Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Leikskólanum Hlíðabóli, sem rek-
inn er af Hvítasunnusöfnuðinum á
Akureyri, verður lokað sumarið
2017. Það varð ljóst eftir að Akur-
eyrarbær ákvað að segja upp samn-
ingi um rekstrarstyrk.
Foreldrar barna á leikskólanum
eru óhressir með ákvörðun bæjarins
og freista þess, með söfnun undir-
skrifta, að forráðamenn bæjarins
skipti um skoðun.
Snorri Óskarsson safnaðarhirðir
telur ólíklegt að bæjaryfirvöld end-
urskoði hug sinn. „Bærinn ræður því
ekki hvort leikskólinn verður opinn
eða ekki, en þegar þjónustusamningi
er sagt upp er þó sjálfhætt. Við get-
um ekki látið foreldra greiða óniður-
greidd leikskólagjöld,“ segir hann
við Morgunblaðið.
Hlíðaból er eini kristni leikskól-
inn á Akureyri. „Sumir foreldrar
sögðust hafa valið leikskólann ein-
mitt út af því,“ segir Snorri. „Börnin
fara með borðbæn, við segjum þeim
kristnar sögur og kennum bænir,
sem við teljum gott veganesti.“
Meginástæða þess að bærinn
ákvað að segja upp þjónustusamn-
ingi vegna Hlíðabóls frá og með 7.
júlí 2017 er sú að börnum á leik-
skólaaldri er að fækka á Akureyri,
segir Logi Már Einarsson, bæjar-
fulltrúi og formaður skólanefndar,
við Morgunblaðið.
„Leikskólinn Hlíðaból er einka-
rekinn og hefur fengið rekstrarstyrk
frá bænum, en húsnæðið er ekki í
eigu bæjarfélagsins. Öllum börnum í
Hlíðabóli verður boðið pláss í öðrum
leikskólum bæjarins þegar hann lok-
ar. Þess má geta að leikskólinn
Sunnuból lokar við sumarfrí í sumar
af sömu ástæðu, þ.e. vegna barna-
fækkunar, en það húsnæði er heldur
ekki í eigu bæjarfélagsins,“ segir
Logi við Morgunblaðið.
Logi segir rétt að nefna að heimilt
hafi verið að segja upp rekstrar-
samningi við Hlíðarból með sex mán-
aða fyrirvara. „Það fannst okkur of
stuttur tími og við viljum með þessu
gefa foreldrum og rekstraraðilum
Hlíðabóls rúmlega 15 mánuði til að
laga sig að breyttum aðstæðum.“
Sú breyting hefur verið gerð á
kjöri íþróttamanns ársins á Akur-
eyri að héðan í frá verða þeir tveir;
íþróttakarl og íþróttakona ársins.
Þetta var samþykkt á ársþingi
Íþróttabandalags Akureyrar sem
fram fór í vikunni.
Í umræðu um breytingar í þessa
veru hafa stundum verið notuð þau
rök að betra sé að hafa kjör tvískipt
til að konum sé gert jafnhátt undir
höfði og körlum. Á Akureyri væri
það hins vegar frekar til að koma
körlum að! Síðustu 14 ár hefur nefni-
lega kona 11 sinnum orðið efst í kjör-
inu, þar af níu ár í röð frá 2006 til
2014. Akureyrskir íþróttakarlar
verða því ekki lengur í skugga
kvennanna.
Ný stjórn var kjörin á þingi ÍBA.
Geir Kristinn Aðalsteinsson, fv. for-
seti bæjarstjórnar, verður áfram
formaður en með honum í stjórn eru
Ármann Ketilsson, Hrafnhildur
Guðjónsdóttir, Inga Stella Péturs-
dóttir, Sonja Sif Jóhannsdóttir,
Hörður Sigurharðarson og Erlingur
Kristjánsson.
Hljómsveitirnar Ensími og
200.000 Naglbítar ætla leiða saman
hesta sína og halda tónleika á Græna
hattinum annað kvöld. Þar verða
leikin öll þekktustu lög beggja
sveita.
Eins og venjulega þegar vorar í
lofti fara Helgi og hljóðfæraleik-
ararnir á stjá. Hljómsveitin fremur
sinn árlega vorgjörning á Græna
hattinum á laugardagskvöldið. Þar
munu tónlistarmennirnir „telja í öll
sín bestu lög frá frábærum og hund-
löngum ferli,“ segir í tilkynningu.
Hagyrðingakvöld eru afar vin-
sæl og jafnan vel sótt norður í landi
eins og víðar. Slík skemmtun verður
á Græna hattinum síðasta vetrar-
dag, miðvikudaginn 20. apríl kl. 21
þar sem verða hagyrðingarnir Frið-
rik Steingrímsson, Björn Ingólfsson,
Stefán Vilhjálmsson, Pétur Péturs-
son, Hjálmar Freysteinsson og Ósk
Þorkelsdóttir. Stjórnandi verður
Birgir Sveinbjörnsson.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vor Sólin lék við Akureyringa í gær og verslunarmenn í miðbænum notuðu tækifærið og pússuðu gluggana.
Eina kristna leik-
skólanum lokað
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Opið
mán–fös kl. 08-18
laugardaga kl. 09-13
www.n1.is
Michelin CrossClimate
Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir.
Dekk sem hentamargbreytilegum
íslenskum aðstæðum sérlega vel
og veita frábæra aksturseiginleika.
Michelin Energy Saver
Margverðlaunuð fyrir veggrip,
endingu og eldsneytissparnað.
Michelin Primacy 3
Einstakir aksturseiginleikar.
Frábært grip og góð vatnslosun.
Ein bestu sumardekkin
ámarkaðnum í dag.
Hluti af vorinu
Rúllaðu inn í sumarið
á nýjum dekkjum
Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is