Víkurfréttir - 14.09.1989, Side 19
ÍÞRÓTTIR
..Verðum að
vinna KA til að
vera öruggir"
- segir Valþór Sigþórsson
fyrirliði ÍBK
19
\íkurfréttir
14. sept. 1989
Fylgst með gömlu félögunum
„Við lékum illa gegn Fylk-
ismönnum og vorum heppnir
að ná öðru stiginu. En við
ætlum okkur að gera betur
gegn KA á laugardaginn,
enda er sá leikur upp á líf og
dauða. Það þýðir ekkert að
hugsa um hvernig aðrir leikir
fari, við verðum bara að spila
upp á sigur og það ætlum við
okkur að gera. Áður en deild-
in hófst settum við okkur það
markmið að halda okkur í
deildinni. Ég tel að við mun-
um ná því takmarki þó svo
að það þurfi síðasta leikinn í
deildinni til þess“, sagði Val-
þór Sigþórsson, fyrirliði IBK
um leikinn við KA á laugar-
daginn.
Fyrrum ÍBK-leikmennirnir hjá
Fram og KR, þeir Ragnar Mar-
geirsson, Sigurður Björgvinsson og
Gunnar Oddsson, voru meðal
áhorfenda á leik ÍBK og Fylkis í Ar-
bænum sl. sunnudag. Þeir félagar
eiga það sameiginlegt að hafa verið
meðal bestu leikmanna í sínum lið-
um og höfðu margir á orði að Gunn-
ar hefði reynst Keflvíkingum betri
en enginn þegar hann skoraði sigur-
mark KR gegn Þór á laugardag,
sem reyndar var stórkostlegt mark
af 40 metra færi.
Handbolti:
(BK vann
bandaríska
landsliðið
2. deildar lið ÍBK, styrkt með
þremur Njarðvíkingum, vann
góðan sigur á bandaríska hand-
boltalandsliðini í Iþróttahúsinu í
Keflavík í fyrrakvöld. IBK skor-
aði 30 mörk gegn 26 hjá Könun-
um. Jafnt var í leikhléi, 16:16, en
Keflvíkingar náðu frábærum leik-
kafla í byrjun síðari hálfleiks og
komust í 24:17 og tryggðu sér
sigur. Hafsteinn Ingibergsson
skoraði mest fyrir IBK eða 11
mörk, þar af 6 úr vítum. Þessi
sigur IBK var athyglisverður þar
sem Valsmenn unnu Bandaríkja-
mennina aðeins með einu marki.
Hafsteinn Ingibergsson og
Gísli Jóhannsson voru í sínu
stærsta dómarahlutverki til
þessa, þegar þeir dæmdu leik
unglingalandsliðsins og USA í
síðustu viku. Þeir hafa hingað til
dæmt í 2. og 3. deildinni.
..Ætlum að klára dæmið"
- segir Guðjón Guðmundsson, fyrrrliði Víðis
Víðismenn unnu stórsigur á
Breiðabliki í Garðinum á laug-
ardag, sigruðu með ftmm
mörkum gegn tveirhur. Það
var Guðjón Guðmundsson er
kom Víðismönnum á bragðið
strax á fyrstu mínútum leiks-
ins með góðu marki. Grétar
Einarsson fylgdi á eftir með
annað mark og Svanur Þor-
steinsson skoraði það þriðja.
Grétar bætti síðan um betur og
skoraði fjórða Viðismarkið.
Blikum hafði tekist að minnka
muninn niður í 4:2 þegar Vil-
berg Þorvaldsson sólaði upp
allan völlinn og renndi boltan-
um í mark Blikanna, 5:2.
Víðismenn fengu á sig tvær
vítaspyrnur í leiknum og aðra
þeirra varði Gísli Heiðarsson
markvörður glæsilega.
