Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2016, Blaðsíða 19
20.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
„Hún er að athuga hvort það séu kannski þrjú!“
Þóra og Nolan kynntust í London þar semhún vann við slitastjórn Landsbankansen hann í Goldman Sachs, amerískum
banka. Þau giftu sig árið 2012 og eignuðust Óli-
víu sem er þriggja ára en Þóra átti fyrir tvær
stúlkur, sem í dag eru níu og þrettán ára. Nolan
á tvo drengi, fjórtán og átján, sem búa í London
en koma reglulega til Íslands. „Við erum með
alla liti, svart, hvítt og blandað,“ segir Þóra og
hlær.
Þegar að Ólivía var tveggja ára ákváðu þau
að bæta einu barni við. Þau þurftu ekki að bíða
lengi. „Og ég varð ólétt um leið og við ákváðum
að eignast eitt barn í viðbót. Nolan hélt að ég
væri ímyndunarveik en ég fann það strax. Ég
tók fullt af óléttuprófum og þau voru öll nei-
kvæð,“ segir Þóra. „Já, og ég sagði við hana að
hún væri að ímynda sér þetta!“ segir Nolan og
hlær. „Öll einkennin voru svo sterk, ógleði og
aum brjóst. Ég fann þetta allt strax,“ segir Þóra
en segir að hún hafi tekið prófin of snemma til
að þau gæfu jákvætt svar. En hún hafði rétt fyr-
ir sér og rúmlega það.
Hvernig komust þið að því að það væri von
á þríburum?
„Ég var með verki og fór á spítalann en ég
var komin 6-7 vikur á leið. Það var eins og ég
væri með rýting í kviðnum en það átti að tékka á
hvort ég væri með utanlegsfóstur. Þá fór ég í
sónar en það var ung kona sem skoðaði mig. Ég
sagði við hana að mér fyndist ég frekar stór og
við værum að spá í hvort þetta væru tvíburar en
við bara hlógum að því. Fyrst sagði hún, nei,
þetta er bara eitt barn. Eða eru þetta tvö? sagði
hún þá, og bætir við að hún hafi aldrei skoðað í
sónar þar sem hafi verið fjölburar. Þá sá hún tvo
hjartslætti og segist ætla að ná í sérfræðing. Ég
spurði hvort allt væri í lagi og hún sagðist bara
þurfa að vera viss að það væru tvö en ekki þrjú.
Þetta sagði hún á íslensku. Svo fór hún fram og
ég sagði við manninn minn, þú veist hún er að
athuga hvort það séu kannski þrjú! Og svo kom
sérfræðingurinn og taldi: eitt, tvö, þrjú. Og öll
hjörtun slógu kröftuglega,“ segir Þóra. „Við
hlógum í tvo daga. Við grétum ekki og höfum
ekki grátið enn,“ segir hún. „Þetta var sjokk,
gleðilegt sjokk,“ bætir Nolan við.
Þau segja að þau hafi strax fundið á sér að allt
færi vel. „Ég fann fyrir einhverri innri ró, ég
vissi að það færi allt vel,“ segir Nolan. Þóra er
sammála en hafði þó skiljanlega áhyggjur af
meðgöngunni.
Hvernig hafa síðustu sjö mánuðir verið?
„Þetta hefur gengið fínt. Í byrjun var það
mjög erfitt því við þurftum að vakna á tveggja
tíma fresti, að gefa þeim að drekka,“ segir Nol-
an. Þau fengu að gista á spítalanum í fimm daga
en eftir það þurftu þau að ferðast á milli heimilis
og sjúkrahúss þar til börnin voru nógu hraust til
að mega fara heim. Börnin, stúlka og tveir
drengir, dvöldu í tvær og hálfa viku á vökudeild-
inni. „Við höfum fengið mikla aðstoð frá fjöl-
skyldunni. Systir mín kom frá Karíbahafinu til
að hjálpa og var hjá okkur í þrjá mánuði,“ segir
Nolan. Einnig hafa þau fengið mikla hjálp frá
systur og foreldrum Þóru.
