Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 45

Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 45
FRÉTTIR 45Kappakstur MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 þriðja sæti er Red Bull með 30 stig, Williams í fjórða með 20 og Haas í því fimmta með 18 stig. Tveir málsmetandi fyrrverandi ökumenn telja Ferrari ekki í stakk búið til að leggja Mercedes að velli í ár. „Nei,“ segir austurríski öku- maðurinn Gerhard Berger af mikl- um þunga við vikuritið Auto Bild. „Forskotið sem Mercedes naut í fyrra var einfaldlega það mikið að Ferrari getur ekki brúað það svo fljótt,“ segir Berger, sem á sínum tíma vann 10 mót í Formúlu 1. Þetta tekur svo Skotinn David Coulthard undir þótt hann segi Ferrari greinilega nær Mercedes nú en í fyrra. „Ég býst við að Mercedes vinni titlana aftur í ár,“ segir þessi fyrr- verandi ökumaður Williams, Mc- Laren og Red Bull og núverandi sjónvarpsmaður. „Drottnun verður erfið og ég held að Ferrari muni knýja ökumenn Mercedes upp á tærnar. Ég sé fyrir mér að keppnin um titil ökumanna verði milli öku- þóra Mercedes,“ segir Coulthard. Telur hann Nico Rosberg loks munu eiga góða möguleika á að leggja Lewis Hamilton að velli. „Tölfræðin sýnir að sérhver ökumaður sem vinnur fimm mót í röð stendur uppi sem heimsmeistari. Það yrði miður ef Nico afsannaði það.“ Tímataka með gamla laginu Fyrirvaralitlar breytingar voru gerðar á fyrirkomulagi tímatök- unnar í fyrsta móti ársins, í Mel- bourne. Og þrátt fyrir að allt færi í loft upp af óánægju, bæði af hálfu liðanna, ökumanna, unnenda íþrótt- arinnar og fjölmiðla, var sami háttur hafður á í Barein. Var þar brúkað flókið útsláttarfyrirkomulag í þeim tilgangi að fjörga tímatökuna og auka á óvissu í keppninni um ráspól móta. Snerist það upp í andstæðu sína og algjöra lágkúru. Létu ráða- menn loks undan og verður aftur horfið til sama fyrirkomulags og gilt hefur mörg undanfarin ár. Sá bögg- ull fylgdi þó skammrifi að aðilar málsins verða að setjast niður og móta nýtt fyrirkomulag á tímatök- unni fyrir næsta ár. Claire Williams, liðsstjóri liðsins sem kennt er við föður hennar, segir að tímatöku- hneykslið ætti að kenna forsvars- mönnum liðanna og íþróttarinnar að stunda ekki tilraunastarfsemi í keppni. „Við þurfum að vanda okkur betur og forðast hneykslan áhorf- enda og unnenda íþróttarinnar.“ Hún segir það hafa verið létti þegar FIA féllst á að afleggja útsláttar- fyrirkomulagið nýja. Valdabarátta um tæknireglur Nú þegar deilan um tímatökurnar mun sjatna kraumar annars konar valdabarátta að tjaldabaki í formúl- unni. Þar eiga í hlut nýjar tækni- reglur sem eiga að koma til fram- kvæmda 2017. Alþjóða aksturs- íþróttasambandið (FIA) hefur þegar lagt fram tillögur um breytingar á yfirbyggingu keppnisbíla sem m.a. ættu að stórauka hraða bílanna, svo nemur fimm sekúndum á hring mið- að við núverandi bíla. Verða bílarnir breiðari og dekkin sömuleiðis. Tillögur FIA hafa fengið heldur daufar viðtökur hjá ökumönnum, sem óttast að aukin vængpressa dragi úr möguleikum til fram- úraksturs. Heimsmeistarinn frá 1997, Jacques Villeneuve, kann ekki að meta stöðugar breytingar á tæknilegum forsendum bílanna. Hann segir að liðin og FIA eigi að hætta að fikta eilíft í bílaformúlunni. „Þeir ættu að hætta þessum reglubreytingum og það strax. Í öll- um eðalíþróttum, eins og tennis og fótbolta, hafa reglurnar ekkert breyst í hundrað ár, ekki einu sinni þegar þær hafa verið leiðinlegar. Og fólk virðir það,“ segir Villeneuve hinn orðhvati. Liðin hafa frest til 30. apríl til að komast að samkomulagi um 2017-reglurnar. Það er fleira sem Formúla 1 fæst við en keppnisreglur; þar er einnig tekist á um peninga og þykir mörgu liðinu það bera skarðan hlut frá borði. Því er á stundum fleygt fram að peningar séu afl þeirra hluta sem gera skal. Má með sanni segja að það eigi vel við í Formúlu 1. Í aug- um liðanna eru þeir eru eins og óskasteinninn í þjóðsögunum, sem gat galdrað fram alla þá hluti sem hugurinn girntist. Bíll Mercedes Nico Rosberg á fullri ferð á Sakhir brautinni í Barein þar sem hann sigraði. Bíll Ferrari Finnski ökuþórinn Kimi Räikkönen á brautinni í Melbourne í mars.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.