Morgunblaðið - 08.02.2016, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.02.2016, Blaðsíða 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2016 FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á EÐA Í SÍMA MOGGAKLÚBBURINN EINKAFERÐ MOGGAKLÚBBSINS MEÐVITA TIL FLÓRENS 21.TIL 25. APRÍL Flórens - vagga menningar og lista Beint flug meðVITA fyrir áskrifendur Morgunblaðsins og fjölskyldur þeirra á sumardaginn fyrsta. Fararstjórar: Kristinn R. Ólafsson og ÞóraValsteinsdóttir. Nánari upplýsingar á moggaklubburinn.is Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík Sími: 570 4444 - info@vita.is Afgreiðslutími skrifstofu: mán.-fös. 9-17 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í gömlu timburhúsi við Skóla- vörðustíg hefur rithöfundurinn Að- alsteinn Ásberg Sigurðsson komið sér upp klassísku íslensku fjöl- skylduhúsi. Hann á stóra fjöl- skyldu, en er líka með vinnuað- stöðu bæði í kjallara og uppi í risi og þarna hefur tekist að fanga andrúmsloftið sem einkenndi Reykvísku timburhúsin um miðbik síðustu aldar. „Vertu velkominn inn,“ segir hann þegar við mætumst um miðj- an dag fyrir utan heimili hans en líklega hefur Aðalsteinn átt erindi í miðbæinn, sem honum þykir vænt um og þar kann hann vel við sig. Þegar inn er komið tekur við hlýlegt og fallegt heimili og strax kemur upp í hugann lýsing á Bergshúsi í Ofvitanum eftir Þór- berg Þórðarson. „Hér er gott að vera og ekki verra að í kjallaranum er vinnuað- staða fyrir útgáfuna mína, Dimmu, og uppi í risi er vinnuaðstaða fyrir mín eigin sköpunarverk en ég reyni að halda þessu tvennu að- skildu.“ Húsið iðar venjulega af lífi og það hefur jafnvel verið venjan að opna húsið fyrir gestum og gang- andi og bjóða upp á tónlistar- og ljóðadagskrá á Menningarnótt, en núna um miðjan dag á virkum degi sitjum við tveir einir í rólegheit- unum innan um allar bækurnar sem Aðalsteinn hefur sankað að sér og ræðum áhuga hans á bók- menntun, tónlist, ljóðum og út- gáfustarfi, sem á uppruna sinn í sveitinni. Draugasögur afa Reykjavík virtist víðsfjarri þeg- ar Aðalsteinn var að alast upp en hann er fæddur á Húsavík og ólst upp á Öndólfsstöðum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu. „Ég var frekar latur við búverk- in og vildi helst eyða tíma mínum í bóklestur. Ég held að foreldrum mínum hafi stundum þótt það meira en nóg, en þau sáu auðvitað fljótlega að ég myndi líklega ekki verða bóndi. Á þeim tíma var alls ekki verið að hvetja mann til að lesa og lesa, ólíkt því sem gerist í dag.“ Sveitin var engu að síður jarð- vegurinn sem mótaði áhuga Að- alsteins á bókmenntum og rit- störfum. Þó ekki moldin í kálgarðinum heldur fólkið í kring- um hann. „Það var á margan hátt einstakt að alast upp í sveit og kannski ekki síst við þær aðstæður sem ég var svo lánsamur að búa við. Í raun var óumflýjanlegt að áhugi á sögum og sagnalistinni myndi vakna hjá mér. Afar og ömmur voru allt í kringum mig og í sveit- inni fjöldinn allur af gömlu fólki sem kunni að segja frá. Amma mín las t.d. oft fyrir mig og svo átti ég afa sem fór með vísur og las helst fyrir mig draugasögur. Einnig var þarna frábær sögukona, gift afa- bróður mínum, og hún kunni að færa í stílinn og náði dramatískri framvindu í efni sem hún hafði les- ið á sínum yngri árum og miðlaði því svo áfram. Það var mjög gam- an að hlusta á sögurnar hennar og ótrúlega dýrmætt að hafa allt þetta fólk í kringum sig. Ég held að það hafi ýtt mjög undir áhuga minn á lestri og bókmenntum.