Morgunblaðið - 08.02.2016, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2016
Fyrrverandi heimilum tveggja
heimskunnra íbúa Lundúnaborgar
sem kunnir eru fyrir tónlist, barokk-
tónskáldsins Georgs Friedrichs
Händels (1685-1759) og rokkgít-
arleikarans Jimis Hendrix (1942-
1970), hefur verið steypt í sameig-
inlegt safn um listamennina, Handel
& Hendrix. Þótt aldir hafi skilið þá
bjuggu þeir sér heimili í samliggj-
andi húsum í Mayfair-hverfinu og
þar verður opnað á miðvikudag safn
um þá en framkvæmdirnar eru
sagðar hafa kostað hátt í fimm
hundruð milljónir króna.
Samkvæmt The Art Newspaper
notaði starfsfólkið í hinu gamla safni
um tónskálið, Handel House, svefn-
herbergi Hendrix sem skrifstofu. En
fyrir tilstilli fyrrverandi unnustu gít-
arleikarans, Kathy Etchingham, var
ráðist í að stækka safnið inn í þann
hluta og tileinka það þeim báðum.
Þegar herbergjum Hendrix var
breytt í upphaflega mynd var meðal
annars stuðst við ljósmyndir en gít-
arleikarinn veitti iðulega viðtöl þar
sem hann lá í rúminu.
Í safninu verður nýtt sýningar-
rými auk lítils tónleikasalar, þar sem
tónlist frá 6. áratug 20. aldar mætir
tónlist frá fyrrihluta þeirrar 18.
Breska Lottóið greiddi helming
kostnaðar.
Gítarstjarnan Jimis Hendrix verður minnst í nýju safni en einnig tónskálds-
ins og nágranna hans, tveimur öldum fyrr, Georgs Friedrichs Händels.
Händel og Hendrix
saman undir einu þaki
Það kom vegfar-
endum á leið um
St. Pancras-
lestarstöðina í
London á föstu-
dagsmorguninn
ekki lítið á óvart
að sjá nýju og
glansandi píanói
ýtt inn á stöðv-
argólfið og popp-
goðið Elton John
setjast við það glaðbeitt og taka að
leika lagasyrpu. Fjöldi manna
þyrptist að og myndaði hring um
hljóðfærið og að leik loknum árit-
aði John hljóðfærið með orðunum:
„Njótið þessa píanós. Það er gjöf.
Ástarkveðja, Elton John.“
John gefur píanó
Tónleikarnir á
heimasíðu Johns.
» Meðal helstu viðburða Safnanætur á föstudags-kvöldið var opnun á afar viðamikilli sýningu á
Kjarvalsstöðum með málverkum og teikningum
eftir Jóhannes S. Kjarval. Sýningin nefnist „Hugur
og heimur“ og á henni gefur að líta úrval verka úr
merku en fáséðu einkasafni Þorvaldar Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur, og úr safni
Listasafns Reykjavíkur – Kjarvalssafni.
Viðamikil sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals opnuð
Hugur og heimur Á sýningunni á Kjarvalsstöðum er úrval verka Jóhannesar S. Kjarvals úr fáséðu einkasafni og úr safni Listasafns Reykjavíkur.
Glaðir gestir Katrín Jakobsdóttir og Birgir Ármannsson. Kát feðgin Helena Hjörvar, Helgi Hjörvar og María Hjörvar.
Morgunblaðið/Eggert
- vinnufatnaður ogöryggisskór.
Vertuvel til fara í
vinnunni!
10.472kr.
13.831kr.
8.143kr.
7.661kr.
10.039kr.
11.831kr.
17.846kr.
8.143kr.
10.472kr.
21.193kr.
17.650kr.
THE CHOICE 8, 10:20
ALVIN & ÍKORNARNIR 5:50 ÍSL.TAL
THE BOY 8, 10:10
THE REVENANT 5:50, 9
RIDE ALONG 2 5:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar