Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
„Þegar svona mikið framboð er af
tónleikum á svæðinu er ekki sjálf-
gefið að ná svona aðsókn,“ segir
Einar Ólafur Speight, tónleika-
haldari hjá Dægurflugunni, sem
stendur að tónleikum í Eldborgar-
sal Hörpu á sunnudag með Álfta-
gerðisbræðrum. Nær uppselt er á
tvenna tónleika, kl. 16 og 20, en
aukatónleikum var skellt á
skömmu eftir að miðar á kvöld-
tónleikana kláruðust.
Sérstakir gestir með hinum sí-
vinsælu söngbræðrum úr Skaga-
firði eru Diddú og Raggi Bjarna.
Kynnir á tónleikunum verður Örn
Árnason, og segir Einar aldrei að
vita nema að hann eigi eftir að
bresta í söng eins og oft áður.
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar
leikur undir, ásamt Stefáni R.
Gíslasyni, söngstjóra og undirleik-
ara þeirra Álftagerðisbræðra allt
frá því að þeir sungu fyrst saman
opinberlega fyrir nærri 30 árum.
Að sögn Einars hefur verið
ákveðið að efna til tónleika á
Norðurlandi í lok maí. Fyrst munu
bræðurnir koma fram í Miðgarði
laugardagskvöldið 28. maí, ásamt
hljómsveit og Erni Árnasyni, og
daginn eftir verða tónleikar í Hofi
á Akureyri. Þar verður dagskráin
í Eldborg endurtekin ásamt öllum
þeim listamönnum sem þar koma
fram á sunnudaginn. Einar segir
miðasölu vegna tónleikanna fyrir
norðan fara af stað í næstu viku.
„Þeir bræður ná til mjög stórs
hóps og eru, eins og þeir hafa
sjálfir bent á, eina starfandi
strákabandið í landinu,“ segir
Einar Ólafur, léttur í bragði.
bjb@mbl.is
Ljósmynd/Dægurflugan
Söngbræður Sigfús, Óskar, Pétur og Gísli Péturssynir koma fram á tvenn-
um tónleikum í Eldborg í Hörpu á sunnudag. Nær uppselt er á tónleikana.
„Strákabandið“ að
fylla tvenna tónleika
Álftagerðisbræður njóta vinsælda
Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Diddú
Ragnar
Bjarnason
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Blaðburðurinn er starf margra
kosta,“ segir Gunnlaug Dröfn Páls-
dóttir í Mosfellsbæ. Það var í nóv-
ember 2013 sem sonur hennar, Þyrn-
ir Hálfdan, byrjaði að bera út
Morgunblaðið og var móðirin honum
þá til halds og trausts. Mál þróuðust
hins vegar mjög fljótlega á þann veg
að Gunnlaug tók við blaðburðinum og
börnin hennar þrjú hafa aðstoðað
móður sína, þegar svo ber undir.
Hjá Árvakri gildir að á höfuðborg-
arsvæðinu á Morgunblaðið að hafa
borist áskrifendum fyrir klukkan sjö
á morgana. Blaðberarnir þurfa því að
vera árrisulir og velvakandi.
Gönguferð með hundinn
„Ég legg gjarnan af stað upp úr
klukkan fimm á morgnana og þeta er
virkilega hressandi. Maður fær
hreyfingu og súrefni í lungun,
skrifstofukonan heldur sér í formi og
svo skilar þetta svolitlum aur. Þetta
er ágæt aukabúgrein. Já, og fyrir
hundaeigendur er þetta fínt, þarna
tek ég mína daglegu gönguferð með
hundinn svo hér er margt í sama
pakkanum,“ segir Gunnlaug, sem í
föstu starfi annast blaðburð við
Tröllateig og Skálatún.