“ Ríkisútvarpið var heldur aldrei langt undan en þar kynntist Að- alsteinn allri flóru tónlistar og átti útvarpið því sinn þátt í að móta hann á uppvaxtarárunum. Sveitastrákurinn í borginni Miðpunktur menningar á Íslandi var í huga Aðalsteins í Reykjavík. Leiðin lá því snemma á mölina enda ákvað hann ungur að verða rithöfundur en eins og oft vill verða vildu foreldrar hans láta piltinn sækja praktískt nám. „Ýmislegt kom til greina og var prentiðn eitt af því sem mér datt í hug að læra en einhvern veginn var andrúmsloftið á þeim tíma á þann veg að sú iðngrein væri á út- leið. Hún lifir þó enn góðu lífi í dag, meira en 40 árum síðar. Kannski var það uppreisn við óskir foreldra minna sem varð til þess að ég valdi á endanum Versl- unarskóla Íslands. Ég vil þó halda því fram að aðalástæðan hafi verið dagskrárliður Ríkisútvarpsins þar sem kór skólans heillaði mig og svo var líka hægt að taka bara tvö ár og ljúka verslunarprófi.“ Námið hefur reynst Aðalsteini gagnlegt en fátt eins gagnlegt og vélritun og seinna meir átti kennsla í rekstri fyrirtækja eftir að nýtast, þegar útfgáfufyrirtækið Dimma leit dagsins ljós. „Ég lærði margt í Versló og valdi að fara í máladeild eftir verslunarpróf. Þá var hugur minn farinn að beinast enn frekar að bókmenntum og listum. Einmitt á sama tíma var ég farinn að leggja drög að ljóðabók og samdi líka stutta skáldsögu, sem lenti sem betur fer á skúffubotni en ég var að minnsta kosti búinn að átta mig á því að mig langaði til sinna rit- störfum og fljótlega eftir að ég hóf háskólanám í íslensku tók ég þá ákvörðun að hverfa frá námi. Það átti hreinlega ekki nógu vel við mig að sinna því á meðan ljóð og söngvar áttu hug minn allan.“ Útgáfan í kjallaranum Ljóðið nýtur af einhverjum ástæðum ekki sömu virðingar og skáldsagan á Íslandi að sögn Að- alsteins en það var ljóðlistin sem varð kveikjan að útgáfufyrirtæki hans Dimmu. „Ljóðið hefur heillað mig lengi og mér hefur stundum mislíkað hversu lítillar virðingar það nýtur á Íslandi í samanburði við skáld- söguna. Ég kann engar skýringar á því en hef auðvitað reynt að leggja mitt lóð á vogarskálarnar. Ég sendi frá mér nokkrar ljóða- bækur á árunum 1977 til 1985. Nokkrum árum seinna var ég með tvö handrit í smíðum, annað ljóð eftir sjálfan mig og hitt þýðingar á ljóðum norska skáldsins Paal- Helge Haugen. Mér hugnaðist ekki að bjóða þeim útgefanda sem ég hafði þá að öðrum verkum mín- um þessi handrit og langaði líka hálfpartinn til að láta á það reyna hvort ég gæti sinnt útgáfunni sjálfur. Þannig fór ég að velta því betur fyrir mér hvort og hvernig ég gæti komið ljóðunum út. “ Með tvö handrit að vopni og efni í eina hljómplötu ákvað Aðalsteinn að slá til og stofna sína eigin út- gáfu. „Já, við megum ekki gleyma „Útgáfan er áhugamálið  Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson rithöf- undur rekur litla en kröftuga útgáfu  Telur ljóðið vera vanmetið og einnig mikilvægi ljóðaþýðinga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.