Morgunblaðið - 14.04.2016, Side 46

Morgunblaðið - 14.04.2016, Side 46
46 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 fyrir hana, þótt hún sé fús til að taka lagið heima í stofu og engin feimni hafi verið við blaðamann sem fékk að fylgjast með þegar þær mægður tóku lagið. Jaenerene Berglind notaði hvert tækifæri til að koma dóttur sinni á framfæri í reglulegum veislum Fil- ippseyinga á Íslandi, sem ganga undir nafninu „Phil-Ice“, að sögn Ruthar. Hún segir mömmu sina hafa bent á að hún gæti sungið og nú segist hún alltaf vera að syngja í þessum veislum. „Fólk var rosa- lega hissa þegar það heyrði í mér fyrst og var svo alltaf að biðja mig um að syngja. Ég var rosalega feimin þá, af því að ég var ekki vön að syngja fyrir framan fullt af fólki.“ Það var svo í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, þar sem Ruth hefur stundað nám síðan hún byrjaði í ís- lenskum skóla níu ára gömul, að tækifæri skapaðist til þess að æfa sviðsframkomuna enn betur. Skól- inn hefur um árabil haldið Myllu- vision, söngkeppni nemenda þar sem allir sem vilja fá að taka þátt. „Ég er búin að vinna allar keppn- irnar undanfarið og nú er ég hætt að keppa. Nú ætla ég að gefa öðrum tækifæri,“ segir Ruth, enda komin á toppinn í íslenskum söngkeppnum. Í fyrra vann hún einnig söng- keppni Samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, Samfés, svo hún hefur bæði fengið mikið lof fyrir hæfileika sína og tækifæri til að efla framkomu sína á sviði. Ekki nógu fallegur texti í nútíma popptónlist Ruth hefur stóra rödd, það hefur hún sannað fyrir þjóðinni, og hún hefur mjög breiðan tónlistaráhuga. Stúlkur á hennar aldri eru alla jafna ekki að hlusta á tónlist 9. og 10. áratugar 20. aldar en það er ákveðin ástæða fyrir því að Ruth kaus að syngja lög Tinu Turner og Bonnie Tyler í keppninni. „Ég vildi einmitt syngja þessi lög af því að það eru engir að hlusta á þessi lög í dag og langaði til þess að fólk færi að hlusta á þau aftur. Í dag er svo mikið blótað í lögum og mér finnst ekki flott að syngja þannig lög. Ég er að syngja eitt- hvert geggjað flott lag sem sumir krakkar á Íslandi hafa aldrei heyrt.“ Jóhanna segir ánægjulegt að heyra að útvarpsstöðvarnar séu aft- ur farnar að spila lagið „Holding Out for a Hero“ með Bonnie Tyler, sem kom henni áfram í úrslit Ísland Got Talent. Dóttir blaðamanns á ní- unda ári var ekki síður ánægð að heyra lagið í útvarpi og sagði: „Þetta er Jóhanna Ruth,“ enda óþekkt í flutningi annars hjá ungu fólki, eins og Ruth bendir sjálf á. „Svo var mamma alltaf að hlusta á þessi lög og syngja í karókí og ég er enn að læra lög af henni, sem mér finnst flott.“ Hún segir þó mömmu sína ekki syngja eins mikið og áður, en í karókígræjum heimilisins er enn af finna tónlist fyrri áratuga sem Ruth hefur notað til að þjálfa sig í söng. Langar að semja sín eigin lög Jóhanna Ruth á stóran draum þegar kemur að framtíðinni og söngnum. Hún segist hafa fylgst með söngkonunni Charice Pemp- engco frá Filippseyjum verða þekkt í Ameríku, vegna þess að hún lét draum sinn rætast. Söng hún m.a. með Celine Dion og David Foster. Ruth hefur séð að það er ekki ómögulegt að láta drauma sína ræt- ast þó að hún geri sér líka grein fyrir því að hún þurfi að vinna fyrir því. „Ég hugsaði, vá hvað hún syng- ur vel, mig langar að vera eins og hún og þegar mamma heyrði mig syngja hvatti hún mig áfram.