Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 54
54 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. mánudaginn 18. apríl, kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Forsýning á verkunum fimmtudag til mánudags fimmtudag kl. 10–18, föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17 TolliEiríkur Smith Það, að lögsækja vinnuveitandann sinn, er örugglega eitt það síðasta sem menn vilja lenda í. Nú standa samt þeir starfsmenn Lands- bankans, RB, Valitors og Seðlabanka, sem greiða í hlutfallsdeild Lífeyrissjóðs banka- manna frammi fyrir því. Á ársfundi Lífeyrissjóðsins þann 6.apríl sl., var eftirfarandi samþykkt: „stjórn líf- eyrissjóðsins, með aðstoð Jónasar Fr. Jónssonar hdl., að leita nauðsyn- legra lagalegra úrræða til að hnekkja ósanngjörnu uppgjöri ábyrgðar aðildarfyrirtækja frá 1997.“ Byggt á greinargerð og lög- fræðilegu áliti, sem Jónas gerði um málið að tillögu ársfundar árið áður. Kostnaður sjóðsins af svokallaðri 95- ára reglu og lægri lífeyristökualdri en gert var ráð fyrir, hefur orðið verulegra hærri en forsendur gerðu ráð fyrir. Nú þegar hefur því þurft að grípa til þess óyndisúrræðis að lækka áunnin réttindi sjóðsfélaga í deildinni og þar með lækka lífeyris- greiðslur um 9,72%. Kom sú launa- lækkun og réttindaskerðing til fram- kvæmda 1. janúar 2015. Ekki er ósennilegt að til frekari skerðinga komi í framtíðinni, ef ekkert er að gert. Hið ósanngjarna uppgjör aðild- arfyrirtækjanna árið 1997 var gert að undirlagi stjórnvalda, sem voru að einkavæða bankana og vildu um leið létta af þeim bakábyrgðinni á líf- eyrisskuldbindingum, sem þá var við lýði. Fundin var upp ofannefnd hlutfalls- deild annarsvegar og aldursdeild (stiga- deild) hinsvegar. Hlut- fallsdeildin fyrir eldri starfsmenn, þar sem byggt er á eftirmanna- reglu og býður upp á 95-ára regluna, en ald- ursdeildin fyrir yngri starfsmenn, með stiga- kerfi þar sem sjóð- félagi ávinnur sér rétt- indi miðað við greidd iðgjöld sem taka mið af heildar- launum, eins og algengt er á almenn- um markaði. Nákvæmlega í sama anda og gert var varðandi opinbera starfsmenn, þar sem búin var til A- deild og B-deild í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, þar er reyndar bakábyrgðin enn við lýði og hefur ekki komið til skerðingar á lífeyris- réttindum né 95-ára reglu. Nú er staðan aftur orðin sú, alveg eins og 1997, þegar hið ofannefnda ósann- gjarna uppgjör var framkvæmt, að Landsbankinn er í meirihlutaeigu ríkisins og meira að segja sömu flokkar við stjórn. Enda sendi stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna fjármála- ráðherra bréf, reifaði málið og kynnti ofannefnt lögfræðiálit, en eft- ir því sem ég best veit hefur ekki svar borist. Nú á tímum mikilla sið- ferðisspurninga, er þá ekki eðlilegt að spyrja ráðamenn og eigendur Landsbankans, sem og stjórnendur hans, sem hampar því ákaft að hann vilji sýna samfélagslega ábyrgð; er það siðferðislega rétt að mismuna aðilum svona? Einn hópur sem treysti reiknikúnstum og trúði lof- orðum um að eiga ásættanlegan líf- eyri eftir áralöng störf, stendur frami fyrir skerðingu lífeyris og löskuðum sjóði, meðan annar ná- kvæmlega sambærilegur hópur, sem valdi eins, og er einnig í störfum fyr- ir ríkið, er með allt sitt á hreinu. Það vegur reyndar þungt í ofannefndu lögfræðiáliti, að