Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 26

Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 26
BRUNAVARNIR I KEFLAVIK FYRR A TIMUM: Hótelið brann á einni klukkustund Þegar kom fram yfir aldamótin var Keflavík orðið álitlegt þorp með fjölda snoturra timburhúsa; sum þeirra voru meira að segja talsvert reisuleg á þeirra tíma vísu. Viðbrigði við að skipta úr torfi og grjóti yfir í tinibur voru vissulega niikil. Hér fylgdi þó a.m.k. einn böggull skammrifi, nefnilega eld- hætta. Eins og nærri má geta voru húsbrunar sjaldgæfir á torf- bæjatímanum, og engum sögum fer af stórbrunum í Keflavík fyrr en kom fram yfir síðustu aldamót. Mátti raunar segja, að eftir að timb- urhúsum tók að fjölga f þor- pinu ásamt því að olíulampar urðu almennari sem ljósgja- far, væri það nánast tímaspursmál hvenær ógæfan dytti á. Að kvöldi hins 22. janúar 1908 var biðinni lokið; þá brann í fyrsta sinn hús til kaldra kola í Keflavík, — og það ekki lakasta kotið í þor- pinu, heldur Bakaríið svonefnda við Hafnargötu. Þess sér hvergi stað í gögnum hreppsnefndar að Bakarís- bruninn hafi ýtt við hrepps- nefndarmönnum að gera bragarbót á brunavörnum í kauptúninu. Fjögur ár liðu áður en því máli var hreyft, eða til 12. apríl 1912. Þá voru í gildi, og höfðu raunar verið um alllangt skeið, lög sem sögðu nákvæmlega til um hvernig eldvörnum skyldi hagað í kauptúnum og verslunarstöðum landsins. Þar sagði m.a. að í kauptúnum eða verslunarstöðum með fleiri íbúum en 300 skyldi stofna slökkvilið, sem í væru allir verkfærir karlmenn á aldrinum 20-60 ára og búsettir á staðnum; starfaði liðið undir stjóm slökkviliðsstjóra, sem kosinn væri af hreppsnefnd til þriggja ára í senn. Jafnframt skyldu hreppsyfirvöld sjá til þess að á staðnum væri a.m.k. ein brunadæla, að stærð og gerð sem Stjórnarráð teldi ásættanlega. Akvæðum þessara laga var ekki fylgt í Keflavíkurhreppi lengi vel, og loks sá Stjóm- arráðið ástæðu til að ftnna að andvaraleysinu við hrepps- nefndina og gerði tillögu um slökkviáhöld, sem þyrftu að vera til staðar í kauptúninu. Hreppsnefndin ræddi málið loks á fundi sínum hinn 12. apríl 1912 og samþykkti þá að taka 1.500 kr. lán til að kaupa slökkviáhöld fyrir kauptúnið. Þetta var á föstudegi og trúlega hefur annað ekki hvarflað að nokkrum, en að láta a.m.k. helgina líða áður en ákvörðuninni yrði hrint í framkvæmd, og hreint ekki frágangssök þótt það dragist nokkrar vikur; úr því Keflavík hafði komist af án brunaliðs svona lengi gat ekki dauð- legið á því nú. Tveimur dögum síðar, sunnu- daginn 14. apríl sat Stefán M. Bergmann á ljósmyndastofu sinni í Hótelinu að Hafnar- götu 16 og hugaði að ljós- myndum sínum. Þá kallaði kona hans til hans um að eldur væri laus uppi á lofti í húsinu. Hús Stefáns, sem oftast var kallað Hótelið, var tæpra 30 ára gamalt. Það hafði upp- haflega verið reist sem greiðasala árið 1884, en síðar var það leigt út sem íbúðar- hús. Stefán keypti húsið árið 1906 eða þar um bil, og í hans tíð var þar íbúðarhús, ljós- myndastofa og verslun Vil- hjálms Chr. Hákonarsonar. Ljósmyndarinn lét verða sitt fyrsta verk, þegar uppvíst varð um eldinn, að hlaupa upp á efri hæð að kanna verksummerki. Þilin í nánd við skorstein hússins stóðu þá f björtu báli og breiddist eldurinn hratt út. Voru eldsupptökin síðar talin vera við skorsteininn, og jafvel að hann hefði gengið úr skorðum í hvassviðri sem geisað hafði nóttina á undan, og neistar frá ofnum því átt greiða leið út um hann. Ýmsir, sem verið höfðu á ferli um Hafnargötuna þennan sunnudag og séð hvernig komið var, komu nú til hjálp- ar; sumir tóku til við að bjarga lausum munum úr húsinu, aðrir tóku til óspilltra málanna að freista þess að slökkva eldinn; var í því augnamiði sóttur sjór og liann borinn f vatnsfötum á staðinn. Þegar vatnið tók að berast hafði eldurinn hins vegar læst sig svo um húsið, að augljóst þótti að hann yrði ekki ham- inn. Því sneru björgunarmenn sér fremur að því að verja nærliggjandi hús. Hótelið brann síðan til gmnna á einni klukkustund. Fóru þar forgörðum flestar veraldlegar Húsasmiðjan sendir Suðumesjamönnum bestu óskir um gleðileg jól, farsœld á nýju ári. Pökkum viðskiptin á m&rnJ ' árinu sem er að líða. HÚSASMIÐJAN Verið með í jólaleik Víkurfrétta og Radíókjallarans. Skilafrestur á sunnudag 22. des. Tveir GSM símar og fleri glæsi- legir vinningar í þessari léttu getraun. fwM [toniaitiii ót Þökkum somskiptin á árinu sem er að líða SKIPAAFGREIÐSLA SUÐURNESJA Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúd og hlýhug vid andlát og útför eiginmanns míns, födur okkar, tengdafödur, afa og langafa, Árna Þorkells Árnasonar Vesturgötu 34, Keflavík áður Þórshöfn Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Suðurnesja fyrir góða umönnun og hlýhug til okkar allra. F.h. aöstandenda Helga Gunnólfsdóttir. Þetta glæsilega hús flutti Helgi Eiríksson, bakari með sér frá Eskifirði. Húsið brann tilkaldra kola í janúarárið 1908. JOLABLAÐ Víkurfréttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.