Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2016, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.3. 2016
LESBÓK
B
íó Paradís hóf fyrir
skömmu sýningar á
merkilegri heimild-
armynd bandaríska kvik-
myndagerðarmannsins
Joshua Oppenheimers, The Look of
Silence, frá árinu 2014, sem fylgir eft-
ir hinni mögnuðu The Act of Killing
frá árinu 2012. Sú fyrri vakti mikla
athygli og þegar hún var frumsýnd
enda var umfjöllunarefnið vægast
sagt óhugnanlegt og nálgun Oppen-
heimer einstök. Í myndinni tók hann
viðtöl við fyrrverandi foringja og liðs-
menn vígasveita herstjórnar Suharto
í Indónesíu, menn sem drápu hundr-
uð meintra kommúnista og andstæð-
inga herstjórnarinnar á skipulagðan
hátt á árunum 1965-6. Ekki er vitað
með vissu hversu margir voru myrtir
í þessum miklu kommúnistahreins-
unum, hálf til ein milljón manna oft-
ast nefnd en jafnvel talið að allt að
þrjár milljónir manna hafi verið
drepnar. Eru það með ógurlegustu
fjöldamorðum 20. aldarinnar og hafa
vígamennirnir aldrei verið sóttir til
saka, njóta enn verndar yfirvalda og
margir hverjir enn valdamiklir menn
og háttsettir í stjórnkerfi landsins.
Morðingjar gorta
Í The Act of Killing sýna þeir víga-
menn sem Oppenheimer ræðir við
enga iðrun, stæra sig þvert á móti af
morðum og pyntingum, sviðsetja þau
með leikrænum hætti og þá m.a. í
anda dans- og söngvamynda. Myndin
vakti eðlilega mikla athygli og óhug
þegar hún var frumsýnd og varpaði
ljósi á þessa skelfilegu atburði sem
Indónesar ræða ekki, af ótta við af-
leiðingarnar.
Fyrstu sýningar á The Act of Kill-
ing í Indónesíu voru því eðlilega
haldnar leynilega en síðar op-
inberlega eftir að ljóst varð að stjórn-
völd myndu ekki koma í veg fyrir
þær, þó svo lögregla og her hafi í ein-
hverjum tilfellum haft í hótunum.
Indónesískir fjölmiðlar fóru að fjalla
um fjöldamorðin sem þjóðarmorð og
með seinni myndinni, The Look of Si-
lence, varð umræðan enn meiri. Sú
mynd var frumsýnd í desember árið
2014 og sýnd um alla Indónesíu með
leyfi stjórnvalda. Tugþúsundir Indó-
nesa sáu hana og hefur umfjöllun
indónesískra fjölmiðla um myndina
verið gríðarmikil, yfir 700 greinar
birtar í dagblöðum og m.a. fjallað um
hana í sjónvarpi. Her og lögreglu
hugnaðist ekki þessi mikla umfjöllun
og athygli sem myndin fékk og tókst
að koma í veg fyrir 31 sýningu á
henni, bæði í borgum og þorpum.
Hefur nú verið látið af slíkum hót-
unum og ritskoðun, að sögn Oppen-
heimer, sem segir myndirnar m.a.
hafa haft þau jákvæðu áhrif að al-
menningi og fjölmiðlum sé nú óhætt
að ræða um atburðina og rannsaka
þá. Engu að síður ganga enn lausar
þúsundir vígamanna og spilling og
glæpagengi ráða enn ríkjum. Áhrif
mynda Oppenheimers eru óumdeild
og til frekara marks um þau við-
urkenndi talsmaður forseta landsins,
þegar The Act of Killing var tilnefnd
til Óskarverðlauna árið 2014, að þjóð-
armorð hefðu verið framin á árunum
1965-6.
Varð að gera tvær myndir
Í The Look of Silence eru fórnarlömb
vígasveitanna í forgrunni, ólíkt fyrri
myndinni þar sem athyglinni var
beint að vígamönnunum. Aðalper-
sóna myndarinnar er sjóntækjafræð-
ingurinn Adi Rukun sem fæddist eft-
ir fjöldamorðin. Bróðir hans, Ramli,
var pyntaður og myrtur með hrotta-
legum hætti af liðsmönnum víga-
sveita að viðstöddum vitnum. Oppen-
heimer komst fyrir tilviljun að því
hverjir voru þar að verki, vígamenn
sem hann ræddi við árið 2004 við tök-
ur á The Act of Killing, og áttaði sig
þá á því að hann yrði að gera tvær
myndir, aðra um gerendurna og hina
um fórnarlömbin.
Eftir að Adi frétti af því hverjir
væru morðingjar bróður hans kom
hann með þá hugmynd að fara og
ræða við þá, í von um að opna augu
þeirra og fá þá til að viðurkenna að
þeir hefðu framið hryllilega glæpi.
Þeir Oppenheimer ferðuðust til
þorpa þar sem morðingjarnir lifa í
vellystingum og í myndinni sést Adi
eiga spennuþrungin samtöl við þá,
m.a. á meðan hann mælir sjónina í
einum þeirra sem segist hafa drukkið
blóð fórnarlamba sinna til að missa
ekki vitið. Sem fyrr sýna ódæð-
ismennirnir enga iðrun, hafa í hót-
unum við Adi og tökuliðið en sem bet-
ur fer sluppu allir ómeiddir og lifandi
frá þessum mögnuðu viðtölum sem
eru ekki síður sláandi en gortið í
morðingjunum í fyrri mynd Oppen-
heimer. Lýsingin á því hvernig bróðir
Adi var myrtur er vart prenthæf, svo
Tveir vígamenn lýsa því með leikrænum tilþrifum hvernig þeir pyntuðu og myrtu fólk í The Act of Killing.
Joshua Oppenheimer hefur hlotið
mikið lof fyrir heimildarmyndir sínar.
Adi ræðir við aldraða móður sína um fjöldamorðin og sonarmissinn í heimildarmyndinni The Look of Silence.
Horfst í
augu við
óttann
Joshua Oppenheimer heldur áfram einstakri um-
fjöllun sinni um þjóðarmorðin í Indónesíu í heim-
ildarmyndinni The Look of Silence. Bróðir manns
sem myrtur var með hrottalegum hætti ræðir við
morðingjana í von um að þeir iðrist gjörða sinna.
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is