Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Það er ekki nýtt fyrirbrigði hér á
landi að góðhjartaðir auðkýfingar
stofni eða kaupi fréttablöð í því
skyni að bæta og auðga samfélagið.
Auðvitað er ekki hægt að fullyrða að
svo göfugar hugsjónir ráði alltaf
ferðinni; þeir eru til sem þykjast
merkja aðrar hvatir hjá einstaka
blaðaútgefanda. En slíkar deilur
mega ekki verða til þess að dæmi
góðra manna gleymist.
Fyrir rúmum hundrað árum var
Pétur Thorsteinsson útgerðarmaður
einhver ríkasti maður á Íslandi. Það
var hann sem stofnaði Milljónar-
félagið fræga með Thor Jensen.
Sonur hans var listamaðurinn
Muggur, sem margir kannast við.
Pétur átti um langt árabil heilt þorp,
Bíldudal, þar sem bjuggu rétt um
300 manns. Öll atvinnufyrirtækin á
staðnum, útgerð, fiskverkun, versl-
un, voru í hans höndum. Hann var
ekki minni maður á þessum tíma en
þeir stóru í kauphöllinni okkar núna.
Leiklist og lesefni
Pétur gerði sér grein fyrir því að
menn lifa ekki á brauði einu saman.
Því beitti hann sér fyrir margvís-
legri upplífgandi iðju í þorpinu.
Meðal annars voru leikrit sett á svið
af miklum metnaði. Og Pétur skildi
að guðsorð, þótt gott og næringar-
ríkt sé, er einhæft lesefni. Hann
hafði frétt af því að efnilegt og vin-
sælt skáld, Þorsteinn Erlingsson,
héldi úti vikulegu fréttablaði á Seyð-
isfirði, sem um þær mundir var eitt
stærsta og kröftugasta bæjarfélag á
Íslandi. Þetta blað hét Bjarki, og
gekk ekki nógu vel af því að fyrir var
á staðnum annað blað, Austri, sem
bæjarbúar voru spenntari fyrir.
Pétur gerði ritstjóranum tilboð:
Komdu til okkar og gefðu út blað
fyrir fólkið í plássinu mínu.
Þorsteinn þekktist boðið og blaðið
Arnfirðingur, sem út kom á tveggja
til þriggja vikna fresti, varð til.
Skipti sér ekki af efninu
Pétur var ekkert að spá í það að
Þorsteinn var á þessum tíma orðinn
þekktur sem jafnaðarmaður og guð-
leysingi. Hann vildi bara fá fínan
penna til að létta lund þorpsbúa og
fræða fólkið. Hann tók að sér að
kosta Arnfirðing að öllu leyti og
virðist hafa látið sér í léttu rúmi
liggja að blaðið var frá upphafi gefið
út með bullandi tapi. Pétur var ríkur
og þurfti ekki að spá mikið í svoleiðis
hluti. Sagan segir að Pétur hafi aldr-
ei skipt sér af neinu sem í Arnfirð-
ingi stóð. Hann var ekki að biðja um
neinar hugvekjur um sjálfan sig og
sinn atvinnurekstur. Um þetta má
fræðast í bók Ásgeirs Jakobssonar
um Pétur, Bíldudalskóngurinn sem
út kom 1990.
Þorsteinn Erlingsson sagði í
ávarpi til lesenda í 1. tölublaði sem
út kom í nóvember 1901: „Arnfirð-
ingur flytur tíðindi inn- og útlend,
svo vel, að enginn lesandi hans skal
verða spurður í þaula þó hann lesi
Arnfirðing einan.“
Djarflega mælt. Og víst var mikill
metnaður í útgáfunni. Upplagið var
rúmlega 1.400 eintök, sem verður að
teljast mjög stórt miðað við fámenni
íslensks þjóðfélags á þessum tíma.
Öflugustu Reykjavíkurblöðin voru
ekki gefin út í miklu stærra upplagi.
Arnfirðingur var greinilega ekki
bara ætlaður hinum 300 sálum á
Bíldudal. Blaðið var keypt víða um
land.
