Morgunblaðið - 14.04.2016, Page 42

Morgunblaðið - 14.04.2016, Page 42
42 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 VIÐTAL Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta er merkilegasta viðfangsefni samtímans og í raun má segja að við höfum aldrei staðið frammi fyrir jafn forvitnilegu og stórbrotnu vanda- máli. Þó sinna því ósköp fáir og al- menningur allur þegir þunnu hljóði,“ segir Guðni Elísson, prófessor í bók- menntum við Háskóla Íslands, en hann hélt nýlega erindi á vorfundi Landsnets og yfirskrift þess var: Náttúruvernd á tímum loftslags- breytinga. Benti Guðni í sínu erindi m.a. á að orkuþörfin í heiminum væri stöðugt að aukast og í raun tvöfald- aðist hún á um 40 ára fresti. Þó að nýir orkugjafar tækju við væri áfram verið að nota þá gömlu, líkt og kol og olíu. Endurnýjanlegir orku- gjafar gætu einir og sér ekki staðið undir orkuþörf jarðarbúa og átaks allra væri þörf í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. „Glæpsamleg afvegaleiðing“ Guðni er sem fyrr segir prófessor í bókmenntum við Háskóla Íslands. Hann er fyrst spurður hvernig áhug- inn á loftslagsmálum kom til? „Það sem vakti fyrst áhuga minn á loftslagsmálunum var þekkingar- fræðilegi vandinn sem tengist við- fangsefninu, það hvernig hinn vís- indalegi skilningur skilaði sér ekki inn í almenna umræðu. Annars veg- ar erum við með flókið og ögrandi vandamál sem reynir á vitsmunina og þarf mikið hugvit til þess að greina og skilja, hins vegar með samfélag sem neitar að bregðast við upplýsingum um loftslagsvandann, lokar augunum fyrir veigamiklum gögnum sem varða framtíð okkar og farsæld. Það er margt sem veldur þessu misræmi,“ segir Guðni og vís- ar þar m.a. til „markvissrar og glæp- samlegrar afvegaleiðingar“ stóru jarðefnaeldsneytisfyrirtækjanna. Þar séu stundarhagsmunir fárra teknir fram yfir langtímahagsmuni mannkyns og jarðarinnar allrar. „En svo má líka finna skýringar í hugmyndafræðilegum og sál- fræðilegum orsakavöldum. Hug- myndafræði er að verki í markvissu andófi nýfrjálshyggjumanna gegn niðurstöðum vísindasamfélagsins, en þessi hópur óttaðist að ríkið efld- ist um of ef losun yrði markvisst tak- mörkuð með alþjóðasáttmálum. Sál- fræðilegu skýringarnar eru marg- brotnar og flóknar en tengjast meðal annars því hvernig við bregðumst við ógn sem tengist stundarhags- munum okkar.“ Þegar Guðni er spurður hvers vegna prófessor í bókmenntum sé að fást við þetta viðfangsefni segir hann að ekki séu til sérfræðingar í lofts- lagsmálum í þeim skilningi sem við almennt leggjum í sérfræðings- hugtakið. „Þetta er hnattrænt vandamál sem hefur áhrif á hitafar, lífríki, búsetu og fleira. Það má rann- saka lofthjúpinn, jöklana, úthöfin, vistkerfið og færa sig þaðan inn í samfélag manna og skoða áhrif lofts- lagsbreytinga á lýðræðisþróun, landbúnað, flóttamannavanda, þró- un borgarsamfélags, svo fáein dæmi séu tekin.