Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 2
HJÖRTUR MAGNI JOHANNSSON SKRIFAR JOLAHUGLEIÐINGU Jól, völd og mannieg samskipti Hefðu fjölmiðlar þess tíma talið það fréttnæmt? Nei, varla. Sagan af fæðingu bamsins í fjárhúsinu í Betlehem er lítil saga af látlausu fólki, í litlu þorpi, í litlu landi, fyrir langa löngu. Sögusviðið var fjarri heimsins tignum og völdum og öllu því sem almennt telst fréttnæmt. Þó er það svo að nú rétt tæpum tvö þúsund árum síðar miðar meirihluti mann- kyns tímatal sitt við þennan at- burð. þ.e.a.s. fæðingu Jesú. I aldana rás hefur ótölulegur tjöldi fólks allstaðar að úr heiminum sótt styrk í þennan atburð og það sem hann boðar. En hver man nú eftir veraldlegu valds- og áhrifamönn- um þess tíma, þeim Heródesi kon- ungi og Kýreníusi landstjóra? Þeir voru veraldlegir valdsmenn þess tíma, voru afar áberandi í fjölmiðl- um samfélagsins og stjómuðu með ógn, valdbeitingu og herafli. Nú man þá enginn lengur, nema hugs- anlega sem aukapersónur í sög- unni um Jesú Krist. Fæðing bamsins í fjárhúsinu í Bet- lehem boðaði nýja tíma og annars konar vald. Vald ungbamsins sem lagt var í jötu byggist ekki á ógnar- mætti, fjármagns- eða hemaðar- styrk. Jesú hafnaði slíku valdi. Fæðingarfrásagan og síðan líf og starf Jesú sýnir okkur annars konar vald sem er vald kærleikans. Vald kærleikans gmndvallast ekki á aflsmun eða ógnarmætti heldur á andstæðu þess sem er fyrirgefning, líkn og umhyggja. Gjörvalt líf lians var líf fyrir aðra. Hann gaf sjálfan sig öðnant og leitaði ekki síns eigin. Jafnvel óvinum sínum mætti hann með kærleika og svar- aði ofbeldi með elsku. Áhrifamáttur hans var mikill. Boð- skapur hans var kærleikur og rétt- læti í mannlegum samskiptum. Mannleg samskipti voru hans sér- svið. Hann var meistari hins talaða orðs og þannig nýtti hann sér fjöl- miðla sinnar samtíðar til hins ýtrasta. Fjölmiðlar hans tíma vom ræðupúlt samkunduhúsana, sam- komur, mannfagnaðir og veislur. Hið ritaða orð var aðeins fyrir fáa útvalda, á hans tímum. Stundum notaði hann skipsstefni sem predikunarstól, stundum talaði hann á torgum úti eða flutti fjallræður. Orð hans og verk höfðu áhrif. Þau skutu rótum í hjörtum manna og báru síðan ávöxt. Móðir Theresa var einn þeirra ávaxta, tæpum tvö þúsund árum síðar. I okkar samtíð hefur líf og störf móðir Theresu verið sterkur vitnis- burður unt vald kærleikans. Fíf hennar og störf á meðal þeirra sem lægst eru settir í mannlegu samfé- lagi hefur verið kröftugur vitnis- burður um mátt kærleikans. I baráttu sinni gegn myrkraöfl- um illsku og óréttlætis í heimin- um hefur hún beitt valdi kærleik- ans. I augum margra get- ur það birst sem heimska, vanmáttur og vöntun á valdi. Samt hefur það reynst máttugra en flest annað veraldlegt vald og án ljóss kærleikans geta fæstir lifað. Það er aðeins með frelsandi mætti kærleikans sem við getum sigrast á mætti ntyrkursins: Heims um ból helg em jól, signuð mær son Guðs ól, felsun mannanna, frelsisins lind, frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind meinvill í myrkrunum lá. Heimi í hátíð er ný, himneskt ljós lýsir ský, liggur í jötunni lávarður heims, lifandi bmnnur hins andlega seims, konungur lífs vors og ljóss. (Sb. 1871-S. Eglisson) Hvemig getum við látið mátt kær- leikans móta dagleg samskipti okkar? Það hvemig við skiljum og skynj- um valdið, mótar lífsafstöðu okk- ar, gildismat og ntannleg sam- skipti. Reynum við nokkum tíma í illum ásetningi að þvinga, blekkja eða baktala náungann í okkar daglegu samskiptum? Erum við gjarnari á að dæma orð og athafnir annara, frekar en okkar eigin? Ef svo er þá er mikilvægt að átta sigá eftirfarandi. Kærleikurinn er þess eðlis að hann þvingar engan, leitar ekki síns eig- in, trúir öllu, vonar allt og umber allt, eins og segir í kærleiksóðnum. Fyrst er að trúa og treysta mætti kærleikans og síðan að framganga í þeirri trú. Jólagjafimar em tákn um kærleika jólanna. En jólagjafimar geta rétt eins vitnað um hégóma, rangt verðmætamat og bmðl. Gætum þess að kærleiksgjafir jólanna lýsi samsvarandi hugarfarsafstöðu og kærleika hjartans. Tillitssemi, hjálpsemi og ástúð em ákaflega dýrmætar jólagjafir. Það að gefa sér tíma, tala saman, hlusta á og virða viðhorf annarra er ein- nig í anda þeirra kærleiks sam- skipta sem jólin boða okkur. Ræðum þetta við náungann á meðan hátíð stendur, Guð gefi okkur friðsæl og gleði- legjól, Hjörtur Magni Jóhannsson. (vlfllTív r<W Krétti kmm í iiu iA. ('Umvtki KróHa 09 Króní verÓ<i t afyri\%$\v\vH SfarisjóÓsiHS szvh Wír stýr* '■SfdrisjóÓariHH \ OarÓi SffiirisjóÓv\riHH \ YijtirÓvíR SyarisjóÓv\riHH \ (xriH(L(w\k -*>Y*risjóÓv\riHH \ KejHíivíK KmkUr kowii í ífrtgg* 0<5 kíttii Kroww o^ Ktowa M. 10.30 W. 11.30 W. 13-30 W. ly.oo Króna og Króni F^rír t\Wa Rr<iKKíi J OLABLAÐ Víkurfréttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.