Morgunblaðið - 08.02.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.02.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2016 Sumarið 2016erkomið Allt að 20.000kr. bók.afsl. á mann til 22. febrúar Bæklingurinn er kominn Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Heilbrigðisráðherra segir að verið sé að fara yfir fjármögnunarlíkan hjúkrunarheimilanna. Stilla þurfi saman kröfur sem ætlunin er að gera um þjónustu og fjármögnun hennar. Kristján Þór Júlíusson von- ast til að málið skýrist betur öðrum hvorum megin við næstu mánaða- mót. Mikil umræða hefur verið um rekstur hjúkrunarheimila. Sveitar- félög og samtök sjálfstæðra fyrir- tækja sem reka slík heimili hafa gert kröfur á ríkið um hærri daggjöld og greiðslur á uppsöfnuðu tapi síðustu ára. Þá liggur fyrir að ekki hafa ver- ið gerðir samningar um rekstur og fjármögnun heimilanna á þessu ári, samkvæmt ákvæði sem kom inn í lög á síðasta ári. Þrjú ný heimili undirbúin Nokkur sveitarfélög hafa óskað eftir að ríkið yfirtaki rekstur hjúkr- unarheimila, meðal annars Garða- bær, og fleiri eru með málin í þeim farvegi. Kristján Þór Júlíusson heilbrigð- isráðherra telur að ekki þurfi að koma til þess. Það sé verkefni beggja samningsaðila að finna skynsamlega lausn á málinu. Ríkið, sveitarfélögin og viðkomandi sjálfseignarstofnanir hafi skyldur við aldraða einstak- linga. „Við getum ekki verið að kasta öldruðu fólki svona á milli okkar.“ Hann segir að lögin skyldi ríkið til að standa undir ákveðnum þáttum, það er að veita styrki til stofnkostn- aðar og standa straum af rekstrar- kostnaði með daggjöldum. „Stór hluti hjúkrunarheimila er rekinn með halla, eins og segir í skýrslu Ríkisendurskoðunar um út- tekt á 43 heimilum, en þrettán eru rekin með afgangi. Þar sýnist manni að stærð heimilanna skipti ekki máli. Við erum sammála um að þjónust- an er góð. Þjónustan sem Íslending- ar veita er með því besta sem þekk- ist í veröldinni. Á sama tíma og þessi staða er uppi er einnig mikill þrýst- ingur á að fjölga rýmum. Við erum að vinna í því,“ segir Kristján. Hann rifjar það upp að eitt nýtt hjúkrunarheimili er nú í byggingu, á Seltjarnarnesi, og verið er að stækka heimilin á Hellu og Hvolsvelli. Þrjú ný heimili eru í undirbúningi, tvö á höfuðborgarsvæðinu og eitt á Suður- landi. Áætlaður stofnkostnaður við þrjú síðastnefndu heimilin er um 5,5 milljarðar króna. Kristján vonast til að það skýrist með vorinu hvernig staðið verður að þessum málum og hvenær heimilin muni rísa. Þjónustan er misjöfn Ráðherra segir að á síðustu árum hafi náðst áfangar við að létta fjár- hagsskuldbindingum af hjúkrunar- heimilunum. Nefnir hann lífeyris- skuldbindingar sjálfstætt starfandi hjúkrunarheimila sem námu 6 millj- örðum króna. „Eftir standa lífeyris- skuldbindingar hjá sveitarfélögum ásamt því að finna betri flöt á því hvernig þessi hluti velferðarþjónust- unnar er fjármagnaður.“ Hann segir að verið sé að fara í gegnum fjármögnunarlíkanið. Von- andi verði eitthvað nýtt að frétta af því máli í kringum næstu mánaða- mót. „Þetta snýr einnig að kröfulýs- ingunni í væntanlegum samningum sem rekstraraðilum er gert að vinna eftir. Innihaldið er misjafnt eftir hjúkrunarheimilum.“ Kristján Þór segir ætlast til þess að rekstraraðili sem fær fjármagn með daggjöldum frá ríkissjóði sníði reksturinn að fjárframlögum. Stilla þarf saman kröfur um þjónustu og fjármögnun  Heilbrigðisráðherra segir að sveitarfélögin hafi einnig skyldur við aldraða Morgunblaðið/Arnaldur Aldraðir Heilbrigðisráðherra segir að þjónusta við aldraða sé góð en finna þurfi lausn á fjármögnunarvanda hjúkr- unarheimila. Vonast er til að þau mál skýrist um eða eftir næstu mánaðamót, að sögn Kristjáns Þórs Júlíussonar. Hjalti Einarsson vélvirki var valinn heiðursiðnaðarmaður ársins 2016 á nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélags- ins í Reykjavík um helgina. Þar var 24 nýsveinum úr fjórtán löggiltum iðn- og verkgreinum frá sex verk- menntaskólum veitt viðurkenning fyrir afburðaárangur í sinni iðn- grein á sveinsprófi. Siglfirðingurinn Hjalti Einars- son, sem er fæddur 1938, aflaði sér menntunar sem vélstjóri og vélvirki og hóf sjálfstæðan rekstur árið 1972. Til að byrja með var Vél- smiðja Hjalta Einarssonar í bílskúr við heimili fjölskyldu hans við Suðurgötu í Hafnarfirði. Starfsem- inni óx fiskur um hrygg og flutt var í stærra hús. Meðal verkefna varð fljótt vélaþjónusta við útgerðina. Seinna var farið út í ýmiskonar framleiðslu á vélbúnaði fyrir álver, sem hefur hefur verið seldur til verksmiðja víða um veröld. Með til- komu álvers á Reyðarfirði byggðist upp starfsemi eystra og nú eru starfsmenn HVE, eins og fyrir- tækið er kallað, um 600. „Það er okkur öllum hvatning þegar menn byrja smátt og sýna þrautseigju í verkefnum sínum og framsýni. Hjalti er vel að þessari viðurkenningu kominn en hann er öðrum iðnaðarmönnum fyrirmynd í störfum sínum,“ sagði Halldór Ólafsson, varaformaður Iðnaðar- mannafélags Reykjavíkur, um viðurkenninguna. