Morgunblaðið - 14.04.2016, Page 51

Morgunblaðið - 14.04.2016, Page 51
51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Kafað í sjónum Lögreglan, slökkviliðið og Landhelgisgæslan voru með atvinnukafaranámskeið fyrir starfsmenn sína í gær, nú er það á annari viku og byrjað að æfa kafanir í sjó. Eggert Síðustu dagar hafa verið sögulegir og fordæmalausir í stjórnmálasögu Íslands og heimsbyggðarinnar. Upplýsing- arnar um Panama-skjölin hafa svipt leyndarhjúpnum af huliðs- heimum alþjóðlegs efnahagslífs, skattaskjólum sem vitað hefur verið um lengi, en umfangið blasir nú við almenningi, stærra og hrikalegra en flesta gat grun- að. Það segir sína sögu að fyrir- tækið Mossack Fonseca með að- alstöðvar í Panama er þó ekki nema það fimmta stærsta sinn- ar tegundar í heiminum með að- eins 5-10% af viðskiptum á þessu sviði að mati tímaritins The Economist. Það er síðan kaldhæðnislegt að fyrstu upp- lýsingar úr þessum risaleka skuli hitta fyrir og velta úr sessi forsætisráðherra smáríkisins Íslands, sem skartað hefur síð- an á forsíðum fjölmiðla um víða veröld. Aðrir og stærri laxar hafa fylgt á eftir og uppskeran úr þessu safni á eftir að minna lengi á sig. Baksvið þessa máls er kapítalískt efnahagskerfi sem teygir anga sína um víða veröld og færir óðfluga auð og völd á æ færri hendur, m.a. í krafti fjármagns- flutninga heimshorna milli. Fjölþjóðafyrirtæki eru í aðalhlutverkum á efnahagssviðinu og skattaskjólin sem gróðrarstíur fyrir dulin við- skipti, m.a. peningaþvætti og vopnasölu heims- horna á milli. Alþingiskosningum flýtt um hálft ár Stjórnmálaflokkarnir hérlendis eru rétt að byrja að átta sig á breyttu landslagi. Ríkis- stjórn sömu flokka heldur um stjórnartauma með meirihluta þingmanna sér að baki. Lofað er alþingiskosningum með haustinu, um hálfu ári fyrr en ella hefði orðið. Stjórnarandstaðan á þingi lét sem hún vildi fá kosningar strax, en mér er til efs að þar hafi hugur fylgt máli. At- burðarásin að undanförnu hefur komið öllum flokkum í opna skjöldu og mikið skortir á að þeir séu í stakk búnir að leggja stefnumál sín fyrir kjósendur. Framsóknarflokkurinn á eftir að gera upp sín forystumál og stendur frammi fyrir miklum vanda. Það sama á við um Sam- fylkinguna sem er í uppnámi með sín forystu- mál og stefnu til framtíðar. Píratar horfa skelfdir framan í skoðanakannanir sem benda til að um þriðjungur atkvæða komi í hlut þessa fámenna safnaðar sem frábiður sér völd en vill aðeins hræra í pottinum. Björt framtíð virðist flestum gleymd og minnir það á hversu valt er veraldargengi. Vinstri grænir hafa að undan- förnu gælt við að mynda kosningabandalag nú- verandi stjórnarandstöðuflokka, en um hvaða málefnagrundvöll er algjörlega á huldu. For- ysta Sjálfstæðisflokksins segist hvergi bangin, en á mörgu ósvarað, og í bakgrunni gerir vart við sig klofningsframboð undir nafni Við- reisnar. Þegar þessi staða blasir við hljóta flestir að sjá að flokk- arnir mega hafa sig alla við til að geta lagt spil sín skilmerkilega á borðið fyrir kjósendur á haustdög- um. Skýr svör um stöðu Íslands út á við Þingkosningar í haust fara fram í miklu óvissuástandi á alþjóðavett- vangi. Evrópusambandið er í djúpri lægð og sundurþykkja fer vaxandi milli aðildarríkja. Evran hefur reynst fjötur um fót sem sameiginlegur gjaldmiðill og Schengen-samstarfið riðar til falls. Þeim fjölgar stöðugt hérlendis sem átta sig á hvílíkt háskaskref var stigið með aðildarumsókn Íslands að ESB árið 2009 og að þann leik má ekki endurtaka. Fyrir kosn- ingar þurfa öll framboð að svara skýrt til um afstöðu til aðildar í stað þess að fela sig á bak við vísan til þjóðaratkvæðis, svo sjálfsagt sem það annars væri ef