Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 14.04.2016, Qupperneq 67
MINNINGAR 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 ✝ Ragnar Jóhannfæddist á Blönduósi 5. júlí 1924. Hann lést á Hjúkrunarheimil- inu Sunnuhlíð 7. apríl 2016. Foreldrar hans voru hjónin Pétur- ína B. Jóhanns- dóttir, f. 22 ágúst 1896, d. 23 júlí 1985, og Lárus Björnsson, f. 10. desember 1889, d. 27. maí 1987. Ragnar Jóhann giftist Elínu Jónsdóttur, 24. maí 1947. For- eldrar hennar voru Karólína Pálsdóttir, f. 14. apríl 1892, d. 29. desember 1988, og Jón Jónsson bóndi á Teygingalæk, f. 25. júní 1884, d. 21. október 1961. Systkini hans eru Helga S. Lárusdóttir, f. 1916, d. 1920, Björn J. Lárusson, f. 1918, d. 2006, Helgi S. Lárusson, f. 1920, d. 1939, Helga S. Lárus- dóttir, f. 1922, Grímur H. Lár- usson, f. 1926, d. 1995, Kristín I. Lárusdóttir, f. 1931, Eggert E. Lárusson, f. 1934, d. 2007. Börn Elínar og Ragnars eru: 1) Lárus P. Ragnarsson, f. Ragnarsdóttir, f. 1954. Maki Þórður S. Magnússon, f. 1955. Börn þeirra eru: a) Hannes Páll, f. 1980, maki Bryndís Stefánsdóttir, f. 1977. Dætur þeirra eru Heiða María og Þórdís Birta. b) Elín Ragna, f. 1984. 4) Ásdís L. Ragnars- dóttir, f. 1963, maki Sigurður Þ. Adolfsson, f. 1959. Dætur þeirra eru Erna, f. 1987, unn- usti Jón Brynjar Ólafsson, f. 1986, og Ýr, f. 1992, unnusti Daníel Benediktsson, f. 1992. Ragnar Jóhann ólst upp hjá foreldrum sínum í Grímstungu í Vatnsdal. Hann naut al- mennrar barnauppfræðslu auk þriggja mánaða náms í Ungl- ingaskóla hjá séra Þorsteini B. Gíslasyni, Steinnesi. Hann út- skrifaðist frá Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal árið 1946, eftir tveggja ára nám. Elín og Ragnar hófu búskap í Gríms- tungu í Vatnsdal 1946, en fluttu síðan að Keldunúpi á Síðu árið 1953. Þar bjuggu þau til ársins 1959, þegar þau fluttu í Vesturbæ Kópavogs. Lengst af var Ragnar Jóhann verkstjóri hjá Kópavogsbæ. Síðasta árið dvaldi hann á Hjúkrunarheimilinu Sunnu- hlíð. Útför Ragnars Jóhanns verður gerð frá Kópavogs- kirkju í dag, 14. apríl 2016, og hefst athöfnin kl. 13. 1947, maki Kar- lotta B. Aðal- steinsdóttir, f. 1949. Synir þeirra eru: a) Sigurbjörn Birkir, f. 1976, sambýliskona Brynhildur Magn- úsdóttir, f. 1978. Barn þeirra er Kristmann. Jón Bjartmar, f. 1984, kona hans Ingi- björg Sunna Þrastardóttir, f. 1986. Börn þeirra Ingibjörg Andrea og Karl Birgir. b) Ragnar Jóhann fæddur, 1970, unnusta Ann-Sofie. Synir hans eru Sander, Lárus og Terje Pétur. Dóttir Ann-Sofie er Ann-Cecilie. 2). Sigrún K. Ragnarsdóttir, f. 1950, maki Haraldur R. Gunnarsson, f. 1949. Synir þeirra eru: a) Vil- hjálmur Kári, f. 1973. Maki Fjóla Rún Þorleifsdóttir, f. 1973. Börn þeirra eru Margrét Vala, Karólína Lea og Har- aldur Leví. b) Kjartan Örn, f. 1977, maki Sæunn Stefáns- dóttir, f. 1978. Dætur þeirra eru Kristrún Edda og Auður Embla. 