Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2016, Blaðsíða 51
20.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Sú bók sem mig langar mest til að
lesa er bókin Ástarsögur íslenskra
kvenna en við Rósa Björk Berg-
þórsdóttir erum að safna ástar-
sögum íslenskra nútímakvenna og
við ætlum að gefa þær út á bók í
sumar. Það gengur ofboðslega vel,
við erum komnar með fjöldann all-
an af sögum en erum enn að leita
og hvetjum allar konur og fólk sem
upplifir sig innan þess kyngervis að
senda okkur sögur á astarsog-
ur@gmail.com.
Það kemst ekkert annað að núna
en ástarsögurnar, mig langar fátt
meira að lesa en þá bók og mig
langar líka að lesa fleiri ástarsögur
en við erum búnar að fá. Við viljum
komast að því hvað er ást og hvern-
ig íslenskar nútímakonur túlka ást.
Sögurnar sem við höfum fengið
eru eins mismunandi og þær eru
margar þannig að bókin verður
svolítið eins og margar bækur. Sög-
urnar eru mispersónulegar, marg-
ar nafnlausar en sumar vilja koma
undir nafni, en við gerum engar
kröfur um lengd eða gerð, við velt-
um boltanum til kvenna.
Við höfum fengið ástarsorgar-
sögur, dagbókarfærslur, ljóð, ást-
arsögur á Tinder, sögur af erfiðum
ástarsamböndum og ofbeldis-
samböndum þar sem ástin var erfið,
það hafa komið alls konar sögur.
Við erum að lesa kafla í sögu ís-
lenskra kvenna sem hafa verið erf-
iðir og fallegir og alls konar.
María Lilja
Þrastardóttir
Ég sat á stöðum eins og
Ölstofunni og Kaffibarnum
á kvöldin, samdi texta við
lögin mín og hripaði niður
hugmyndir í sögur.
Ljósmynd/Harald Øren
BÓKSALA 9.-15. MARS
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 Í hita leiksinsViveca Sten
2 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante
3 Meira blóðJo Nesbø
4 UndirgefniMichel Houellebecq
5 Einn af okkurÅsne Seierstad
6 HunangsgildranUnni Lindell
7 Raddir úr húsiloftskeytamanns
Steinunn Helgadóttir
8 Lítil tilraun til betra lífsJ.M Meulenhoff/
Hendrik Groen
9 FyrirvariRenée Knight
10 The very worst of DagssonHugleikur Dagsson
1 Óvættaför 22 - LúnaAdam Blade
2 DraugaslóðKristín Helga Gunnarsdóttir
3 Ástríkur og KleópatraRené Goscinny/
Albert Uderzo
4 Bókin hans BrekaHrefna Bragadóttir
5 LitirPriddy books
6 Engar afsakanirWayne Dyer/Kristina Tracy
7 Fyrstu 50 orðinPriddy books
8 Drekar - föndur og fjörAndrea Pinnington/
Marie Greenwood
9 Minecraft 1 :Byrjendahandbók
10 Litli prinsinnAntoine de Saint-Exupéry
Allar bækur
Barnabækur
MIG LANGAR AÐ LESA
Nú stendur yfir tilnefningatíð, því
dómnefndir víða um heim keppast
við að kynna tilnefningar til verð-
launa sem afhent verða í haust og
um leið að benda á bækur sem fólk
gleymdi að lesa á liðnu ári.
Bandarískir bókmenntagagnrýn-
endur veita árleg bókmenntaverð-
laun og hafa nú kynnt hvaða bækur
koma til greina. Verðlaun eru veitt
fyrir skáldsögur, ljóð, sjálfs-
ævisögur, ævisögur, gagnrýni og
bækur almenns eðlis.
Sem skáldsaga ársins eru nefnd-
ar The Sellout eftir Paul Beatty,
Fates and Furies eftir Lauren
Groff, The Story of My Teeth eftir
Valeriu Luiselli, The Tsar of Love
and Techno eftir Anthony Marra og
Eileen eftir Ottessu Moshfegh.
Hvað gagnrýni varðar fá tilnefn-
ingu Between the World and Me
eftir Ta-Nehisi Coates, Eternity’s
Sunrise eftir Leo Damrosch, The
Argonauts eftir Maggie Nelson, On
Elizabeth Bishop eftir Colm Tóibín
og The Nearest Thing to Life eftir
James Wood.
Lauren Groff er margverðlaunuð fyrir bækur sínar og Fates and Furies er
einnig tilnefnd til Bandarísku bókmenntaverðlaunanna.
Gagnrýnendaverðlaun
TILNEFNINGATÍÐ
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.