Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 27

Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 27
... Komið er út annað bindi af Sögu Keflavíkur eftir Bjarna Guðmarsson og tekur það til áran- na 1890-1920. Fyrra bindið kom út árið 7 992 og var því vel tekið. I nýju bókinni er sögð saga af miklu breytingaskeiði í sögu Keflavíkur og er víða komið við. Hér birtist lítið eitt styttur kafli um eldsvoða og brunavarnir í kauptúninu á fyrstu árum aldarinnar... eigur Stefáns, þ.á.m. ljós- myndaáhöld og plötusafn, en það síðamefnda var að sjálf- sögðu ómetanlegt og óbætan- legt. Hótelbruninn var vitaskuld eitthvert helsta fréttaefnið úr Keflavík þessi dægrin og m.a. skrifaði Þorgerður Þóroddsdóttir í sendibréfi til manns síns, Guðfinns Eiríkssonar sem þá var á skútu, hinn 18. apríl: „[...] Hér vildi stórt til, hótelið brann til ösku á sunnudaginn var aflíðandi hádegi. Flestu var bjargað úr því nema ein- hverju úr kjallara. Það var stórmikið og mikið tap. Það hefur kviknað í sóti.“ í kjölfar Hótelbrunans komst loks skriður á að stofnað væri sérstakt slökkvilið í Keflavík og nauðsynleg slökkvitæki keypt. Fyrst var gengið í að afla áhaldanna og fór umsókn um þau um hendur starfs- manna Stjórnarráðsins í júlí sama ár til Knuds Ziemsen verkfræðings sem hafði umboð á Islandi. Reikningur umboðsmannsins er gefinn út 30. nóvember 1912 og hljóðar upp á kr. 1124,50 fyrir eina slökkvidælu, 100 vatnsfötur, 3 brunaaxir með skafti og 2 brunastjaka. í skjalasafni Stjórnarráðsins er varðveitt símskeyti Þorsteins Þorsteins- sonar, oddvita Keflavíkur- hrepps til Stjórnarráðsins, dagsett 11. desember 1912, sem hljóðar svo: „Slökkvi- áhöld Keflavíkurhrepps með- tekin eftir ákvæði hafa verið prófuð vantar brandlúður ...“ Snemma árs 1913 sömdu hreppsnefndarmenn „Reglu- gjörð fyrir eldvarna- og slökkvilið í kauptúninu Kefla- vík“. Var hún staðfest af Stjórnarráði í mars og tók gildi 15. apríl 1913. Fyrsta bmnamálanefnd kaup- túnsins var kosin snemma árs 1913.1 henni sátu auk Ágústs Jónssonar hreppstjóra Sigurð- skjólshúsi. Á fundi hrepp- snefndar í júní 1912 á nteðan menn biðu eftir að fá tækin afgreidd var samþykkt að fara þess á leit við verslunarstjóra H.P. Duus, að verslunin lánaði blett undir skúr fyrir slökkviáhöld kauptúnsins ein- hvers staðar á sjávar- bakkanum. Og ári síðar sam- þyktti hrepsnefndin að byggja skúr yfir brunaáhöldin. Var ákveðið að hafa hann allan úr járni, 6x6 álnir að flatarmáli og vegghæð 4 og 41/2. álnir. Eins og áður sagði voru slökkviáhöldin prófuð þegar þau komu til Keflavíkur í desember 1912. Skömmu síðar var kosin brunamála- nefnd kauptúnsins og slökkvi- stjóri, og má ætla að fljótlega Eitthvad þessu líkt mun fyrsta brunadæla slökkviliós Keflavíkur hafa verið, en myndin fylgdi gögnum í skjalasafni stjórnarrádsins, sem hafð milligöngu um að panta slökkviáhöld fyrir kauptúnið. ur Þ. Jónsson verslunarstjóri í verslun H.P. Duus, sem jafn- framt var kosinn slökkviliðs- stjóri, og Ólafur V. Ófeigsson kaupmaður í Edinborgar- verslun varamaður slökkvi- liðsstjóra. Ólafur Þorsteinsson verslunarmaður var kosinn slökkviliðsstjóri árið 1916 og Sigurður Bjarnason þurra- búðarmaður tók við af Ólafi árið 1920. Ekki fer sögum af því hvar slökkviáhöld hreppsins voru geymd fyrsta kastið og því verður ekki sagt til um hvar fyrsta slökkvistöðin í Keflavík hafi verið til húsa, en geta má sér þess til að einhver af versl- ununum hafi skotið yfir þau upp úr því hafi verið skipað í deildir slökkviliðsins. Ekki er vitað hvenær fyrsta slökkvilið Keflavíkur hóf æfingar, en í desember 1913 færir ungl- ingspilturinn Friðrik Þorst- einsson, síðar framkvæmda- stjóri og organisti í Keflavík, í dagbókina sína, að þá um daginn hafi þriðja æfing slökkviliðsins farið fram. Sprautað var á þrjú hús, Tjarnargötu 10 og 12 og Góðtemplarahúsið. Þegar hér var komið mátti því heita að brunavarnir í Keflavíkurkauptúninu væru komnar í allgott horf, a.m.k. á þeirra tíma vísu. Á fullu tungli -skáldsaga eftir Ulfar Þormóðsson Út er koniin skáldsagan Á fullu tungli eftir Úlfar Þor- móðsson. Sagan gerist í mið- bæ Reykjavikur að sumarlagi og á rénum sólarhring. Aftan á kápu segir um sög- una: „Og um hvað er þetta svo, spurði útgefandinn. Einu sinni var maður sem lagði af stað í ævilangt ferða- lag. svaraði höfundurinn. Ætt- ingjar hans bjuggu hann út með nesti og nýja skó og ósk- uðu honum gæfu. Þegar hann var kominn út á víðan völl þóttist hann ekki hafa þörf fyrir heimanfylgjuna, gróf hana í jörðu og hélt sína leið. Innan tíðar varð hann svangur og sárfættur. Þar með hefst saga hans. Þá sagði útgefandinn: Þetta líkar mér. Hér er sum sé á ferðinni margræð og dularfull skáldsaga sem teygir sig að ystu mörkum veruleikans þar sem í Ijóðrænni kaldhæðni er fjallað um mann sem misst hefur taktinn í þjóðarmarsin- um og gengur einn urn verald- arvefinn án þess að vita það. Höfundur lagði kollhúfur og tók síðan til við að skrá sög- una af I. Bersasyni og Hinum látna. Það var á fullu tungli“. Forsíðuna prýðir vatnslita- mynd eftir Magnús Kjartans- son myndlistarmann. Höfund- ur er útgefandi bókarinnar. 7VI/DD- OG SÓiASX OSMOtA EYGLÓÆtt EYCL0 KRISTJANSDOTTIR Nuddfrœbingur HnÁkubrmil 11 Keflavík Sími 421-2639 VI DD . IKI WI OIMI - luJÓS Prif á bílum fyrir jóiin! Bílageymslan ALEX - Bónstöð - Bakkastíg Hi - Vjai ðvík - Sínii 421-2801 PORL4KSMESSA A GLÓÐIIVIVI Skötuhlaðborð að hætti Glóðarinnar í hádeginu Kr. 1.650.- J§tarf sfóllt Cilóðarwttar ósltar öllmtt gleíStlejjx-a jóíat ag farsæíóar á kotnatibi árt. ^öfekttm íitBsIttpttrt á Þóí ItBrta B f 1 T A u « A A F E Sínii 421-1777 V íkurfréttir JÓLABLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.