„Við fjölskyldan höfum reyndar
gripið í útburð í fleiri hverfum hér í
Mosfellsbæ. Held að við séum búin að
bera út í öllum hverfunum nema
Helgafellslandi, sem enn er í upp-
byggingu. Einhverju sinni þegar
Mogginn var í aldreifingu vorum við
með 1.200 blöð. Það var algjört met.“
Gerum vel við okkar fólk
Vorið er besti tími blaðberans,
segir Gunnlaug og bætir við að stund-
um setji hálfgerðan hroll að sér þegar
hún arki út í myrka vetrarnóttina,
þegar snjór sé yfir öllu og fljúgandi
hálka.
„En núna þegar komið er fram í
apríl er þetta fínt. Það er yndislegt að
ganga í kyrrðinni og sjá sólina koma
upp svo að umhverfið verður allt í
póstkortalitlum,“ segir blaðberinn.
Að sögn Arnar Þórissonar, dreif-
ingarstjóra Árvakurs, er alltaf þörf á
röskum blaðberum í sveit fyrirtæk-
isins.
„Oft erum við með laus hverfi, bæði
til lengri tíma og í afleysingum í
nokkra daga eða lengur eftir atvik-
um. Við gerum vel við okkar fólk, sem
meðal annars bjóðast ýmis fríðindi og
afslættir í gegnum blaðberaklúbb.
Blaðberarnir eru á öllum aldri. Gjarn-
an er þetta ungt fólk, en fullorðnum í
liðinu fer fjölgandi; fólki sem finnst
fínt að taka líkamsræktina árla dags
og fá laun fyrir,“ segir Örn Þórisson.
Ber út Morgunblaðið
þegar sólin kemur upp
Árrisul í Mosfellsbæ Skrifstofukona heldur sér í formi
Morgunblaðið/Eggert
Moggafólk Gunnlaug Dröfn Pálsdóttir blaðberi og börnin hennar þrjú,
Þórey Kristín, Þyrnir Hálfdan og Bergljót Sóley, sem öll eru Þyrnisbörn.
Karl Á. Sigurgeirsson
Hvammstanga
Í vikunni var undirritaður í Selasetri
Íslands á Hvammstanga samningur
milli setursins og Hafrannsókna-
stofnunar. Samningurinn er tvíþætt-
ur. Annars vegar eru veittar 30 millj-
ónir króna til rannsókna á
selastofnum við Íslandsstrendur, og
þá sérstaklega stofnstærðarmæl-
ingar.
Sigurður Líndal, framkvæmda-
stjóri Selaseturs Íslands segir vonir
standa til að þetta samkomulag verði
endurnýjað árlega og verði þá til þess
að almennilegt skipulag komist á
þessi mál, öfugt því sem áður hefur
verið, þar sem segja má að varla hafi
verið staðið við skuldbindingar ríkis-
ins gagnvart þeim alþjóðasamningum
sem við Íslendingar erum hluti af.
Hinn hluti samningsins er, að veittar
eru 10 milljónir króna, eingreiðsla, til
tækjakaupa og standsetningar hús-
næðis á Hvammstanga.
Sigurður bauð gesti velkomna og
lýsti ánægju með þennan áfanga.
Sandra Granquist, deildarstjóri líf-
fræðirannsóknasviðs, og dr Jessica
Faustini Aquino, nýráðinn deildar
stjóri ferðamálarannsóknasviðs, set-
ursins, héldu stutt erindi og sögðu frá
sínu starfssviði. Ársæll Daníelsson,
stjórnarformaður Selasetursins og
Ólafur S. Ástþórsson, settur forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, undirrituðu
samninginn. Vottar voru Sandra
Granquist og Sólmundur Már Jóns-
son, fjármálastjóri Hafró. Þess má
geta, að 35% aukning var á gesta-
fjölda í Selasetrinu á milli áranna
2014 og 2015. Gestir árið 2015 voru
27.150. Mikil fjölgun gesta er nú á líð-
andi vetri og er fjölgun milli mars-
mánaða 2015 og 2016 um fjórföld.
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Handsal Sandra Granquist, Ársæll Daníelsson, Ólafur S. Ástþórsson og
Sólmundur Már Jónsson leiddu mál til lykta við athöfn í Selasterinu.
Áfangi í uppbygg-
ingu Selasetursins