, og þrátt
fyrir óánægjuraddir innan um
vegna nafnabreytingar, þá hlýtur
þessi breyting að þýða betri árang-
ur hjá sundfólkinu okkar, sem
verður undir handleiðslu Eðvarðs
Þórs Eðvarðssonar og fleiri.
Að lokum „old-boys“ knatt-
spyrnan. ÍBK varð íslandsmeistari
annað árið í röð, þiátt fyriraðhafa
tapað fyrir Val í úrslitaleik, 1:2.
Valsmennirnir voru hins vegar
með ólöglegan leikmann sem kost-
aði þá titilinn. Samkvæmt nýjustu
fréttum hafa Valsmenn kært til
baka einn leikmann í Keflavíkur-
iiðinu vegna ófrágenginna félaga-
skipta. Kannski að Keflvíkingar
verði að skila bikarnum aftur til
baka???? Páll Ketilsson