Morgunblaðið - 11.02.2016, Side 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af
öryggisvörum
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Reykjavík 1985-1990 nefnist sýning
Húberts Nóa Jóhannessonar sem
verður opnuð í Galleríi Gróttu í dag
kl. 17. Á þessari sýningu eru nokkur
verka Húberts Nóa frá árunum
1985-1990 og hafa sum þeirra ekki
verið sýnd áður opinberlega. Verkin
eru af stöðum í Reykjavík sem mál-
aðir eru eftir minni en strax á náms-
árum sínum beitti hann þeirri að-
ferð.
„Ég tók upp á því mjög snemma
og var skammaður fyrir það í skól-
anum en það var ekki hægt að fá
mig ofan af því,“ segir Húbert Nói
Jóhannesson glaðlega.
Hann segir ýmsar tilfinningar
kvikna við að sjá verk sín frá upp-
hafi ferilsins. „Ég er alltaf að vinna
með tilfinningarými og mér finnst
ég ná að dengja mér aftur inn á það
þegar ég sé verkin. Það er greini-
lega einhver hluti af manni sem fer í
þennan farveg frá þessum tíma,“
segir Húbert Nói spurður út í fyrstu
verkin. Hann nefnir sem dæmi tón-
list frá þessum tíma þegar verkin
urðu til og hann heyrir alls staðar.
Verk Húberts frá þessum árum
eru undir miklum áhrifum frá
myndlistarmanninum Helmut Fe-
derle sem kom til landsins árið 1984
og kenndi hér. Hann var frum-
kvöðull í svokallaðari neo geo eða ný
geometria, ásamt þeim John Armle-
der, Gerwald Rockenschaub og
Franz Graf. Á þessum tíma voru
margir ungir nemendur sem að-
hylltust þessa stefnu og beittu henni
í listsköpun sinni. Þetta voru m.a.
Georg Guðni Hauksson, Hrafnkell
Sigurðsson og Húbert Nói.
Verk Húberts Nóa frá þessu
tímabili spretta m.a. út frá bygg-
ingum og umhverfi. „Ég einkenni
þessa staði sem ég skapa með götu-
heitum og númerum ef þetta er inn-
an úr híbýlum. Ég málaði vistaverur
vina minna og þar sem ég kom oft.
Seinna nota ég staðsetningartæki
sem staðsetningar með landslags-
málverki. Með því að nota gps-
punkta þá breytir maður hefðbundu
landslagsmálverki í rúmfræði eða
geometríu. Þetta snýst allt um að
taka úr ytra rýminu, hvort sem það
er landslag, arkitektúr eða híbýli og
setja inn í manneskju og varpa því
svo aftur út á formi listaverks sem
verður þá aftur hluti af ytra rými
einstaklings. Ég ef alltaf verið að
vinna með þessa hringrás.“
Verkin á þessu tímabili voru and-
svar Húberts við hugmyndalist eða
konseptlist sem var allsráðandi í
listheimi áttunda áratugarins þar
sem Súm-hópurinn var fremstur í
flokki.
Væri gaman að sjá þróunina
Íslenskir listamenn sem notuðu
nýja geometríu á áttunda áratugn-
um voru frumkvöðlar hér á landi
sem þróaðist svo með misjöfnum
hætti milli manna.
„Við komum snemma inn í þetta
og fórum hver sína leið. Inn í þetta
blandast Gerwald Rockenschaub og
Frans Graf en þeir voru nemendur
Helmut Federle alveg eins og við.
Það hefði verið gaman að sjá hvern-
ig þetta þróast í sitt hvora áttina og
setja upp sýningu með þetta að leið-
arljósi og íslenskum vinkli.“
Skammaður fyrir að mála eftir minni
Æskuverk eftir Húbert Nóa á
sýningunni Reykjavík 1985-1990
Morgunblaðið/RAX
Listaverk Listamaðurinn Húbert Nói Jóhannesson við eitt verka sinna.
ÍHrólfs sögu segir IðunnSteinsdóttir sögu langafa sínssem var sveitarómagi og síðarvinnumaður fyrir rúmum 100
árum. Í þessari sögulegu skáldsögu
greinir frá ömurlegum kjörum fátæk-
linga og þeirri óréttlátu samfélags-
skipan sem hér var við lýði fyrir ekki
svo ýkja löngu og saga Hrólfs er rak-
in frá barnsaldri og fram á fullorð-
insár. Hann er sveitarómagi sem er
skilinn frá móður sinni, systkinum og
stjúpföður og er í rauninni boðinn
upp árlega eins og hver annar varn-
ingur og sá hreppir hnossið sem býð-
ur lægstu fjárhæðina, því þá þarf
hreppsnefndin að bera minnstan
kostnað af honum. Aðbúnaður hans
er misjafn – sums staðar fær hann lít-
ið að borða og er látinn þræla, annars
staðar er atlætið betra. En þegar líð-
ur að fardögum er alltaf sama óviss-
an; verður hann áfram á staðnum eða
fer hann eitthvað annað og ekki nema
von að orðið hreppsnefndin verði að
blótsyrði í huga Hrólfs á unga aldri.