Landsbankinn og sum önnur aðildarfyrirtæki, hafa með svokölluðum sólarlagssamn- ingum, stuðlað að því að ýta eldri starfsmönnum á 95-ára regluna í miklu meira mæli en forsendur gerðu ráð fyrir; í stað þess að 25% nýti 95-ára regluna eins og gert var ráð fyrir í forsendunum 1997, þá hef- ur það hlutfall orðið 50%, sem eykur kostnað sjóðsins og rýrir tekjur og þar með átt beinan þátt í því staða hlutfallsdeildar er jafn slæm og raun ber vitni. Samfélagsbanki með sið- ferðiskennd hlýtur á aðalfundi sín- um 14. apríl nk. að vilja bæta úr þessu og bæta sjóðnum upp tap sem hann hefur sannanlega orðið fyrir með gjörðum Landsbankans hf. síð- ustu ár. Eftir Kjartan Jóhannesson Kjartan Jóhannesson » Samfélagsbanki með siðferðiskennd hlýtur að vilja bæta úr þessu og bæta sjóðnum upp tap sem hann hefur sannanlega orðið fyrir með gjörðum Lands- bankans. Höfundur greiðir í Lífeyrissjóð bankamanna. Samfélagsbanki með siðferðiskennd? Stjórnskipun Ís- lands hefur meðal annars það að mark- miði að tryggja festu og jafnvægi í sam- skiptum þeirra sem fara með ríkisvald. Að þessu leyti hefur gildandi stjórnarskrá á Íslandi jafnan virk- að þegar á hefur reynt. Þar hefur for- setaembættið átt þátt í að móta framvindu mála. Þannig urðu ríkisstjórnarskipti í ársbyrjun 2009 í eldfimu ástandi án þess að til stjórnmálalegs öng- þveitis kæmi. Slíkt er ekki sjálf- gefið. Stjórnskipun Íslands hélt einnig velli hina viðburðaríku daga 4.-7. apríl síðastliðinn en hinn 5. apríl síðastliðinn bar forsætisráðherra, sem þá sat, upp erindi við forseta Íslands. Eðli þess erindis liggur ekki fyllilega fyrir en reikna má hið minnsta með að til tals hafi komið að rjúfa þing og að boðað yrði til kosninga, sbr. 24. gr. stjórnarskrárinnar. Hvernig svo sem á málið er litið voru viðbrögð forseta innan þeirra heimilda sem hann hefur sam- kvæmt stjórnarskránni. Þannig er eðlilegt að forseti óski eftir nánari upplýsingum og rökum áður en fallist er á beiðni um þingrof. Sú könnun var og nærtæk með hlið- sjón af þeirri atburðarás sem hafði átt sér stað í aðdraganda fundarins. Aðstæður þær sem komu upp fyrr- nefndan dag voru á margan hátt eins- dæmi í sögu íslenskr- ar stjórnskipunar og áttu eldri fordæmi, um samþykki forseta á beiðni forsætisráð- herra um þingrof, ekki við. Það var því rökrétt af hálfu sitj- andi forseti að grípa til úrræða í því skyni að tryggja starfhæfa ríkisstjórn í landinu. Það er eitt hlutverka forsetans. Um framtíð íslensku stjórnarskrárinnar Að mínu mati sýnir nýafstaðin atburðarás í íslenskum stjórn- málum að gildandi stjórnskipun landsins sé reist á traustum grunni og að vanhugsað væri að umbylta stjórnarskrá lýðveldisins frá árinu 1944. Eftir Helga Áss Grétarsson Helgi Áss Grétarsson » Stjórnskipun Íslands stendur traustum fótum. Það sannaðist í fárviðri stjórnmálanna í byrjun apríl síðastliðins. Óráð væri að umbylta stjórnarskránni. Höfundur er dósent við Lagadeild Háskóla Íslands. Stjórnarskrá sem virkar Gullsmárinn Fimmtudaginn 7. apríl var spilað á 10 borðum í Gullsmára.Úrslit í N/S: Lúðvík Ólafsson - Ragnar Jónsson 208 Björn Árnason - Auðunn R.Guðmss. 206 Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 193 A/V Jón I. Ragnarss. - Sæmundur Árnason 201 Hjörtur Hanness. - Gunnar M.Hanss. 