Morgunblaðið - 14.04.2016, Side 10

Morgunblaðið - 14.04.2016, Side 10
Firstrain regnkápa Margir litir/St. XS–XL Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240 Flott frá Náttúrulegt gúmmí Stærðir 36–41 Miss Juliette Bot Nýr litur: Brun Miss Julie Litur: Noir Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur sími 571 5464 Stærðir 38-54 Smart föt, fyrir smart konur Alltaf eitthvað nýtt og spennandi 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Hún heitir Kate og er 21 árs, hún er sú eina sem var skráð í Reykjavík í gær. Þær voru fjórar daginn áður: Ana, Harra, Nikolle og Karinna. Þessar stúlkur selja sig allar í vændi á alþjóðlegri vefsíðu. Þær eru staddar í Reykjavík núna en á síð- unni er hægt að auglýsa vændis- þjónustu í ákveðnum borgum heimsins eftir dögum. Kate gefur upp símanúmer og tölvupóstfang og þá eru nákvæmar útlitslýsingar á „vörunni"; hárlitur er dökkur, augn- litur blár, hún er rökuð og reykir en er ekki með sílikon né húðflúr. Klukkutími með henni kostar 50.000 kr., ein klukkustund í viðbót er á 35.000 kr. Eins og sagði frá í Morgun- blaðinu í gær hafa umsvif vændis á Íslandi aukist undanfarið m.a vegna tilkomu fleiri ferðamanna. Vændis- salan fer að mestu leyti fram í gegnum vefsíður og samfélagsmiðla. Oftast eru þetta erlendar konur sem koma hingað tímabundið þó ís- lenskar konur megi finna inn á milli. Athygli vekur að stúlkurnar fjór- ar sem auglýstu þjónustu sína á þriðjudaginn eru allar með svipað símanúmer og sama lag hljómar hjá öllum þegar hringt er. Sú fyrsta sem blaðamaður hringir í svarar, hún talar ensku með hreim og seg- ist vera stödd á Íslandi en þegar spurt er frekar skellir hún á. Ekki svarar í neinu hinna númeranna eft- ir það. „Þetta gæti verið eina og sama manneskjan sem er að reyna að auglýsa sig sem mest. En þær geta líka verið nokkrar saman. Þær láta oft símann ganga sín á milli, við er- um með númer sem við þekkjum og eru vændissímar. Það er alltaf hægt að eiga viðskipti við símanúmerið þó það sé ekki alltaf sama konan,“ seg- ir Snorri Birgisson, lögreglufulltrúi hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Börn á flótta til sölu Fjórar til fimm alþjóðlegar vef- síður eru í gangi sem auglýsa vændi til sölu á Íslandi. Þær eru vistaðar erlendis og því ekki hægt að loka þeim, að sögn Snorra. „Ég lagði til að við ættum að fá einhvern til að fara fram á lögbann á þeim eins og var gert með síður sem voru að dreifa ólöglegu niðurhali en það þyrfti þá að koma frá aðila sem er að tapa á viðskiptunum og það er ekkert slíkt í þessum geira. Á Fa- cebook er auðveldara að grípa til ráðstafana, þegar við höfum fengið upplýsingar um vændissölu þar höf- um við haft samband við Facebook og þeir hafa í sumum tilfellum lokað þeim síðum,“ segir Snorri. Vefsíðan sem Kate og samstarfs- félagar auglýsa sig á er eitt stærsta vandamálið í Bandaríkjunum í dag en það er mikið um að þolendur mansals séu auglýstir þar til sölu. „Það er vel fylgst með þeirri síðu í dag út af flóttamönnum, en krakkar sem eru á flótta eru gripnir í vændi og auglýstir þar,“ segir Snorri. 