Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 50

Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 50
M I N N I N G Jólabækurnar frá Hörpuútgáfunni F. 08.05.1916 -D. 17.09.1997 Elskuleg amma mín er látin. Símtalið með fréttinni setti mig hljóða. Augun fylltust tárum, hjartað af ólýsanleg- um tómleika og sorg. Fyrsta ósjálfráða hugsunin var - „en þú lofaðir". Minningarnar þutu um liugann í óteljandi myndum, og staðnæmdust við litla telpu í fangi ömmu sinnar, hvíslandi í heitum ástríkum faðmi, - „amma, lofaðu mér að deyja aidrei - þú ert svo góð...“ - „auðvitað ætla ég ekkerl að deyja, hvaða vitleysa er þetta elsku bam“ - svaraði hún blíðlega. Strauk mjúklega um hárið, sagði sögur um kónga og tröll, sem allar enduðu vel. Telpan sofnaði vært í lilýjum öruggum faðmi. Hún vissi sem var, að amma stóð alltaf við það sem hún lofaði. Ég og amma Mestan hluta ævinnar ólst ég upp hjá Siggu ömmu. Hún gaf mér heimili, allt sem ég þarfnaðist og meira til. Ekk- ert var nógu gott eða of gott fyrir Heiðu. Hún gaf rnér óskerta ást sína, og helgaði líf sitt að mestu mér. Seinna eftir að sonur minn fæðist, honum líka ásamt syni sín- um honum pabba. Hún umvafði mig elsku sinni, gaf mér öryggi og ótakmarkað frelsi. Hún hvatti mig og trúði á mig af heilum hug, og alla tíð. Eg var ljósið hennar, líf og yndi. Ég hef henni svo matgt til að vera þakklát fyrir. Hún gaf mér von, kærleika, trú á sjálfa mig og yndislegan pabba. Fólk kom og fór, amma var alltaf til staðar. Amma var að engu leyti venjuleg kona. Hún óð í alla hluti af krafti og hræddist fátt. Fyrir henni var ekkert ómögulegt. Hún var mín fyr- irmynd. Þrátt fyrir að sjónin væri lé- leg prjónaði hún tátyljur fyr- ir mig og Ara Brynjar son minn, sem hún sendi hingað út til Nýja Sjálands. Hún vildi ekki að okkur yrði kalt á fótunum. Hún skreytti þær bjöllum og dúskum. Þær voru misstórar og víðar en það skipti ekki rnáli, því þær voru frá Siggu ömmu. Hjarta mitt er fullt af sorg Missirinn er mikill og verður aldrei bættur. Tómið aldrei fyllt. Mér finnst ég svo ein- manna, og ein í þessum lieimi. Röddin þögnuð, sem hughreysti mig í gegnum árin. Hver á nú að segja mér að allt verði betra? Hver á að þerra tárin? Nú er það bara ég. Hvar er mjúka höndin? Það er bara ein Sigga amma Elsku amma mín. Þegar ég var lítil, trúði ég að þú yrðir alltaf hér fyrir mig. Eftir að ég varð fullorðin. Þú og stjömumar. Þú alltaf svo ástrík og trygg, stjörnurnar svo blikandi á himnum. Það sem þú átt sameiginlegt með stjörnunum mínum er að ykkur get ég treyst fyrir öllu. Bænum mínum, hugmynd- unt, vonunr og þrám. í ykkur býr ljós og friður og sérstak- ur staður í mínu hjarta. Nú á ég stjörnurnar, og fallegar minningar um góða ömmu. Það gleður mig að vita að þú fékkst mitt síðasta bréf. Gleður mig að hafa haft tækifæri á að segja þér hversu mikils virði þú varst mér og ert, og það að þú haf- ir brosað. Það er svo erfitt fyrir mig að ímynda niér þig veika. Þannig vil ég muna þig- Ég treysti því og trúi að þú sért héma hjá okkur núna. Að þú haldir í hönd mína og sínir mér réttu leiðina. Að ást þín og hlýja gefi mér styrk. Nú eins og alltaf áður. Þegar dimma tekur í kvöld, ætla ég að líta upp í fagur- bláan himininn. Horfa á stjörnurnar, finna nálægð þína og senda þér fallega bæn. í nótt og um