Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Dólómítar&dalalíf Fararstjóri: Gunnhildur Gunnarsdóttir Komdu með í dásamlega ferð um Dólómítana, þar sem farið verður í spennandi skoðunarferðir í rútu og léttar gönguferðir um fögur fjallasvæði Austurríkis, Þýskalands og Ítalíu. Við upplifum m.a. náttúrufegurð Misurina vatnsins, skoðum Innsbruck borg og förum með kláfi upp á hæsta fjall Þýskalands, Zugspitze. Ferð sem auðgar andann! Verð: 214.400 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! 18. - 26. júní Sumar 9 Ör fá s æt i la us Ólafur Bernódusson Skagaströnd Fullyrða má að rétt viðbrögð nokkurra unglinga á Skagaströnd hafi bjargað lífi eldri konu þegar hún fékk hjartaáfall þar sem hún var í göngutúr utan alfaraleiðar. Einn drengur í hópnum hóf hjarta- hnoð strax og hann áttaði sig á al- varleika málsins og hnoðaði í 17 mínútur þangað til sjúkrabíll kom á staðinn. Með skjótum og réttum viðbrögðum tókst krökkunum í sameiningu að bjarga lífi kon- unnar. Unglingar í leiklistarvali í Höfðaskóla voru á æfingu í félags- heimilinu Fellsborg seinni partinn 7. apríl þegar ein stúlkan í hópnum sér fyrir tilviljun út um gluggann þar sem konan fellur fram fyrir sig á andlitið án þess að bera hend- urnar fyrir sig. Konan var á veg- slóða 150 – 200 metra frá félags- heimilinu þegar hún hneig niður. Eftir að hafa beðið í stutta stund og séð að konan reis ekki á fætur þá hljóp einn úr hópnum til hennar til að athuga hvað um væri að vera. Þegar hann sá að konan var meðvitundarlaus og blæðandi hljóp hann til baka og hringt var í neyðarlínuna til að kalla til sjúkra- bíl. Á sama tíma kom hópur af unglingunum að konunni og Viktor Már Einarsson, sem er í 10. bekk, tók frumkvæðið, hringdi í neyðar- línuna til að fá ráð og skipulagði aðgerðir meðan hann hóf hjarta- hnoð. Viktor hélt síðan áfram að hnoða í 17 mínútur eða þar til sjúkraflutningamenn tóku við. Konan var meðvitundarlaus Viktor segir konuna hafa verið meðvitundarlausa, með engan púls né andardrátt en hafi á þessum mínútum nokkrum sinnum tekið andköf en síðan alltaf hætt að anda aftur. Hann segist ekki hafa treyst sér til að blása í konuna vegna áverka í andlitinu eftir fallið heldur hafi hann opnað öndunar- veginn vel og séð til þess að fötin voru fjarlægð sem þrengdu að hálsi og bringu. Þegar fréttaritari ræddi við Viktor og spurði hvort hann hefði ekki bjargað lífi kon- unnar var hógvært svar hans: „Mér er sagt það.“ Viktor og hinir unglingarnir hafa fengið tilsögn í skyndihjálp í skólanum sem greinilega kom sér vel í þessu tilfelli. Það má sannar- lega hrósa krökkunum og þá sér- staklega Viktori fyrir að halda ró sinni og bregðast við þessari óvæntu uppákomu á hárréttan hátt. Voru ótrúlega yfirveguð Strax eftir atvikið ræddi hjúkr- unarfræðingur skólans við ung- lingana og veitti þeim áfallahjálp ásamt því að hitta þau í skólanum og farið yfir málið. Hún sagði að krakkarnir hefðu verið ótrúlega yf- irveguð og róleg þrátt fyrir hve al- varlegt atvik var um að ræða. Konan sem um ræðir var flutt með sjúkrabíl af staðnum en síðan kom þyrla til móts við bílinn og flutti konuna á Landspítalann þar sem hún liggur nú þungt haldin. Rétt viðbrögð ung- linga björguðu lífi Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Bjargvættur Viktor Már Einarsson tók stjórnina og hélt konunni á lífi með hjartahnoði þar til sjúkrabíll kom á staðinn. Unglingarnir voru æðrulausir.  