110 auglýstar í höfuðborginni Ólöglegt er að borga fyrir kynlíf í Reykjavík en hægt er að finna það neðanjarðar segir á einni vefsíð- unni. Fátt virðist þó vera neðan- jarðar við vændið þegar síðurnar eru skoðaðar, tilfinningin er að það sé áberandi og aðgengilegt. Á þeirri síðu eru 69 vændiskonur skráðar á Íslandi; 63 í Reykjavík, 5 í Hafnar- firði og 1 í Reykjanesbæ. „Þetta er ekki endilega staðan. Þó þær séu svona margar skráðar inn þá eru kannski bara tíu staddar á Íslandi í dag. En um leið og þær koma aftur til landsins virkja þær auglýsinguna og þá fer hún efst upp,“ segir Snorri. Enn ein síðan er með 110 auglýs- ingar skráðar í Reykjavík og 9 í Hafnarfirði. Þegar síðurnar eru bornar saman sést að þetta eru mikið sömu konurnar og sumar þeirra með nokkrar auglýsingar á hverri síðu. Afar fáir karlmenn eru á síðunum. Frumkvæðissala á hótelum Þó vændissala fari að langmestu leyti fram í gegnum netið fer frum- kvæðissala líka fram og þá aðallega á hótelum. „Þær skrá sig á hótel og fara svo á barinn til að tala við gest- ina t.d. ef það eru ráðstefnur í gangi. Við höfum verið að leitast eftir að komast inn í ferðaþjón- ustuna með fræðslu því það þarf að fá hótelin til að tilkynna og bera kennsl á vændi, því oft áttar fólk sig ekki á því hvað er í gangi.“ Í frétt um vændi í blaðinu í gær var skrifað að húsnæði sem er leigt út til ferðamanna í gegnum netið væri stundum notað undir vændi til skamms tíma í einu, var þar átt við við húsnæði sem er leigt út í gegn- um margvíslegar vefsíður, ekki ein- göngu Airbnb eins og nefnt var í greininni. Umfangsmikil vændissala á netinu  Fjórar til fimm alþjóðlegar vefsíður í gangi sem auglýsa vændi til sölu á Íslandi  Um hundrað auglýsingar tengdar höfuðborgarsvæðinu á einni síðu  Vændi virðist vera áberandi og aðgengilegt AFP Vændi Það hefur mikið til farið af götunni og yfir á netið. Kaup á vændi eru refsiverð á Ís- landi en enginn hefur verið handtekinn nýlega vegna vændiskaupa, að sögn Snorra, enda hefur engin sérstök rann- sókn verið í gangi undanfarið á vændi. „Þegar við rannsökuðum vændi síðast fylgdumst við með vefsíðunum og staðsettum vændiskonur í gegnum þær, í framhaldinu höfðum við uppi á kaupendum. Síðasta rannsókn var á Suðurnesjum 2013, þar sem við höfðum grun um að konan væri þolandi mansals. Það voru 70 einstaklingar kærð- ir í því máli. Þessar rannsóknir eru alltaf teknar í ákveðnum skorpum en það hefur vantað fjármagn til að sinna þeim. Von- andi verður breyting á því núna með nýju skipulagi hjá rann- sóknarlögreglunni.“ Enginn hand- tekinn nýlega LÖGREGLAN Hafðu samband ef þú vilt fá sent söluyfirlit eða nánari upplýsingar – síminn okkar er 515 4500 og netfangið nyhofn@nyhofnfasteignir.is Nýhöfn fasteignasala ı Borgartúni 25 ı 105 Reykjavík ı Sími 515 4500 ı www.nýhöfn.is Fallegt einbýli á besta stað Vesturgata 41 I 101 Reykjavík Vesturgata 41 er fallegt einbýlishús í hjarta borgarinnar. Húsið hefur verið mikið endurnýjað en í því eru tvær íbúðir með samtals 7 svefnherbergjum og 5 stofum. Einnig eru rúmlega 60 fermetra svalir ofan á viðbyggingu. Þetta er einstakt tækifæri til að eignast þessa fallegu fasteign á eignalóð í miðbæ Reykjavíkur. Sérinnkeyrsla er meðfram húsinu og einkabílastæði á lóðinni aftan við húsið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.