Morgunblaðið - 07.11.2015, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 07.11.2015, Qupperneq 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015 ✝ Stefán Jóhannfæddist í Reykjavík 17. sept- ember 1937. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Vestur- lands á Akranesi 28. október 2015. Foreldrar Stef- áns voru Sigurður Einar Stefánsson f. 19.9. 1914, d. 13.9. 1974, og Vilborg Sigurðardóttir, f. 5.8. 1909, d. 16.6. 1942. Bróðir hans var Sigurður, f. 16.8. 1935, d. 16.12. 2000. Stefán Jóhann kvæntist 11.7. 1959 Guðrúnu Alexandersdóttur frá Stakkhamri, f. 14.8. 1935. For- eldrar hennar voru Alexander Guðbjartsson, f. 5.3. 1906, d. 23.4. 1968, og Kristjana Bjarnadóttir, f. 10.11. 1908, d. 25.11. 1982. Stefán Jóhann og Guðrún eign- uðust þrjú börn. 1) Magnús, bæj- arstjóri og fyrrv. ráðherra og al- þingismaður, f. 1.10. 1960, eiginkona Sigrún Drífa Óttars- dóttir, f. 9.6. 1965. Börn þeirra Guðrún, f. 2.10. 1987, og Guð- mundur, f. 10.6. 1991. 2) Vilborg Lilja, deildarstjóri við Grunn- skóla Snæfellsbæjar, f. 2.3. 1965, félags Íslands 1968 og svæð- isstjóri VÍS 1989-1998. Hann starfaði sem skrifstofustjóri Fé- lags-og skólaþjónustu Snæfell- inga 2000-2009. Stefán Jóhann vann alla tíð ötullega að félagsmálum og sam- félagsverkefnum. Hann sat fyrst í stjórn UMF Reynis Hellissandi 15 ára, var gæslumaður Barna- stúkunnar Ennisfjólu í Ólafsvík 1964-1978, í kirkjukór Ólafsvík- urkirkju frá 1978 og í sókn- arnefnd kirkjunnar þar sem hann var um tíma formaður. Stofnfélagi Rótarýklúbbs Ólafs- víkur 1968. Starfaði lengi í UMF Víkingi og sat í stjórnum félags- ins, var í Björgunarsveitinni Sæ- björgu og í slökkviliði Ólafs- víkur, þar af slökkviliðsstjóri í nokkur ár. Var virkur þátttak- andi í félagsstarfi eldri borgara, söng tenór í karlakvartettinum Hinum síungu sem voru bæj- arlistamenn Snæfellsbæjar 2013. Stefán Jóhann var um árabil í hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps og bæjarstjórn Ólafsvíkurkaup- staðar, var fyrsti forseti bæjar- stjórnar 1982-1986 og vann að sameiningu sveitarfélaganna í Snæfellsbæ 1994. Stefán Jóhann var virkur í Framsóknarflokkn- um frá um 1960, var um árabil í Miðstjórn flokksins og í framboði fyrir flokkinn í alþingiskosn- ingum 1991. Útför Stefáns Jóhanns fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 7. nóvember 2015, kl. 14. eiginmaður Eiríkur Leifur Gautsson, f. 23.10. 1968. Börn þeirra Jóhann, f. 20.7. 1993, og Anna Kara, f. 19.9. 1997. Áður átti Vilborg Lilja soninn Hilmar, f. 15.6. 1988. 3) Sig- ríður hjúkr- unarfræðingur, f. 11.12. 1968, eig- inmaður Halldór Gunnar Ólafsson, f. 15.6. 1972. Börn þeirra Guðrún Anna, f. 5.12. 1996, Páll, f. 18.3. 1999, og Ólaf- ur, f. 7.6. 2003. Áður átti Guðrún dótturina Kristjönu Halldórs- dóttur húsmóður, f. 11.8. 1956, eiginmaður hennar er Svanur Aðalsteinsson, f. 1.7. 1954, börn þeirra Stefán Jóhann, f. 25.4. 1978, og Agnes, f. 25.2. 1983. Stefán Jóhann ólst upp á Hell- issandi, flutti til Ólafsvíkur árið 1957 og nam húsasmíði, varð húsasmíðameistari 1968 og vann við fjölmargar bygginga- framkvæmdir. Starfaði sem lög- reglumaður 1963-1968, stofnaði og rak Verslunina Vík 1968-1974 ásamt Vigfúsi Kr. Vigfússyni, rak steypustöðina Bjarg 1974-1984. Varð umboðsmaður Brunabóta- Eftir samfylgd okkar feðga í 55 ár liggja margar minningar. Ég var heppinn að eiga hann sem föð- ur; mannkostir hans, hugarfar og framganga öll hefur verið mér og fjölskyldunni góð fyrirmynd. Við fráfall hans leitar hugurinn yfir farinn veg og þegar farið er yfir lífshlaup hans er ótal margt sem vert væri að nefna og halda til haga. Hann ólst að mestu upp á Hell- issandi hjá Kristjönu ömmu sinni, Lilju móðursystur og manni henn- ar Magnúsi. Hann missti móður sína af barnsförum þegar hann var aðeins fjögurra ára gamall. Móð- urmissirinn mótaði hann á sinn hátt, undir niðri lá söknuðurinn eftir móðurinni alla tíð. Foreldrar mínir kynntust og gengu í hjónaband árið 1959; þau hafa átt einstaka, kærleiks- og hamingjuríka samfylgd alla tíð frá fyrstu kynnum. Þau hófu búskap í Ólafsvík hjá vinum sínum Vigfúsi og Herdísi í Bæjartúninu. Faðir minn varð byggingarmeistari og tilheyrði hópi öflugra manna sem báru hitann og þungann af mikilli uppbyggingu í Ólafsvík á 7. og 8. áratug síðustu aldar, með miklum framkvæmdum og stórhug. Alla tíð gaf hann mikið af sér í félagsstörfum og samfélagslegum verkefnum. Honum var sérlega umhugað um hag barna og ung- menna og um árabil héldu foreldr- ar mínir utan um blómlegt starf barnastúkunnar. Hann var mikill ungmennafélagsmaður og starfaði mikið og lengi í UMF Víkingi og HSH. Hann var mikill kirkjunnar maður, söng um árabil í kirkjukór Ólafsvíkurkirkju og lagði af mörk- um mikið starf í þágu kirkjunnar. Hann átti ánægjulegan tíma með vinum sínum í kvartettinum Hinir síungu, sem veitti mikla ánægju og dýrmætan félagsskap. Þá má nefna áralanga þátttöku hans í stjórnmálum; hann var um árabil fulltrúi í sveitarstjórn og ýmsum nefndum sveitarfélagsins, auk þess að vera lengi virkur félagi í Framsóknarflokknum. Fjölmargt mætti nefna um lífs- hlaup föður míns. Hann var lifandi dæmi um einstakling sem er sam- félagi sínu dýrmætur á margan hátt. Hann lagði mikið af mörkum og tók mikinn þátt í lífi og starfi samborgaranna, auk þess að beita sér fyrir framförum og uppbygg- ingu í sínu samfélagi. Hann lyfti sjálfum sér aldrei yfir aðra né sló sér upp á kostnað annarra, oft var því öfugt farið. Hann var traustur vinur. Við fjölskyldan kveðjum nú ást- kæran föður sem hefur alla tíð um- vafið fjölskyldu sína ást, kærleika og umhyggju. Hann barðist við ill- vígan sjúkdóm, kveinkaði sér aldr- ei og aðspurður sagðist hann alltaf líða vel vel og hafa það gott þrátt fyrir að við vissum betur. Hann stundaði daglegar gönguferðir og tók virkan þátt í samfélaginu fram á síðasta dag. Hann lést á sjúkra- húsinu á Akranesi umvafinn ást og kærleika. Á sjúkrahúsinu naut hann einstakrar alúðar starfsfólks sjúkrahússins og fyrir það færi ég hjartans þökk. Við fjölskyldan munum njóta minninga um einstakan mann, í þeim felst fyrirmynd sem mun varða lífsins veg hjá afkomendum hans um ókomin ár. Ég þakka föð- ur mínum samfylgdina og allt sem hann hefur gefið mér og fjölskyldu minni. Ég bið Guð að veita móður minni og fjölskyldunni allri styrk í sorginni og vaka yfir henni. Magnús Stefánsson. Elsku pabbi hefur fengið hvíld eftir hetjulega baráttu við krabba- meinið sem greindist í honum fyrir rúmum sex árum. Hans beittasta vopn í baráttunni var jákvæðni og dugnaður. Það var lærdómsríkt að fylgja honum í sjúkdómsferlinu síðustu misserin. Hann var svo lánsamur að hafa ástina sína hana mömmu sér við hlið, það var ynd- islegt að fylgjast með hve þau studdu hvort annað af mikilli ástúð og umhyggju. Þeirra lífssýn fólst í því að gera gott úr öllu, taka því sem að höndum bar af æðruleysi og finna farsæla lausn á viðfangs- efnum hversdagsins. Minningarnar eru ótal margar og góðar sem leita á hugann þegar yndislegur vinur og frábær fyrir- mynd fellur frá. Það var alltaf gott að leita til hans ef við þurftum að- stoð, jafnt á íþróttamóti sem ann- ars staðar. Hann var algjör þús- undþjalasmiður og gott að eiga hann að hvort sem verkefnin