Morgunblaðið - 23.03.2016, Page 36

Morgunblaðið - 23.03.2016, Page 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2016 Í FÍNU FORMI EFTIR MIÐJAN ALDUR! Nú hefur uppskriftinni af Build Up verið breytt og hún endurbætt. Drykkurinn heitir nú Meritene Energis. Meritene Energis er próteinríkur næringardrykkur í duftformi. Hann inniheldur 19 vítamín og steinefni sem miða við næringarþarfir fólks um og eftir fimmtugt. Meritene Energis kemur í stað Build Up Meritene Energis nýtist vel í tengslum við: • Þreytu og þrekleysi af völdum skorts á næringarefnum • Næringar- og vítamínskort • Minnkaða matarlyst • Þyngdartap • Uppbyggingu eftir veikindi Þú færð Meritene Energis í Hagkaupum og öllum helstu apótekum. Heilbrigð sál í hraustum líkama Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú átt að hafa þann aga til að bera sem þarf til að rannsaka málin vandlega áður en þú segir af eða á. Ekki vera með stæla – stattu við orð þín og gjörðir. 20. apríl - 20. maí  Naut Stundum dregst fólk að þér án þess að þú gerir nokkuð til þess. Frá og með deginum í dag hefst fimm vikna tímabil sem lofar góðu fyrir þig og þitt merki í þessu tilliti. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hagaðu orðum þínum svo að ekkert fari á milli mála hvað þú átt við. Vertu léttur við þetta fólk og haltu leið þinni áfram. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samræður þínar við þína nánustu ganga eitthvað treglega í dag. Haltu skyldu- verkunum í algjöru lágmarki og eyddu tím- anum frekar í að rækta garðinn þinn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hægt er að losna við peningaáhyggjur með því að venja sig á að hafa engar áhyggj- ur. Ef þú missir af einhverju þá er bara að finna eitthvað annað í staðinn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Málefni tengd ástinni, rómantík og jafnvel léttúðugu daðri gera daginn mjög spennandi fyrir þig. Minnkaðu muninn á and- legri nóttu og degi með því að vera hlutlaus og sama um hvað fólk segir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Líttu þér nær. Láttu velgengnina samt ekki stíga þér til höfuðs, en vertu ljúfur og lít- illátur. Mundu að fæst orð hafa minnsta ábyrgð. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einhver misskilningur gæti kom- ið upp milli ástvina sem þarf að leiðrétta. Slakaðu á og leyfðu sjálfum þér að blómstra. Ef þú ert í blóma berast frjó vellíðanar víða. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eyddu tímanum með fólki sem hefur jákvæð og hvetjandi áhrif á þig og segðu skilið við annað. Láttu ekki öfund ann- arra slá þig út af laginu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þetta er ekki góður dagur til þess að leggjast í mikilvægar viðræður við maka, yfirmann eða vini. Ef þú ákveður að taka hana ekki, verður það gert fyrir þig. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Reyndu að hugsa hlutina til enda því jafnvel ákvarðanir um minnstu atriði geta leitt til víðtækra afleiðinga. Leiðbeindu hon- um. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ástin er full gleði þegar allt gengur að óskum og full af lexíum þegar á bjátar, það er að segja ef þú ert til í að læra í stað þess að ásaka. Farðu varlega. Ég tók Alþýðubókina eftir Lax-ness fram úr bókaskápnum í gær mér til upprifjunar. Þar rakst ég á þennan kafla, sem mig rámaði í: „Þau ljóðskáld tel ég meðal vorra mestu velgerðar- manna, sem borið hafa gæfu til að yrkja vísu sem ég get raulað mér til afþreyíngar þegar ég er einn á gángi á slæmum vegi og hvass- viðri er á, eða bundinn við erfitt starf, eða staddur lángt burtu frá konunni minni, sorgbitinn og pen- íngalaus. Ég tek til dæmis þessa vísu: Það er dauði og djöfulsnauð er dyggðasnauðir fantar safna auð