Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Það er ekki nýtt fyrirbrigði hér á landi að góðhjartaðir auðkýfingar stofni eða kaupi fréttablöð í því skyni að bæta og auðga samfélagið. Auðvitað er ekki hægt að fullyrða að svo göfugar hugsjónir ráði alltaf ferðinni; þeir eru til sem þykjast merkja aðrar hvatir hjá einstaka blaðaútgefanda. En slíkar deilur mega ekki verða til þess að dæmi góðra manna gleymist. Fyrir rúmum hundrað árum var Pétur Thorsteinsson útgerðarmaður einhver ríkasti maður á Íslandi. Það var hann sem stofnaði Milljónar- félagið fræga með Thor Jensen. Sonur hans var listamaðurinn Muggur, sem margir kannast við. Pétur átti um langt árabil heilt þorp, Bíldudal, þar sem bjuggu rétt um 300 manns. Öll atvinnufyrirtækin á staðnum, útgerð, fiskverkun, versl- un, voru í hans höndum. Hann var ekki minni maður á þessum tíma en þeir stóru í kauphöllinni okkar núna. Leiklist og lesefni Pétur gerði sér grein fyrir því að menn lifa ekki á brauði einu saman. Því beitti hann sér fyrir margvís- legri upplífgandi iðju í þorpinu. Meðal annars voru leikrit sett á svið af miklum metnaði. Og Pétur skildi að guðsorð, þótt gott og næringar- ríkt sé, er einhæft lesefni. Hann hafði frétt af því að efnilegt og vin- sælt skáld, Þorsteinn Erlingsson, héldi úti vikulegu fréttablaði á Seyð- isfirði, sem um þær mundir var eitt stærsta og kröftugasta bæjarfélag á Íslandi. Þetta blað hét Bjarki, og gekk ekki nógu vel af því að fyrir var á staðnum annað blað, Austri, sem bæjarbúar voru spenntari fyrir. Pétur gerði ritstjóranum tilboð: Komdu til okkar og gefðu út blað fyrir fólkið í plássinu mínu. Þorsteinn þekktist boðið og blaðið Arnfirðingur, sem út kom á tveggja til þriggja vikna fresti, varð til. Skipti sér ekki af efninu Pétur var ekkert að spá í það að Þorsteinn var á þessum tíma orðinn þekktur sem jafnaðarmaður og guð- leysingi. Hann vildi bara fá fínan penna til að létta lund þorpsbúa og fræða fólkið. Hann tók að sér að kosta Arnfirðing að öllu leyti og virðist hafa látið sér í léttu rúmi liggja að blaðið var frá upphafi gefið út með bullandi tapi. Pétur var ríkur og þurfti ekki að spá mikið í svoleiðis hluti. Sagan segir að Pétur hafi aldr- ei skipt sér af neinu sem í Arnfirð- ingi stóð. Hann var ekki að biðja um neinar hugvekjur um sjálfan sig og sinn atvinnurekstur. Um þetta má fræðast í bók Ásgeirs Jakobssonar um Pétur, Bíldudalskóngurinn sem út kom 1990. Þorsteinn Erlingsson sagði í ávarpi til lesenda í 1. tölublaði sem út kom í nóvember 1901: „Arnfirð- ingur flytur tíðindi inn- og útlend, svo vel, að enginn lesandi hans skal verða spurður í þaula þó hann lesi Arnfirðing einan.“ Djarflega mælt. Og víst var mikill metnaður í útgáfunni. Upplagið var rúmlega 1.400 eintök, sem verður að teljast mjög stórt miðað við fámenni íslensks þjóðfélags á þessum tíma. Öflugustu Reykjavíkurblöðin voru ekki gefin út í miklu stærra upplagi. Arnfirðingur var greinilega ekki bara ætlaður hinum 300 sálum á Bíldudal. Blaðið var keypt víða um land. Náði sér ekki á strik Nú er hægt að lesa Arnfirðing í heild á netinu eins og fleiri gömul blöð og tímarit. Það er ýmislegt for- vitnilegt í blaðinu. En