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Iðn Frá vinstri Halldór Ólafsson og Elsa Haraldsdóttir frá Iðnaðarmanna- félagi Reykavíkur, Hjalti Einarsson, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Guðmundur Eggertsson sem er heiðursfélagi í iðnaðarmannafélaginu. Þrautseigja og framsýni í verkum  Hjalti Einarsson heiðursiðnaðar- maður ársins „Mér leiðist svona sóðaskapur og menn verða að taka sig virkilega á,“ segir Birkir Hauksson sjómað- ur. Hann var á dögunum á ferð við Ósabotna, milli Sandgerðis og Hafna, en þar og við Fossá í Hval- firði liggja í hundraðavís armbönd með endurskini. Í norðurljósaferðum rútufyrir- tækja er meðal annars farið á áður- nefnda staði. Fá ferðamennirnir þá í öryggisskyni afhent endurskins- bönd sem þeir í sumum tilvikum henda frá sér, svo þau liggja eftir og frjósa við jörð. Einnig hafa endurskinsbönd, fjúkandi sem freð- in, sést í Borgarfirði. Á að skila aftur „Við höfum ekki verið með skipu- lagt stopp á þessum stöðum sem hér eru nefndir. Hins vegar eru þetta góð skilaboð til fólks um að ganga betur um landið. Ferðaþjón- ustan vill að öllu leyti vera í sátt við samfélagið,“ segir Einar Bárðar- son, rekstrarstjóri ferðaskrifstofu Kynnisferða. Yfir vetrartímann eru Kynnis- ferðir – Reykjavik Excursions svo og ýmis fleiri fyrirtæki með norðurljósaferðir oft í viku hvar sótt er á ýmsa staði. Farþegum í þessum ferðum er þá gert ljóst að öryggisböndunum skuli þeir skila aftur, eins og á þeim stendur skýrt og skilmerkilega. Líklega óhapp „Svona eins og þetta hljómar finnst mér líklegt að þarna hafi orð- ið einhverskonar óhapp. Hugsan- lega hafi kassi með endurskins- merkjum dottið eða eitthvað sambærilegt gerst og vindurinn síð- an dreift merkjunum. Ég að minnsta kosti hef aldrei séð neina svona tilburði ferðafólks hvorki okkar farþega né annarra. En við bara skoðum þetta og lærum af málinu,“ segir Einar. sbs@mbl.is Endurskins- böndin fjúka og frjósa Ljósmynd/Birgir Hauksson Armbönd Lýsa vel og veita öryggi en eiga ekki að liggja á víðavangi.  Í hundraðavís í Ósabotnum og víðar „Það hefur safnast upp viðskiptaskuld Hraunbúða sem nemur 300 til 400 milljónum vegna hallareksturs frá árinu 2010. Þannig er ekki hægt að halda áfram,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Hann hefur tekið saman minnisblað um stöðu Hraunbúða og samskiptin við ríkisvaldið til að fjalla um í fjölskyldu- og tómstundaráði bæjarins. Það álit er látið í ljós að meginvandi hjúkrunarheim- ilisins sé tekjuvandi en ekki kostnaðarvandi. Elliði vekur athygli á því að bærinn hafi ekki samning við ríkið um þennan rekstur heldur annist hann á forsendum hefðar. „Öllum er ljóst að það er lagaleg skylda ríkisins að annast heilbrigðisþjónustu aldraðra eins og annarra. Við höfum ákveðið að óska eftir upplýsingum frá ríkinu um það hvenær og hvernig það geti tekið yfir þennan rekstur. Við erum til- búnir að vinna með ríkinu að því,“ segir Elliði. Elliði vekur athygli á því að tvær heilbrigðisstofnanir ríkisins eru rekn- ar í Vestmannaeyjum með tilheyrandi óhagræði í rekstri. Hann segist hafa skilað heilbrigðisráðherra rekstrarlegri úttekt á áhrifum þess ef hún yrði á einni hendi, óháð því hver myndi reka hana. Það myndi spara tugi eða hundruð milljóna á ári. Nota mætti sparnaðinn til að efla heilbrigðis- þjónustuna. „Það er brotalöm í rekstri þjónustu við aldraða, eins og hall- inn á Hraunbúðum sýnir. Þá erum við einnig svo illa sett að hér í 4.300 manna Eyjabyggð er engin fæðingarþjónusta. Með rekstrarhagræðingu mætti skapa svigrúm til að bæta úr þessu hvorutveggja.“ Ríkið taki yfir reksturinn HÆGT AÐ SPARA MIKLA FJÁRMUNI MEÐ SAMEININGU Í EYJUM Elliði Vignisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.