Morgunblaðið - 08.02.2016, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2016
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, leikfimi kl. 10, tölvufærni I kl.
11. Eftir hádegið, kl. 13, verða tölvufærni II, útskurður I og frjáls tími í
myndlist. Ath. að upplýsingar og skráning í tölvufærnina er í síma
411 2712. Kennari Matthías Skúlason tölvufræðingur.
Árskógar 4 Opið í smíðar og útskurð kl. 9-16. Handavinna með leið-
beinanda kl. 12.30-16. Botsía með Þóreyju kl. 9.30-10.30. Stafganga,
ganga um nágrennið kl. 11-11.40. Félagsvist með stjórnanda kl. 13.
Myndlist með Elsu kl. 16.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30, bingó kl. 13 og myndlist kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Lesið og spjallað kl. 10.30 og prjónaklúbbur með
Sigurrós leiðbeinanda frá kl. 13.
Bústaðakirkja Aðalfundur Kvenfélags Bústaðasóknar verður hald-
inn í dag, 8. febrúar, kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf. Boðið verður
upp á súpu og brauð. Hlökkum til að sjá ykkur. Stjórnin.
Garðabær Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 8 og 15, stólaleikfimi fyrir konur
og karla í Sjálandi kl. 9.10, kvennaleikfimi í Sjálandi kl. 10 og í Ásgarði
kl. 11, karlaleikfimi kl. 11.40, botsía kl. 12.20.
Gerðuberg Útskurður og tálgun með leiðbeinanda kl. 9-16. Handa-
vinnustofa kl. 9-16. Línudans kl. 13. Kóræfing Gerðubergskórs kl.
14.30-16.30. Heitt á könnunni, blöðin liggja í setustofu, opin tölva.
Gjábakki Handavinna kl. 9, botsía kl. 9.10, gler og postulínsmálun kl.
9.30, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15, kóræfing kl. 16.30.
Gullsmári Póstulínshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids kl.
13, félagsvist kl. 20.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi kl.
8.30, léttar aerobic-æfingar kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl.
11.30, baðþjónusta fyrir hádegi. Spilað brids kl. 13. kaffi kl. 14.30,
fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.45, við hringborðið kl. 8.50, glerlistin
kl. 9 með Donald, ganga kl. 10, handavinnuhornið kl. 13, myndlist hjá
Margréti Zóphoníasdóttur kl. 13.30, félagsvist kl. 13.15. Allir velkomnir
í Hæðargarð óháð aldri og búsetu, nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Ringó kl. 13.30 í Smáranum. Uppl. í síma 564-
1490 og á www.glod.is
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Grafarvogskirkju, Borgum og inni í Egils-
höll. Félagsvist kl. 13 í Borgum.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13,
kóræfing Korpusystkina kl. 16 í Borgum og styrktarleikfimi með Nils
kl. 17 í Borgum.
Seltjarnarnes Gler, Valhúsaskóla kl. 9 og 13. Leir, Skólabraut kl. 9.
Billjard, Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga, Skólabraut
kl. 11. Handavinna, Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl.
18.30. Munið ,,Óvissuferðina" á morgun þriðjudag. Farið frá Skóla-
braut kl. 13.30. Ath, helgistundin fellur niður á morgun, þriðjudag.
Sléttuvegur 11-13 Kaffi á könnunni kl. 8.30-10.30, leikfimi á RUV kl.
9.45, helgistund kl. 10.10, hádegismatur kl. 11.30-12.30, félagsvist kl.
13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. dagblöð og púsl liggja frammi.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba gold námskeið kl. 10.30,
leiðbeinandiTanya Dimitrova. Danskennsla námskeið samkvæmis-
dans I kl. 17, línudans framhald, kl. 18 og samkvæmisdans II, kl. 19,
kennari Lizy Steinsdóttir. Njálu örnámskeið hefst kl. 15, Bjarki Bjarna-
son leiðir okkur um söguna. Skráning stendur yfir. Söguslóðir Vatns-
dælu og annarra sagna 13. og 14. apríl. Gisting, fræðsla, skemmtun.
Vesturgata 7 Fótaaðgerð kl. 9.Tréútskurður kl. 9.15-12, Lúðvík
Einarsson.
Vitatorg Leirmótun og postulínsmálun kl. 9, framhaldssaga kl. 12.30,
frjáls spilamenska, stóladans og bókband kl. 13.
Smáauglýsingar 569
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Sundbolir • Tankini
Bikini • Náttföt
Undirföt • Sloppar
Inniskór • Undirkjólar
Aðhaldsföt
Frú Sigurlaug
Fylgstu með á facebook
Mjóddin s. 774-7377
Ný sending
Frábær verð
VANDAÐIR DÖMUSKÓR ÚR
LEÐRI Á ÓTRÚLEGU VERÐI!
Teg. 7904 Tilboðsverð aðeins:
3.900.-
Teg: 171F Tilboðsverð aðeins:
5.900.-
Teg: Tilboðsverð aðeins: 6.900.-
Laugavegi 178
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Sendum um allt land
Erum á Facebook.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Þann 16. janúar
lést pabbi minn eftir
tiltölulega stutt veik-
indi. Ég held að allir sem þekktu
pabba hafi átt von á því að hann
yrði a.m.k. 100 ára þar sem hann
var alltaf svo heilsuhraustur og
einstaklega hress og léttur á fæti.
