Morgunblaðið - 23.03.2016, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 23.03.2016, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016 „Líf og dauði er á tungunnar valdi.“ Þótt þetta standi í Biblíunni hafði ég ekki heyrt þessi orð fyrr en ég giftist Gunnari í Krossinum, hvað þá skilið þau. Gunnar er vel gef- inn og fróður maður um flest. Hann hefur síðan 11. nóvemer 2010 barist fyrir hjónabandi okkar, fyrir æru okkar, fyrir lífi sínu og sinna. Maðurinn minn hefur mátt þola nornaveiðar, illsku og niðurlægingu af þeirri tegund sem aðeins mikil- menni hafa þurft að þola, ef mann- kynssagan er lesin. Þessar æru- meiðingar fóru út fyrir mörk allrar glætu, þau mörk að búa til kynferð- isglæpamann úr prédikara/forstöðu- manni sínum og úr mági sínum sem hafði verið í guðatölu áður en hann giftist mér. Jafnvel enn verra var fyrir mann- inn minn að þurfa að þola ákæru til Sérstaks saksóknara fyrir fjármála- misferli úr þeim ranni sem síst skyldi, það er hans eigin blóði og þeim sem hún valdi sér til fylgis til þess að faðir hennar kæmist ekki aftur í það starf sem hann byggði upp en auðvitað ekki einn síns liðs. Það eina sem kom út úr þeirri miklu rannsókn, til tveggja ára, var að Gunnar sótti ekki einu sinni öll umsamin laun sín og stórar fjár- hæðir ógreiddar til hans. En látum það vera í öllu samhenginu því svona aðför að peningum skatt- greiðenda, til þess að ná völdum yf- ir kirkju, er ennþá alvarlegri glæp- ur. Embætti Sérstaks saksóknara hefur nóg annað að gera en að rannsaka fjölskylduerjur, af- brýðisemi og valdasýki. Gunnar reisti áfangaheimili fyrir þá sem hvergi áttu höfði sínu að halla, það er 25 íbúðir til þess að fólk hefði athvarf. Auk þess byggði Gunnar kirkjuna Krossinn eins og flestum er kunnugt um. Kirkju sem má alveg gagnrýna. Gunnar var for- stöðumaður áfanga- heimilisins frá stofnun þess 1985 auk þess að vera forstöðumaður kirkjunnar sem fjöl- mennust var um 700 manns. Gunnar hefur aldrei sagt að án aðstoðar annarra safnaðar- meðlima eða fjölskyld- unnar og vina hafi þetta verið mögulegt, hann hefur aldrei sagst vera full- kominn maður enda eru þeir ekki til. Hann hefur hinsvegar karisma sem fær aðra til þess að stinga hann í bakið af öfund, það er líka hegðun sem þeir er skara framúr og eru frumkvöðlar þekkja vel. Peningar og völd eru ekki innan þess ramma sem maðurinn minn hugsar í, hann hugsar í því lifandi orði Guðs sem hann trúir á. Mér finnst það fallegur hugsunarháttur þótt ég tileinki mér hann ekki nægi- lega sjálf. Gunnar í Krossinum er þekktur fyrir skoðanir sínar sem iðulega hafa sætt gagnrýni, fyllt hatri, því í skorti á umburðarlyndi ætlumst við oft til að okkar skoðun eða lífsspeki sé sú eina rétta. Gunnar er magn- aður afi og börn laðast að gleði hans og hlýju. Maðurinn minn er þreyttur, reyndar uppgefinn eftir þessi ár auk þess sem við höfum gert fátt annað en að berjast gegn þessu fjöl- miðlafári og sölumennsku andskot- ans gegn okkur. Áður en menn nota fjölmiðla sína til þess að reyna að villa um fyrir samfélaginu, gegn þeim sem aðeins vilja láta gott af sér leiða, ættu þeir að hugleiða hvort ef til vill það gæti verið að við Gunnar í Krossinum séum ósigrandi saman. Klappstýrur auðvaldsins, í öllum stéttum, hafa selt sálu sína meðan almenningur og svo við, sem tölum út, þurfum að borga milljónir til þess að æra okkar og líf sé ekki fót- um troðin. Íslenskt valdakerfi er hálf-ógeðslegt