til aðild- arumsóknar kæmi. Það er próf- steinn á stjórnmálaflokka að þeir hafi skýr svör í slíku grundvallarmáli. Aðildarskilmálar ESB liggja ljóst fyrir og ekkert sem máli skiptir er til að semja um annað en skammtímaaðlögun. – EES-samningurinn er meingallaður og tak- markar svigrúm okkar, m.a. til að móta eigin reglur um fjármálagjörninga eins og um af- landsfélög og skattaskjól, en einnig um eign- arhald á sjálfu landinu. Mikil umræða fer fram í Noregi, ekki síst innan norsku verkalýðs- hreyfingarinnar, um ókosti EES og um aðrar leiðir til samskipta við Evrópusambandið. Ís- land er þarna á sama báti og Noregur og eðli- legt að við leitum leiða til endurskoðunar á þessum 20 ára gamla samningi í stað þess að hann sé notaður sem rök fyrir ESB-aðild. Auðlindastefna og náttúruvernd Í innri málefnum okkar er af nógu að taka, sem frambjóðendur til Alþingis þurfa að hafa skýr svör við. Tryggur umráðaréttur og með- ferð náttúruauðlinda lands og hafsvæða innan efnahagslögsögunnar hlýtur að vera kjós- endum ofarlega í huga og tengist endurskoðun stjórnarskrár. Sjávarauðlindin, eignarhald og réttur til nýtingar kallar á ótvíræð svör. Það sama á við um gróðurríki landsins og gróður- vernd þar sem við búum við hálfrar aldar gamla og úrelta löggjöf. Ferðaþjónustan sem atvinnugrein kallar á alhliða stefnumörkun og víðtæka náttúruvernd í byggð og óbyggð til verndar landinu fyrir átroðningi og örtröð. Þessa daga er auglýst uppboð á hluta af Jök- ulsárlóni, einni þekktustu náttúruperlu lands- ins, sem fyrr en varir gæti endað í höndum huldumanna í útlöndum. Ætlar ríkisstjórn, þing og þjóð að láta slíkt gerast fyrir augum okkar á þessum vordögum? Eftir Hjörleif Guttormsson » Þeim fjölgar stöðugt sem átta sig á hvílíkt háskaskref var stigið með aðild- arumsókn Ís- lands að ESB árið 2009. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Kosningaár: Nú reynir á stjórnmálaflokkana Í greinarstúfi í Morgunblaðinu á dögunum gera tveir fv. umhverf- isráðherrar, þeir Júlíus Sólnes og Eiður Guðnason, athugasemdir við orð mín sem birtust í bókinni „Frú ráðherra“ sem út kom á síð- asta ári í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna. Nú hefur sá þriðji, Hjörleifur Guttormsson, fv. iðnaðarráðherra, bæst í hópinn og tekur undir með þeim á sama vettvangi. Í viðtalinu sagði ég eftirfarandi: „Ég taldi líka að umhverfisráðu- neytið væri afar mikilvægt ráðu- neyti fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Andstæðingar okkar hafa lengi haldið því fram að við höfum ekki áhuga á umhverfismálum sem er alrangt. Það var einmitt Sjálf- stæðisflokkurinn, með Geir Hallgrímasson í fararbroddi, sem átti frumkvæði að því að umhverfisráðuneytið yrði stofn- að.“ Ég sé ekki betur en að skrif ráðherranna fyrrverandi staðfesti þessi orð mín og einnig hitt, sem mér þykir vænt um í þessu sam- hengi, að hér sannast enn hið fornkveðna að „Allir vildu Lilju kveðið hafa“. Í fyrsta bindi ritraðarinnar „Stjórnarráð Ís- lands 1964-2004“ kemur eftirfarandi fram á bls. 292-293: „Stofnun umhverfisráðuneytisins átti sér langan aðdraganda. Fyrstu hugmyndir um sér- staka stjórn umhverfismála í Stjórnarráði Ís- lands komu fram í ríkisstjórn Geirs Hallgríms- sonar á árunum 1974-1978. Í mars 1975 skipaði ríkisstjórnin nefnd til þess að endurskoða og samræma ákvæði laga um unhverfis- og meng- unarmál. Í áliti nefndarinnar kom fram að brýnt væri að samræma reglur og yfirstjórn umhverf- ismála um þessi efni hérlendis. Samkvæmt frumvarpi, sem nefndin samdi og Gunnar Thor- oddsen, þáverandi félagsmálaráðherra, lagði fram á Alþingi vorið 1977(8), var lagt til að sér- stök stjórnardeild, umhverfismáladeild, færi með yfirstjórn umhverfismála en deildin skyldi heyra undir eitt ráðuneyta Stjórnarráðsins. Frumvarpið náði ekki fram að ganga og ekki heldur þingmannafrumvörp sem lögð voru fram í svipaðri mynd næstu árin.