“ - Ertu búinn að halda svona fyrir- lestra oft? „Ég held fyrirlestra með jöfnu millibili um ýmis atriði tengd lofts- lagsmálunum, oftast tengt ráð- stefnum í háskólasamfélaginu, en líka á fundum eins og þessum hjá Landsneti,“ segir Guðni en hann hef- ur verið að byggja upp alþjóðlegan loftslagsvef sem kallast Earth101, vefslóðin er earth101.is. Pólitískt þrætuepli Hann vísaði til þess á léttu nótun- um í fyrirlestrinum á fundi Lands- nets að hann væri líklega eini síð- hærði karlmaðurinn í salnum og óttaðist því að menn tækju orðum sínum sem einhverju „hippahjali“. Spurður út í þessi ummæli áréttar Guðni að eitt helsta vandamál lofts- lagsumræðunnar liggi í pólitískum flokkadráttum sem orsakist m.a. af því að á áttunda áratug síðustu aldar hafi umhverfisvitund í vinstri pólitík aukist á meðan leiðandi öfl lengst til hægri hafi óttast að allar aðgerðir myndu draga úr frjálsri verslun og viðskiptum. „Þetta gerir það að verkum að eitt stærsta vandamál samtímans verður að pólitísku þrætuepli þar sem raun- veruleiki loftslagsbreytinga verður deiluefnið í stað þess að allir samein- ist um að skilja vandann og rífist frekar um lausnirnar. Hér réð sögu- leg tilviljun meira en nokkuð annað, held ég, því að umhverfisvitund er hvorki bundin vinstri né hægri sjón- armiðum. En vegna þess að vinstri öflin hafa haldið þessu málefni á lofti skiptir máli þegar ýmis helstu vígi kapítalismans eru farin að gera lofts- lagsmálin að sínu viðfangsefni, stofnanir eins og t.d. Alþjóðabank- inn, og þessi fyrirtæki og stofnanir draga upp ansi myrka mynd af vand- anum sem við stöndum frammi fyr- ir.“ - Þú fórst í erindinu yfir þær ógnir sem að mannkyninu steðja þegar kemur að áhrifum hlýnunar jarðar, eins og súrnun hafsins, útrýmingu dýrategunda og tap á skóglendi og væntanlega ræktarlandi líka. Eru þetta ekki allt atriði sem við stönd- um frammi fyrir nú þegar í dag? „Jú, vandinn sem við stöndum frammi fyrir er risavaxinn og hann mun bara vaxa eftir því sem við drögum það lengur að bregðast við honum. Að sama skapi verða aðgerð- irnar sem við þurfum að fara í rót- tækari eftir því sem tíminn líður. Það er óneitanlega kaldhæðið að ref- skák frjálshyggjumannanna hefur leitt til þess að nú er líklega útilokað að bregðast við loftslagsvandanum án stórfelldra ríkisafskipta. Það er líka mikilsvert að hafa í huga að við leysum ekki loftslagsvandann leng- ur. Hann er kominn til að vera, spurningin er bara hversu stór- felldur hann verður.“ Jöklar hopa og hafið súrnar - Hver geta helstu áhrifin verið af þessu á Ísland? „Það er erfitt að segja til um slíkt. Það fer eftir aðgerðum okkar nú og á næstu árum. Það fer líka eftir tíma- rammanum. Svo er erfitt að sjá fyrir staðbundin áhrif þótt auðvelt sé að gera sér grein fyrir því að áhrifin verði risavaxin ef það til dæmis hlýn- ar um 4 gráður. Staða sjávarmáls við Ísland verður þannig önnur árið 2100 en 2500, og ef það hlýnar nógu mikið fer svo að lokum að framtíðar- kynslóðirnar munu verða að láta sér nægja að skoða íslensku jöklana í bókinni hans Helga Björnssonar. Og með jöklunum færi ansi stór hluti af sjálfsmynd okkar. Erlendur fyrirles- ari sagði einu sinni að það væri erfitt að hugsa sér landið okkar án ísþekj- unnar, jöklanna. Ísland án ísbreið- unnar væri bara Land. Og ekki vilj- um við vera Lendingar.