Morgunblaðið - 07.11.2015, Síða 49
49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015
20:00 Kælan mikla í Gamla
bíói. Þessar ungu svartklæddu og
götuðu stúlkur spila öskrandi töff
„dark-wave“.
21.40 Kimono í Gamla bíói. Ís-
lensk síðrokkssveit sem spilar
auðvelda tónlist fyrir erfitt fólk.
22:10 Beach House í Silf-
urbergi. Einn af hápunktum há-
tíðarinnar.
23.30 Bo Ningen á Gauknum.
Japönsk pönk-sýra.
23.50 East India Youth á
NASA. Gríðarlega hress breskur
raftónlistarmaður.
01.00 Gangly í Kaldalóni
Hörpu. Nýjasta ofurgrúppa Ís-
lands.
Anna mælir með þess-
um tónleikum í kvöld
AF AIRWAVES
Anna Margrét Björnsson
amb@mbl.is
Það var óvenjuhlýtt í veðri fyr-ir Iceland Airwaves þegarég hraðaði mér niður Hverf-
isgötuna í átt að Gamla bíói
snemma kvölds á fimmtudegi.
Reyndar var hellirigning en borgin
var sveipuð þessum ákveðna töfra-
ljóma sem verður til á Iceland
Airwaves. Kannski er það vegna
þess að loksins verður borgin litrík-
ari og stórborgarlegri þegar hún er
uppfull af fólki sem maður hefur
aldrei rekist á áður. Eða kannski er
þetta bara dálítið eins og jólin,
sagði einhver.
Fyrstu tónleikar kvöldsins hjá
mér voru Smurjón, sveit sem ég
hafði aldrei séð áður en var mjög
spennt að sjá þar sem þar gefur að
líta hugarfóstur Harðar Bragason-
ar, orgelleikara og tónskalds sem
er þekktastur sem liðsmaður Appa-
rat Organ Quartet. Með honum á
sviði var mikill fjöldi tónlistar-
manna, tíu manna skrautlegur hóp-
ur, ef ég taldi rétt, skipaður með-
limum úr U.X.I , Apparat Organ
Quartet og Dj flugvél og geimskip á
hinum ýmsu hljóðfærum. Flugvélin
sjálf, Steinunn Harðardóttir, er
eins og nafnið gefur til kynna dóttir
Harðar og það fyrsta sem ég hugs-
aði á tónleikunum var að ég vildi að
ég væri fluga á vegg í þessari fjöl-
skyldu. Lagasmíðarnar voru
dásamlega absúrd og textarnir
fjölluðu um viðfangefni eins og
hundamat, geimkusk og fiskveiðar.
Gleði hljómsveitarmeðlima smit-
aðist til áhorfenda sem stóðu skæl-
brosandi og hamingjusamir í saln-
um. Frábær upplifun.
Mr. Silla hefur lagt lokahönd á
útgáfu plötu sem hún gefur út hjá
12 tónum á næstunni en hún dá-
leiddi gersamlega áhorfendur í
Gamla bíói með frumsömdu efni.
Sigurlaug Gísladóttir var ýmist ein
á sviði eða með eiginmanni sínum
Tyler Ludwick sem er einnig hinn
helmingur Mr. Silla. Einfalt sett,
playback, trommur, söngur. Lögin
voru gríðarlega persónuleg og til-
finningaþrungin og engilfögur
rödd Sillu nísti eins og hnífur inn að
hjarta og snerist þar í sárinu.
Ég hlustaði eitthvað á Mercury
Rev þegar ég var unglingur og
minnti að þeir væru töff. Arkaði því
yfir í Hörpu þar sem fjöldi manns
beið eftir að sjá þessa frægu banda-
rísku jaðarokkssveit. Viðbrögð
gesta í kringum mig voru misjöfn
en þetta fangaði mig. Gríðarlega
þéttur hljóðveggur og sveimandi
tónar í átt að shoegaze og skyn-
villu. Svartklæddi söngvarinn Jo-
nathan Donahue var eins og leð-
urblaka á miðju sviði þar sem hann
reis upp úr reykmekkinum og blak-
aði handleggjunum.
Næstur á svið var hinn banda-
ríski Father John Misty, öðru nafni
Geimkusk, leðurblaka og
kynþokkafullur predikari
Í skýjunum Airwaves-gestir skemmtu sér vel í Hörpu og víðar í miðbænum.
Josh Tillman. Hann var greinilega
vinsælasti flytjandi kvöldsins og
það mynduðust þéttar raðir upp
tröppurnar að Silfurbergi sem erf-
itt var að troðast í gegnum. Tillman
klæddist svörtum jakkafötum með
hárið í tagli og kassagítar yfir öxl-
inni. Hann var eins og kynþokka-
fullur bandarískur predikari þegar
hann hóf tónleikana á laginu Ho-
neybear sem er væntanlega hans
þekktasta. Tillman er svakalega
flottur performer, eitursvalur með
allar sviðshreyfingar á hreinu. Og
hvílík rödd. En svo fór eitthvað úr-
skeiðis í hljóðkerfinu og úr varð
einhverskonar allsherjar hátíðni
sándfokk. Hljóðmaðurinn varð
svakalega stressaður, og Tillman
svakalega pirraður. „Iceland’s
great,“ sagði hann og stuttu síðar
gekk hann af sviðinu. Áhorfendur
ókyrrðust en málum var reddað og
hann birtist aftur og hálfpartinn
fleygði sér í annað lag. Kraftmiklir
tónleikar hjá áhugaverðum lista-
manni.
» Svartklæddisöngvarinn Jonat-
han Donahue var eins
og leðurblaka á miðju
sviði þar sem hann reis
upp úr reykmekkinum
og blakaði handleggj-
unum.
Smurjón Hugarfóstur Harðar Bragasonar, orgelleikara og tónskálds.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Engilfögur „Lögin voru gríðarlega persónuleg og tilfinningaþrungin og engilfögur rödd Sillu nísti eins og hnífur
inn að hjarta og snerist þar í sárinu,“ segir um tónleika Mr. Sillu í Gamla bíói í fyrrakvöld.
Leðurblaka Söngvari Mercury Rev,
Jonathan Donahue, í Silfurbergi.
Flest þurfum við að kljást við eitthvað sem við vildum gjarnan breyta.
Vöðvabólga eða liðverkir, þyngdarstjórnun, svefnleysi eða bakverkir.
Það getur verið erfitt að stíga fyrstu skrefin ogmargir vita ekki hvernig
er best að byrja á því að bæta heilsuna og auka vellíðan.
www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010
Viltu láta þér líða betur?
- Þín brú til betri heilsu
FRÍ RÁÐGJÖ
F
BÓKAÐU T
ÍMA Í
SÍMA 560 1
010
OG VIÐ RÁÐ
UM ÞÉR HEI
LT UM
NÆSTU SKR
EF Í HEILSU
RÆKT
SPECTRE 2,5,6,8,9,11(P)
JEM AND THE HOLOGRAMS 5
CRIMSON PEAK 10:30
SICARIO 8
HOTEL TRANSYLVANIA 2 2,4
PAN 2D 2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
-The Times -The Gaussian -Telegraph
SÝND Í 4K!
POWERSÝNING
KL. 11