3) Halldóra B. Það er dásamlegt að eiga minningar um yndislegan föður sem elskaði mig af öllu hjarta og vildi allt fyrir mig og fjöl- skyldu mína gera. Söknuður yf- ir því að fá aldrei aftur að heyra sögurnar hans, hlusta á hann kveða eða syngja, fara með vísur, taka í nefið, súpa á góðu koníaki eða að vera bara til fyrir mig. Ég hef alltaf borið virðingu fyrir föður mínum, manni sem var hógvær, vand- virkur, vel lesinn, þrjóskur, skemmtilegur en umfram allt var hann pabbi minn. Síðasta ár dvaldi hann á Hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð og þar leið hon- um vel. Starfsfólkinu ber að þakka alla þá alúð og virðingu sem þau sýndu honum. Ég trúi því að Guð hafi gert hvert og eitt okkar einstakt í sköpunar- verki sínu svo að við gætum gegnt því sérstaka hlutverki sem hann ætlar okkur í tilver- unni. Þegar þeim tilgangi er náð fyllist hjartað ró og gleði. Já, ég mun sakna hans. Ásdís Lilja Ragnarsdóttir. Hinsta sonarkveðja. Hvað hjálpar þér í heimsins glaumi, að heiminum verðirðu ekki að bráð? Þá berast lætur lífs með straumi, Og lystisemdum sleppir taumi, – Hvað hjálpar, nema herrans náð? Og þegar allt er upp á móti, andinn bugaður, holdið þjáð, andstreymisins í ölduróti allir þó vinir burtu fljóti, guðs er þó eftir gæska og náð. Hver dugar þér í dauðans stríði, er duga ei lengur mannleg ráð, Þá horfin er þér heimsins prýði, en hugann nístir angur og kvíði, – Hvað dugir, nema drottins náð? (Grímur Thomsen) Þakkar þér uppeldið og sam- ferðina, kæri faðir, og megir þú njóta góðra samvista á þeirri leið sem þú hefur lagt út á. Lárus Pétur Ragnarsson. Heyrið vella á heiðum hveri, heyrið álftir syngja í veri: Íslands er það lag. Heyrið fljót á flúðum duna, foss í klettaskorum bruna: Íslands er það lag. (Grímur Thomsen) Elskulegur tengdafaðir minn, Ragnar Jóhann frá Grímstungu í Vatnsdal, andaðist þann 7. apríl síðastliðinn á 92. aldursári. Ragnari var margt til lista lagt, hann var náttúruunnandi, hafði einstaklega fallega söngrödd og naut þess mjög að syngja í góðra vina hópi. Handlaginn var hann og fékkst m.a. við bókband og glerlist hin seinni ár. Þau hjónin nutu þess mjög að ferðast um landið og heim- sækja ættingjana og voru þau ferðafélagar okkar hjónanna í mörgum skemmtilegum ferðum bæði norður í land og austur í sveitir. Ragnar var fróður um fjöll og aðra staðhætti sem við nutum góðs af. Ég kveð tengda- föður minn með innilegu þakk- læti fyrir samskiptin á liðnum árum. Flýt þér, vinur, í fegra heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa Guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson) Karlotta Aðalsteinsdóttir. Í dag kveðjum við bræður afa okkar, Ragnar Jóhann Lár- usson. Afi var fæddur í Gríms- tungu í Vatnsdal árið 1924. Síð- asta æviárið, þegar gleymskan hafði náð að smeygja sér inn í hugsanir hans, var hugurinn oft bundinn æskuslóðunum. Afi var alltaf tilbúinn að ræða sveitina sína og það gætti bæði stolts og ánægju þegar hann var kominn á flug í frásögn sinni. Oft kom fyrir að hann bætti inn í vísum um menn og málefni en afi kunni kynstrin öll af vísum. Þannig gátum við bræður upp- lifað liðna tíð úr sveitinni hans því afi var víðlesinn og bókelsk- ur með eindæmum. Afi var barngóður, hann tók ávallt vel á móti barnabörnum og barna- barnabörnum þegar þau komu í heimsókn, hann veitti þeim hlýju og áhuga. Afa var í blóð borin mikil nýtni og sparsemi, engu