Morgunblaðið - 23.03.2016, Page 16
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Kristján Eldjárn er fremstur for-
seta lýðveldisins í því að sýna þjóð-
inni með verkum sínum og sögu
hve miklu máli getur skipt á ör-
lagatímum – þegar aðrir þættir í
stjórnkerfi og þjóðmálum bregðast
– að embætti forseta Íslands sé vel
skipað. Þetta kom fram í máli Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Ís-
lands, á málþingi sem haldið var á
Dalvík um helgina í tilefni þess að
100 ár eru liðin frá fæðingu Krist-
jáns Eldjárns. Á þinginu var fjallað
um störf Kristjáns svo sem þegar
hann sat á forsetastóli. Á þeim tím-
um voru oft átök í stjórnmálum og
gjarnan kom til kasta forseta að
taka af skarið.
„Við hin höfum að vísu endrum
og sinnum verið í þeim sporum. En
enginn okkar hefur þurft að vera í
þeim sporum jafn oft og með jafn
reglubundum hætti alla sína for-
setatíð og Kristján Eldjárn,“ sagði
Ólafur Ragnar.
„Þess vegna finnst mér að nú
þegar þjóðin gengur til forseta-
kjörs sé forsetatíð Kristjáns
kannski mikilvægasti grunnur að
skynsamlegum umræðum um hvers
eðlis staða forsetans er í stjórn-
skipum okkar Íslendinga. Miklu
ræður að maður með greind og
heiðarleika, þroska og yfirsýn skipi
Bessastaði.“
Ekki bara menningarforsetar
Gleymst hefur á stundum hve
byltingarkennd sú hugmynd Ís-
lendinga var á sínum tíma að hin
fámenna þjóð ætlaði sér þann sess
að verða á heimsvísu ríki til jafns
við önnur, sagði Ólafur Ragnar.
Það hafi þó tekist – og þegar að
því kom að velja forseta hafi þjóðin
viljað það vald í sínar hendur eins
og gekk eftir. Slíkt hafi þá verið
nýmæli í heimssögunni. Ólafur
sagði ennfremur að í daglegri um-
ræðu hefði þeim fimm einstakl-
ingum sem skipað hafa forsetaemb-
ættið stundum verið skipt í tvo
flokka. Sveinn Björnsson, Ásgeir
Ásgeirsson og hann sjálfur væru
sagðir stjórnmálaforsetar, en Krist-
ján Eldjárn og Vigdís Finnboga-
dóttir forsetar menningarinnar.
Þessi nálgun væri þó hvorki rétt né
sanngjörn.
„Þarna er dregin fjöður yfir það
hvers konar afrek það var hjá
Kristjáni Eldjárn að fara í gegnum
þau tólf ár sem hann gerði. Enginn
forseti hefur þurft að glíma við jafn
margbrotin vandamál á vettvangi
þjóðmálanna,“ sagði Ólafur Ragnar.
Vísaði hann þar til hinnar miklu
ólgu sem var í stjórnmálum á
Bessastaðaárum Kristjáns frá 1968
til 1980. Á þeim tíma hefði aðeins
ein ríkisstjórn setið út heilt kjör-
tímabil. Þá hefði reynt á að forset-
inn væri í góðu sambandi við for-
ystumenn stjórnmálaflokka til
dæmis um myndun ríkisstjórna.
Það væri enda skýr ábyrgð forset-
ans að sjá til þess að lýðveldið
hefði sveit manna til að fara með
framkvæmdavald og forystu. Að
þessu marki væri sess forsetans í
stjórnskipan landsins skýr og ein-
faldur.
„Þegar um annað þrýtur ber for-
seta að tryggja að landið sé ekki
stjórnlaust,“ sagði Ólafur Ragnar.
Í forsetatíð Kristjáns Eldjárns
voru aðstæður í utanríkismálum Ís-
lendinga aðrar en nú er raunin.
Mikil ólga var um varnarsamstarf
við Bandaríkin og vegna útfærslu
landhelginnar. Átök um þessi mál
„… nánast tröllriðu samskiptum við
okkur helstu samstarfsríki alla
hans forsetatíð,“ segir Ólafur
Ragnar sem í niðurlagi erindis síns
mælti svo:
Allt lék á reiðiskjálfi
„Þegar maður dvelur jafn lengi á
Bessastöðum og ég hef gert og hef-
ur skoðað sögu Kristjáns og þeirra
sem þarna hafa verið áður þá fyll-
ist maður enn meiri aðdáun, á því
hvernig fræðimanni úr heimi forn-
leifafræði og íslenskra fræðaskyldi
skyldi takast að feta sig í gegnum
þessi tólf ár þar sem allt lék á
reiðiskjálfi,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson.