“ Þó var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í apríl 1978 að félagsmála- ráðuneytið skyldi fara með umhverfismál innan Stjórnarráðs Íslands. Ekkert varð þó úr marg- víslegum fyrirætlunum um breytta yfirstjórn umhverfismála fyrr en árið 1990 og því varð stjórn þessara mála áfram í höndum margra ráðuneyta.“ Í viðtalinu sem karlarnir þrír vitna til vildi ég undirstrika frumkvæði ríkisstjórnar Geirs Hall- grímssonar í þessum efnum og minna á frum- varp Gunnars Thoroddsen um umhverfismál. Það frumvarp fékk eðlilega málsmeðferð á Al- þingi á sínum tíma þó ekki næði það fram að ganga. Frumvarpið var síðar endurflutt af Salome Þorkelsdóttur og fleiri þingmönn- um Sjálfstæðisflokksins á Alþingi 1980-81 og Gunnari G. Schram o.fl. 1983-4 og málinu þannig haldið vakandi. Þegar þáverandi for- sætisráðherra, Steingrímur Her- mannsson, flutti málið um Stjórn- arráð Íslands (Umhverfisráðuneyti), árið 1989 er ítarlega farið yfir framvindu umhverfismála í Stjórnarráðinu í greinargerð með frumvarpi hans og einnig í frumvarpi hans um um- hverfismál fyrr á sama ári sem ekki náði fram að ganga. Óþarft er að taka það fram að með orðum mínum er ég á engan hátt að gera lítið úr hlut annarra þingmanna og ráðherra sem komu að þessu máli á sínum tíma og það- an af síður að smækka brautryðj- endastarf annarra við náttúru- vernd. Margir hafa lagt sitt af mörkum til þessa góða málefnis. Í þessu samhengi get ég svo ekki látið hjá líða að nefna heiðurs- konuna Elínu Pálmadóttur, blaða- mann og borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins, og málflutning hennar í ræðu og riti um mikilvægi umhverfisverndar um langa tíð. Hún sat í Náttúruverndarráði og náttúrverndarnefnd Reykjavíkur um árabil og í bók hennar, „Eins og ég man það“ eru stór- fróðlegar og skemmtilegar lýsingar á aðkomu hennar að þessum málum. Frásögn hennar er býsna skondin á köflum og þar segir meðal ann- ars á bls. 332: „Svo æxlaðist blessunarlega fyrir þennan hrakta málaflokk í stjórnkerfinu að allt í einu vantaði ráherrastól svo að takast mætti að mynda samsteypustjórn. Og eftir erfiðar fæðingarhríðir var með lögum á Alþingi stofnað umhverfisráðuneyti vorið 1990, sem síðan hefur vaxið og sannað sig.“ Ég fagna þessum tilskrifum karlanna þriggja. Þau gefa tilefni til að undirstrika orð mín að andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa leitast við að gera lítið úr þætti hans og frumkvæði í þessu máli, en fyrst og fremst beina þau kast- ljósinu að þessum mikilvæga málaflokki og það er af hinu góða. Íslendingar geta verið stoltir af því að um- hverfismálin eiga nú heima á einum stað í stjórnsýslunni þó vissulega megi taka undir það sjónarmið Hjörleifs Guttormssonar og Elínar Pálmadóttur á sínum tíma, að sú skipan hefði mátt komast á miklu fyrr en raun ber vitni. Það liggur í hlutarins eðli að umhverfismálin verða ávallt í brennidepli á Íslandi og stjórn- málamenn, hvar í flokki sem þeir eru, hljóta að standa trúan vörð um þennan málaflokk í nútíð og framtíð. Öllum hlýtur að vera ljóst að hann þarf að styrkja enn frekar. Það er afar mikil- vægt og mikið er í húfi eins og dæmin sanna. Eftir Sigríði Önnu Þórðardóttur »Umhverfis- málin verða ávallt í brenni- depli á Íslandi og stjórnmála- menn … hljóta að standa trúan vörð um þennan málaflokk í nú- tíð og framtíð. Sigríður Anna Þórðardóttir Höfundur er fv. umhverfisráðherra. Enn um umhverfis- ráðuneytið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.