Unglingar á Skagaströnd sáu þegar kona fékk hjarta- áfall utan alfaraleiðar  Drengur hóf hjartahnoð strax Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Að sögn Kristjáns Guy Burgess, framkvæmdastjóra Samfylkingar- innar, leigir Samfylkingin 230 fer- metra á 2. hæð á Hallveigarstíg 1. Fyrir það greiddi flokkurinn 332.00 krónur á mánuði árið 2015. Að mati Kristjáns Gunnarssonar, forstjóra fast- eignafélagsins Regins, ætti leiguverð fyrir hvern fermetra fyrir „þessa eign“ að vera 1.700 -2000 kr. Samkvæmt því ættu leigu- greiðslur að vera á bilinu 391-460 þúsund kr. Í svari við fyrirspurn í Morgun- blaðsins segir Kristján Guy að inni í leiguverðinu séu, auk húsaleigu, greiðsla fyrir rekstur sameignar, ræstingu og bílastæði auk greiðslu til Orkuveitu Reykjavíkur. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið á mánudag að Samfylkingin greiddi markaðsverð fyrir aðstöðuna í höfuðstöðvunum. Þá segir einnig í svari Kristjáns að upphaflegi samningurinn sem gerð- ur var við Sigfúsarsjóð og Alþýðu- hús Reykjavíkur ehf. árið 2004 hafi verið til 15 ára. Árið 2013 hafi verið endursamið til 10 ára þegar dregið var úr rekstri Samfylkingarinnar. „Við samningagerð 2013 var óskað eftir því að tekið yrði tillit til þess að komin væri á tæpra 10 ára reynsla af leigusambandinu og þess að við upphaflega samningagerð árið 2004 tók Samfylkingin að sér að standa að miklum endurbótum innan húss á sinn kostnað, til dæmis með því að leggja raflagnir og gera miklar lag- færingar á gólfi og lofti,“ segir í svari Kristjáns. Húsaleiga Samfylkingar- innar undir markaðsvirði  332 þúsund fyrir 230 fermetra húsnæði og rekstur Morgunblaðið/Styrmir Kári Hallveigarstígur 1 Samfylkingin hefur verið á Hallveigarstíg frá 2004. Kristján Guy Burgess Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Annað stig nauðungarsölu á jörðinni Felli, sem meðal annars nær til um helmings Jökulsárlóns, fer fram í dag. Þann 10. mars sl. féllst sýslumaður- inn á Suðurlandi á beiðni um nauð- ungarsölu til slita á sameign á jörð- inni Felli í Austur-Skaftafellssýslu, sem m.a. nær til um helmings Jökuls- árlóns. Jörðin er alls 10.528 hektarar og eru landeigendur, sem eiga jörðina í sameiningu, um 40 talsins, sem rekja má til óskipts dánarbús. Jörðinni til- heyrir jafnframt um helmingur Jökulsárlóns til móts við íslenska ríkið. Jökulsárlón er ein af þekktustu náttúruperlum Íslands og sýna tölur að um þriðjungur ferðamanna skoðar lónið á ferð sinni um Ísland. Við lónið hefur margvísleg ferðaþjónusta verið starfrækt og hafa eigendur Fells átt í deilum vegna þessa, sem og með hvaða hætti eigi að haga uppbygg- ingu á svæðinu. Ekki hefur tekist að leysa úr þeim deilumálum og fyrir vikið féllst sýslumaður á Suðurlandi á gerðarbeiðni eigenda um að bjóða landið upp. Heimildir Morgunblaðsins í síðustu viku gáfu til kynna að mikill áhugi væri á kaupum á jörðinni og að er- lendir aðilar á EES-svæðinu hefðu m.a. lýst áhuga sínum á kaupum. Vesturbakki lónsins er þjóðlenda og ekki má raska honum með bygging- um samkvæmt skipulagi, en deili- skipulag heimilar takmarkaða upp- byggingu á austurbakkanum, þeim hluta landsins sem er á leið á uppboð. Metin á allt að tvo milljarða Ljóst má telja að háar upphæðir fá- ist fyrir jörðina og hafa verið nefndar tölur frá hundruðum milljóna hið minnsta og allt upp í tvo milljarða. Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar, hefur lýst því að bæjaryfirvöld á Hornafirði óttist að seljist landið fyrir offjár leiði það til þess að þrýst verði á um mikla uppbyggingu sem geti spillt svæðinu. Telur hann ríkið eiga að meta hvort það eigi að kaupa landið svo það hafi stjórn á því hvers konar uppbygging fari þar fram. Morgunblaðið/Ómar Náttúruperla Jörðin er alls 10.528 hektarar og eru um 40 landeigendur. Hefja uppboð á Jökulsárlóni  Náttúruperla í hendur erlendra aðila?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.