Víkurfréttir - 14.09.1989, Side 20
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1989
UPPLRC5
EFWUT
Eina blaðið á
Suðurnesjum
ORMAT-VIRKJUNIN I SVARTSENGI:
Tímamðt í sögu Suðurnesja
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra ræsti strompgufuvirkjunina form-
lega. Ljósm.: hbb.
„Það er óhætt að segja, að
sú athöfn sem hér fer fram í
dag, marki tímamót í sögu
Hitaveitu Suðurnesja og þá
um leið byggðarlaganna á
Suðurnesjum. Þá er ekki síð-
ur hægt að segja að þessi at-
höfn sé merkileg í virkjunar-
sögu íslendinga, þar sem nú
er í fyrsta skipti á Islandi tek-
in í notkun svokölluð
strompgufuvirkjun.“ Svo
komst Omar Jónsson,
stjórnarformaður Hitaveitu
Suðurnesja, að orði við gang-
setningu ORMAT-virkjun-
arinnar í Svartsengi síðasta
föstudag.
Þá kom m.a. fram í erindi
Omars að hver hinna þriggja
ORMAT-hverfla, sem nú
hafa verið teknir í notkun,
hefur framleiðslugetu upp á
1,24 MW. Þar af fara 1,2
MW út í raforkunetið til
notkunar á orkuveitusvæði
Hitaveitu Suðurnesja eða
samtals 3,6 MW. Þau bætast
við þau 8 MW sem fyrir
voru, þannig að nú er heild-
arframleiðslan tæp 12 MW,
en þar af eru tæplega tvö til
eigin nota. Annarframleiðsl-
an í Svartsengi rúmlega 40%
af aflþörf svæðisins í dag, en
hún fer sífellt vaxandi.
Fegrunarnefnd Miðnes-
hrepps hefur úthlutað verð-
launum fyrir fegursta garð-
inn í sveitarfélaginu 1989.
Komu verðlaun þessi í hlut
Ásu Arnlaugsdóttur að Tún-
götu 9 í Sandgerði.
Mjög fjölbreytt úrval
blóma og trjátegunda er í
garðinum og má finna þar
um 200 tegundir, en þar af
eru um 40 tegundir af runn-
um.
Verðlaunagarðurinn í Miðneshreppi 1989 er i eigu Ásu Arnlaugsdóttur og er mjög fjölbreytilegur að
sjá.
Toguðu
niður
fánastöng
Þrír voru handteknir á
Fitjum í Njarðvík um síðustu
helgi við skemmdarverk.
Höfðu þeir losað snærið af
fánastöng og bundið í bíl og
þannig togað niður fána-
stöng og brotið hana. Jafn-
framt rifu þeir niður fána.
Vélstjór-
ar semja
á ný
Vélstjórafélag Suðurnesja
hefur samið á ný við viðsemj-
endur sína varðandi frysti-
húsavélstjóra, en fyrri samn-
ingur aðila var felldur ein-
róma á fundi í félaginu.
Hljóðar hinn nýi samning-
ur upp á nokkrar orðalags-
breytingar frá j)eim samn-
ingi sem var felldur.
Asa fékk fegurðar-
verðlaunin í Sandgerði
TRÉ-XINNIHURÐIR
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SÍMI 14700
Stolinn
bíll
fannst
óskemmdur
Bifreið var stolið í Kefla-
vík á sunnudagskvöldið.
Fannst hún skömmu síðar
annars staðar í bænum,
óskemmd með öllu. Var það
ættingi eigandans sem fann
bílinn en þá hafði þjófnaður-
inn verið kærður til lögregl-
unnar.
Réttir að
hefjast
Á sunnudag og mánudag
gefst Suðurnesjamönnum
kostur á að komast í réttir
hér á Suðurnesjum. Réttað
verður á tveimur stöðum eins
og venjulega, þ.e. í Grinda-
vík og inn á Vatnsleysu-
strönd.
Þeir í Þórkötlustaðarétt
við Grindavík rétta næsta
sunnudagskvöl en bændur á
ströndinni rétta í Vogarétt
að morgni næsta mánudags.
Sofnaði inni
í búðinni
Um síðustu helgi álpaðist
ölvaður kvenmaður inn í
Studeo við Hafnargötu að
nóttu til og sofnaði. Hafði
rúða áður verið brotin af öðr-
um aðila. Ekki voru neinar
skemmdir unnar á verslun-
inni við þessa heimsókn.
MUNDI
Má ekki bara afhenda
koppa við innganginn?