Kristján var afreksforseti
Forsetatíð Kristjáns Eldjárns rædd á Dalvík 100 ár frá fæðingu hans
Forseti tryggi að landið sé ekki stjórnlaust, sagði Ólafur Ragnar Grímsson
Ljósm/Atli Rúnar Halldórsson
Samtal Þórarinn Eldjárn, sonur Kristjáns Eldjárns, og Ólafur Ragnar
Grímsson, fráfarandi forseti Íslands, rabba saman á ráðstefnunni á Dalvík
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Stjórnarmyndun Flokksformenn á fundi forseta í janúar 1980. Frá vinstri
talið; Lúðvík Jósepsson, Geir Hallgrímsson, Benedikt Gröndal, Steingrímur
Hermannsson og Kristján. Myndun ríkisstjórnar á þessum tíma var erfið.
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016
Kíktu á úrvalið
í vefversluninni á
michelsen.is/fermingar
Laugavegi 15 og Kringlunni
Sími 511 1900 - www.michelsen.is
Casio Retro
11.900 kr.
Michelsen Tradition
73.000 kr.
Armani Classic
40.200 kr.
Jacques Lemans
Liverpool
25.700 kr.
Fossil Grant
21.100 kr.
Fallegar
fermingar-
gjafir
– fyrir stráka
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Á síðustu dögum hefur ASÍ fengið
tvær ábendingar um vinnumansal og
einnig ábendingu um að atvinnuleyfi
væru keypt fyrir háar fjárhæðir.
Mansal virðist algengara en flestir
gera sér grein fyrir og brá Starfs-
greinasambandið á það ráð að gefa út
handbók fyrir starfsfólk stéttarfélaga
um mansal á vinnumarkaði í gær.
Mansal er ein grófasta birtingar-
mynd mannréttindabrota en talið er
að nærri 21 milljón manns séu þol-
endur mansals í heiminum og þrátt
fyrir alþjóðlega baráttu gegn mansali
hefur vandinn vaxið síðustu ár.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Suðurlandi er rannsókn
mansalsmálsins í Vík á góðri leið.
„Við erum á lokasprettinum og leggj-
um áherslu á að ljúka málinu sem
allra fyrst,“ segir Þorgrímur Óli Sig-
urðsson, aðstoðaryfirlögreglumaður
á Suðurlandi.
Ofbeldi og hótanir
Karlmaður frá Srí Lanka er þar
talinn hafa látið systur, sem einnig
eru frá Srí Lanka, vinna í kjallaran-
um heima hjá sér. Maðurinn kom
hingað til lands fyrir um þremur ár-
um. Hann giftist konu úti í Srí Lanka
sem hafði verið búsett hér á landi frá
1998. Samkvæmt svörum Útlend-
ingastofnunar er hægt að koma inn í
landið ef viðkomandi giftist einhverj-
um með dvalarleyfi í kjölfar svokall-
aðar fjölskyldusameiningar. Ef leyfið
hefur verið gilt á sama grundvelli í
ákveðinn fjölda ára þá er hægt að fá
búsetuleyfi og gilda þau í lengri tíma
en annars þarf að endurnýja leyfin á
árs fresti.
Maðurinn var dæmdur í fimm
mánaða nálgunarbann gagnvart eig-
inkonu sinni í Hæstarétti á föstudag
fyrir endurtekin ofbeldisbrot gagn-
vart henni.
Segir í áliti lögreglustjóra í dómn-
um að brot mannsins gagnvart kon-
unni varði allt að 16 ára fangelsi. Eig-
inkonan er ein af vitnum gegn honum
í mansalsmálinu en þar á hann yfir
höfði sér allt að 12 ára fangelsi verði
hann dæmdur sekur.
Systurnar eru farnar af landi brott.
„Við vitum ekkert hvar þær eru í
dag,“ segir Þorgrímur Óli en systurn-
ar eru vitni og því ekki hægt að hefta
för þeirra. „Það fór fram dómsyfir-
heyrsla þannig að dómarinn yfir-
heyrði þær milliliðalaus því við viss-
um að þær vildu fara burt,“ segir
hann.
Atvinnuleyfi á 900 evrur
Halldór Grönvold, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir að vinnu-
mansal komi of oft inn á hans borð.
„Við vorum að fá ábendingu um að
hér væri maður að kaupa upp at-
vinnuleyfi og borgaði fyrir það 900
evrur. Hann er bara umboðsmaður.
Þeir leita til landa þar sem er upp-
sveifla, peningar og gróðavon og það
er gróðavon hér í dag,“ segir hann.
Kennt að þekkja mansal
SGS gaf út handbók um mansal fyrir stéttarfélög landsins Mansalsmálið í Vík
á lokasprettinum Getur átt 16 ára fangelsi yfir höfði sér fyrir gróft ofbeldi
Svört starfsemi Í þessu húsi átti mansal sér stað í Vík í Mýrdal. Rannsókn-
inni miðar vel og býst lögreglan við að klára hana innan skamms.
Einkenni mansals
starfsfólks
» Starfsmaðurinn er ekki
frjáls ferða sinna.
» Vissi ekki fyrirfram hvar
hann átti að vinna.
» Veit ekki hvað hann er með í
laun.
» Borgaði fyrir að fá starfið.
» Sýnir einkenni ótta gagnvart
yfirmönnum.
» Er ekki með eigin skilríki eða
skilríki virðast fölsuð.
» Er ekki með atvinnuleyfi.