Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2016, Blaðsíða 39
20.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Hvað haldið þið? – Þannig er
krökkunum gjarnan svarað þegar
stórt er spurt á fjármálavits-
námskeiðinu.
Mjög gjarnan fá krakkarnir að
leika sér með eigin drauma á
námskeiðinu: Hvað kostar bíll?
Hvað kostar heimsreisa?
Svör við þeim spurningum, eins
og svo mörgum öðrum, finna þau
með því að afla sér upplýsinga í
óravíddum veraldarvefsins.
Þau fá líka að velta fyrir sér
ýmsum kostnaði sem í fyrsta virk-
ar nánast enginn.
„Margir fá sér til dæmis skyndi-
bita í hverri viku,“ segir Kristín
Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri Fjár-
málavits. „Við tökum stundum
dæmi af einhverjum sem fer út í
sjoppu og keyptir sér skyndibita
eða annað smálegt fyrir 2.000
krónur á viku. Krökkunum finnst
það í sjálfu sér ekki sérstaklega
mikið, en 104 þúsund á ári er hins
vegar dálítið mikið! Þetta er nefni-
lega fljótt að koma.“
Krakkarnir verða enn frekar
hugsi þegar talan rúmlega ein
milljón króna er nefnd. Það er
kostnaðurinn við það að eyða
2.000 krónum í hverri einustu viku
á því árabili!
SAFNAST ÞEGAR SAMAN KEMUR
Rúmlega milljón á tíu árum!
Ein pylsa eða annar skyndibiti kostar ekki mikið en safnast þegar saman kemur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það sem af er þessum vetri hafa
hátt í 100 fjármálafyrirtæki heim-
sótt 84 skóla og hitt 3.100 nem-
endur 10. bekk, en frá því að verk-
efnið fór af stað í fyrra er fjöldinn
kominn í 106 skóla og ríflega 4.100
nemendur, sem samsvarar um
einum árgangi.
Búið er að heimsækja um nán-
ast allt land en þessa dagana
standa yfir heimsóknir í skóla á
höfuðborgarsvæðinu.
Horft til Hollands
Með Fjármálaviti horfa Samtök
fjármálafyrirtækja til systur-
samtaka sinna í Evrópu, sér-
staklega í Hollandi, þar sem sam-
tök fjármálafyrirtækja hafa
undanfarin ár boðið upp á
kennsluefni og heimsótt skóla
með fjármálafræðslu við góðar
undirtektir nemenda og kennara.
Evrópsk peningavika, sem svo
er kölluð, er nýliðin. Hún er haldin
af samtökum banka og annarra
fjármálafyrirtækja í álfunni og er í
grunninn til að vekja athygli á
þörfinni fyrir aukið fjármálalæsi
meðal ungs fólks og skapa um-
ræðu.
Allt má finna um þróunarverk-
efnið Fjármálavit á vefnum, á síð-
unni www.fjarmalavit.is, og segir
Kristín Lúðvíksdóttir verkefna-
stjóri að í framtíðinni gætu kenn-
arar jafnvel nýtt sér það sjálfir til
fræðslu í skólunum.
Hlutlaus vettvangur
Kristín segir það hafa fallið í góð-
an jarðveg að fræðslan sé í nafni
Samtaka fjármálafyrirtækja en
ekki einstaka fyrirtækja. „Þetta er
hlutlaus vettvangur. Það er ekkert
launungarmál hvaðan við komum,
starfsmennirnir sem fara út í
skólana eru úr fjármálafyrir-
tækjum en kynna sig ekki sem
slíka heldur eru fulltrúar samtak-
anna. Skólarnir fagna því.“
FJÁRMÁLAVIT
Áhyggjulaus börn að leik áður en þau
fara að velta fjármálum fyrir sér.
Morgunblaðið/Eggert
Hafa rætt við
rúmlega
4.000 nema
Hydrófíl rakakrem án rotvarnar er alhliða rakakrem
sem má nota á allan líkamann og í andlit. Kremið er hannað
með viðkvæma húð í huga, hentar öllum húðgerðum og
öllum aldri. Hydrófíl rakakrem er sannkallað fjölskyldu-
krem þar sem líklegt er að allir í fjölskyldunni geti notað
það með góðum árangri.
Michael Clausen krem inniheldur 3% carbamidum.
Kremið er fremur feitt og gefur húðinni raka. Kremið
hentar vel á exem og þurra húð. Kremið má nota á
allan líkamann og í andlit.
Cetricide sárakrem hefur sótthreinsandi eiginleika.
Cetricide sárakrem er borið á smásár, bleyjuútbrot, lítil
brunasár, bólur og rispur. Kremið er áhrifaríkt á unglinga-
bólur.
Hælakrem er mjög feitt og er ætlað á þurra og grófa
húð. Kremið mýkir upp harða og grófa húð t.d. á hælum,
iljum og olnbogum. Best er að bera kremið á sig fyrir
svefn og leyfa því að virka yfir nóttina.
Karbamíðkrem er feitt rakabindandi krem sem hentar
fyrir venjulega, þurra og mjög þurra húð. Kremið má
nota í andlit og á hendur ef húðin er mjög þurr á þessum
svæðum. Best er að bera kremið á sig fyrir svefn.
ACP Krem leysir upp harða skán eða húð sem getur
myndast í hársverði. ACP krem er stíft (þykkt) krem sem
er notað í hársvörð. Það hefur hátt fitu innihald telst því
mjög feitt krem. ACP krem var framleitt í apótekum, og
dregur nafnið af fyrsta staf hvers innihaldsefnis.
Akvósum er stíft rakakrem sem er ætlað á þurra húð
og þurrkubletti. Kremið hentar börnum mjög vel.
Kuldakrem er útivistarkrem fjölskyldunnar. Kremið
er ætlað fyrir börn og fullorðna sem eru í útiveru
hvort sem er í leik eða starfi. Kuldakrem ver húðina
fyrir frostbiti og vind og er borið á andlit og hendur
áður en farið er út. Af kreminu er mildur ilmur af
lavender og rósmarín en þessar ilmkjarnaolíur eru hluti
af húðverndandi hluta kremsins. Kuldakrem er einnig
notað sem rakakrem fyrir þurra húð og hentar jafnt á
andlit, líkama og hendur.
Akvól er sérstaklega ætlað á mjög þurra húð á líkama
en einnig má bera það í andlit og á hendur. Akvól
inniheldur mikið magn af jarðhnetuolíu og telst því
mjög feitt krem.
ENGIN ILM- EÐA LITAREFNI
FÆST Í APÓTEKUM
HÁGÆÐA
HÚÐVÖRUR
EXEM ÞURRKUR Í HÚÐ PSORIASIS