“ Guðni segir áhrifin einnig verða mikil á dýra- og jurtalíf. Vistkerfið í úthafinu muni breytast með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum, s.s. hruni fiskistofna, en súrnun hafsins við Ís- landsstrendur er meiri en víða ann- ars staðar. Yrði ótrúlegt afrek að halda hlýnun undir tveimur gráðum - Þurfa náttúruverndarsinnar og samtök þeirra eitthvað að breyta stefnu sinni til að meiri árangur ná- ist? Getur verið að við séum búin að missa af lestinni, að það sé orðið of seint að draga úr hlýnun? „Það er ekki of seint að draga úr hlýnuninni, en spurningin snýr fremur að því hversu mikil hlýnunin verður. Niðurstaðan af Parísar- samkomulaginu var jákvæð og hvetjandi, en einnig skiptir máli að almenningur skilji hvað þarf að gera til að tryggja að hitafarsaukningin haldist undir 2 gráðum, svo ég ræði ekki um 1,5 gráðu mörkin. Báðar leiðir kalla á tæknilegar úrlausnir sem enn eru ansi fjarlægar og allt eins óraunhæfar. Það sem ég hef svolítið saknað í allri umræðunni undanfarna daga, hér heima sem og í erlendum fjölmiðlum, er skýr sam- antekt á því hversu ótrúlegt afrek það væri að halda hitafarsaukning- unni undir 2 gráðum og hversu ólík- legt er að það takist. Ef við horfumst ekki í augu við stærð vandamálsins vinnum við ekki á því. Ég hef stundum á tilfinning- unni að skilningur á þessum þætti vandans liggi frekar hægra megin en vinstra megin, að róttæku hægri öfl- in skilji betur hversu miklar breyt- ingar verða líklega á lífsháttum okk- ar allra og samfélögunum ef af verður. Þeir viti hversu mikið þurfi að gera til að „ballansera“ bókhaldið. En þessir einstaklingar leggja svo ekki fram neinar raunhæfar lausnir, heldur einblína á hagvöxt af trúar- legri ákefð. Hagvaxtarátrúnað ný- frjálshyggjunnar mætti allt eins skilgreina sem afbrigði af vöru- tengdum átrúnaði frumstæðra þjóð- flokka á Kyrrahafseyjunum – sem kargókölt – nema hvað þeir halda að hin hulda hönd markaðarins leiði þjóðirnar áfram í átt að varanlegri velsæld. Þessi hugmynd er hinn stóri átrúnaður samtímans, sem enginn stjórnmálamaður, hvar sem hann stendur í pólitík, treystir sér að ganga gegn. Hagvaxtarkrafan er óhagganleg, en hún er líka stærsta blekking samtíðarinnar.“ Hér duga engin vettlingatök Guðni bætir við að umhverfis- verndarhreyfingar um heim allan verði að sama skapi að horfast í augu við þá staðreynd að hér dugi engin vettlingatök. Það sé t.d. hrein firra að íslenskir umhverfisverndarsinnar skuli sífellt tefla túrisma fram sem mótvægi við stóriðju. „Sá einstaklingur sem ferðast þúsundir kílómetra til þess eins að horfa á landslag breytir landslaginu varanlega með því einu að horfa, ein- faldlega vegna þess að hann er einn af 1.100 milljón öðrum túristum á heimsvísu sem allir leggja sitt af mörkum í að þoka okkur nær 2 gráðu markinu.“ - Þú nefndir í erindi þínu hve gamlir orkugjafar eins og olía og kol eru enn stór hluti af heildarmynd- inni og að endurnýjanlegir orkugjaf- ar væru enn of litlir til að geta staðið undir orkuþörf heimsins. Hvernig á að vinda ofan af þessu, og hvað getur Ísland lagt þar af mörkum? „Það verður gríðarlega flókið að snúa frá ríkjandi orkukerfum,“ svar- ar Guðni og vitnar strax til umræðu á vefnum Andríki. „Frjálshyggjumennirnir á And- ríki benda réttilega á þetta vanda- mál í pistli frá því í desember á síð- asta ári og vísa í líkan frá BP um heildarorkunotkun jarðarbúa, sem ég nota gjarnan sjálfur í fyrir- lestrum mínum,“ segir Guðni en á Andríki var spurt: „Hvaða orkugjaf- ar eiga að leysa olíu, kol og gas af hólmi? […] jarðefnaeldsneytið [er] enn um 85% af orkunotkun mann- kyns. Það hlutfall hefur lítið breyst á undanförnum aldarfjórðungi.