Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 2

Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ungir og upprennandi fótboltamenn og -konur léku með knöttinn af miklum myndugleik á nýja gervigrasinu á Valsvellinum í fyrradag þar sem æfingar fóru fram í öllum hornum. Æfingum undir berum himni hlýtur einnig að fjölga með hækkandi sól en vorið hefur gert vel vart við sig á meðal borgarbúa undanfarna daga. Veður- stofan býst þó við lítilsháttar rigningu í morgun- sárið en léttir til þegar líður á daginn. Knattleikir í öllum hornum á Valsvellinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Ungir Valsarar sprettu kátir og léttir úr spori á nýju gervigrasi Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Ísland og Rússland undirrituðu í gær samning um veiðar íslenskra skipa á árinu 2016 í rússneskri lögsögu og munu Íslendingar sam- kvæmt honum geta veitt allt að 8.158 tonn af þorski. Þar af er 5.098 tonnum út- hlutað beint en eftir á að semja um verð vegna 3.060 tonna sem íslenskar útgerðir hafa rétt til að kaupa af Rússum. Er samningurinn metinn á um 2,3 milljarða króna. „Þetta eru ánægjuleg tíðindi og skipta íslenska þjóðarbúið miklu,“ segir Steinar Ingi Mattíasson, sem sat í samninganefnd Íslands sem fulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, um samninginn sem oftast er nefndur Smugusamningur- inn. Samningurinn byggir á þríhliða samningi Íslands, Noregs og Rúss- lands frá árinu 1999 um veiðar á þorski í Smugunni. Ísland og Rúss- land semja árlega um veiðar hvers árs á grundvelli Smugusamningsins en á fundi í desember í fyrra náðist ekki að landa samningi. „Þá slitnaði upp úr viðræðum og þess vegna er ánægjulegt að hafa náð að landa þessu,“ segir Steinar. Á fundinum kom fram að Rússar hafa áhuga á því að endurskoða ákveðin atriði í Smugusamningnum í aðdraganda mögulegrar endur- skoðunar hans árið 2018. Jafnframt lýstu þeir yfir áhuga á því að auka samstarf milli þjóðanna á sjávar- útvegssviðinu. Milljarðasamningur í höfn  Smugusamningurinn svokallaði endurnýjaður  Slitnaði upp úr viðræðum í desember  Íslendingar fá að veiða rúm átta þúsund tonn í rússneskri landhelgi Steinar Ingi Matthíasson Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason Veiðar Skv. samningnum geta Íslendingar veitt í rússneskri landhelgi. Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Við vildum fá fram beint og milli- liðalaust viðhorf íbúa. Nú liggur það fyrir og er leiðbeinandi fyrir bæjar- fulltrúa og aðra sem að málinu koma,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, en íbúakönnun var gerð í bænum þar sem leitað var álits bæjarbúa á því hvort auka ætti aðgengi að strönd- inni Löngu. Alls greiddu 628 atkvæði og af þeim svöruðu 386, eða 61%, að þeir vildu ekki auka aðgengið að Löngu. 242, eða 39%, vildu auka aðgengið. Af þeim sem sögðust vilja auka að- gengið töldu 77,7% að það yrði best gert með brú, 18,6% töldu göng hentugri en 3,7% vildu aðrar leiðir. „Þetta er afgerandi niðurstaða,“ segir Elliði jafnframt en nú fari mál- ið fyrir umhverfis- og skipulagsráð og síðar bæjarstjórn þar sem endan- leg ákvörðun verður tekin varðandi aðgengi að ströndinni. „Það hefur ekki gerst í Eyjum að farið hafi verið gegn svo afgerandi niðurstöðu bæjarbúa,“ tekur hann þó fram. Stór og afturkræf aðgerð Óskað var eftir áliti íbúa Vest- mannaeyjabæjar með þessum hætti því umsókn hafði borist umhverfis- og skipulagsráði bæjarins um að gera jarðgöng í gegnum Heimaklett og opna þannig aðgengi að strönd- inni Löngu. „Þarna var um stóra og afturkræfa aðgerð að ræða,“ segir Elliði, og enginn kjörinna fulltrúa í bænum hafi verið kosinn upphaflega til að taka slíka ákvörðun. „Ég er fæddur og uppalinn hér og veit að Eyjamenn eru í eðli sínu íhaldssamir og Heimaklettur er okk- ur háheilagur,“ sagði hann svo létt- ur í bragði, spurður hverja hann teldi ástæðu þess að bæjarbúar hefðu hafnað auknu aðgengi að Löngu. „Heimaklettur háheilagur“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Nei Vestmannaeyingar hafna því að auka aðgengi að ströndinni Löngu.  61% Eyjamanna hafnar auknu aðgengi að ströndinni Löngu Um 27% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokk- inn í alþingis- kosningum sam- kvæmt nýrri Gallup-könnun. Er það aukning um fimm pró- sentustig frá síð- ustu viku. Fram- sókn fengi tæp 7%, en það er minnsta fylgi sem mælst hefur við flokkinn síðan í febrúar 2008. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gærkvöldi. Þetta eru niðurstöður netkönn- unar Gallup sem gerð var 7.-12. apríl. Heildarúrtak var 1.434 og þátttökuhlutfall var 56,1 prósent og af þeim nefndu 82,9% flokk. 34% styðja ríkisstjórnina Píratar fengju um 29% fylgi sam- kvæmt þessari könnun sem er þrem- ur prósentustigum minna en í síð- ustu viku. Tæplega 20% myndu kjósa Vinstri græn, sem er þremur pró- sentustigum meira en fyrir viku. Að- eins 9% myndu kjósa Samfylking- una, 5% Bjarta framtíð og 3% myndu kjósa Viðreisn. Tæpt eitt prósent vill aðra flokka eða framboð. Þá styðja um 34% ríkisstjórnina. Sjálfstæð- isflokkur eykur fylgi Bjarni Benediktsson  Aðeins 7% kysu Framsóknarflokk Minjastofnun mun leggja fram kæru á hendur verktakafyrirtækinu Mannverki vegna niðurrifs Exeter- hússins. Stofnunin telur að fyrirtækið hafi brotið lög um menningarminjar og lög um mannvirki og segir starfs- maður hennar að yfirlýsing sem fyrirtækið sendi frá sér í gær breyti engu um að friðað hús hafi verið rifið niður án leyfis og það sé lögbrot. Í yfirlýsingu Mannverks baðst fyrirtækið afsökunar á skorti á að- gát við framkvæmdir við Tryggva- götu 10-14. Vísar það til þess að byggingarleyfi frá borginni hafi veitt því heimild til að rífa húsið. Niðurrif Ex- eter-hússins verður kært
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.