Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
ALLTAF
VIÐ HÖNDINA
... allt sem þú þarft
Þú getur lesið Fréttablaðið í heild sinni
á Vísi og í Fréttablaðs-appinu
Samfélag þar
sem allt er
ekki metið í
krónum og
aurum heldur
gildum sem
varða okkur
öll, líðan
okkar og
framtíð.
Efnahagsleg endurreisn Íslands hefur gengið vel og er alþjóðlegur samanburður okkur hagstæður. Láns-hæfi ríkissjóðs hefur hækkað í A-flokk meðal annars
vegna lækkandi skulda ríkissjóðs og afgangs á fjárlögum
og þá hafa stöðugleikaframlög slitabúa bankanna gert
það að verkum að heildartekjur ríkissjóðs eru yfir þúsund
milljörðum króna á fjárlögum ársins 2016. Góður afgangur
er á viðskiptajöfnuðinum og innstreymi erlends gjaldeyris
hefur verið mikið m.a. vegna þess vaxtar sem hefur verið í
ferðaþjónustu. Algjör grundvallarbreyting hefur orðið frá
fyrri tímum, þar sem hrein erlend staða þjóðarbúsins er nú
jákvæð í fyrsta sinn frá því mælingar hófust.
Seðlabankinn hefur brugðist við þessu mikla innflæði
með auknum kaupum á gjaldeyri. Gjaldeyrisforðinn er
orðinn um 40% af landsframleiðslu og kostnaður við
hann umtalsverður vegna vaxtamunar við útlönd. Eitt
stærsta verkefni hagstjórnarinnar verður að bregðast við
þeim breytingum sem hafa átt sér stað á viðskiptajöfnuð-
inum. Einn liður í því er að setja á laggirnar Stöðugleika-
sjóð Íslands. Slíkur sjóður hefði það að eitt af meginmark-
miðum að stuðla að sveiflujöfnun í hagkerfinu og koma
í veg fyrir að uppgangur í einni útflutningsgrein skerði
ekki samkeppnishæfni annarra. Þjóðir sem eru ríkar af
auðlindum, líkt og Ísland, hafa sett upp svipaða sjóði til að
ná betur utan um hagstjórnina. Norski olíusjóðurinn er
eitt besta dæmið um það. Ýmsar hugmyndir hafa komið
fram um stofnun sjóðs með svipað hlutverk og Stöðug-
leikasjóðurinn. Almennt er gengið út frá því að auðlinda-
gjöld standi undir sjóðnum, bæði stofnframlagi og vexti
hans. Slíkt er vissulega mögulegt en þannig tæki langan
tíma að byggja upp myndarlegan höfuðstól til ávöxtunar.
Skilvirkara væri að nota hluta af stöðugleikaframlögunum
sem höfuðstól Stöðugleikasjóðsins – kaupa upp hluta af
gjaldeyrisforða Seðlabankans – og stækka sjóðinn svo
smám saman með tekjum af auðlindum landsins, þ.e.
sjávarútvegi, orku- og ferðaþjónustu.
Kjöraðstæður eru í íslensku efnahagslífi og mikilvægt
að rétt sé á málum haldið. Eitt af mikilvægustu verkefnum
stjórnmálanna er að skapa efnahagslífinu umgjörð sem
stuðlar að stöðugleika til langs tíma. Með skynsamri
hagstjórn skapast meira fjárhagslegt svigrúm til að efla
velferðarsamfélagið og bæta hag okkar allra.
Framtíðin er núna
Einn liður í
því er að
setja á
laggirnar
Stöðugleika-
sjóð Íslands.
Lilja
Alfreðsdóttir
utanríkis-
ráðherra
Já, já, við getum alveg komið á morgun. Með Herjólfi? Nei, bíddu. Hver er þessu Herjólfur? Já, skipið. Já, ég vissi það, jú, jú. Ég var nú bara svona að spauga. Já, já, þú segir það já. Heyrðu, hvernig hérna … Halló?“ Og þar með lauk símtalinu og þeir Þór og Danni voru komnir í
vinnu hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.
Reiðubúnir til þess að hefja nýtt líf í sam-
nefndri kvikmynd eftir Þráin Bertelsson.
Nýtt líf sló í gegn hjá Íslendingum og er enn vinsæl
einhverjum kynslóðum síðar. Ekki aðeins vegna þess
að myndin er fyndin og skemmtileg heldur vegna
þess að þjóðin tengdi, sá sig og landa sína í Þór og
Danna og gerir enn. Tengir við drauminn um að hefja
nýtt líf. Taka sig í gegn og rífa sig upp á rassgatinu og
allt það. Og rétt eins og það er gott að byrja nýja árið
brosandi yfir Þór og Danna þá eru áramót líka ein-
mitt tíminn til þess að byrja nýtt líf.
