Morgunblaðið - 14.04.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Bardagakappinn Gunnar Nelson er
annar tveggja eigenda fasteignar á
Kleifarvegi 6 sem stóðu fyrir því að
stór ösp var felld í óþökk nágranna
sem búa á Laugarásvegi 3. Fram
kom í Morgunblaðinu í gær að Rich-
ard Kristinsson, annar eigenda húss
að Laugarásvegi 3 í Reykjavík,
hefði kært nágrannana, sem eru
þeir Gunnar Nelson og Kristófer
Ólafsson, til lögreglu. Gunnar á efri
hæð hússins á Kleifarvegi og er lóð
hússins samliggjandi umræddri lóð
við Laugarásveg 3. Gunnar vildi
ekki tjá sig um málið við Morgun-
blaðið þegar eftir því var leitað.
Haraldur Dean Nelson, faðir hans,
hefur eftir Gunnari að rætur um-
rædds trés hafi „stútað hjá þeim
skolplögnum.“ „Þeir töluðu við
þessa menn (eigendur hússins við
Laugarásveg). Einn þeirra var eitt-
hvað efins og ætlaði að hafa sam-
band ef þeir mættu ekki gera
þetta,“ segir Haraldur og bætir við
að það hafi aldrei verið gert.
Kristófer og Gunnar fengu síðan
fagmenn til þess að fella tréð.
Umrædd samskipti þeirra við
íbúa að Laugarásvegi fóru fram síð-
astliðið haust, síðan snjóaði og því
var beðið til vors með að fella tréð.
„Síðast þegar ég vissi þá var allt í
standi og maðurinn sem þú vitnar í
(Richard), þá fannst honum þetta
bara í lagi,“ segir Kristófer. Hann
segir að eftir samræður hafi skiln-
ingur Gunnars og Kristófers verið
sá að þeir hefðu heimild til að fella
tréð. „Þetta tré var fellt en við héld-
um að það væri ekki í óþökk neins,“
segir Kristófer. „Við felldum tvö
önnur tré í garðinum okkar. Við
buðum honum að fella hans tré líka.
Hann spurði hvað það myndi kosta
hann og við sögðu honum að við
myndum bara gera það fyrir hann.
Þá sagði hann: Það er flott, mér er
alveg sama,“ segir Kristófer.
Hann segir að líkur séu á að um
misskilning hafi verið að ræða. „Við
erum ekki að fara að fella tré í
óþökk nágranna viljandi,“ segir
Kristófer.
Enginn misskilningur
Sigurður Ólafsson, sem einnig er
eigandi íbúðar í húsinu á Laugar-
ásvegi 3 segir að hann hafi ekki haft
hugmynd um að Gunnar væri einn
þeirra sem hann væri að kæra. „Ég
var bara að kæra þá sem stóðu að
þessu,“ segir Sigurður. Að sögn
hans er tómt mál að tala um mis-
skilning. „Hann (Kristófer) ræddi
við okkur og við (Richard) sögðum
báðir að það þyrfti að athuga hvort
það mætti gera þetta,“ segir Sig-
urður.
Gunnar Nelson
kærður til lögreglu
Felldu tré í óþökk nágranna sinna
Morgunblaðið/Golli
Bolur Richard Kristinsson við stubb
trés sem nágrannar hans felldu.
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Stjórnarformenn Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna, Stapa lífeyrissjóðs
og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis-
ins, þau Guðrún Hafsteinsdóttir,
Þórarinn Sverrisson og Gunnar
Björnsson, taka undir orð Þorsteins
Víglundssonar, stjórnarformanns
lífeyrissjóðsins Gildis, í Morgun-
blaðinu í gær, að þegar gjaldeyr-
ishöftum hafi verið aflétt blasi við
að lífeyrissjóðirnir vilji fara með
hluta fjár síns til fjárfestinga er-
lendis.
„Mér þykir auðvitað líklegt að við
hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna
munum hreyfa okkur út fyrir lands-
steinana, þegar höftum hefur verið
aflétt. Það er vitanlega til þess að
dreifa okkar áhættu og ég tel það
skynsamlegt. Ég hef gagnrýnt það
að lífeyrissjóðunum hafi ekki verið
hleypt út. Á síðasta ári fengu þeir
að fjárfesta fyrir tíu milljarða króna
erlendis, sem var vitanlega bara
dropi í hafið,“ sagði Guðrún í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Ákveðið heilbrigðisvottorð
Guðrún segir það vera nauðsyn-
legt fyrir sjóðina að komast í fjár-
festingar erlendis og það sé bara
ákveðið heilbrigðisvottorð fyrir
eignasöfn sjóðanna að vera ekki
með alla sína fjármuni hér á landi,
lokaða innan girðingar.
Þórarinn Sverrisson, stjórnarfor-
maður Stapa lífeyrissjóðs, tekur
undir orð Guðrúnar. „Það þarf ekki
að brýna okkur til fjárfestinga er-
lendis, þegar höftin eru farin. Það
verður að dreifa eggjunum og gjald-
eyrisáhættan er svo mikil, að til
þess að ná ávöxtun til langs tíma
þurfum við að komast í fjárfestingar
úti um allan heim,“ sagði Þórarinn.
Sem minnst áhrif á gengið
Hann segir að fullur skilningur sé
á þessari þörf hjá lífeyrissjóðunum.