en iðulega með góðu fólki sem fær lítið við ráðið gegn græðgi og lögbrotum fárra. Fáir hafa efni á því til lengdar að verja æru sína í dómsölum nema þá að ræna alþýðuna eignum sínum því miskabætur eru litlar sem engar. Þetta vita fjölmiðlaeigendur sem sumir hafa enga siðferðiskennd. Sá sjúkdómur heitir siðblinda og er ólæknandi. Ef þú getur brotið gegn þínum minnsta bróður þá er auðvelt að brjóta gegn heilli þjóð, það sýndi sig fyrir hrun og gerir enn ef marka má fréttir, vonandi ekki allar keypt- ar af hagsmunaöflum. Minn maki er enginn asni, hann er faðir og afi yndislega barna og þeir sem þekkja hann í raun vita að hann hefur engan áhuga á pen- ingum hvað þá á kjánalegu kven- fólki sem nú hótar honum lögsókn birti hann skjalfestan framburð þeirra í bókinni. Er eitthvað þar sem ekki þolir dagsljósið? Átti bara að baða sig í fjölmiðlum með því allra ljótasta sem hægt er að gera nokkrum manni, ljúga upp á hann glæpum og gera hann að ofbeldis- manni, fjárglæframanni í huga al- mennings? Dómurinn er fallinn yfir illskunni, Gunnar vann. Það er ekki nema von að fólk skilji þetta mál ekki en það skýrist í bók Gunnars. Allt í mannlegri hegðun hefur skýringar nema það að traðka á þeim sem maður elskar mest, það er óútskýrt með öllu og enn hef ég ekki fundið í Biblíunni þann stað sem segir að æra annarra sé einskis virði bara mitt auma litla sjálf (egó). Þetta voru nokkur orð um mann- inn minn, Gunnar í Krossinum. Nokkur orð um manninn minn Eftir Jónínu Benediktsdóttur »Embætti Sérstaks saksóknara hefur nóg annað að gera en að rannsaka fjölskylduerj- ur, afbrýðisemi og valdasýki. Jónína Benediktsdóttir Höfundur er íþróttafræðingur. Litla kaffistofan við Suðurlandsveg hefur gegnt merkilegu sam- göngu- og menningar- hlutverki um áratuga skeið. Um næstu mán- aðamót, mars-apríl, verða tímamót í sögu Litlu kaffistofunnar. Þá verða eigendaskipti og Stefán Þormar Guðmundsson, sem hefur rekið Litlu kaffistofuna í nær aldarfjórðung með miklum glæsi- brag, stíl og hlýju viðmóti, víkur nú af vettvangi, en hann verður 70 ára 25. mars nk. Stefán Þormar tók við Litlu kaffi- stofunni af frumherjanum, Ólafíu Þorsteinsdóttur, sem flutti rekstur sinn frá Geithálsi upp úr 1960, en verklag hennar var rómað. Kaffistofan hefur státað af ein- hverju besta kaffimeðlæti á landinu, súpum og fleira góðgæti um áratuga skeið. Íslenskur stíll og hefð hefur ráðið ríkjum, heimabakað brauð og meðlæti og dúndur smurbrauð með súpum sem eru óbrigðular. Margir sem eiga leið um Suður- landsveginn stoppa í Litlu kaffistof- unni vegna þess að það eru hlunn- indi að stoppa þar og fá sér hress- ingu, fyrir utan mikilvægi Litlu kaffistofunnar í vitlausum veðrum á heiðinni þegar þar er eins og vin í eyðimörk veðravítis og vinda. Þeir eru ófáir sem hafa í gegnum tíðina gert sér sérstaka ferð í Litlu kaffi- stofuna til þess að njóta stemning- arinnar þar og góm- sætra veitinga. Í kaffistofunni hefur Stefán komið upp merkilegu myndasafni úr sögu knattspyrn- unnar á Íslandi, bæði utan dyra og innan. Þetta myndasafn verð- ur ekki áfram í Litlu kaffistofunni, en kemst vonandi í heila höfn. Tvær systur, Ásdís og Halla Höskulds- dætur, dætur Höskuldar Goða Karlssonar íþróttafrömuðar heitins, taka við Litlu kaffistofunni og hyggjast reka hana í stíl líðandi stundar með íslenskri undiröldu. Þær hafa báðar komið að veitinga- þjónustu, í Hreðavatnsskála og Hót- el Borgarnesi. Það