Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 37
Eftir alla stækkunarafangana
nninii tiittugn og
tvær flugvelar geta verid vid
Leifsstöd á sama tima.
s
Reykj aness mótmælir
Smábátafélag Reykjaness
hélt fund í Sandgerði þann
30. nóvember sl. þar sem
samþykkt voru mótmæli til
sjávarútvegsráðherra.
„Félagar í smábátafélagi
Reykjaness mótmæla þeim
breytingum sem fram hafa
komið í drögum að breyttum
lögum um stjóm fiskveiða er
lúta að endurvali sóknardaga-
báta sem gefur bátum í því
kerfi rétt til að fara á milli
kerfa krókabáta.
Með hliðsjón af því að króka-
bátar eru í tveimur aðgreind-
um hámarksþorkaflapottum er
skiptast í 1. A. Þorskaflahá-
ntark með rúm 82%, 2.B.
Sóknardagabáta með hand-
fæmm og línu rúm 7% og C.
Sóknardagabáta með hand-
færum eingöngu um 10%.
Sem nemur hlutfalli hvers
báts f 21000 lestum miðað við
þorskaflahámark viðmiðunar
ára og vísast til 6. gr. laga um
stjóm fiskveiða 1997 -8.
Að okkar mati, ef endurval
nær fram að ganga, eins og
drög gera ráð fyrir þá er aug-
ljóslega verið að rýra hlut báta
í b og c kerfum og að sama
skapi auka við hlut báta í a
kerfi.
Sendum Suðurnesjamönnum
bestu ósldr um
jói
fwM bmúi k
Þökkuin samsldptin
ó órinu sem er oð líða
Saltver ehf«
Sendi starfsfólki mínu, viðskipta-
vinum og öðrum Suðurnesja-
mönnum bestu óskir um
gleðileg jól og
farsælt komandi ár
með þökk fyrir árið sem er að líða.
Hilmar R. Sölvason
Ræstingaþjónusta
Sendum Suðurnesjamönnum
bestu ósldr um
@(eMef) jól
fwSteft ItoiMÍii itr
Þökkum samsldptin
óórinusem eroð ííðo
ISLENSKIR
AÐALVERKTAKAR hf.
Millj arður
í Leifsstöð
Ákveðið hefur verið að ráð-
ast í fyrsta áfanga stækkun-
ar flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar á Keflavíkurflugvelli
og á næstunni verður aflað
nauðsynlegra heimilda til
lántöku vegna framkvæmd-
arinnar.
Ljóst þykir að flugstöðin ann-
ar ekki þeim fjölda farþega og
flugvéla sem nú fara um hana.
Jafnframt er ljóst að álag mun
aukast vemlega á næstu ámm.
Núverandi afkastageta flug-
stöðvarinnar miðast við eina
milljón farþega á ári og það
að allt að átta flugvélar geti
verið samtímis á flugvéla-
stæðum stöðvarinnar. A árinu
1996 fór farþegafjöldi í fyrsta
sinn yfir eina milljón og síð-
astliðið sumar voru ekki
nægilega mörg stæði á anna-
tímum.
Fyrirsjáanleg aukning á um-
ferð um flugstöðina á næstu
árum gerir stækkun hennar
mjög aðkallandi. Áætlað er að
árið 2000 verði heildarfjöldi
farþega orðinn um 1,4 millj-
ónir á ári og um 2,2 milljónir
árið 2010. Einnig er áætlað að
fjöldi flugvéla sem þurfi stæði
við flugstöðina á annatímum
verði 13 vélar árið 2000 og 20
vélar árið2010.
Þykir því ráðamönnum að
þjóðhagslegur skaði muni
hljótast af óbreyttu ástandi
vegna stöðnunar í flugrekstri
og flugþjónustu.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu er
fjárhagslegur grundvöllur
stækkunarinnar m.a. tryggður
vegna aukinnar umferðar og
árangurs af endurskipulagn-
ingu verslunar- og þjónustu-
reksturs innan flugstöðvarinn-
ar sem tekur gildi nú um ára-
mót.
Áætlað er að flugstöðin muni
fyrir árið 2020 greiða upp að
fullu eldri áhvílandi lán sem
og ný lán vegna framkvæmda
fram til ársins 2010.
V íkurfréttir
JÓLABLAÐ