Morgunblaðið - 11.02.2016, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R ÍSLE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/M
SA
78
41
8
02
/1
6
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti í síðustu viku að heimila um-
hverfis- og skipulagssviði að fara í
útboð vegna verklegra framkvæmda
við þrengingu Grensásvegar milli
Miklubrautar og Bústaðavegar. Út-
boðið verður auglýst á næstunni.
Framkvæmdir eiga að hefjast í
mars, ef tíðarfar leyfir, samkvæmt
frétt á heimasíðu borgarinnar.
Nú er gatan fjórar akreinar fyrir
bíla, tvær í hvora átt. Eftir breyt-
inguna verður ein akrein fyrir bíla í
hvora átt. Í staðinn fyrir akrein-
arnar sem hverfa verða gerðir
tveggja metra breiðir hjólastígar
beggja vegna og koma þeir á milli
akreinanna og gangstétta.
Gangstéttin austan megin við göt-
una verður 2,1-2,4 metrar á breidd
eftir breytinguna en vestan megin
verður hún 2,5 metra breið. Á milli
gangstéttar og hjólastígs verður
hellulögð hálfs metra breið ræma.
Umferðarljós sem eru á gatnamót-
um Grensásvegar og Hæðargarðs
verða þar áfram og sama gildir um
gangbrautarljós sem eru við Breiða-
gerði en stjórnbúnaður þeirra verð-
ur endurnýjaður. Þá verða ný gang-
brautaljós sett norðan við
Heiðargerði.
Þrjár strætisvagnabiðstöðvar eru
hvorum megin götunnar. Gert er ráð
fyrir að þær rjúfi hjólastíginn þann-
ig að strætisvagnar leggi að gang-
stétt. Þetta er gert með tilliti til
aksturs neyðarbíla svo strætisvagn-
arnir tefji ekki för þeirra. Hæð-
armunur á milli götu og hjólastígs
verður 6-7 sentimetrar og því á al-
menn umferð að geta vikið upp á
hjólastíginn ef neyðarbíll er á ferð.
Gangstéttar sem eru ónýtar verða
endurnýjaðar. Einnig á að endur-
nýja götulýsinguna. Núverandi
ljósastaurar í gangstétt verða fjar-
lægðir. Nýjum ljósastaurum, sem
eru 6,3 metra háir og því lægri en
núverandi ljósastaurar, verður kom-
ið fyrir í hellulögðu ræmunni á milli
hjólastígs og gangstéttar báðum
megin við götuna.
Framhjáakstur á umferðarljós-
unum við gatnamót Grensásvegar
og Bústaðavegar verður lagður af.
Það er gert til þess að tryggja sem
best öryggi hjólreiðafólks. Gróður
verður á miðeyjunni á milli akrein-
anna. Hann verður á stöðum þar
sem ekki er talin hætta á að gróð-
urinn byrgi vegfarendum sýn.
Tölvubreytt mynd/Reykjavíkurborg/EFLA verkfræðistofa
Eftir Ein akrein fyrir bíla verður í hvora átt. Hjólastígar koma beggja vegna götunnar og ónýt-
ar gangstéttar endurnýjaðar. Skipt um verður um ljósastaura og þeir færðir af gangstígnum.
Ljósmynd/Reykjavíkurborg/EFLA verkfræðistofa
Fyrir Nú eru tvær akreinar í hvora átt á Grensásvegi. Þeim verður fækkað í eina í hvora átt.
Strætisvagnabiðstöðvar beggja vegna götunnar verða áfram við gangstéttarbrúnirnar.
Breytingar á Grensásvegi byrja í mars
Fyrirhugaðar breytingar verða bráðlega boðnar út Akreinum fækkar en hjólastígar bætast við
Hótel sem Stracta ehf. hyggst
byggja á eyðijörðinni Orustustöðum
á Brunastandi, austan við Kirkju-
bæjarklaustur, þarf ekki að fara í
umhverfismat, samkvæmt ákvörðun
Skipulagsstofnunar. Telur stofnunin
að bygging hótelsins og umdeilds að-
komuvegar séu ekki líkleg til að hafa
í för með sér umtalsverð umhverfis-
áhrif.
Eigendur Stracta, sem reka sam-
nefnt hótel á Hellu, keyptu Orustu-
staði fyrir nokkrum árum og hafa
unnið að skipulagningu 200 her-
bergja hótels þar með tilheyrandi
þjónustu. Hótelið verður í mörgum
húsum sem reist verða ásamt þjón-
ustubyggingum í kringum hóteltorg.
Fram hafa komið áhyggjur af því
að gamlar minjar verði eyðilagðar
með framkvæmdinni og stórt hótel
verði lýti á umhverfi sem lengi hefur
verið mannautt að mestu. Skipulags-
stofnun bendir á nauðsyn þess að
Stracta fylgi í hvívetna ábendingum
Minjastofnunar um framkvæmdir
og umgengni við þekktar minjar.
Hún leggur áherslu á að votlendi
sunnan framkvæmdasvæðisins spill-
ist ekki vegna aðkomuvegar og að
fráveita frá starfseminni verði um
rotþró og olíuskilju eins og fyrir-
hugað er.
Hreppurinn gefur út leyfi
Áður en framkvæmdir hefjast
þarf Skaftárhreppur að gefa út
framkvæmdaleyfi og byggingarleyfi.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má
kæra til úrskurðarnefndar umhverf-
is- og auðlindamála og er kæru-
frestur til 11. mars nk. helgi@mbl.is
Risahótel Gistihúsum er raðað í kringum hótelgarð og móttöku. Einnig er
gert ráð fyrir handverkshúsum og ýmissi þjónustu á staðnum.
Orustustaðir
þurfa ekki mat
Stracta byggir hótel á Brunasandi