Morgunblaðið - 07.11.2015, Page 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015
Nýr Sproti með viðarfótum - ýmsir litir í boði
STOFNAÐ 1956
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
s: 510 7300
www.ag.is
Sproti 405
Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú verður verðlaunuð(aður) fyrir
djarflega ákvarðanatöku. Ef þú treystir þér
ekki til þess að segja „nei“ skaltu að minnsta
kosti prófa að segja „kannski“.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert í góðum samböndum og ættir að
notfæra þér þau til að koma góðum málum á
framfæri. Loksins losnarðu undan byrði sem
hefur lengi hvílt á þér og framtíðin virðist
bjartari fyrir vikið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú sérð framtíðina frá nýrri hlið
sem þú hefur aldrei nokkurn tímann séð áð-
ur. Vertu bjartsýn(n) og opnaðu vasana.
Leggðu áherslu á að umgangast aðeins já-
kvætt fólk.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Yfirmaður þinn eða annar áhrifamikill
einstaklingur mun hugsanlega koma þér
ánægjulega á óvart í dag. Fólk hreinlega elsk-
ar klikkaða húmorinn þinn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt einhverjir kasti að þér hnútum í
dag skaltu láta sem ekkert sé. Farðu mjög
varlega með upplýsingar sem þú veitir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Kortið sem blasir við þér virðist allt
öðruvísi en uppdrátturinn sem þú notaðir fyrr
á þessu ári. Láttu á það reyna hvers þú ert
megnug(ur) út á við þegar upp er staðið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að ofmetnast ekki nú þegar
allir vilja hrósa þér fyrir árangur þinn í starfi.
Enginn er fullkominn og þú ekki heldur svo þú
skalt bara herða upp hugann og halda áfram.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú skalt gera plön um að bjóða
vinum eða fjölskyldu í heimsókn síðar í vik-
unni. Gerðu nýstárlega hugmynd opinbera.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Umhverfið hefur enn meiri áhrif á
sálarlífið en vanalega. Taktu upp tólið og
æfðu þig að segja sögu þína, biðja um greiða
og hrista upp í hlutunum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það gæti komið sér vel fyrir þig að
ræða málin við vinkonu þína í dag. Undirbúðu
þig vel svo ekkert fari nú úrskeiðis þegar á
hólminn er komið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Allt sem viðkemur heimili og fjöl-
skyldu er algerlega í brennidepli um þessar
mundir. Sígandi lukka er best og því eru allar
sviptingar til lítils þegar upp er staðið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hláturinn lengir lífið og það er mikil
guðsgjöf að geta séð spaugilegu hliðar tilver-
unnar. Margir möguleikar eru í stöðunni en
aðeins fáir þeirra raunhæfir.
Síðasta gáta var þannig og semendranær eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Gjörvallan ég geiminn sé.
Getur táknað vegalengd.
Þangað upp ég þrepin sté.
Þef oss látið fær í té.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Oft upp í loft ég góni á geim.
Gjarna loftleið farin er.
Fer upp á loft í þrepum þeim.
Þefinn loftið flytur mér.
Árni Blöndal á þessa lausn:
Geimrúmið tel ég hið ljúfasta loft.
Lofthaf er lengd, frá hamranna brúnum.
Þrepin ég not’a ef ég, þýt uppá loft.
Þefur í lofti af mykju á túnum.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Loft um jörðu lítur allan geiminn.
Loftþrýstingur sýnir hæð frá jörð.
Upp á loft má þræða þrepin, dreymin.
Þeytir loft oft fýlu um nasabörð.
Og bætir við „innblásið af þessu“:
Geimfarið þaut út í geiminn,
af góðmennsku hleypt var þó tveim inn,
og hundsins hvoftur
og Helgi Loftur
af hamingju drógu víst seiminn.
Hér er skýring Guðmundar:
Loft er himins heiðið blátt.
Hefur loftið óravídd.
Upp á loft þú labba mátt.
Loftið vont þá kennir brátt.
Og limra í kjölfarið:
Þóroddur Þingeyingur
þaninn af lofti syngur,
það verður smellur
og þrumuhvellur,
þegar í loft upp hann springur.
