Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 24
#enski365#PL 365.is Sími 1817 KAUPTU STAKAN LEIK: Mánudagur 2. janúar Leicester 12:20 Middlesbrough Liverpool 14:50 Sunderland Þriðjudagur 3. janúar Arsenal 19:35 Bournemouth Chelsea 19:50 Tottenham #MIDLEI #SUNLIV #BOUARS #TOTCHE Miðvikudagur 4. janúar 22:00 #Messan Gummi Ben og félagar fara yfir alla leikina. Íslenskt samfélag hefur getu til að hlúa betur að mikilvægum velferðarmálum. Við höfum nefnilega búið við einstaka efna- hagslega velsæld um skeið eftir undangengin stóráföll. Sjávarútvegur hefur gengið fádæma vel og útgerð dafnað og skilar fyrirtækjum góðum arði. Ferðaþjónusta þenst taumlítið út, en aflar verulegra tekna. Vel á aðra milljón gesta koma til landsins allt árið. Gistirými nú um jól og áramót reyndist víða uppurið. Verslun og viðskipti blómstra og verklegar framkvæmdir aukast stig af stigi. Mikil eftirspurn er eftir vinnu- fúsum höndum og sækja þarf til útlanda í stórum stíl eftir mann- skap. Því er eðlilegt að sú spurning vakni hvort þessi þjóð sé ekki ham- ingjusöm og glöð, hvort allir uni sér ekki vel og hafi nóg fyrir sig. Hvort barnafjölskyldur búi ekki við far- sæld og öryggi, uppeldis- og skóla- stofnanir blómstri í starfi sínu, búið sé með sóma að þeim sem lokið hafa löngum starfsdegi, öryrkjar fái að halda mannvirðingu sinni með viðunandi afkomu, löggæsla sé trygg og örugg og aðrir opinberir innviðir, samgöngumannvirki og heilbrigðisþjónusta séu viðunandi eða jafnvel framúrskarandi. Því miður er því til að svara að fúaspýtur finnast alltof víða. Það kom meðal annars fram með nötur- legum hætti í skýrslu Barnaheilla um barnafátækt, skort á tækifærum og hættu á félagslegri einangrun á Íslandi og í öðrum Evrópulöndum sem birt var um miðjan desember. Höfum efni á að gera betur Fjöldi Íslendinga býr við skort, bæði börn og fullorðnir. Það er dökkur blettur á íslensku samfélagi að landsmenn í þúsunda tali þurfi reglulega að leita á náðir hjálpar- stofnana til að afla sér matar, ekki bara fyrir jól. Látum það ekki hverfa úr hug- skoti okkar að yfir sex þúsund börn á Íslandi búa við fátækt og enn fleiri eru í áhættuhópi. Það eru meðal annars einmitt þessi börn sem taka munu þátt í að móta sam- félagið í framtíðinni og hvað ætli þeim finnist um réttlætið? Það sitja 63 þingmenn á Alþingi. Það ættu ekki einu sinni að finn- ast 63 fátæk börn á öllu Íslandi. Það ættu engin börn að vera fátæk á Íslandi og það er á vettvangi Alþingis Íslendinga sem við getum breytt, bætt kjör og aðbúnað þeirra sem búa við skarðan hlut. Um þetta var okkur jafnaðarmönnum tíð- rætt í kosningabaráttunni og við gáfum loforð og á þessu sama tæptu raunar allir stjórnmálaflokkar. Við fengum hins vegar ekki fylgi en þetta er hægt. Við höfum efni á að gera betur og á það ættum við þing- menn að einblína og sameinast um á kjörtímabilinu sem er fram undan, að stuðla að auknu réttlæti og sanngirni fyrir alla okkar þegna. Íslenskt réttlæti og börn Já, sagt er að í Kína borði menn hunda, en óumdeilanlegt er að fólki og húsum er þar rutt mis- kunnarlaust í burtu til að skapa pláss fyrir stóriðjuver og stíflur. Mengun er þar orðin stórt vanda- mál er skaðar heilsu og lífsgæði fólks. Flest erum við sennilega sam- mála um að seinni fullyrðingarnar eru um ástand sem við viljum ekki sjá verða til á Íslandi. Við virðumst þó byrjuð að feta þessa leið að nokkru, og að því er virðist með dyggri hjálp þeirra lífeyrissjóða er sum ykkar stjórna. Fréttir herma að þessa dagana og undanfarna mánuði hafi svonefnd- ir fjárfestar gengið á fund ykkar og kynnt fyrir ykkur hugmyndir sínar um arðsemi mengandi stór- iðjuuppbyggingar í Helguvík. Þeir óska eftir því að fé