ókomnar nætur. Til að lina sorgina og sársaukann. Hvíl þú í friði. Heiða Bergþóra Þórðardóttir Nýja Sjálandi. Verkalý&s- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Sendum félagsmönnum og Suöurnesjamönnum öllum bestu óskir um dttemteð júl faeéíett ftotmtnM út* Þökkum samstarfiö á árinu sem er að líða Hörpuútgáfan á Akranesi hefur gefið út eftirfarandi bækur: ÞAÐ VAR ROSALEGT Skáldið og skógarbóndinn Hákon Aðalsteinsson. Sig- urdór Sigurdórsson skráði Þessi bók er sambland af æviminningum frá storma- samri ævi og sögum af skemmtilegu samferðafólki, m.a. eru óborganlegur sögur af Jökuldælingum. Hákon segir frá fjalla- og jökla- ferðum, bæði sem lögreglu- og björgunarsveitarmaður og fararstjóri ferðamanna. Hann er í hópi þeirra fjölmörgu sem hafa þurft að takast á við áfengisvandamálið og lýsir af einlægni hvemig honum tókst að sigrast á Bakkusi. Þeir sem unna góðurn sögum og snjöll- urn vísum verða ekki sviknir af þessari bók. Þá hefur forlagið sent frá sér bókina VINDAR í RAUMSDAL Knut 0degaard Þýðing: Jóhann Hjáhnarsson og Matthías Johannessen "Vindar í Raumsdal" er úrval Ijóða norska skáldsins Knut Ódegaard í þýðingu Jóhanns Hjálmarsson og Matthíasar Jóhannessen og rita þeir einn- ig inngang. Knut er meðal kunnari skálda í Noregi og hafa ljóð hans verið þýdd á fleiri tungumál en flestra annarra samtímaskálda þar. Myndimar í Ijóðum skáldsins eru raunsæislegar og ná- kvæmar. Hann var um árabil forstjóri Norræna hússins í Reykjavík. Þetta eru ljóð sem höfða beint til lesenda. LÍFSGLEÐI - Minningar og frásagnir. Þórir S. Guðbergsson í þessari nýju bók rifja fimm þekktir íslendingar upp liðnar stundir og lífsreynslu. Þeir slá á létta strengi og minning- amar leiftra af gleði. Þau sem segja frá eru: Ami Tryggva- son leikari, Guðrún Ásmunds- dóttir leikkona, Salome Þorkelsdóttir f.v. alþingis- forseti, Sigurlín M. Gunnars- dóttir f.v. hjúkmnarforstjóri og Sveinn Elíasson f.v. banka- útibússtjóri. Þetta er kær- komin bók fyrir alla sem unna góðum endurminningabók- um. Alls hafa 36 Islendingar rifjað upp minningar frá liðnum dögum í bókaflokkn- um "LÍFSGLEÐI". LEIKIR Á LÉTTUM NÓTUM Bryndís Bragadóttir. Brian Pilkington myndskreytti I þessari nýju leikjabók er úrval af leikjum, keppnum og þrautum sem koma að góðum notum við hin ýmsu tækifæri. Leikirnir henta vel til skemmtunar og gamans í barnaafmælum og á manna- mótum, eða heima þar sem fjölskyldan er saman á góðri stund. I bókinni eru bæði gömlu og góðu leikimir sem flestir þekkja og líka margir nýir sem gott er að grípa til. Þetta er bók fyrir hresst fólk á öllum aldri - bók fyrir alla fjölskylduna. OTTÓ - Með seiglunni hefst það. Minningar Ottós A. Michelsen. Jóhannes Helgi skráði. Hér birtist saga skagfirska stráksins, sem fór til náms í Þýskalandi á stríðsárunum og gerðist síðar frumkvöðull tölvuvæðingarinnar á Islandi. Ottó segir frá uppvaxtarámm sínum á Sauðárkróki, náms- árum sínum í Þýskalandi á stríðsárunum þar sem hann upplifir loftrásir á þýskar borgir. I tvígang verða dular- full atvik honum til lífs. Hann stofnaði Skrifstofuvélar hf., og varð forstjóri IBM á Isl- andi. Hér er lýst ævi baráttu- manns, sem lagði mörgum góðum málum lið og sýndi einstakt fordæmi og hyggju- vit. JOLABLAÐ Víkurfréttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.