með augun rauð en aðra brauðið vantar. Eða þessar: Hossirðu heimskum gikki hann gengur lagið á og ótal asnastykki af honum muntu fá. Góðmenskan gildir ekki. Gefðu duglega á kjaft. Slíkt hefur –það ég þekki – þann allra besta kraft. Eða þessar: Fárleg vóru fjörbrot hans, fold og sjórinn léku dans, gæðasljór með glæpafans Grímur fór til andskotans, hitti að bragði Satan sinn, sönn fram lagði skilríkin; glóðaflagðagramurinn Grím þá sagði velkominn. En stundum sný ég við blaðinu, skrifar Laxness, og raula þessi einföldu stef um ást og kvíða: Þegar ég geing út og inn ekkert hef að gera hugsa ég um hrínginn minn hvar hann muni vera. Ef hann finna ekki má upp þá rennur vorið, huldufólkið hefur þá hann í kletta borið.“ Laxness segist hafa raulað þessar stökur sér til afþreyíngar á Breiðafirði, Kaldadal, Möðru- dalsöræfum, í Lundúnum, París og Rómaborg, Nýu Jórvík, San Francisco og Hollywood. Í menntaskóla þótti okkur Ara Jós- efssyni þetta dýrlegur kveð- skapur og við rauluðum stök- urnar viðstöðulaust hvernig sem viðraði þegar við gengum upp kirkjutröppurnar eftir að hafa fengið okkur kaffi á Hótel KEA. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Raulað á slæmum vegi í hvassviðri Í klípu „NÚ HEFUR STJÓRNIN SAMÞYKKT TILLÖGU UM AÐ LEYSA ÞIG FRÁ STÖRFUM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MORGUNVERÐUR Í RÚMIÐ, YÐAR HÁTIGN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... heima, þar sem er best. KOMDU, KISI KOMDU, KISI KISA- KISA- KIS! HEY, KÖTTUR! HANN HEYRIR Í ÞÉR SÉRÐU AÐ ÉG ER AÐ VINNA BAKI BROTNU? JÁ, ÞAÐ ER SÁRT Á AÐ HORFA AF HVERJU GERIR ÞÚ ÞAÐ ÞÁ EKKI? OG LÁTA ÞIG ÞJÁST VIÐ AÐ HORFA Á MIG STRITA? Víkverji er á því að máttur skáld-skaparins verði seint ofmetinn, en er líka viss um að umbun skálda er sjaldnast í samræmi við fram- lagið. Í vikunni rakst hann á frétt frá Frakklandi, sem renndi stoðum undir þetta viðhorf. Þar í landi var gerð könnun á kjörum rithöfunda. Í ljós kom að rúmur helmingur rit- höfunda, sem teljast hafa haslað sér völl, nær ekki að afla sér sem svarar lágmarkslaunum. Eru margir svo miður sín yfir stöðu bókaútgáfu að þeir eru að hugsa um að hætta alfarið að skrifa. Við- urkenndir höfundar, sem hafa verið gefnir út um árabil, eiga í basli með að sjá fyrir sér. Miðgildi tekna þeirra var 17.600 evrur (2,5 millj- ónir), þrír fjórðu af meðallaunum í Frakklandi. Kom í ljós að sex af hverjum tíu rithöfundum, sem gefnir hafa verið út, þéna minna en 1.500 evrur (tæpar 212 þúsund krónur) á ári. x x x Í frétt frá AFP kemur fram að erf-itt sé að gera samanburð á milli landa, en höfundar í Bretlandi og Bandaríkjunum virðist eiga enn erfiðara uppdráttar. Viðurkenndir breskir höfundar þéna að meðaltali 14 þúsund evrur á ári. Í Bandaríkj- unum reyndist þriðjungur útgef- inna höfunda þéna minna en 500 dollara (tæpar 63 þúsund krónur) á ári af skrifum sínum. x x x AFP rifjar upp að rithöfundurinnPhilip Pullman, sem er forseti breska rithöfundafélagsins, kenndi útgefendum og netrisanum Ama- zon um þegar útgáfutölur voru birt- ar í fyrra. „Á meðan Amazon aflar sér tekna í ólýsanlegum mæli með því að selja bækur okkar fyrir brot af verðmæti þeirra og borgar síðan eins lítinn skatt og hægt er búa höf- undarnir sem með verkum sínum niðurgreiða þessa tröllauknu villi- mennsku við ógnir úr mörgum átt- um,“ sagði höfundur Gyllta áttavit- ans. „Á undanförnum tíu árum hafa tekjur útgefenda haldist stöðugar, en tekjur þeirra sem reiða sig al- gerlega á þá fallið að meðaltali um 29 af hundraði.“ Það er ekki beysið ástand. víkverji@mbl.is Víkverji Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina. Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn. Sálm. 8:2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.