Morgunblaðið - 23.03.2016, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 3. M A R S 2 0 1 6
Stofnað 1913 69. tölublað 104. árgangur
HANDVERKI KVENNA
HEFUR VERIÐ ÝTT
TIL HLIÐAR
KAFFI-
DRYKKJA OG
LYFTINGAR
KRISTJÁN ELDJÁRN
VAR EKKI BARA
MENNINGARFORSETI
BLACKBOX ICELAND 12 100 ÁR FRÁ FÆÐINGU HANS 16HEIMILDARMYNDIN GARN 38
Yfir þrjátíu manns létust í hryðjaverkaárás-
um í Brussel, höfuðborg Belgíu, í gærmorgun
og yfir tvö hundruð manns særðust.
Tvær sprengjur sprungu með skömmu
millibili í brottfararsal á alþjóðaflugvellinum
Zaventem um klukkan átta að staðartíma í
gærmorgun en rúmum hálftíma síðar sprakk
þriðja sprengjan á Maalbeek-jarðlestarstöð-
inni á háannatíma.
Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á voða-
verkunum en talið er að hryðjuverkamenn-
irnir hafi verið búnir sprengjuvestum. Þetta
kemur fram á AFP.
Skelfing greip fljótt um sig í lestinni
Enginn Íslendingur er talinn hafa særst í
hryðjuverkaárásinni samkvæmt upplýsing-
um frá utanríkisráðuneytinu. Ráðuneytið og
sendiráð Íslands í Brussel nýttu samfélags-
miðla og tölvupóst til að ná til fólks í gær.
„Ég held að menn þurfi bara að gera sér
grein fyrir því að það er allt annað umhverfi í
öryggismálum í dag heldur en fyrir nokkrum
mánuðum í rauninni. Fólk þarf að hafa það í
huga, en að sjálfsögðu ekki hætta að lifa sínu
daglega lífi eða ferðast um heiminn, heldur
fylgjast vel með og fylgja fyrirmælum stjórn-
valda á hverjum stað fyrir sig,“ sagði Gunnar
Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra Íslands, í
kjölfar árásanna.
Leifur Arnkell Skarphéðinsson, lögfræð-
ingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu,
var staddur í fremsta vagni jarðlestar sem
var rétt ókomin til Malbeek-stöðvarinnar í
gærmorgun. „Það skellur þessi höggbylgja á
lestinni. Við finnum strax megna brenni-
steinslykt og mikill reykur kemur inn í lest-
ina,“ segir Leifur en framendi lestar hans átti
þá aðeins 20-30 sekúndur eftir fram að braut-
arpalli Maalbeek.
Um borð í lestinni hafi fljótt gripið um sig
skelfing. „Fólk fór hreinlega að gráta.“ Um
korter hafi liðið þar til vopnaðir hermenn
hófu að leiða fólkið úr lestinni og til öryggis.
HRYÐJUVERK Í HJARTA EVRÓPU
Á fjórða tug manna eru látnir
og yfir 200 eru særðir eftir
sprengjuárásina í Brussel
MHryðjuverk í Brussel »2, 20, 21 og 22
„Það skellur þessi höggbylgja
á lestinni. Við finnum strax
megna brennisteinslykt“
„Ekki hætta að lifa sínu dag-
lega lífi eða ferðast um heiminn,“
segir utanríkisráðherra Íslands
„Þetta var hryllilegt. Loftið hrundi. Það var blóð alls staðar, sært
fólk. Þetta var eins og vígvöllur,“ sagði Zach Mouzoun á Sky-
fréttastöðinni en hann var staddur á flugvellinum í Brussel þegar
sprengjurnar sprungu. Á innfelldri mynd sjást meintir árásar-
menn en tveir þeirra létust í sprengingunum. Þeir virðast báðir
klæðast svörtum hanska á vinstri hendi sem talið er að hylji
sprengirofa. Sá þriðji, með hattinn, er nú eftirlýstur af lögreglu.
Vígvöllur í flugstöðinni
AFP
AFP/ RTL TVI
Umsvif Icewear-keðjunnar hafa
margfaldast á síðustu árum og
áformar Ágúst Þór Eiríksson, eig-
andi félagsins, frekari uppbyggingu
í verslun og rekstri gististaða.
Síðastliðinn laugardag opnaði
félagið nýtt lúxushótel í bakhúsi á
Laugavegi 1 og kveðst Ágúst Þór
leita fleiri tækifæra í miðborginni.
Ágúst Þór áætlar að velta Ice-
wear-keðjunnar í ár verði 2,5-3 millj-
arðar. Til samanburðar var veltan
810 milljónir árið 2012. Starfsmenn-
irnir voru 9 árið 2008 en verða 150 í
sumar. Kostnaður við að endur-
byggja verslun og byggja íbúðahótel
á Laugavegi var nærri 600 milljónir
króna. »18
Velta Icewear er að
nálgast 3 milljarða
Félagið hefur opnað nýtt íbúðahótel
Morgunblaðið/RAX
Nýtt Íbúðahótelið á Laugavegi 1.
Á síðasta ári var 60 kjaramálum
vísað til ríkissáttasemjara og vegna
þeirra voru haldnir 373 fundir.
Samanlagt voru skráðir 859 samn-
ingafundir í Karphúsinu, húsa-
kynnum sáttasemjara. Þetta er
meðal þess sem mun koma fram í
ársskýrslu ríkissáttasemjara fyrir
árið 2015, sem væntanleg er eftir
páska. Mikið annríki hefur verið á
þessu og síðasta ári. »6
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sáttasemjari Með 60 kjaramál í fyrra.
Sáttasemjari með
859 fundi í fyrra
markaði í gær. Mansal er ein gróf-
asta birtingarmynd mannréttinda-
brota en talið er að nærri 21 milljón
manns sé þolendur mansals í heim-
inum og þrátt fyrir alþjóðlega bar-
áttu gegn mansali hefur vandinn
vaxið síðustu ár.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Suðurlandi er rannsókn
mansalsmálsins í Vík á góðri leið.
„Við erum á lokasprettinum og
leggjum áherslu að ljúka málinu sem
allra fyrst,“ segir Þorgrímur Óli Sig-
urðsson, aðstoðaryfirlögreglumaður
á Suðurlandi. »16
ASÍ hefur á síð-
ustu dögum fengið
tvær ábendingar
um vinnumansal
og einnig ábend-
ingu um að at-
vinnuleyfi væru
keypt fyrir háar
fjárhæðir. Mansal
virðist algengara
en flestir gera sér
grein fyrir og brá
Starfsgreinasambandið á það ráð að
gefa út handbók fyrir starfsfólk
stéttafélaga um mansal á vinnu-
Tvö vinnumansals-
mál á fáum dögum
Bæklingur kominn út um mansal
Svart Mansal á sér
stað á Íslandi.