“ Líkt og hjá Charice er Celine Dion ein af uppáhaldssöngkonum Ruthar sem og Whitney Huston heitin og lög þeirra hefur Ruth gaman af að syngja. Hún á sér þann drauma að geta unnið með rödd sína, sem henni finnst enn vera of djúp. „Mig langar að geta sungið hærra og ég veit að það kemur þeg- ar ég verði eldri og læri að syngja eins og ég vil, ekki óperusöng eins og ég er að læra núna í Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar,“ segir Ruth, sem stefnir líka á gítar- og píanó- nám. Auk þess að fylgja úr hlaði sigrinum í Ísland Got Talent langar hana að byrja að semja sín eigin lög á gítar. Þar hefur tónlistarmaðurinn Johnny King, sem er fjölskyldu- vinur, boðist til að leggja Ruth lið svo það er aldrei að vita nema laga- höfundurinn Ruth Luna Jose stígi fram áður en langt um líður. Langar að semja eigin lög  Hin 14 ára Jóhanna Ruth kom, sá og sigraði í þættinum Ísland Got Talent  Nýtti vel tækifæri sem gafst í söngkeppni Myllubakkaskóla  Móðir hennar alltaf syngjandi  Jóhanna á sér stóra drauma Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Áhrifavaldur Jóhanna Ruth, til vinstri, ásamt móður sinni, Jaenerene Berglindi, sem er aðaláhrifavaldurinn í lífi hennar. Mjög samrýndar mæðgur. Í hópi skólasystkina Jóhanna Ruth í miðjum hópi skólasystkina fyrsta skóladaginn eftir sigurinn í Ísland Got Talent. Vel var tekið á móti henni af nemendum, kennurum og starfsmönnum Myllubakkaskóla er hún söng á sal. VIÐTAL Svanhildur Eiríksdóttir svanhildur.eiriksdottir @reykjanesbaer.is Jóhanna Ruth, 14 ára gömul stúlka í Reykjanesbæ, ól ekki þann draum í brjósti að verða söngkona. Hún er hins vegar alin upp við mikinn söng og eftir að hafa fengið frábær tæki- færi til að æfa sviðsframkomuna í Mylluvision, söngkeppni Myllu- bakkaskóla, var leiðin á toppinn greið. Hún segist enn ekki hafa náð áttum eftir sigurinn í sjónvarps- þættinum Ísland Got Talent. Jaenerene Berglind Luna Gavi- ola, móðir Jóhönnu Ruthar Luna Jose, eða Ruthar eins og hún heitir á móðurmáli sínu og kýs að nota, er stór áhrifavaldur í lífi hennar. Þegar Ruth var að alast upp á Fil- ippseyjum var mamma hennar allt- af syngjandi. Hvenær sem tækifæri gafst frá amstri dagsins var sest fyrir framan sjónvarpið með karókí- græjurnar og sungið, en karókí- söngur er ríkur í menningu Filipps- eyinga. Mylluvision frábært tækifæri Fyrst um sinn veitti Ruth þessu ekki mikla athygli og hún átti sér ekki draum að verða söngkona. Hún tók reyndar stöku sinnum lag- ið í söngkerfi hverfisbúðarinnar en fór svo að syngja með mömmu sinni heima í stofu, af því að henni fannst mamma sín „svo góð að syngja,“ eins og Ruth kemst sjálf að orði. Mamma hennar veitti því fljót- lega athygli að dóttirin hafði mikla sönghæfileika og lagði áherslu á að gera hana öruggari í framkomu. „Það sást alltaf þegar ég labbaði á sviðinu að ég var mjög stressuð, ég labbaði með fæturna í kross. Mamma fór að benda mér á þetta og hjálpa mér að verða öruggari. Sjálf er hún mjög feimin,“ segir Jó- hanna Ruth í samtali við blaða- mann. Jaenerene Berglind stað- festir að sviðsframkoma sé ekki ÍBV – GRÓTTA 14. apríl kl. 18.30 Vestmannaeyjar HAUKAR – AKUREYRI 14. apríl kl. 19.30 Schenker-höllin VALUR – FRAM 14. apríl kl. 19.30 Valshöllin AFTURELDING – FH 14. apríl kl. 19.30 N1-höllin 8 LIÐA ÚRSLIT KARLA 1. UMFERÐ #olisdeildin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.