Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 22

Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Leikskólanum Hlíðabóli, sem rek- inn er af Hvítasunnusöfnuðinum á Akureyri, verður lokað sumarið 2017. Það varð ljóst eftir að Akur- eyrarbær ákvað að segja upp samn- ingi um rekstrarstyrk.    Foreldrar barna á leikskólanum eru óhressir með ákvörðun bæjarins og freista þess, með söfnun undir- skrifta, að forráðamenn bæjarins skipti um skoðun.    Snorri Óskarsson safnaðarhirðir telur ólíklegt að bæjaryfirvöld end- urskoði hug sinn. „Bærinn ræður því ekki hvort leikskólinn verður opinn eða ekki, en þegar þjónustusamningi er sagt upp er þó sjálfhætt. Við get- um ekki látið foreldra greiða óniður- greidd leikskólagjöld,“ segir hann við Morgunblaðið.    Hlíðaból er eini kristni leikskól- inn á Akureyri. „Sumir foreldrar sögðust hafa valið leikskólann ein- mitt út af því,“ segir Snorri. „Börnin fara með borðbæn, við segjum þeim kristnar sögur og kennum bænir, sem við teljum gott veganesti.“    Meginástæða þess að bærinn ákvað að segja upp þjónustusamn- ingi vegna Hlíðabóls frá og með 7. júlí 2017 er sú að börnum á leik- skólaaldri er að fækka á Akureyri, segir Logi Már Einarsson, bæjar- fulltrúi og formaður skólanefndar, við Morgunblaðið.    „Leikskólinn Hlíðaból er einka- rekinn og hefur fengið rekstrarstyrk frá bænum, en húsnæðið er ekki í eigu bæjarfélagsins. Öllum börnum í Hlíðabóli verður boðið pláss í öðrum leikskólum bæjarins þegar hann lok- ar. Þess má geta að leikskólinn Sunnuból lokar við sumarfrí í sumar af sömu ástæðu, þ.e. vegna barna- fækkunar, en það húsnæði er heldur ekki í eigu bæjarfélagsins,“ segir Logi við Morgunblaðið.    Logi segir rétt að nefna að heimilt hafi verið að segja upp rekstrar- samningi við Hlíðarból með sex mán- aða fyrirvara. „Það fannst okkur of stuttur tími og við viljum með þessu gefa foreldrum og rekstraraðilum Hlíðabóls rúmlega 15 mánuði til að laga sig að breyttum aðstæðum.“    Sú breyting hefur verið gerð á kjöri íþróttamanns ársins á Akur- eyri að héðan í frá verða þeir tveir; íþróttakarl og íþróttakona ársins. Þetta var samþykkt á ársþingi Íþróttabandalags Akureyrar sem fram fór í vikunni.    Í umræðu um breytingar í þessa veru hafa stundum verið notuð þau rök að betra sé að hafa kjör tvískipt til að konum sé gert jafnhátt undir höfði og körlum. Á Akureyri væri það hins vegar frekar til að koma körlum að! Síðustu 14 ár hefur nefni- lega kona 11 sinnum orðið efst í kjör- inu, þar af níu ár í röð frá 2006 til 2014. Akureyrskir íþróttakarlar verða því ekki lengur í skugga kvennanna.    Ný stjórn var kjörin á þingi ÍBA. Geir Kristinn Aðalsteinsson, fv. for- seti bæjarstjórnar, verður áfram formaður en með honum í stjórn eru Ármann Ketilsson, Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Inga Stella Péturs- dóttir, Sonja Sif Jóhannsdóttir, Hörður Sigurharðarson og Erlingur Kristjánsson.    Hljómsveitirnar Ensími og 200.000 Naglbítar ætla leiða saman hesta sína og halda tónleika á Græna hattinum annað kvöld. Þar verða leikin öll þekktustu lög beggja sveita.    Eins og venjulega þegar vorar í lofti fara Helgi og hljóðfæraleik- ararnir á stjá. Hljómsveitin fremur sinn árlega vorgjörning á Græna hattinum á laugardagskvöldið. Þar munu tónlistarmennirnir „telja í öll sín bestu lög frá frábærum og hund- löngum ferli,“ segir í tilkynningu.    Hagyrðingakvöld eru afar vin- sæl og jafnan vel sótt norður í landi eins og víðar. Slík skemmtun verður á Græna hattinum síðasta vetrar- dag, miðvikudaginn 20. apríl kl. 21 þar sem verða hagyrðingarnir Frið- rik Steingrímsson, Björn Ingólfsson, Stefán Vilhjálmsson, Pétur Péturs- son, Hjálmar Freysteinsson og Ósk Þorkelsdóttir. Stjórnandi verður Birgir Sveinbjörnsson. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Vor Sólin lék við Akureyringa í gær og verslunarmenn í miðbænum notuðu tækifærið og pússuðu gluggana. Eina kristna leik- skólanum lokað www.n1.is facebook.com/enneinn Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Opið mán–fös kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is Michelin CrossClimate Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Dekk sem hentamargbreytilegum íslenskum aðstæðum sérlega vel og veita frábæra aksturseiginleika. Michelin Energy Saver Margverðlaunuð fyrir veggrip, endingu og eldsneytissparnað. Michelin Primacy 3 Einstakir aksturseiginleikar. Frábært grip og góð vatnslosun. Ein bestu sumardekkin ámarkaðnum í dag. Hluti af vorinu Rúllaðu inn í sumarið á nýjum dekkjum Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.