voru stór eða smá. Hann fann alltaf lausnir á sinn jákvæða hátt. Ég minnist pabba sem heiðar- legs, ljúfs manns sem kastaði sjaldan rýrð á fólk en sýndi mönn- um og málefnum jafnan einlægan áhuga, leit á samferðafólk sitt sem vini sína, var vingjarnlegur í við- móti og fékk það oftast endurgold- ið. Þá var hann hugsjónamaður sem taldi ekki eftir sér að leggja ómældan tíma og orku í sjálfboða- vinnu við hin ýmsu samfélagsverk- efni. Pabbi var alltaf ákveðinn í að láta sjúkdóminn ekki stjórna lífi sínu og sneri þannig vörn í sókn. Hann stundaði sund, gekk lengri og styttri vegalengdir úti í nátt- úrunni, spilaði boccia með eldri borgurunum og sinnti hlutverki sínu í kirkjukórnum af miklum metnaði, enda góður söngvari. Hann söng í kvartett með Hinum síungu vinum sínum, hann yngstur en sá elsti 90 ára. Valentína hélt hópnum saman með æfingum og undirleik. Sumarið 2010 örkuðum við Laugaveginn ásamt yndislegum hópi fólks á vegum Ferðafélags Ís- lands. Ferðin tók fimm daga sem eru með þeim bestu sem ég hef upplifað. Að takast á við náttúruna og njóta hennar á sama tíma, í samvistum við þennan mikla bar- áttujaxl. Sumarið 2011 tók hann helgarfrí í miðri geislameðferð og rölti með okkur Fimmvörðuháls- inn, tveggja daga ferð sem endaði í Þórsmörk þar sem mamma tók á móti okkur ásamt fríðu föruneyti. Í miðri krabbameinsmeðferð árið 2013 var leitað eftir þátttöku pabba í alþjóðlegu rannsóknar- verkefni sem miðar að framleiðslu lyfja við krabbameini. Í samráði við ástina sína tók hann fyrstur Ís- lendinga ákvörðun um þátttöku í verkefninu, með það að leiðarljósi að láta gott af sér leiða. Verkefninu fylgdu aukin ferðalög til Reykja- víkur, ásamt allskyns óþægindum og óvissu. Ég er mjög stolt af þátt- töku hans í því. Öllu því góða fólk sem hefur stutt foreldra mína í veikindaferl- inu færi ég bestu þakkir. Það er ómetanlegt að eiga góða að og gott viðmót er ígildi bestu lyfja. Fyrir hönd Eiríks og fjölskyldu okkar færi ég hjartans þakkir fyrir allt, elsku pabbi, minningin um kærleiksríkan og vandaðan mann mun lýsa okkur veginn í framtíð- inni. Elsku mamma, missir þinn er mikill en við stöndum þétt við bak- ið hvert á öðru hér eftir sem hing- að til. Þín dóttir, Lilja. Ástkær tengdafaðir minn, Stef- án Jóhann Sigurðsson, er fallinn frá eftir erfið veikindi. Hann hefur alla tíð verið mér eins og pabbi, allt frá æskuárum mínum þegar við Lilja vorum óaðskiljanlegar vin- konur og síðar þegar hann var orð- inn tengdafaðir minn. Jói, eins og hann var kallaður, hefur alltaf sýnt börnum og unglingum einstaka al- úð. Hann og Guðrún sáu um starf Barnastúkunnar Ennisfjólu þegar ég var barn og það var okkur krökkunum mikils virði, mikið gaman og mikið fjör. Sem barn og unglingur fékk ég alltaf að vera með Jóa og Guðrúnu og þeirra börnum á sundmótum og íþrótta- mótum, ég var eins og ein af fjöl- skyldunni. Jói skynjaði alltaf ef eitthvað var ekki í lagi, þá kom hann til aðstoðar og hélt utan um mig, hann stóð alltaf eins og klett- ur við bakið á mér og okkur krökk- unum. Ég þakka Jóa tengdapabba fyr- ir allt. Hann hefur alla tíð verið fjölskyldunni stoð og stytta, alltaf sýnt okkur og börnunum einstaka alúð og stuðning, það er ómetan- legt. Guð blessi minningarnar um einstakan og góðan mann, minn- ingar sem munu lifa með okkur til framtíðar. Drífa. Sjúkrastofan er full af áhyggju- fullum elskandi aðstandendum. Fársjúkur maðurinn liggur og sef- ur djúpum svefni. Öllum er ljóst í hvað stefnir. Tilhugsunin er vond en því miður óhjákvæmileg í ljósi aðstæðna. Síðan opnar Jói augun. Aðstandendur ná loksins sam- bandi við hann og spyrja