“ Þetta er að mati Guðna stóra spurningin og út frá þessum for- sendum verði umræðan að hans mati að þróast. „Ég er þó ekki viss um að lausn- irnar verði Andríkismönnum að skapi. Annars vegar verður að eiga sér stað bylting í þróun nýrra og vistvænni orkugjafa, hins vegar verður að fara fram róttækur niður- skurður í orkunotkun á heimsvísu. Breski loftslagsvísindamaðurinn Ke- vin Anderson segir stundum: „Það er ekki hægt að búa til tæki nógu hratt til þess að vinda ofan af vanda- málinu.“ Ég hef ekki séð nein gögn sem mæla gegn þessari fullyrðingu og því eru einhvers konar aðhalds- aðgerðir nauðsynlegar eigi sett mörk að nást.“ Getum verið fyrirmynd Guðni segir Íslendinga vera á und- an nær öllum þjóðum í uppbyggingu græns orkukerfis. En þeir verði að ganga lengra og senda út skýr skila- boð til umheimsins. „Þótt við séum smá getum við með góðu fordæmi verið táknræn fyrir- mynd. Það myndi kalla á breytingar á íslensku samfélagi, en í þeim breytingum fælust tækifæri. Stund- um hefur verið sagt að það séu tæki- færi fyrir Íslendinga í loftslags- breytingum. Meira að segja forsetinn hefur daðrað við slíkar hugmyndir. Þetta er einfaldlega rangt. Stóra tækifærið fyrir Íslend- inga liggur í því að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar með því að leggja áherslu á vistvænni orkugjafa og tala skítugu jarðefnaeldsneytis- orkuna niður,“ segir Guðni að end- ingu. Glíma við risavaxinn vanda  Guðni Elísson, prófessor við Háskóla Íslands, hefur miklar áhyggjur af áhrifum loftslagsbreytinga  Flókið og ögrandi vandamál  Flokkadrættir helsti vandi umræðunnnar  Róttækra aðgerða þörf Morgunblaðið/Árni Sæberg Loftslagsmál Guðni Elísson, prófessor í bókmenntum, hefur mikinn áhuga á loftslags- og orkumálum og áhrifum hlýnunar jarðar á mannkynið. Orkunotkun á heimsvísu - eftir orkugjöfum M illjónirtonna Heimild: BP, British Petroleum 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 19 89 19 90 19 91 19 92 19 93 19 94 19 95 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 20 14 Kol Endurnýjanleg orka Raforka Kjarnorka Gas Olía Hlökkum til að heyra frá ykkur! Nolta Okkar megin áherslur eru: ◆ Liðsheildarþjálfun ◆ Leiðtogahæfni ◆ Stefnumótun og umbótastarf Sigurjón Þórðarson Sími: 893 1808 • sigurjon.thordarson@nolta.is Friðfinnur Hermannsson Sími: 860 1045 • fridfinnur.hermannsson@nolta.is Ráðgjöf og þjálfun nolta.is Vinnustofur sem styrkja og hreyfa við fólki Frekari upplýsingar á nolta.is Nolta er á Facebook Viltu styrkja liðið þitt? Team - Navigation er kröftug og skilvirk tveggja daga vinnustofa þar sem liðið nær sameiginlegri tengingu og kemur helstu verkefnum sínum í bullandi farveg. Leiðtoginn á réttum kúrs Self - Navigation er skemmtileg tveggja daga vinnustofa þar sem leiðtoginn stillir af hvert hann stefnir og kemur skipulagi á sín helstu verkefni. Árni Sverrisson Sími: 898 5891 • arni.sverrisson@nolta.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.