Þessi sigur Víðismanna
dugði þó skammt því Eyja-
menn báru sigurorð af Éin-
herja frá Vopnafirði og eru
enn einu stigi yfir Víðismönn-
um, þegar ein umferð er eftir í
deildinni. „Þaðerennþáfræði-
legur möguleiki á að komast í
1. deild ef við vinnum næsta
leik og Eyjamenn tapa eða ná
jafntefli. Ég er ekki alltof
bjartsýnn á að Eyjamenn tapi,
en við treystum á lukkuna og
munum klára okkar dæmi,“
sagði Guðjón Guðmundsson,
fyrirliði Víðis, í samtali við
blaðið.
Víðismenn leika síðasta
leikinn í deildinni á laugardag
gegn Selfossi fyrir austan og
hefst leikurinn kl. 14.
Hampar UMFG bikarnum?
Það ræðst á laugardaginn hvort
það verða Grindvíkingar eða Sigl-
firðingar sem hampa deildarbikarn-
um fyrir 3. deildina þetta árið.
Fyrri viðureign liðanna endaði
með jafntefli í Grindavík sl. laugar-
dag, 2:2. Úrslitin voru nokkuð
óvænt, þvi Grindvíkinga vantaði sex
leikmenn í fastalið sitt, sem staddir
voru á erlendri grundu. Þrátt fyrir
leikmannaskortinn voru Grindvík-
ingar þó nærri því að tryggja sér sig-
ur í leiknum. Hallgrímur Sigurjóns-
son og Ólafur Ingólfsson skoruðu
mörk UMFG í leiknum.
Seinni leikurinn verður háður á
Siglufirði.
Amerískur billiard á
Knattborðsstofuna
Nú hafa verið sett upp fjög-
ur borð fyrir amerískan bill-
jard á Knattborðsstofu Suð-
urnesja. Eru þetta svonefnd
púll-borð, sem margir ættu að
kannast við af „vellinum“.
Börkur Birgisson sagði að
önnur fjögur borð kæmu
seinna í vetur. Myndi fækka
um tvö snóker-borð en nýr
salur verður einnig opnaður
inn af núverandi snókersal.
Sagði Börkur að haldin
yrðu ásamót einu sinni í viku
í vetur og í janúar á næsta ári
eru tveir heimsmeistarar í
snóker væntanlegir í heim-
sókn, þeir Alan Higgins og
Steve Davis, þannig að það
verður mikið um að vera á
Knattborðsstofu Suðurnesja
á komandi vetri.
Hefurðu áhuga á útiveru? - Viltu í hjálparsveit?
Hjálparsveit skáta í Njarðvik
stendur fyrir kynningarfundi í
húsi sveitarinnar næsta mánu-
dagskvöld 18. sept. kl. 20.30, að
Holtsgötu 51 í Njarðvík. Þar
verða teknir inn nýliðar í sveit-
ina.
Af því tilefni er nú kallað eftir
hressu fólki sem hefur áhuga á
útiveru og er jafnframt tilbúið til
að leggja góðum málstað lið.
Hafa ber í huga að það er ekki
skilyrði að viðkomandi sé skáti,
aðeins að hann hafi áhuga.
Ollum er því heimilt að koma
á fundinn og kynna sér þar með
starf sveitarinnar.
Eruð þið stíf eða „stressuð“?
Veldur vöðvabólgan þér andvökunóttum?
Ef þú ert þjáð(ur) getur þú lagt leið þína í
íþróttamiðstöð Njarðvíkur og fengið nudd
eða svæðanudd. Nudd stuðlar að betri
líðan! Hringdu í Iþróttamiðstöðina (s.
12744 eða 14567) og pantaðu tíma.
Sjáumst hress,
Ingibjörg Aradóttir, nuddkona.
^Artline Kynning föstudag
kl. 13-18.
Nýr skrautskriftapenni, túss-
pennar og fleiri nýjungar.
'föókabúb fKeflavíkur
DAGLEGA I LEIÐINNI
ArtlimgOO JS.
\rUwH'250