Sagan er sögð út frá sjónarhóli
Hrólfs, að mestu í þriðju persónu en
af og til talar hann í fyrstu persónu.
Lungann af bókinni er hann á barns-
aldri og eru fáir betri að sjá hlutina út
frá sjónarhorni barna en Iðunn, sem
er einn okkar ástsælasti barna- og
unglingabókahöfundur. Þegar hann
er kominn á fullorðinsaldur og gerist
vinnumaður breytist fátt í lífi hans því
þrátt fyrir að vera duglegur til verka
hefur hann lítið að
segja um eigin ör-
lög og berst fyrir
því að halda fjöl-
skyldu sinni sam-
an.
Það er eiginlega
alveg með ólík-
indum til þess að
hugsa að ekki séu
nema rétt rúm 100 ár síðan þetta var.
Fátæklingar nutu lítilla mannrétt-
inda og líklega eru fleiri Íslendingar
en undirrituð og Iðunn í þeim sporum
að eiga sveitarómaga að forfeðrum
ekkert mjög langt aftur í ættir.
Iðunni tekst að draga fram einlæga
og trúverðuga mynd af lífi þeirra sem
minnst máttu sín í lok 19. aldar og
þrátt fyrir að Hrólfs saga sé í grunn-
inn sorgarsaga er lesturinn síður en
svo niðurdrepandi, heldur þvert á
móti því Hrólfur er sérlega jákvæður
og bjartsýnn og tekst á við erfiðar að-
stæður af aðdáunarverðu æðruleysi.
Frásagnarstíllinn er látlaus, ein-
kennist aðallega af samtölum og setn-
ingar eru yfirleitt stuttar og hnitmið-
aðar. Reyndar er stíllinn ekkert
ósvipaður og er í mörgum barnabók-
um (og þar er Iðunn á heimavelli) en
frásögnin líður nokkuð fyrir þetta því
efnið er það áhugavert að á köflum
hefði mátt fara öðruvísi með það og
kafa dýpra. Persónusköpun hefði líka
að ósekju mátt vera ítarlegri, í bók-
inni koma margar persónur við sögu,
mismikið, en það hefði gefið sögunni
meiri dýpt og vægi að draga þær
sterkari dráttum. Annars er þetta í
heildina hin fínasta bók, sem hefði
gjarnan mátt vera lengri því við-
fangsefnið býður svo sannarlega upp
á það.
Af ömurlegum örlögum ómaga
Morgunblaðið/Eggert
Höfundurinn „Iðunni tekst að draga fram einlæga og trúverðuga mynd af
lífi þeirra sem minnst máttu sín í lok 19. aldar,“ segir rýnir.
Skáldsaga
Hrólfs saga bbbmn
Eftir Iðunni Steinsdóttur.
Salka 2015. Innbundin, 150 bls.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Uppselt er á tónleika Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í kvöld þar sem
bandaríski stjórnandinn James Gaf-
figan stýrir tónleikunum en hann er
einnig aðalstjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í Luzern. Píanó-
leikarinn Kirill Gerstein flytur pí-
anókonsert Tsjajkovskíjs en það er
eitt vinsælasta tónverk allra tíma og
í því gefst einleikaranum færi á að
sýna allar sínar bestu hliðar, jafnt í
tjáningu sem tæknilegri færni. Kirill
Gerstein er einn áhugaverðasti pían-
isti sinnar kynslóðar og hefur m.a.
hlotið hin virtu Gilmore-píanóverð-
laun, árið 2010, og New York Times
valdi nýjasta geisladisk hans einn
þeirra bestu sem gefnir voru út
2014.
Leníngrad-sinfónía Shostakovítsj
verður einnig á dagskrá. Hún var
samin undir nærri ólýsanlegum
kringumstæðum og lýsir innrás
Þjóðverja í Sovétríkin í júní 1941.
Umsátur þeirra um Leníngrad varði
í níu hundruð daga og talið er að um
milljón manns, þriðjungur borgar-
búa, hafi látið lífið í sprengjuárásum
eða úr kulda, smitsjúkdómum og
hungri. Frumflutningurinn fór fram
í mars 1942 og Moskvubúar fengu að
heyra verkið nokkrum vikum síðar.
Sinfónían er magnþrunginn minn-
isvarði um reisn mannsandans og
mátt listarinnar jafnvel þegar öll
sund virðast lokuð.
Tónleikarnir verða sendir út beint
á Rás 1.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sinfónía Þetta er í þriðja sinn sem Leníngrad-sinfónían er flutt hér á landi.
Máttur listarinnar