Fréttablaðið - 02.01.2017, Side 41

Fréttablaðið - 02.01.2017, Side 41
Þann 19. september sl. birti Fréttablaðið fjögurra dálka frétt um fimm ungar konur, sem voru á leið til Eistlands til að drepa þar elgi sér til skemmtunar. Konurnar voru með bros á vör, í her- eða veiðimanna- búningum og báru allar haglabyssur. Framsetning málsins var á þá vegu að ætla mátti að um gott og skemmti- legt framtak þessara fimm glaðbeittu kvenna væri að ræða. Mynd var dreg- in upp af dugmiklum og framsæknum merkiskonum í fréttinni. Í grein, sem ég skrifaði í blaðið 24. nóvember sl., lýsti ég þeirri skoð- un minni að þeir, sem liggja í því að elta og ofsækja, meiða og limlesta, og svo drepa saklaus og varnarlaus dýr að óþörfu og að gamni sínu, séu ekki hetjur heldur miklu fremur heiglar og dýraníðingar. Auðvitað gerðu menn ekkert með þetta. Og Hringbraut bætti um betur Það sem ég hef séð til Hringbrautar hefur mér flest hvað fundist gott og áhugavert, og Sigmundur Ernir er einn viðkunnanlegasti, frumlegasti og merkilegasti fréttamaður landsins. Það var því mikið áfall að sjá, hvernig stöðin – reyndar ekki undir stjórn Sigmundar Ernis, heldur starfssystur hans – fjallaði um þetta elgjadráp í 15-20 mínútna sjónvarps- sendingu þann 9. desember sl. Frétta- konan spurði leiðandi spurninga til að fá fram jákvæðar og skemmtilegar hliðar á þessu tilfinningalausa og til- gangslausa drápi saklausra dýra, sem áttu sér einskis ills von og höfðu ekk- ert til saka unnið. „200 metra færi fínt“ Fréttakona spurði úr hvaða færi og hvernig bezt væri að drepa dýrin og fékk þau svör, að þegar færið væri orðið ca. 200 m væri fínt að skjóta á dýrið. Hvar ætti að hitta? Bezt væri að skjóta á lungnasvæðið. Og drepast dýrin strax? „Já, ef við hittum.“ Ekki var spurt hvað gerðist, ef ekki væri hitt í lungnasvæðið á dýrunum. Þess má geta hér að 200 m eru u.þ.b. sama fjarlægð og lengd tveggja fótaboltavalla til samans og lungna- svæðið er vart miklu meira en stór bolti að stærð. Getur hver metið fyrir sig hverjar líkur eru á að konurnar geti drepið elg í fyrsta skoti, með þungum og kraftmiklum rifflum við þessi skil- yrði. Varðandi eftirleikinn, ef ekki er drepið með fyrsta skoti, get ég nefnt að eftir því sem ég þekki aðferðir elgjaveiðimanna, þá er ekki leitað að særðu dýri fyrr en í lok veiðidagsins, og það þá drepið, ef það finnst. Finn- ist það ekki, verður dýrið meitt og kvalið að bíða þess að dauðinn taki það, kannski stundir, daga og jafnvel vikur. Hvað er svona skemmtilegt við þetta var spurt. „Æðisleg tilfinning að taka í gikkinn og sjá dýrið falla,“ (drepa það), var svarið. „Elgskjöt í öll mál“ Margir veiðimenn réttlæta dýradráp sitt með því að þeir séu að veiða í matinn. Auðvitað er það punktur, jafnvel þó að brýn þörf sé oft ekki til staðar. Ekki var því fyrir að fara hjá „veiðikonunum 5“. Eins og þær vissu fyrirfram gátu þær ekki komið með vöðvana eða kjötið af elgunum sem þær drápu heim, og nýtt sér það til matar. Innflutningur á nýju kjöti erlendis frá er óheimill. Þegar frétta- kona þó spurði út í þetta, var svarið, að „veiðikonurnar 5“ hefðu étið elgs- kjöt í öll mál þá þrjá daga sem dráps- ferðin stóð. „Æðisleg tilfinning að taka í gikkinn og sjá dýrið falla“ (drepa það) Hér má nefna, að meðalelgur er um hálft tonn. Nokkrir elgir 1-2 tonn eða meira. Ekki var farið nánar út í það. Augljóst var því að drápsferðin var farin í því skyni einu að elta og ofsækja, meiða og limlesta, og loks drepa varnarlaus og saklaus dýrin. Mér dettur ekkert annað í hug en orðin „blóðþorsti“ eða “drápsfýsn“ yfir þetta athæfi. Dæmi hver fyrir sig. Maðurinn er eina dýrið, sem drepur sér til skemmtunar Í grundvallaratriðum drepa dýr önnur dýr sér aðeins til matar og lífs- viðurværis. Sköpunarverkið er byggt á þann veg. Líf og afkoma margra dýra byggist á slíkri lífskeðju náttúrunnar. Við slíku er vitaskuld ekkert að segja. Maðurinn er hér þó undanskil- inn. Hann er eina dýrið, sem drepur önnur dýr og lífverur að gamni sínu; Sér til fróunar, gleði og skemmtunar. Það mætti kalla þetta „lostadráp“. Ég vona, að allir góðir og heilbrigðir menn, sem ekki hafa skilning fyrir þessu athæfi, vinni með öllum árum gegn og rísi upp gegn slíku þarflausu dýraníði og dýradrápi. Það á að hlúa að, virða og verja allt líf; Sköpunar- verkið í heild sinni. Að lokum vil ég minna á orð meist- arans mikla, Laotse: „ Við berum ekki aðeins ábyrgð á því, sem við gerum, heldur líka á því, sem við gerum ekki.“ Það er mál til komið að hljóðlátir og hófsamir íslenzkir dýra- og nátt- úruvinir sameinist og gerist virkir og framsæknir; Tali fyrir dýrin; Þau geta það ekki sjálf ! Ole Anton Bieltvedt alþjóðlegur kaupsýslumaður og stjórnmála­ rýnir s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 25M Á n u D A G u R 2 . j A n ú A R 2 0 1 7 0 2 -0 1 -2 0 1 7 0 3 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D 6 -3 C 2 4 1 B D 6 -3 A E 8 1 B D 6 -3 9 A C 1 B D 6 -3 8 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.