um líðan og hvort eitthvað sé hægt að gera fyrir hann? „Nei, það er allt í lagi með mig,“ er svarað veikum mætti og síðan nikkað með gamalkunn- um hætti. Síðan færist hinn djúpi svefnhöfgi aftur yfir. Þessi sviðsmynd lýsir í raun tengdaföður mínum vel. Hann var ekki maður sem bjó til mikil vandamál. Hann var maður sem alltaf var með lausnir á reiðum höndum og skipti þá nánast ekki máli hvert viðfangsefnið var. Hann tók að sér að smíða og laga alla mögulega hluti og losa barnabörn undan „flugeldafælni“ svo eitthvað sé nefnt. Líklega hefur hann þurft að vera úrráðagóður þegar hann starfaði við löggæslu í Ólafsvík á þeim árum sem vetrarvertíðir stóðu undir nafni. Þá var líf í tusk- unum en aldrei slitnaði tala í skyrt- unni hjá Jóa löggu. Hann hafði lag á að tala menn til. Æðruleysi, jákvæðni, prúð- mennska og lífsgleði voru honum í blóð borin og því hafði hann æv- inlega hlýja og þægilega nærveru. Ég er sannfærður um að þessir eiginleikar bættu nokkrum árum við ævi Jóa eftir að hann byrjaði glímuna við ólukkans krabbamein- ið. Kannski bjó hann yfir þessum góðu eiginleikum einfaldlega af því að það var honum nauðsynlegt frá unga aldri. Það hefur örugglega ekki verið einfalt fyrir tæplega fimm ára snáða að þurfa að sjá á eftir móður sinni. Hann var hepp- inn að lenda hjá góðu fólki. Framkvæmdagleði var mjög rík í Jóa. Hann var alltaf með einhver verkefni í gangi og eflaust hafa flest félagasamtök í Ólafsvík notið krafta hans á einhvern hátt í gegn- um tíðina. Honum var annt um samfélag sitt og sýndi það svo sannarlega í verki. Einstaklega skemmtilegt var að fá tækifæri til þess að ganga bæði Laugaveginn og yfir Fimmvörðu- háls með Jóa. Ég veit að hann hafði sjálfur mjög gaman af þessum ferðum og ótrúlegt var að upplifa kraftinn í manninum sem þá var byrjaður að kljást við krabbamein- ið. Honum var svo sannarlega ekki fisjað saman. Ekki er hægt að minnast Jóa án þess að nefna söng. Kannski er hægt að halda fram að hann hafi sungið sig í gegnum lífið. Unaðs- legt var að fylgjast með starfi þeirra „Síungu“ enda gefnir út geisladiskar og hvergi slegið af þrátt fyrir nokkuð háan meðalald- ur kvartettmeðlima. Kirkjukór Ólafsvíkur hefur eflaust misst mik- ið enda notið krafta hans í áratugi. Nú syngur Jói í Sumarlandinu. Kæra tengdafjölskylda, missir okkar er mikill. Stórt skarð hefur verið höggvið í hópinn. Skarð sem við með samheldni verðum að reyna að fylla. Stefán Jóhann var einstakur maður og sem betur fer eigum við öll dásamlegar minning- ar til þess að hjálpa okkur í sorg- inni. Takk fyrir mig. Halldór Gunnar Ólafsson. Elsku afi minn, ég kveð þig með miklum söknuði. Ég er stoltur af því að hafa átt þig sem afa því betri maður er vandfundinn. Ég þakka þér fyrir allt sem þú kenndir mér og gafst mér, alltaf varstu fullur af kærleika og væntumþykju og vildir alltaf að okkur í fjölskyldunni gengi sem best. Þú varst minn helsti stuðningsmaður í fótboltan- um og vildir alltaf vera upplýstur reglulega um hvernig mér gengi og hvað ég ætlaði að gera í næsta leik. Fyrir það er ég þér afar þakklátur. Þú varst ofurhetja og um leið hörkutól. Það var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig þú tókst á við veikindin sem þú glímdir við. Ég mun hugsa til þín og reyna að læra af því hvernig þú tókst á við lífið, með því að hugsa jákvætt og uppbyggilega og leita lausna á mál- um sem upp koma. Elsku afi minn, ég elska þig og lofa að hugsa vel um ömmu og alla í fjölskyldunni. Ég á margar góðar minningar um þig, sem ég mun varðveita og hafa sem leiðarljós. Guð varðveiti þig og all- ar minningarnar um þig, afi