verður gaman að fylgjast með vaktkonunum á heið- inni og vonandi fylgir þeim sama gifta og Stefáni Þormar og hans fólki, Lindu, Söru og Guðmundi því betri gestgjafa hefur ekki verið hægt að hugsa sér. Hafið heila þökk og allt til heilla. Tímamót í menning- ar- og matarsetri Litlu kaffistofunnar Eftir Árna Johnsen Árni Johnsen »Margir sem eiga leið um Suðurlandsveg- inn stoppa í Litlu kaffi- stofunni vegna þess að það eru hlunnindi að stoppa þar og fá sér hressingu. Höfundur er fv. alþingismaður. Ráða má af fréttum fjölmiðla að aðaláhuga- mál þjóðfélagsþegn- anna liggi á efnahags- sviðinu. Siðfræði, samhjálp og kærleikur virðast eiga lítið erindi til fólks í hinu kristna landi, þar sem flestir eru uppteknir í rottu- hlaupi velferðaræðis- ins. Flestum er þetta ljóst, en ástæðan fyrir því að ég minnist á þetta hér, er bók, sem ég sá fyrir skömmu á sölu- borði Borgarbókasafnsins fyrir gaml- ar og afskrifaðar bækur, sem seldar voru á niðursettu verði. Bók þessi ber heitið: Í ljósi kærleikans, eftir Abd- ru-shin, sem hann skrifaði á árunum 1923-1937. Þar segir hann m.a.: „Að vera efnishyggjumaður er ekki lofs- yrði, heldur staðfesting á því, að heil- inn sé hrörnaður.“ (Bls.118) Hann lít- ur á það, eins og fleiri andlegir meistarar, að efnishyggja sé sjúk- dómur, eða að minnsta kosti röng hugsun, sem leiði til ánauðar og þján- inga. Oft hefur mér til hugar komið þessi tilvitnun, þegar ég verð vitni að um- ferðaröngþveitinu kvölds og morgna og sé lúxusíverustaði fólks, sem hendir heilum húsgögnum til að kaupa inn ný vegna tískustrauma sem flæða reglulega yfir eins og flóð á fjörur. Talað er um sárafátækt á Ís- landi í kringumstæðum, sem fyrir mörgum áratugum hefðu flokkast undir velferð og vellystingar. Aftur segir áðurnefndur höfundur: „Þjáðir jarðarbúar eru ofhlaðnir vinnu í því skyni, að svala jarðnesk- um óskum, þrælar jarðneskra þarfa.“ (Bls.177.) Meðalhófið hvergi að sjá nema hjá einstaka sérvitringum, sem álitnir eru ekki heilir á geði. Í Talmud gyðinga er varað við þessum lífsstíl. En þar segir m.a.: „Minnkið strit ykkar fyrir veraldlegum hlutum, en verið þess í stað upptekin í lögmál- inu. (Torah)“ (Talmud) Það mun færa þeim fleiri blessanir en veraldar- munir eru færir um. Vegna þess að menn láta stjórnast af hégóma og alröngu verðmæta- mati vegna rangrar menntunar á unglings- árum, segir Abd-ru-shin: „Frjáls er aðeins sá maður, sem lifir í lögmálum Guðs.“ (Bls.153.) En einmitt í lög- málum Guðs er forskriftina að friði og farsæld að finna fyrir mannkyn þess- arar jarðar. Boðorðin, eða lögmálið, sem einnig kallast leiðbeiningar á hebreskri tungu, er falleg löggjöf, sem Guð, faðir mannkynsins færði mönnunum, svo að þeir yrðu heil- brigðir, m.ö.o. heilagir, „því að það sem ekki reynist heilt og Guði þókn- anlegt, hrynur til grunna.“ (Í ljósi sannleikans. Bls.154.) Þar sem ég fann þennan fjársjóð á hinu sérstaka söluborði Borgar- bókasafnsins, bók sem er gersemi fyrir nútímafólk, sem læknað getur það af faraldri efnishyggjunnar, er það sérstök ánægja að mega deila þessum ósviknu verðmætum meðal margra, sem ég veit, að þarfnast þeirra sannarlega. Löggjöfin Eftir Einar Ingva Magnússon » Talað er um sárafá- tækt á Íslandi í kringumstæðum, sem fyrir mörgum áratugum hefðu flokkast undir vel- ferð og vellystingar. Einar Ingvi Magnússon Höfundur er áhugamaður um andleg málefni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.