Morgunblaðið - 14.04.2016, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
þúsund tunna. Það magn sé talið
nægja til að koma á stöðugleika á
markaðinn og snúa af braut verð-
lækkunar. Veiði á 6.800 tonnum af
grásleppu gæti nægt til söltunar á
13 þúsund tunnum af grá-
sleppuhrognum, segir á heimasíðu
LS.
Örn Pálsson segir að verðið í ár
hafi verið um 150 krónur fyrir heila
grásleppu, eða um 25% lægra en í
fyrra þegar það var um 200 krónur.
Þótti það eigi að síður í lægri kant-
inum þá. Hann segir markaðinn
mjög viðkvæman og allt mæli með
því að reynt sé að draga úr fram-
boði.
Grásleppusjómenn hafi metið
stöðuna þannig að í heildina mætti
verka um 20 þúsund tunnur af
hrognum og sé þá miðað við að Ís-
lendingar og Grænlendingar skiptu
þeim afla nánast alfarið á milli sín. Í
Nýfundnalandi og Noregi virðist
ekki lengur vera áhugi á veiðunum
vegna lágs verðs.
Vandamál sem grásleppu-
sjómenn mega síst við
Þessu er svarað á heimasíðu LS
og segir þar að ákvörðunin valdi
miklum vonbrigðum og telur LS að
með henni verði veiði umfram eftir-
spurn, sem m.a. muni leiða til meiri
verðlækkunar en orðin er og birgða-
söfnunar. Vandamál sem grásleppu-
sjómenn megi síst við.
LS telur að 26 veiðidagar hefði
þurft til að ná veiði sem svari til 10
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Við höfum óskað eftir rökstuðningi
ráðherra fyrir fjölgun daga á grá-
sleppuveiðum og teljum hana var-
hugaverða,“ segir Örn Pálsson,
framkvæmdastjóri Landssambands
smábátaeigenda. Sjávarútvegsráð-
herra ákvað í vikunni að heimila
veiðar á grásleppu í 32 daga, LS
lagði til að dagarnir yrðu 26, en í
upphafi vertíðar var miðað við 20
daga til bráðabirgða. Örn segist ótt-
ast að svo margir veiðidagar leiði til
offramboðs, verðlækkunar og
birgðasöfnunar. Útflutnings-
verðmæti grásleppuafurða, þ.e.
hrogna og hveljunnar, nam um 2,3
milljörðum í fyrra.
Í frétt ráðuneytisins kemur fram
að samkvæmt ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar sé ráðlögð hámarks-
veiði á grásleppu 6.800 tonn á ver-
tíðinni. Mikil óvissa sé ævinlega um
aflabrögð við grásleppuveiðar, en
vertíðin í ár fari afar vel af stað. Afli
hafi verið góður og virkum grá-
sleppuleyfum fjölgað lítillega milli
ára. Ráðuneytið hafi því ákveðið að
veiðidagar verði 32, jafnmargir og í
fyrra. Þá veiddust um 6.400 tonn af
grásleppu og segir á vef ráðuneytis-
ins að dagafjöldinn nú sé miðaður
við að lítil hætta sé á að heildarafli
verði umfram ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar.
Ljósmynd/Þórður Birgisson
Á Skjálfanda Afli hefur yfirleitt verið góður á vertíðinni, m.a. á Skjálfandaflóa þar sem skipverjar á Mána ÞH 98
fengu góðan afla síðasta mánudag. 147 bátar hafa byrjað veiðar, en þeir voru 140 á sama tíma í fyrra.
Óttast offramboð og verðlækkun
Veiðidagar á
grásleppu 32
Sex fleiri en
sjómenn vildu
„Það er talsvert um
að fólk leiti til okkar
vegna svipaðra
mála,“ segir Sig-
urður Helgi Guð-
jónsson, formaður
og framkvæmda-
stjóri Húseigenda-
félagsins, og vísar í
máli sínu til dóms
Héraðsdóms
Reykjavíkur þar sem skráðum eig-
endum íbúða á Vatnsstíg 15, 19 og 21
í Reykjavík er óheimilt að reka gisti-
stað í séreignunum, en nágrannar
kvörtuðu undan miklu ónæði á öllum
stundum sólarhrings.
„Sú regla gildir í fjöleignarhúsum
að eigandi má ráða yfir íbúð sinni og
hvað hann gerir við hana, þ.e. hvort
hann býr í henni sjálfur, leigir hana
út eða þá hugsanlega hvort þar sé
rekin einhver atvinnustarfsemi. Á
móti koma svo hagsmunir annarra
eigenda og að þeir verði ekki fyrir
meira ónæði eða óþægindum en þeir
hefðu mátt gera ráð fyrir,“ segir Sig-
urður Helgi og bendir á að í málum
sem þessum sé uppi hagsmunamat.
Spurður hvort áðurnefndur dómur
geti haft fordæmisgildi svarar hann:
„Ég veit ekki hvort hægt sé að draga
víðtækar ályktanir af þessum dómi.
Þetta er jú niðurstaða sem tekur mið
af aðstæðum þarna og því ekki víst að
hægt sé að flytja það yfir á önnur
hús.“ khj@mbl.is
Eigendur
íbúða leita
oft ráða
Ekki víst að dóm-
urinn setji fordæmi
Sigurður Helgi
Guðjónsson
13.000 kr. MÁn.
SPOTIFY PREMIUM
*L
ín
ug
ja
ld
ek
ki
in
ni
fa
lið
.V
er
ð
fr
á
2.
39
0
kr
.
*