Pabbi var alltaf tilbúinn að snú-
ast fyrir alla og þar á meðal fjöl-
skylduna og ófáar ferðirnar sem
hann var annað hvort að skutlast
með okkur eða með eitthvert til
okkar. Hann elskaði útiveru, fór í
langa göngutúra á hverjum degi
og á sumrin fór hann í veiði við
hvert tækifæri sem gafst og kom
heim færandi hendi.
Það var því mikið áfall þegar
pabbi veiktist og gat ekki verið
jafn mikið á ferðinni og hann var
vanur, því hann var aldrei iðjulaus
og stjórnaði bæði gönguhóp og
spilavist fyrir eldri borgara í Mos-
fellsbæ.
Ég veit ekki um neinn sem
hafði jafn mikla þolinmæði í berja-
mó og hann og ég man sérstaklega
eftir því þegar hann og mamma
fóru í sumarbústað í eina viku fyr-
ir u.þ.b. þremur árum og pabbi
sást varla allan tímann af því að
það var svo mikil berjaspretta það
haustið og pabbi var óstöðvandi
við berjatínsluna. Mamma fékk
það hlutverk að sjóða sultu úr
stórum hluta af berjunum og það
voru ansi margar sultukrukkurn-
ar það haustið, auk margra boxa
af berjum sem margir fengu að
njóta.
Eftir að við fengum fréttirnar
um sjúkdóminn sem hafði hann
undir þá reyndum við nýta tímann
sem best saman og áttum við
virkilega gleðileg jól saman. Það
gladdi pabba mikið og hafði hann
á orði hvað hann væri ánægður
með hvað allir voru glaðir og hvað
hann ætti nú myndarleg börn og
barnabörn.
Ég gæti haldið endalaust áfram
en ætla ekki að hafa þetta lengra.
Ég er þakklát fyrir allar góðu
minningarnar sem ég á frá ótal
samverustundum með pabba og
mömmu, sem eru það dýrmætasta
sem við eigum til minningar um
glaðlyndan, hjálpsaman, hjarta-
hlýjan og einstakan föður og afa.
Takk, pabbi, fyrir að vera pabbi
minn og allt sem þú kenndir mér
bæði í orði og verki. Ég geymi
minningarnar um þig í hjarta
mínu um ókomna tíð.
Elsku mamma, hugur minn er
hjá þér sem aldrei fyrr og það var
einstakt að fá að fylgjast með þér
standa sem klettur við hliðina á
pabba í veikindunum og einnig
eftir andlát hans. Þið eruð bæði
einstök og ég er svo sannarlega
þakklát fyrir að hafa fengið ykkur
fyrir foreldra.
Eyvindur Splidt
Pétursson
✝ EyvindurSplidt Pét-
ursson fæddist 24.
október 1928. Hann
lést 16. janúar
2016.
Útför hans fór
fram 26. janúar
2016.
Mér tregt er um orð til að
þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð
verið mér.
Í munann fram myndir
streyma.
Hver einasta minning er
björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja
mér alla tíð,
unz hittumst við aftur
heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Andrea Eyvindsdóttir
Elsku pabbi, núna er víst komið
að kveðjustund og ég veit ekki
hvernig ég á að koma hugsunum
mínum á blað. Þegar ég hugsa til
baka þá er hugurinn fullur af góð-
um minningum um samveru-
stundir og símtöl sem ég mun
sakna meira en orð fá lýst. Þú
varst alltaf til staðar og tilbúinn að
stökkva af stað ef ég þurfti á þér
að halda. Þú hafðir yndi af útiveru
og samvistum við fólk og varst
virkur í félagslífi eldri borgara í
Mosfellsbæ. Þú varst svo sterkur
og tókst fréttunum um veikindin
af svo miklum styrk og jafnaðar-
geði, kvartaðir aldrei. Takk fyrir
allt, elsku pabbi minn, missir okk-
ar sem eftir sitjum er mikill og þín
er sárt saknað. Ég hlakka til að
hitta þig í eilífðinni þegar þar að
kemur.
Þótt minn elskulegi faðir
og kæri vinur
hafi nú kallaður verið heim
til himinsins sælu sala
og sé því frá mér farinn
eftir óvenju farsæla
og gefandi samferð,
þá bið ég þess og vona
að brosið hans blíða og bjarta
áfram fái ísa að bræða
og lifa ljóst í mínu hjarta,
ylja mér og verma,
vera mér leiðarljós
á minni slóð
í gegnum
minninganna glóð.
Og ég treysti því
að bænirnar hans bljúgu
mig blíðlega áfram muni bera
áleiðis birtunnar til,
svo um síðir við ljúflega
hittast munum heima á himnum
og samlagast í hinum eilífa
ljóssins yl.
Sigurbjörg Eyvindsdóttir.
Til elsku Gunnu minn-
ar.
Ég synti í djúpu hafi sorgar
og gekk dimman dal saknaðar
en kærleikurinn,
ljósið sem þú gafst mér
færði mig til lífsins á ný.
Hvíl í Guðs friði, elsku
hjartað mitt. Ástarþakk-
ir fyrir allt og allt. Þín
Herdís.
Guðrún Ester
Einarsdóttir
✝ GuðrúnEster Ein-
arsdóttir fædd-
ist 17. október
1955. Hún lést
22. nóvember
2015.
Útför Guð-
rúnar fór fram í
kyrrþey að ósk
hinnar látnu.