lífeyrissjóðanna sé notað til þeirrar uppbyggingar. Minna hefur farið fyrir að þeir sem fyrir áhrifum uppbyggingarinnar verða og hafa áhyggjur af áhrifum hennar hafi skýrt sín sjónarmið fyrir ykkur. Því er þetta bréf skrifað því að nauðsynlegt er að sem flest sjónarmið komi fram þegar svo mikið fé lífeyrissjóðanna er notað. Á nýlegum borgarafundi í Reyk ja n e s b æ sý n d i f u l l t r ú i Umhverfisstofnunar áður óbirta mynd af dreifingu mengunar byggða á útreikningum loftreikni- líkana. Sú mynd gaf fullt tilefni til að setja stórt spurningarmerki við frekari uppbyggingu slíkrar stór- iðju svo nærri bæjarmörkunum. Jafnvel þó reiknað magn mengun- arefna væri innan marka er ljóst að á því svæði sem mengunin nær til er nú þegar til staðar einn barna- skóli, þrír leikskólar og stór íbúða- hverfi. Engum dylst að mengun mun verða, og meira að segja svo mikil að eftirlitsaðilar telja ríka ástæðu til að vakta svæðið. Illa stöddu bæjarfélagi stillt upp við vegg Fjárhagsleg staða Reykjanesbæjar er öllum ljós. Um ástæður hennar þarf ekki að fjölyrða. Sú staða setur þá sem bænum stjórna þröngar skorður til að taka á þeim vanda er við öllum blasir. Framkvæmdar- aðilar í Helguvík hafa skýrt sín sjónarmið og verði gerð breyting á þeim samningum er þegar hafa verið gerðir munu þeir leita réttar síns til skaðabóta. Þeir hafa stillt illa stöddu bæjarfélagi upp við vegg hvað ákvörðunarrétt sinn nú varðar í þessu máli. Rétt er að hafa í huga að þeir aðilar hafa þó ekki staðið við áðurgerðar skuldbind- ingar sínar gagnvart bæjarfélaginu, né heldur lokið fjármögnun á fyrir- ætlunum sínum. Orðspor þjóða fer eftir því hvern- ig þær haga sínum málum. Hvernig þær umgangast íbúa sína og náttúru á tímum þar sem loftslagsbreytingar og stríð þjaka heiminn. Samfélags- leg ábyrgð ykkar sem stjórnenda líf- eyrissjóðanna og stærsta fjárfestis í íslensku atvinnulífi er mikil. Þið hafið um það að segja hvert orðspor okkar verður til framtíðar og hver ásýnd þjóðarinnar verður. Arðsemi fjárfestinga lífeyrissjóða er mikilvæg. En þau samfélagslegu áhrif sem þær fjárfestingar hafa eru einnig mikilvæg. Það er ykkar að vega og meta. Fjárfestar hafa þegar kynnt ykkur efnahagslegu rökin og væntingar sínar um hagnað. Í bréfi þessu er reynt að beina augum ykkar að áhyggjum þeirra sem í nánd við þessar fjárfestingar búa. Menning okkar segir mér að seint muni renna upp sá tími að á Íslandi muni menn borða hunda, en þið getið með ákvörðun ykkar komið í veg fyrir að fólk þurfi nauð- ugt heilsu sinnar vegna að flytjast búferlum vegna uppbyggingar stóriðju í bakgarði sínum, sem líf- eyrissjóðir þeirra sömu fjármagna. Skynsemin verður að virka í báðar áttir. Með vinsemd og virðingu og ósk um farsælt nýtt ár. „I Kina spiser de hunde“ – Opið bréf til stjórnenda lífeyrissjóðanna Guðjón S. Brjánsson alþingismaður Við höfum efni á að gera betur og á það ættum við þingmenn að einblína og sameinast um á kjörtíma- bilinu sem er fram undan, að stuðla að auknu réttlæti og sanngirni fyrir alla okkar þegna. Menning okkar segir mér að seint muni renna upp sá tími að á Íslandi muni menn borða hunda, en þið getið með ákvörðun ykkar komið í veg fyrir að fólk þurfi nauð- ugt heilsu sinnar vegna að flytjast búferlum vegna upp- byggingar stóriðju í bakgarði sínum, sem lífeyrissjóðir þeirra sömu fjármagna. Hannes Friðriksson innanhúss­ arkitekt Áben ingahnappi n má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 2 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 0 2 -0 1 -2 0 1 7 0 3 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D 6 -3 C 2 4 1 B D 6 -3 A E 8 1 B D 6 -3 9 A C 1 B D 6 -3 8 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.