„Ég held að aðalatriðið sé að vera jákvæð og
taka hlutunum með ró. Vinir okkar segja að ef
einhverjir hefðu getað tekið að sér þetta verk-
efni að eignast þríbura, þá væru það við. Við er-
um bæði afslöppuð og tökum hlutunum bara
eins og þeir koma. Þetta kemur ekki fyrir fólk
sem getur ekki höndlað það,“ segir Þóra.
Tekur ekki á hjónabandið að vera saman
allan daginn með öll þessi börn?
„Nei, það hefur verið fínt,“ segir Þóra en þau
eru bæði í fæðingarorlofi en Nolan er einnig að
vinna við fyrirtækið sitt heiman frá en hann
rekur ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í
rekstraráhættu fyrirtækja.
Hvernig tóku hin börnin því að von væri á
þríburum?
„Þau tóku því vel, bara trúðu þessu ekki,“
segir Þóra en það ber ekki enn á afbrýðisemi
hjá hinni þriggja ára Ólivíu.
Eru börnin eitthvað lík?
„Nei, þetta eru þrír gjörólíkir persónuleikar,
enda þríeggja. Það er mjög fyndið. Við heyrum
alltaf hver er að gráta,“ segja þau bæði. Þau
segja Ísabellu vera forvitna. „Hún er athugul og
horfir mikið í kringum sig, mjög forvitin en dá-
lítil dramadrottning. Ef hún fær ekki þjónustu
strax heyrist í henni. Lorenzo er svolítið líkur
henni og rólegur,“ segir Nolan. „Leó er „hy-
per“, hann er allur á iði,“ segir Þóra. „Hún
drakk svo mikið Kók Zero á meðgöngu og ég
held að allt koffínið hafi farið beint í hann,“ segir
Nolan og þau skellihlæja. „Stundum verður
hann svo æstur að hann verður veikur.“
Eitthvað að lokum?
„Við bjuggumst ekki við þessu, enginn gerir
það. En ef ég lít til baka myndi ég ekki breyta
neinu,“ segir Nolan. „Þótt þetta sé erfitt er
þetta samt að verða þægilegra. Þau eru farin að
leika sér smám saman og auðvitað fara þau svo
að hlaupa um allt. Húsið er ekkert alltaf fínt en
við reynum, en auðvitað er stundum fjall af
þvotti. En við missum ekkert svefn yfir því,
þetta er bara tímabil, “ segir Þóra. „Börnin
veita okkur svo mikla gleði,“ segir Nolan.
Morgunblaðið/Ásdís
Fjölskyldan litríka stækkaði til muna í fyrra þegar hjónin Þóra
Leifsdóttir og Nolan Lorenzo Williams bættu þremur börnum
í hópinn á einu bretti. Nolan er frá Karíbahafinu en fyrir á
hann tvo unglingsdrengi, þá Jordan og Dylan en Þóra átti
tvær stúlkur fyrir, Birtu Maríu og Júlíu Ósk. Saman eignuðust
þau Ólivíu Von árið 2012. Eitt barn í viðbót var á dagskrá, en
þrjú fæddust. Nú eru börnin því orðin átta.
Lorenzo Þór, Ísabella Guðleif og Leó Leifur Þór eru frísk og falleg börn.
Fjölskyldan heima í stofu: Júlía
Ósk, Nolan Lorenzo með Leó
Leif Þór í fanginu, Birta María
með Ólivíu og Ísabellu Guðleifu
og loks Þóra með Lorenzo Þór.
Leó Leifur Þór: 8 merkur
Ísabella Guðleif: 7 merkur
Lorenzo Þór: tæpar 8 merkur
Fæddir eftir 33 vikna meðgöngu.
Foreldrar: Nolan Lorenzo Willi-
ams og Þóra Leifsdóttir.
27.07. 2015