194 Haukur Bjarnason - Hinrik Lárusson 194 Spilað var á 10 borðum mánudag- inn 4. apríl. Úrslit í N/S: Jóhann Ólafsson - Birgir Ísleifsson 227 Ragnar Jónsson - Lúðvík Ólafsson 218 Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 180 A/V Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 230 Rut Árnadóttir - Ása Jónsdóttir 199 Ragnh. Gunnarsd. - Sveinn Sigurjónss. 191 Góð þátttaka var fimmtudaginn 31. mars. 24 pör mættu til leiks. Úrslit í N/S: Guðm. Pálsson - Sveinn Símonarson 213 Ragnar Jónsson - Lúðvík Ólafsson 195 Guðrún Gestsd. - Ragnar Ásmundss. 182 Jónína Pálsd. - Þorleifur Þórarinss. 177 A/V Haukur Bjarnason - Hinrik Lárusson 200 Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 176 Gróa Jónatansd. - Sigurlaug Sigurðard. 176 Jón I. Ragnarss. - Sæmundur Árnas. 175 Spilað var á 11 borðum mánudag- inn 11. apríl.Úrslit í N/S: Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 203 Ragnar Jónsson - Lúðvík Ólafsson 199 Þórður Jörundss. - Jörundur Þórðarson 198 Gróa Jónatansd. - Sigurlaug Sigurðard. 192 A/V Rúnar Sigurðss. - Kristinn Pedersen 206 Kristín G. Ísfeld - Óttar Guðmss. 196 Jón I. Ragnarss. - Sæmundur Árnason 188 Hjörtur Hanness. - Gunnar M. Hansson 184 Mánudaginn 18.apríl tökum við á móti vinum okkar úr Reykjavík. FEB Reykjavík Mánudaginn 4. apríl mættu 29 pör í tvímenning hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandsson 376 Jón Þór Karlss. – Jón H. Jónsson 367 Haukur Harðarson – Ágúst Helgason 359 Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 348 A/V Sigurður Ólafsson – Skafti Ottesen 383 Björn Pétursson – Valdimar Ásmundss. 379 Guðm. K. Steinbach – Bjarni Guðnason 360 Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 351 Fimmtudaginn 7.apríl var spilað á 13 borðum. Guðm. Sigursteinss. – Unnar Guðmss. 383 Siguróli Jóhanns. - Bergur Ingimundars. 352 Hrólfur Guðmss. – Axel Lárusson 339 Örn Isebarn – Örn Ingólfsson 326 A/V Guðrún Jörgensen – Eiríkur 385 Margr. Gunnarsd. – Vigdís Hallgrímsd. 383 Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 373 Sigurður Þórhallss. – Sigr. Benediktsd. 357 Spilað er í Síðumúla 37 á mánudög- um og fimmtudögum kl. 13. Þess má geta að spilað verður á sumardaginn fyrsta, 21. apríl. Mánudaginn 18. apríl verður keppt í brids við eldri borgara í Kópavogi. Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Þriðjudaginn 29. mars var spilaður tvímenningur með þátttöku 32 para. Efstu pör í N-S: Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannss. 68,6 Örn Ingólfsson – Örn Isebarn 56,7 Óli Gíslason – Guðlaugur Bessason 55,9 Kristín Óskarsd. – Unnar A. Guðmss. 53,5 A-V Tómas Sigurjs. – Jóhannes Guðmannss. 59,9 Sigtryggur Jónss. – Höskuldur Jónsson 58,7 Guðlaugur Ellertss. – Björn Arnarson 57,3 Jón H. Jónsson – Jón Þór Karlss. 56,6 Föstudaginn 1. apríl var spilaður tvímenningur með þátttöku 26 para. Bestum árangri náðu í N/S: Örn Ingólfsson – Örn Isebarn 57,5 Örn Einarsson – Pétur Antonsson 55,8 Sigurður Hallgrs. – Steinmóður Einarss. 55,5 Lúðvík Ólafsson – Björn Árnason 54,3 A-V Jóhann Benediktss. – Björn Arnarson 63,4 Sigurður Kristjánss. – Sigurður Láruss. 54,7 Kristrún Stefánsd. – Sverrir Gunnarss. 54,6 Sigtryggur Jónss. – Höskuldur Jónsson 54,6 BFEH spilar á þriðjudögum og föstudögum í Hraunholti, Flata- hrauni 3. Spilamennska byrjar kl. 13. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.