Náði sér ekki á strik
Nú er hægt að lesa Arnfirðing í
heild á netinu eins og fleiri gömul
blöð og tímarit. Það er ýmislegt for-
vitnilegt í blaðinu. En satt að segja
veldur það svona í heildina tekið
vonbrigðum. Það er eins og skáldið
og þjóðfélagsrýnandinn hafi aldrei
náð sér á strik þarna fyrir vestan,
ekki notið sín, og gat hann þó ekki
kvartað yfir afskiptasemi eða íhlut-
un eigandans að því er best er vitað.
Þorsteinn fékk að fara sínu
fram.
Eftir vetursetu á Bíldu-
dal samdi Þorsteinn um
að kaupa Arnfirðing af
Pétri útgerðarmanni og
flytjast með blaðið til
Reykjavíkur. En það
dæmi gekk ekki betur og
eftir hálft ár var blaðið
hætt að koma út. Eftir
stendur að upp á Pétur
Thorsteinsson, rík-
asta mann á Ís-
landi, var ekk-
ert að klaga.
Ekki á brauði einu saman
Fyrir rúmri öld fékk ríkasti maður Íslands róttækt skáld til að halda úti fréttablaði í plássinu sínu
Pétur Thorsteinsson lét Þorstein Erlingsson hafa frjálsar hendur um efnið Borgaði úr eigin vasa
Ljósmyndir/Þjóðminjasafn Íslands
Sjávarþorp Bíldudalur við Arnarfjörð var um aldamótin 1900 lítill fiskibær þar sem um þrjú hundruð manns bjuggu. Útgerðarmaðurinn Pétur J.
Thorsteinsson átti plássið og var eini vinnuveitandinn á staðnum. Hann stóð fyrir ýmissi menningarstarfsemi og lét m.a. gefa út fréttablað.
Auðug Pétur J. Thorsteinsson og kona hans Ásthildur Guðmundsdóttir,
systir Theódóru Thoroddsen skáldkonu. Þau hjónin voru ríkust á Íslandi..
Ef marka má ævisögu Matt-
híasar Þórðarsonar frá Móum
(d. 1959) er aðdragandinn að
komu Þorsteins Erlingssonar til
Bíldudals flóknari en rakið er í
greininni. Skáldið hafði flækst
inn í brask norsks manns á
Seyðisfirði, tekið sæti í stjórn
útgerðar hans og þegið fyrir
háar fjárhæðir sem hann notaði
í margra mánaða lystiferð til
Miðjarðarhafslanda og til
að styrkja útgáfu Bjarka.
Útgerðin varð fljótt gjald-
þrota, en Þorsteinn var
skráður fyrir einum af
fiskibátunum, kúttaranum
Fönixborg. Hann lét sigla
honum til Bíldudals og seldi
Pétri Thorsteinssyni. Skáld-
ið virðist því ekki hafa
komið vestur
með tvær
hendur tóm-
ar.
Kom ekki
tómhentur
RÓTTÆKT SKÁLD Í BRASKI
Þorsteinn Erlingsson.
Umhverfisstofnun boðar til opins
kynningarfundar um niðurstöður
eftirlits og umhverfisvöktunar á
Grundartanga í dag, fimmtudaginn
14. apríl, klukkan 13.30 í félags-
heimilinu Miðgarði í Hvalfjarðar-
sveit.
Í starfsleyfum tiltekinna stærri
fyrirtækja er kveðið á um að boða
skuli til opins kynningarfundar um
umhverfisvöktun og losun af völdum
starfseminnar. Fram að þessu hafa
fyrirtækin sjálf boðað slíka fundi.
Þess í stað boðar nú Umhverfis-
stofnun opna kynningarfundi sem
eru haldnir árlega um niðurstöður
eftirlits og umhverfisvöktunar, segir
í frétt frá stofnuninni.
Flutt verða fimm erindi og að
þeim loknum verða umræður.
Kynning
á vöktun
Opinn fundur
Sími 555 2992 og 698 7999
FISKIOLÍA OG BLÁBER
í einum pakka
Það gerist varla betra fyrir:
OMEGA 3
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Hjartað og æðar
Gegn skaðlegum sindurefnum
í frumum líkamans sem
tengist hrörnun, skýi á auga
og krabbameini
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið 11-18, lau 11-16.
LISTHÚSINU
Stærðir:
60x80 cm, 70x120 cm,
70x180 cm og 80x200 cm.
Flottar vinyl
gólf-
mottur
Fjölbreytt úrval