Fréttablaðið - 02.01.2017, Síða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR
www.husgagnahollin.is
558 1100
afsláttur
60%
Allt að
ÚTSALA
RISA
Opnum í dag
2. janúar kl. 1000
Edda Sif Pálsdóttir
Hverjir voru hápunktar ársins
2016? „Hápunkturinn var án efa EM
í Frakklandi í sumar. Þar blandaðist
stórkostlegt mót íslenska liðsins við
frábærar samverustundir með vinum
og fjölskyldu í geggjuðu umhverfi, sól
og góðum mat út um allt Frakkland.
Það verður ekki mikið betra.“
Eitthvað sem kom sérstaklega á
óvart? „Íþróttaárið 2016 var algjör-
lega bilað en það þurfti kannski ekki
að koma neitt sérstaklega á óvart
eigandi þetta íþróttafólk. Ísland
vann England á EM og við áttum í
fyrsta skipti konur í úrslitum í sundi
á Ólympíuleikum. Og það er bara
brotabrot af því sem gerðist.“
Hvað er framundan á árinu
2017? „Meiri íþróttir! Það verður
fullt af stórmótum á árinu og ég
Emmsjé Gauti
Emmsjé Gauti átti mjög gott ár 2016
en hann gaf þá út tvær plötur, hélt
ótal tónleika og var kynnir í Ísland
Got Talent – en hvað af þessu skyldi
hafa verið hápunktur ársins hjá
drengnum?
„Hápunktarnir mínir voru tveir
– annars vegar þegar ég skellti
mér á útgáfutónleika á NASA með
sjálfum mér og hélt útgáfupartí, það
var gaman. Hins vegar þegar Stella
María dóttir mín sagði „pabbi“ í
fyrsta skiptið.“
Það verður ákaflega spennandi að
sjá hvort Gauti toppi sig árið 2017 –
ætli hann gefi út þrjár plötur? Verð-
ur hann kynnir í Gettu betur? Ætlar
hann að fara út í pólitík? Hvað?
„Árið 2017 er ég að pæla í að halda
áfram að semja músík, hafa gaman
af lífinu. Síðan ætla ég þúsund sinn-
um í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.
Og ekkert annað,“ segir Gauti ákaf-
lega hógvær og nægjusamur. Við
þurfum þá bara að bíða eftir því að
sjá hvaða ævintýrum þessi ofvirki
rappari lendir í á næsta ári.
Hápunktar ársins
2016
Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari segir árið hafa verið virkilega gott.
Edda Sif Pálsdóttir fjölmiðlakona rifjar upp hápunkta ársins 2016.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR
Jóhannes Haukur
Jóhannesson
„Persónulega var árið 2016 svona
með þeim betri, hæsti punkturinn
var fæðing þriðja barnsins okkar
hjóna, en við eignuðumst fallega
dóttur í apríl sem heitir Margrét
Frida Blöndal Jóhannesdóttir. Hvað
vinnu varðar byrjaði árið á að ljúka
tökum á kvikmyndinni The Cold-
est City í Búdapest. Fór svo í tökur
á annarri bíómynd, sem heitir The
Solutrean, í Kanada þar sem mér
var treyst fyrir frábæru hlutverki í
mynd sem verður afar sérstök. Ég
fékk svo hlutverk í annarri seríu af
þáttunum The Last Kingdom og gat
tekið fjölskylduna með í tökur á því
til Ungverjalands um sumarið. Svo
lék ég í myndinni Ég man þig sem
Óskar Þór Axelsson leikstýrir eftir
samnefndri bók Yrsu Sigurðar,“
segir Jóhannes Haukur Jóhannesson
leikari spurður út í hápunkta ársins
2016.
En hvað er fram undan á nýja
árinu? „Ég byrja árið á að fara til
Los Angeles í smá aukatökur á
The Solutrean núna í janúar. Það
er ekki óvanalegt í þessum stóru
Hollywood-verkefnum að skella í
smá aukatökur á lokametrunum,
ef það vantar eitt og eitt skot eða
atriði til að skerpa á hlutunum.
Eftir það er allt svo sem óráðið,
allavega ekkert í hendi ennþá. Það
eru tvö sjónvarpsverkefni þarna
úti sem eru í ákveðnu ferli en það
getur allt farið til fjandans á núll
einni. Við sjáum bara til. En von-
andi hef ég líka tíma til að taka að
mér einhver verkefni hér heima,“
segir Jóhannes Haukur.
Nú þegar nýtt ár er
gengið í garð er gott
að líta til baka og
rifja upp hvað
gerðist á liðnu
ári. Við fengum
nokkra vel valda
einstaklinga til að
rifja upp hápunkta
ársins, auk þess að
fara yfir hvað fram
undan er á nýja
árinu.
Emmsjé Gauti átti mjög gott ár 2016.
ætla að fylgja kvennalandsliðinu í
fótbolta eftir í undirbúningi fyrir EM
og fara svo á mótið sjálft í Hollandi í
júlí. Landi blandaður við íþróttir er
blanda sem svínvirkar fyrir mig.“
Ert þú búin að setja þér ein-
hver markmið fyrir nýja árið
eða strengja áramótaheit?
„Njaaa, alla jafna strengi ég
ekki áramótaheit. Ég held samt
að við hefðum öll gott af því að
vera aðeins glaðari og jákvæðari
og velja betur í hvað við eyðum
orkunni. Ég ætla allavega að vera
létt 2017!“
2 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r46 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
0
2
-0
1
-2
0
1
7
0
3
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
6
-0
5
D
4
1
B
D
6
-0
4
9
8
1
B
D
6
-0
3
5
C
1
B
D
6
-0
2
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K