Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 10
FORVARNASTARF íÞROTTABANDALAGS REYKJANESBÆJAR: Forvamir eru eilífðarverkefni Mikið forvamarstarf hefur farið fram innan íþróttabandalags Reykjanesbæjar undanfarið ár en innan hreyfíngarinnar hefur forvarnahópur starfað í sam- vinnu við fjölda aðila á Suður- nesjum. Um þessar mundir verður dreift í Reykjanesbæ áskorun til for- eldra þar sem þeir eru hvattir til þess að kaupa hvorki né veita bömum sínum áfengi. Þetta er aðeins byrjunin en formlegt foivamastarf IRB mun hefjast I. febrúar á næsta ári. Hjálmar Ámason alþingismað- ur er fomiaður ÍRB og Jóhann Magnússon er verkefnisstjóri forvarnaverkefnisins ásamt Frey Sverrissyni. Að sögn Hjálmars var grunur þeirra sem starfa innan ÍRB staðfestur á borgarafundi sem haldinn var nýverið en |rar voru birtar sláandi niðurstöður rann- sóknarstofnunar uppeldis- og menntamála er varðar hagi ungs fólks á Islandi. Það sem kom þó helst á óvart var hversu ung- menni á Suðumesjum skám sig úr. „Aðalvandinn var sá að okkar mati að fólk talaði ekki saman. Það kom síðan í ljós á fyrstu fundum forvarnahópanna að það var mikil gerjun í gangi meðal fólks enda starfa nú um 70 manns í þessum hópum“, segir Hjálmar. „Við byrjuðum á því fyrir ári síðan að senda frá okkur tillög- ur um breyttan útivistartíma. Þar voru reglumar samræmdar og gerðar raunhæfar auk þess sem við lögðum áherslu á að þeim væri fylgt eftir. Það er jafnframt í skoðun hjá Skóla- málaskrifstofu Reykjanesbæjar að taka upp danskennslu I skól- um en slíkt er liður í forvömum. Við sendunt líka tillögur til Jóhann Magnússon og Hjálmar Arnason: ...Þab er mikilvægt ab for- eldrar forgangsrabi tíma sínum og skobi hversu miklu afhonum er eytt meb börnunum.. Skólamálaskrifstofu um að munnleg tjáning verði kennd í skólum frá leikskólastigi og upp úr. Að lokum höfum við gert jtað að tillögu okkar að krökk- um verði kennd kerfisbundin slökun". ÍRB hefur sótt um styrki til verkefnisins og m.a. fengið út- hlutað 700 þúsund krónum frá Forvamasjóði heilbrigðisráðu- neytis, Reykjanesbær mun styrkja verkefnið um eina millj- ón og verkefnið hefur hlotið góðar undirtektir hjá fyrirtækj- um á Suðumesjum. Stefán Bjarkason íþrótta- og tómstundafulltrúi er tengiliður verkefnisins við Reykjanesbæ og að sögn þeirra Hjálmars og Jóhanns hefur hann veitt verk- efninu mikið lið. Alls starfa 10 hópar að for- vamaverkefninu sem er að sögn Jóa eilífðarverkefni frá vöggu til grafar. „Við erunt í raun aðeins að styrkja það sem er í gangi og virkja fólk til samstarfs. Sem dæmi má nefna að við vöktum upp nemendafélögin sem voru í raun sofandi og árangurinn er sá að krakkarnir eru búnir að skipuleggja smiðjur". Hjálmar tekur undir þetta. „Til- gangurinn er að fá börnin til samstarfs og vinna með þeim þannig að þau finni að þau hafi eitthvað til málanna að leggja og að það sé tekið mark á þeim. Þannig er hægt að virkja þau gífurlega mikið“. Jafhingjafræðslan mun koma að verkefninu ásamt fulltrúum íþrótta- og tómstundafélaga, vinnustaða, foreldraráða, for- eldra, leikskóla og grunnskóla svo eitthvað sé nefnt en verk- efnið byggir á samstarfi fjölda aðila. Hjálmar og Jóhann binda mest- ar vonir við svokallaðan for- eldrasamning sem verður á veg- um foreldrafélaganna og Skóla- málaskrifstofu. Þar munu for- eldrar í hverjum bekk skrifa undir samning um hlutverk sitt og annarra foreldra þar sem reglur þeirra verða samræmdar. „Með þessum samningi erum við að segja að við viljum tala saman og vinna saman enda hafa rannsóknir sýnt að sam- skipti bama við foreldra em svo mikilvæg og því er þetta stór hluti í forvömum. Það er mikil- vægt að foreldrar forgangsraði tíma sínum og skoði hversu miklu af honum er eytt með bömunum." segir Hjálmar. „Það er