Að lokum er hér ný gáta eftir
Guðmund, sem hann lætur
„flakka“:
Geymdir voru gripir þar.
Gangstígur til bæja lá.
Stétt í fjósi fyrrum var.
Fanga þarna hrossin má.
Einar E. Sæmundsen segir í
grein í Eimreiðinni að víst sé um að
þessi vísa sé kveðin á hestbaki.
Höfundur hennar er talinn að vera
Nikulás skáldi, Húnvetningur:
Höldum gleði hátt á loft,
helst það seður gaman.
þetta skeður ekki oft
að við kveðum saman
Gömul vísa í lokin:
Held ég mesta heimsins lyst
hesti að ríða bráðum,
sofa hjá ungri seima rist
og sigla byr í náðum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ýmis teikn eru á lofti
Í klípu
„FYRIRGEFÐU – ÉG RANN. SAGAN
ÞÍN FÉKK MIG BÓKSTAFLEGA TIL AÐ
IÐA Í SÆTINU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ÆTLA AÐ FARA AÐ BIÐJA BÆNIRNAR
MÍNAR. VANTAR ÞIG EITTHVAÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann lætur þér
finnast þú einstök.
VIT
RIN
GUR
VIT
RIN
GUR
VITRINGUR
SKELLÆÆÆÆÍÍÍÍÍÍÍ
SJÁÐU! SNATI ÞEFAÐI UPPI
VETTLINGINN SEM ÉG TÝNDI
SÍÐASTA VETUR!
SNATI ER MEÐ
ÓTRÚLEGT
ÞEFSKYN!
JÁ… ÞAÐ ER NÆSTUM ÞVÍ JAFN
GOTT OG ÞOL HANS FYRIR
LYKTINNI AF ÖÐRUM!
Hrekkjavakan hefur skotið rótumá Íslandi. Það er staðfest því
Víkverji er farinn að taka þátt í
þessu enda á hann eitt lítið afkvæmi
sem þykir með eindæmum skemmti-
legt að klæða sig upp í búning.
Þar sem Víkverji leggur áherslu á
kurteisi í uppeldinu þá hagar barnið
sér að sjálfsögðu í takt við þær
væntingar.
„Þá þurfum við að láta pabba mála
mig. Við förum bara til hans áður en
við förum í partíið og hann málar
mig. Þú þarft bara að æfa þig svolít-
ið meira,“ sagði krílið undurblítt,
strauk vanga Víkverja um leið og
það setti ákveðið hendur á mjaðmir.
x x x
Allt fyrir börnin. Málningunni ogbúningnum var skutlað í bílinn
og krakkanum líka. Hann fór að vísu
ekki skottið og brunað var að hitta
flinka föðurinn sem málaði barnið
listilega.
x x x
Ástæðan fyrir því að Víkverji hef-ur tekið þátt í hrekkjavökunni
er sú að honum hefur verið boðið í
hrekkjavökupartí. Á þessu ári var
honum boðið í tvö partí, annað fyrir
börn og hitt fyrir fullorðna. Víkverji
á erfitt með að slá hendinni á móti
góðu partíi og þáði því boðið með
þökkum.
x x x
Partíin tvö voru hreint út sagt ein-staklega skemmtileg og mikið
var lagt í alla umgjörð. Sá sem hélt
herlegheitin er heldur ekki þekktur
fyrir að draga lappirnar þegar kem-
ur að umgjörð, föndri og öðru slíku.
Með þessu er Víkverji ekki að segja
að umrædd manneskja fari beint
fram úr sér heldur þarf alltaf að taka
allt með trompi. Umgjörðin stóð al-
gjörlega undir væntingum og partí-
haldarinn (sem er skelfilegt orð en
nota það samt) á heiður skilinn fyrir
framtakið.
x x x
Víkverji þurfti að bíta í það súraepli að mála sig sjálfur fyrir
partíið. Hann er ekki ýkja flinkur í
því eins og barnið hefur bent rétti-
lega á. Spurning um að æfa sig
meira, en það er ár til stefnu.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Jesús sagði: …Guði er ekkert um
megn. (Mt. 19.26)