Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2016, Blaðsíða 20
F
élag íslenskra landslagsarkitekta,
FÍLA, stóð fyrir málstofu um
hönnun, mikilvægi vandaðra leik-
skólalóða og framtíð þeirra í borg-
arlandslaginu í tengslum við Hönn-
unarmars. Málstofan fór fram samhliða
sýningu á verkum félagsmanna FÍLA tengd-
um málefninu, sem haldin var í samvinnu við
skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.
Þátttakan var góð og mættu um 120 manns á
málstofuna, sem var framar björtustu vonum
skipuleggjenda að sögn Guðrúnar Birnu Sig-
marsdóttur landslagsarkitekts og eins verk-
efnastjóra sýningarinnar. Á málstofunni fjöll-
uðu einstaklingar úr margvíslegum áttum um
sýn sína á útisvæði leikskóla.
Gaman er að segja frá því að vegna þessa
mikla áhuga hefur sýningin verið flutt í Borg-
artún 12-14 þar sem hægt verður að skoða
hana til 1. apríl, hið minnsta.
Þverfagleg nálgun
„Málefnið er svo brýnt,“ segir Guðrún Birna
og ítrekar mikilvægi þverfaglegrar nálgunar.
Þarna á bak við eru auðvitað börnin en líka
skólar, kennarar, stjórnendur, stjórnvöld og
landslagsarkitektar.
„Allar þessar stéttir verða að haldast í
hendur,“ segir hún og nefnir dæmi þegar ver-
ið sé að endurgera leikskólalóðir. „Verkefni
landslagsarkitektsins er svo vítt,“ segir hún
en það þurfi að skoða landslagið, veðrið og í
hvaða þætti eigi að halda í umhverfinu og sög-
unni.
„Flækjupunktarnir eru margir,“ segir hún
og jafnvel knappur tími. „Landslagsarkitektar
þurfa að vera æfðir í því að leysa vandamálin
og sameina hönnun sem er frábær og stenst
alla staðla.“
Hún segir að með sýningunni vilji lands-
lagsarkitektar minna á mikilvægi þess að
standa vörð um leikskólalóðina, ekki síst hvað
varðar þéttingu byggðar.
Leikskólalóðin mikilvægari
en stórt opið svæði
„Til þess að geta þétt byggð er það á kostnað
einhvers og það er yfirleitt á kostnað grænu
svæðanna og leikskólalóðanna, þessara svæða
sem eru okkur kær,“ segir hún og segir frá því
að í Stokkhólmi séu dæmi um að leikskólalóðir
hafi verið minnkaðar við þéttingu byggðar.
Hún bendir á mikilvægi samstarfs sveitarfé-
laga, landslagsarkitekta og fleiri hópa við að
meta mikilvægi svæðanna. „Það er til dæmis
dýrmætara að hafa stærri leikskólalóð en risa-
stórt opið svæði.“
Hún segir að við þurfum að vera vakandi
fyrir þessari þróun hérlendis. „Þessar lóðir
eru svo mikilvægar,“ segir Guðrún Birna sem
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Frá sýningunni á Kjarvalsstöðum, sem nú hefur verið flutt í Borgartún 12-14 þar sem hægt verður
að skoða hana til 1. apríl. Límband var notað til að búa til leiksvæði fyrir börnin á sýningunni.
Við hönnun þessarar leikskólalóðar var sjálfbærni og umhverfi haft til grundvallar. Byggingin er
klædd með rekavið. Regnvatn af þaki er leitt í bunustokk niður á stóran stein við húsvegginn.
Gæði ekki mæld
í fjölda tækja
Útisvæði leikskóla er dýrmætt fyrir börnin og mikilvægt að
það sé krefjandi og ýti undir leik. Félag íslenskra landslags-
arkitekta stóð fyrir sýningu á leiksvæðum barna á Hönnunar-
mars í samstarfi við skóla- og frístundsvið. Guðrún Birna
Sigmarsdóttir landslagsarkitekt segir mikilvægt að vernda
leikskólalóðina þegar unnið sé að þéttingu byggðar.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Guðrún Birna Sigmarsdóttir
landslagsarkitekt segir leik-
skólalóðir mjög mikilvægar.
Ljósmynd/Landmótun
LEIKSVÆÐI
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.3. 2016