minn. Ég minnist þín með kökk í hálsi, mun sakna þín um ókomna tíð. Nú flýgur þú syngjandi engill minn frjálsi, rödd þin svo fögur og blíð. Guðmundur og Thelma Björk. Elsku afi minn er nú farinn frá okkur. Eftir sitja margar góðar minningar sem ótrúlega gott er að rifja upp þegar sorgin bankar upp á. Síðasta skiptið sem ég talaði við afa í síma var á afmælisdaginn minn 2. október. Þá gerði hann eins og hann hefur gert alla mína af- mælisdaga, söng fyrir mig afmæl- issönginn. Það verður skrýtið að fá engan söng frá honum næst þegar ég á afmæli, símtölin frá honum og ömmu voru fastur punktur á af- mælisdeginum. Þegar ég hugsa um hann afa minn kemur fyrst í huga mér já- kvæðni. Næst á eftir eru það gleði, vinátta og ósvikin umhyggja. Hann var einn af þessum sem kyssti mann beint á kinnina frekar en að leggja kinn sína við mína og kyssa út í loftið. Hann var alltaf tilbúinn að leyfa okkur krökkunum að vera með í því sem hann gerði. Hann kenndi mér á smíðaverkfærin sem voru úti í bílskúr, kenndi mér að hreinsa beðin úti í garði og smitaði út frá sér garðyrkjuáhuganum. Hann varð fyrstur manna til að fara út í snjóinn og búa til snjóhús bakvið Engihlíð 8. Með hans hjálp urðu að veruleika þvílíkar snjóhallir með göngum og mörgum herbergjum, okkur krökkunum til ómældrar gleði. Það var ekki langt í leikinn hjá honum afa, alltaf svo léttur í lund. Afi minn, þú varst einstakur maður sem ég mun alltaf hugsa til með hlýhug. Þú verður alltaf mín fyrirmynd þegar kemur að já- kvæðni og hlýleika. Það er dýr- mætt að hafa fengið að alast upp með þig nálægt. Ég verð alltaf þakklát fyrir það. Ég veit að þú, afi minn, trúðir því að þú færir á betri stað þegar veru þinni hjá okkur væri lokið. Hver veit nema að texti lagsins Heimkoman endurspegli það sem þú hefur nú upplifað á nýja staðn- um, en þetta lag minnir mig alltaf á þig. Já, þau taka öll mér aftur opnum örmum og með tár á hvörmum er kem ég heim í kæra dalinn minn. Takk fyrir allt, afi minn, hvíldu í friði. Guðrún Magnúsdóttir. Elsku afi minn. Það var svo gott að koma til ykk- ar ömmu. Ég kom stundum og var einn hjá ykkur í nokkra daga. Það var alltaf svo gaman því að ég og þú fórum á hverjum degi saman í sund. Þegar ég átti að fara að sofa á kvöldin og var á dýnu hjá ykkur ömmu sagðir þú mér alltaf svo skemmtilegar sögur af Bárði Snæ- fellsás. Stundum söngstu lög fyrir mig og Maístjarnan er ofarlega í huga. Þú varst mjög fróður um allt mögulegt og sýndir mér staði sem atburðirnir höfðu gerst á. Einnig kenndir þú mér svo margt sem ég vissi ekki, t.d. um jólin og páskana. Þegar þú fórst í gönguferðir bauðstu mér alltaf með og stund- um fór amma líka. Þá spjölluðum við um allt milli himins og jarðar. Þetta sýnir hvað þú varst yndis- legur maður og afi. Ég á aldrei eftir að gleyma hvað þú varst alltaf já- kvæður. Hér er ljóð um þig sem ég skrifaði fyrir nokkrum árum sem lýsir þér mjög vel. Afi í Ólafsvík Hann afi minn í Ólafsvík er rosalegt íþróttafrík. Þó hann sé veikur þá er hann ekkert smeykur. Þegar við erum saman þá er alltaf gaman. Hann er alger töffari ég vona að krabbameinið fari. Elsku afi, ég sakna þín svo mik- ið. Þú munt alltaf verða mín fyr- irmynd. Ég vona að þér líði vel á nýjum stað. Þinn Ólafur Halldórsson (Óli). Jæja, elsku afi, nú er þinn tími með okkur á enda og vil ég því byrja á að þakka þér fyrir allt það sem þú varst fyrir mér. Það eru nefnilega ekki allir eins heppnir og Stefán Jóhann Sigurðsson Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19  210 Garðabær sími 842 0204  www.harpautfor.is Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.