„Auðvitað reynum við að vera
ábyrgir í þeim fjárfestingum sem
við ákveðum, hvort sem er hér á
landi eða úti í heimi og tökum ekki
hverju sem er.
Persónulega tel ég að við eigum
ekki að vera með meiri fjármuni
inni í íslenska hagkerfinu, en það
sem nemur útgreiðslum á lífeyri.
Hitt eigi helst að vera annars stað-
ar, því hver einasti fjármálagern-
ingur hjá lífeyrissjóði hefur svo
mikil áhrif á gengi krónunnar, hvort
sem við erum að flytja fjármuni inn
eða út. Þannig væri best að stilla líf-
eyriskerfinu að við værum að hafa
sem minnst áhrif á gengi íslensku
krónunnar með fjármálagerning-
um,“ sagði Þórarinn.
Þarf hæfilega dreifingu
Gunnar Björnsson, formaður
stjórnar Lífeyrssjóðs starfsmanna
ríkisins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að sama gilti um Líf-
eyrissjóð starfsmanna ríkisins og
aðra lífeyrissjóði, að hann myndi
huga að fjárfestingum erlendis, eftir
afnám hafta. „Þetta er spurning um
að vera ekki með öll eggin í sömu
körfunni.Það þarf að vera hæfileg
dreifing á eignasafninu. Við fjárfest-
um töluvert erlendis fyrir hrun og
vorum með ákveðna stefnumörkun í
því, að byggja það upp hægt og ró-
lega,“ sagði Gunnar.
Hann segir að B-deild sjóðsins,
sem sé gamli sjóðurinn, hafi verið
komin með þokkalegan hlut af eign-
um sínum í erlendum gjaldmiðlum
fyrir hrun, en A-deild sjóðsins, líf-
eyrissjóðurinn, sé það miklu yngri
en B-deildin, að öðru máli hafi
gegnt um hana með eignauppbygg-
ingu fyrir utan landsteinana og því
ekki verið kominn jafn langt. „Það
hefur t.d. komið fram í ávöxtuninni
sl. þrjú ár, að hún hefur verið mun
betri á erlendu fjárfestingunni en
þeirri íslensku. Nú snýst hins vegar
dæmið alveg við og ávöxtunin er
mun betri á innlendu fjárfesting-
unni, þannig að eldri sjóðurinn kem-
ur lakar út heldur en sá yngri.“
Vilja fjárfesta erlendis
Formenn stjórna lífeyrissjóða segja nauðsynlegt eftir losun hafta að geta á ný
dreift eignum sjóðanna í öðrum löndum Nauðsynlegt sé að dreifa áhættunni
AFP
„Það stendur ekki til að selja banka
fyrir kosningar eins og háttvirtur
þingmaður virðist telja. Það er ein-
faldlega rangt.“ Þetta sagði Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra m.a.
í svari sínu á Alþingi við fyrirspurn
Helga Hrafns Gunnarssonar, pírata,
í óundirbúnum fyrirspurnum þann 7.
apríl sl.
Helgi Hrafn spurði fjármála-
ráðherra m.a.: „Mig langar að spyrja
hæstvirtan ráðherra hversu mikils
hann meti trúverðugleika Íslands og
ríkisstjórnarinnar við hluti eins og
sölu banka og afnám fjármagnshafta
og öll þau verkefni sem hæstvirt rík-
isstjórn telur svo mikilvægt að hún
sjálf standi að fyrir kosningar.“
Fyrsti flutningsmaður
Þingflokkur Samfylkingarinnar,
með Árna Pál Árnason, formann
flokksins, sem fyrsta flutningsmann,
lagði fram frumvarp á Alþingi í gær,
sem gerir ráð fyrir að sala á bönkum
í eigu ríkisins verði bönnuð tíma-
bundið, eða fram til 1. nóvember nk.
Formaður Samfylkingarinnar
segir núverandi stjórnarmeirihluta
ekki treystandi til að selja ríkis-
eignir. Nausynlegt sé að tryggja
með lögum að ríkisstjórnin geti ekki
selt eignarhlut ríkisins í fjármála-
stofnunum. Líkt og fram kemur hér
að ofan stendur það ekki til.
agnes@mbl.is
Stendur
ekki til að
selja banka
Samfylkingin
leggur til að banna
bankasölu
Þriðjudagur, 19. apríl, 2016
11.00 - 13.00
Grand Hótel Reykjavík
Allir velkomnir
Dagskrá
Ávarp formanns
Vilborg Einarsdóttir, formaður stjórnar Íslandsstofu
Ávarp ráðherra
Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra
Skýrsla stjórnar
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu
Stefnur og straumar
Anne Lise Kjær, framtíðarfrömuður
Gestafyrirlesari á fundinum er framtíðarfrömuðurinn Anne Lise Kjær.
Hún mun fjalla um strauma og stefnur (trends) sem áhrif munu hafa
á líf okkar og störf næstu ár og jafnvel áratugi. Hún er meðal virtustu
fræðimanna heims á þessu sviði og hefur verið mörgum af stærstu
fyrirtækjum heims til ráðgjafar. Hún er höfundur bókarinnar The Trend
Management Toolkit, sem vakið hefur mikla athygli.
Skráning á
islandsstofa@islandsstofa.is
eða í síma 511 4000