Þjóðin krafðist kosninga á árinu vegna þess að hún
þráir nýtt stjórnmálalíf, langþreytt á spillingu, sér-
hagsmunabrölti og vondum vinnubrögðum. Og svo
kaus þjóðin, margklofin og sundruð í því hvaða leið
sé rétt að fara til hins nýja Íslands og stjórnmálamenn
virðast eiga enn erfiðara með að átta sig á því hvað
þjóðin vill. Íslenskir stjórnmálamenn hafa reyndar
ekkert alltaf verið í því að láta vilja þjóðarinnar trufla
sig svo eðlilega hefur þetta verið erfið fæðing, þó svo
nú stefni allt í nýja ríkisstjórn á nýju ári.
Það er fólgin áskorun í því fyrir nýja ríkisstjórn
og reyndar þingheim allan að sýna þjóðinni að við
getum öll hafið nýtt og betra stjórnmálalíf á nýju ári.
Stjórnmálalíf þar sem almannahagsmunir eru ætíð
hafðir að leiðarljósi og vinnubrögðin verða þingi og
þjóð til sóma. Allt er þetta spurning um grundvallar-
viðhorf. Viðhorf sem hefur sig upp yfir þunglamalegt
valdabrölt bjarndýrsins og dansar á trjátoppunum
eins og íkorninn, svo vitnað sé til jómfrúarræðu Ótt-
ars Proppé frá því um árið.
Íslendingar kusu sér líka forseta á árinu sem leið
og þeir kusu sér íkorna. Guðni Th. Jóhannesson er
maður sem hefur tileinkað sér aðra hugsun, fram-
komu og viðhorf en við þekkjum úr ranni íslenskra
stjórnmála. Og þjóðinni þykir vænt um sinn nýja
forseta vegna þess að þjóðin finnur að hann er hluti
af þessari þjóð. Tilheyrir henni og lætur sig varða
hagsmuni hennar allrar. Það var auðfinnanlegt á
nýársávarpi forsetans og vonandi hafa stjórnmála-
öflin lagt vel við hlustir og leitast í framhaldinu við
vinna í anda þeirra orða.
Í nýársávarpi forseta Íslands var að finna ákall um
samfélag jafnra tækifæra og góðra manngilda. Sam-
félag þar sem öll börn fá að njóta sín og allir njóta
heilbrigðisþjónustu og umönnunar eftir þörfum.
Samfélag þar sem allt er ekki metið í krónum og
aurum heldur gildum sem varða okkur öll, líðan
okkar og framtíð. Það er því vonandi að það fari ekki
fyrir næstu ríkisstjórn eins og þeim Þór og Danna sem
höfðu aldrei annað en eigin hagsmuni að leiðarljósi í
leit að nýju lífi og viðhorfið var aldrei annað en eitt og
hið sama: „Við erum komnir í uppgrip, maður.“
Nýtt líf
Ómöguleiki ESB
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur náðst sátt í stjórnar-
myndunarviðræðum um að kosið
verði um viðræður við ESB, kvóti
fari á markað, MS verði sett undir
samkeppnislög og tollar á hvítt
kjöt lækkaðir í skrefum á kjör-
tímabilinu. Verður að telja þetta
nokkur pólitísk tíðindi og verður
landsbyggðararmur Sjálfstæðis-
flokksins líkast til ekki hoppandi
glaður yfir þeim stjórnarsáttmála.
Sérstaklega ekki ákvæðinu um
ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu. Rétt
er þó að minna á að fyrir kosningar
2013 lofaði Bjarni Benediktsson
þjóðaratkvæðagreiðslu um áfram-
hald viðræðna við ESB.
Knésettur
Svo virðist sem Benedikt Jóhann-
esson og Óttarr Proppé hafi,
með samstilltu átaki sínu um að
vinna náið saman eftir kosningar,
náð öllum sínum stóru málum
áfram í samningaviðræðum við
Sjálfstæðisflokkinn. Einnig hefur
styrkur Viðreisnar og Bjartrar
framtíðar falist í því að veifa fimm
flokka spilinu framan í Sjálf-
stæðisflokkinn. Hvort kjósendur
Bjartrar framtíðar hafi viljað að
flokkurinn færi í ríkisstjórn með
Sjálfstæðisflokki og útibúi þess
er annar handleggur. Sjálfstæðis-
flokkurinn sýpur þar seyðið af
því að Framsóknarflokkurinn er
óstjórntækur með óútreiknan-
legan jóker í einu oddvitasætinu
og því fækkar möguleikunum
mjög til myndunar ríkisstjórnar.
sveinn@frettabladid.is
2 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r16 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
0
2
-0
1
-2
0
1
7
0
3
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
5
-F
2
1
4
1
B
D
5
-F
0
D
8
1
B
D
5
-E
F
9
C
1
B
D
5
-E
E
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K