staðreynd að við hér á Suðurnesjum leggjum mikið upp úr veraldlegum hlutum til þess að byggja upp lífsham- ingju. Það þýðir einfaldlega að fólk þarf að eyða miklum tíma til þess að vinna fyrir þessum lífsgæðum og bömin gleymast. Svo kemur fólk heim þreytt úr vinnu og þá er svo þægilegt að segja við bömin „æ, farðu inn í herbergið þitt og horföu á sjón- varpið" og má benda á það að óformleg könnun meðal 10 ára nemenda í Myllubakkaskóla sýndi að 70% þeirra áttu eigið sjónvarp í herbergjum sínum. Slíkt stuðlar náttúmlega ekki að auknum samskiptum bama og foreldra". Að sögn þeirra Hjálmars og Jó- hanns mun forvarnahópurinn setja sér markmið fyrir 1. febrú- ar á næsta ári um hvað skuli gera á einu ári. Þá verður skoð- að livað hefur áunnist og mun því könnun RUM nýtast vel til samanburðar. „Þá verður hægt að sjá hvort við höfunt náð einhverjum ár- angri. En það er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að forvamir em eilífðarverkefni". Sjómenn - Gríndavfk Adalfundur Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur verður haldinn á Sjómannastofunni Vör þriðjudaginn 30. desember 1997 ki. 18:00. Fundarefni: 1. Fundur settur. 2. Skýrsla formanns. 3. Venjuleg aðalfundarstörf. 4. Önnur mál. Félagar fjölmennid. Stjórnin. JÓLABALL Jóladansleikur Sjómanna- og vél- stjórafélags Grindavíkur verður haldinn í Sjómannastofunni Vör þriðjudaginn 30. desember kl. 15-16:30. Aldurstakmark 0-12 ára. Aðgangur ókeypis. Stjórnin. Smóauglýsingar ÓSKAST TIL LEIGU 2ja herberja ílnið óskast í Keflavík eða Njarðvík. Reglusemi og skilvísum greiðslum heitið. Uppl. í síma 425-2922 eða 567-9214 Arngrímur. 3ja herbergja íbúð óskast í Keflavík. Við erum tvær reyklausar, heitum reglusemi og skilvísum greiðsl- um. Uppl. í síma 899-2700 eða 421-4058. Einstaklingsíbúð óskast eða herbergi með eldhúskrók og baði. Uppl. í síma 421-3156 til 22:00 og milli 22 og 23 í síma 421-5321. Einstaklingsíbúð Óska eftir að taka á leigu ein- staklingsíbúð í Kellavík eða Njarðvík. Alhuga líka stærri íbúðir. Uppl. í síma 565-2648 á kvöldin. Sigurður eða Brynja. TIL LEIGU 3ja herbergja íbúð í tvíbýli. Laus strax. Uppl. í síma 421-3419. Herbergi í Keflavík með aðgangi að baði og eldhúsi. Uppl. í síma 897- 3870. 2ja herbergja íbúð við Fífumóa í Njarðvík. Laus strax. Hússjóður, rafmagn og liiti innifalinn í leigu. Uppl. í síma 421-3731 Gísli. TIL SÓLU Góð 3ja herbergja íbúð í Keflavík til sölu. Hagstæð lán, góð kjör, tek bíl upp í. Uppl. í síma 456-2377. Videotæki Nýtl, ónotað Panasonic NV- SD200EG videolæki. Er með ársábyrgð. Verð 26.000. Uppl. í síma 421-3370 Silver Cross barnavagn blár og hvítur Silver Cross bar- navagn, bátalaga, sem nýr. Verð 25.000 kr. Einnig Pioneer geis- laspilari í bíl verð 12.000 kr. Uppl. í síma 422-7252 TAPAÐ/FUNDIÐ Nýir svartir kuldaskór með gulum kanti voru teknir í íþróttahúsinu við Sunnubraut sunnudaginn 14. des. milli kl. 14-16. Ef einhver veit urn skóna vinsamlegast látið vita í síma 421-5863. Gyllt kvenmannsúr fannst við Hafnargötu 35. Nánari uppl. í Skóbúðinni. ÝMISLEGT Innrömmun Suðurnesja, Iðavöllum 9a, Keflavík Innrömmun, karton, inn-ramm- aðir speglar. myndlist, Rosenthal vörur, handunnið keramik. Opið Mán-föstudaga 10-12 og 13-18,laugardaga 10- 12. Sími 421-3598. Söngur Dagný Jónsdóttir sópran- söngkona tekur að sér að syngja við brúðkaup, jarðarfarir og við ýmis tækifæri. Uppl. í síma 421-1780. Starfsmannafélag Suðurnesjabyggda (D&hcLr /c’m ö n 11 n 111 oij /ýö/<s/ei/A/ttui þeirrcv íf leó ilfcf / a /ó Iii oif /oi~<sæl<s konuiiuli ií/ <s. Samkomuhúsiö í Garöi Óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og góðs og farsæls nýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. JOLABLAÐ Víkurfréttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.