satt að segja veldur það svona í heildina tekið vonbrigðum. Það er eins og skáldið og þjóðfélagsrýnandinn hafi aldrei náð sér á strik þarna fyrir vestan, ekki notið sín, og gat hann þó ekki kvartað yfir afskiptasemi eða íhlut- un eigandans að því er best er vitað. Þorsteinn fékk að fara sínu fram. Eftir vetursetu á Bíldu- dal samdi Þorsteinn um að kaupa Arnfirðing af Pétri útgerðarmanni og flytjast með blaðið til Reykjavíkur. En það dæmi gekk ekki betur og eftir hálft ár var blaðið hætt að koma út. Eftir stendur að upp á Pétur Thorsteinsson, rík- asta mann á Ís- landi, var ekk- ert að klaga. Ekki á brauði einu saman  Fyrir rúmri öld fékk ríkasti maður Íslands róttækt skáld til að halda úti fréttablaði í plássinu sínu  Pétur Thorsteinsson lét Þorstein Erlingsson hafa frjálsar hendur um efnið  Borgaði úr eigin vasa Ljósmyndir/Þjóðminjasafn Íslands Sjávarþorp Bíldudalur við Arnarfjörð var um aldamótin 1900 lítill fiskibær þar sem um þrjú hundruð manns bjuggu. Útgerðarmaðurinn Pétur J. Thorsteinsson átti plássið og var eini vinnuveitandinn á staðnum. Hann stóð fyrir ýmissi menningarstarfsemi og lét m.a. gefa út fréttablað. Auðug Pétur J. Thorsteinsson og kona hans Ásthildur Guðmundsdóttir, systir Theódóru Thoroddsen skáldkonu. Þau hjónin voru ríkust á Íslandi.. Ef marka má ævisögu Matt- híasar Þórðarsonar frá Móum (d. 1959) er aðdragandinn að komu Þorsteins Erlingssonar til Bíldudals flóknari en rakið er í greininni. Skáldið hafði flækst inn í brask norsks manns á Seyðisfirði, tekið sæti í stjórn útgerðar hans og þegið fyrir háar fjárhæðir sem hann notaði í margra mánaða lystiferð til Miðjarðarhafslanda og til að styrkja útgáfu Bjarka. Útgerðin varð fljótt gjald- þrota, en Þorsteinn var skráður fyrir einum af fiskibátunum, kúttaranum Fönixborg. Hann lét sigla honum til Bíldudals og seldi Pétri Thorsteinssyni. Skáld- ið virðist því ekki hafa komið vestur með tvær hendur tóm- ar. Kom ekki tómhentur RÓTTÆKT SKÁLD Í BRASKI Þorsteinn Erlingsson. Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður eftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga í dag, fimmtudaginn 14. apríl, klukkan 13.30 í félags- heimilinu Miðgarði í Hvalfjarðar- sveit. Í starfsleyfum tiltekinna stærri fyrirtækja er kveðið á um að boða skuli til opins kynningarfundar um umhverfisvöktun og losun af völdum starfseminnar. Fram að þessu hafa fyrirtækin sjálf boðað slíka fundi. Þess í stað boðar nú Umhverfis- stofnun opna kynningarfundi sem eru haldnir árlega um niðurstöður eftirlits og umhverfisvöktunar, segir í frétt frá stofnuninni. Flutt verða fimm erindi og að þeim loknum verða umræður. Kynning á vöktun  Opinn fundur Sími 555 2992 og 698 7999 FISKIOLÍA OG BLÁBER í einum pakka Það gerist varla betra fyrir: OMEGA 3 Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Hjartað og æðar Gegn skaðlegum sindurefnum í frumum líkamans sem tengist hrörnun, skýi á auga og krabbameini Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið 11-18, lau 11-16. LISTHÚSINU Stærðir: 60x80 cm, 70x120 cm, 70x180 cm og 80x200 cm. Flottar vinyl gólf- mottur Fjölbreytt úrval
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.