var hent, allt var nýtt og engu var spanderað að óþörfu. Þegar við bræður vorum í mat hjá afa og ömmu fannst okkur kjötið stundum feitt sem boðið var upp á og skárum við fituna burt. Afi lét ekkert fara til spill- is og bauðst til að borða fituna sem honum fannst ákaflega ljúffeng. Einu sinni sem oftar reyndi amma að plata afa til að gerast áskrifandi að Stöð 2 en sá gamli svaraði að bragði: „Hvað höfum við að gera við aðra sjónvarpsstöð þegar við náum ekki einu sinni að klára dagskrána á einni stöð?“ Afi starfaði drjúgan hluta starfsævinnar sem verkstjóri hjá Kópavogsbæ. Með vand- virkni og útsjónarsemi lagði hann gangstéttir og stíga um gervallan Kópavog. Afi var ákaflega handlaginn og mikill handverksmaður og gat útbúið fallega hluti, borð, lampa, gler- listaverk, bundið inn bækur og margt fleira. Ef smíða þurfti vandaðan hlut þá baðstu afa um aðstoð. Afi var greiðvikinn og hjálpsamur og eftir að við bræðurnir fórum sjálfir að búa þá var það ófáum sinnum að við fengum hin ýmsu verkfæri að láni hjá honum ásamt útlistun á notkunareiginleikum þeirra. Afi hafði skemmtilegan húm- or og var hann ávallt léttur í lund. Hann hafði einstaklega gaman af kveðskap og fór með stemmur eins og hann kallaði þær. Hann hafði góða söngrödd og naut sín vel í góðra vina hópi við fjöldasöng og ekki spillti fyrir ef smá vínlögg var við höndina. Hann spilaði oft rommý og ólsen-ólsen við okkur bræður og þá var hlegið dátt, sérstaklega ef hann var að vinna okkur. Eftir að amma flutti í Sunnu- hlíð tók afi við heimilishaldinu. Hann lagði metnað sinn í að halda öllu hreinu og snyrtilegu en sérstakan metnað lagði hann í borðhald og kaffisamsæti. Hann bauð oft upp á margs konar veitingar. Á borð voru bornar margar tegundir af kexi með kremi og án þess, kleinur, kökur og smurt brauð. Oft gat verið erfitt að komast yfir allar tegundirnar. Að leiðarlokum þökkum við bræður margar ánægjustundir og eftir lifir minning um ein- stakan afa sem var nægjusam- ur, en umfram allt hlýr, skemmtilegur og sáttur við sitt fram á síðasta dag. Vilhjálmur (Villi) og Kjartan. Mig langar með fáum orðum að minnast Ragnars móður- bróður míns. Hann var fæddur og uppal- inn í Grímstungu í Vatnsdal, og fór þaðan ungur í bændaskól- ann að Hólum, þar sem hann kynntist Elínu konu sinni. Þau byrjuðu búskap í Grímstungu, en fluttu svo austur í Skafta- fellssýslu þar sem Elín var fædd og uppalin, og bjuggu þar í nokkur ár. Með búskapnum vann Ragnar á jarðýtu og kunni margar skemmtilegar sögur frá þeim tíma. Svo flutti fjölskyldan suður og keypti lítið hús að Borgarholtsbraut 45 í Kópa- vogi. Á þeirri lóð byggði Ragn- ar síðan stórt og myndarlegt hús, enda börnin orðin fjögur og Karólína móðir Ellu bjó alla tíð hjá þeim. Ragnar var að eðl- isfari yfirvegaður og vandvirkur eins og sjá mátti á verkum hans. Enda naut hans aðhalds tengdamömmu stóran hluta ævi sinnar. Hann var mikill söng- og kvæðamaður. Kom hann nokkrum sinnum fram opinber- lega ásamt Grími bróður sínum. Ragnari og fjölskyldu kynntist ég mest á árunum í kringum 1970. En þá fengum við Gestur heitinn, mágur minn, fæði og húsnæði hjá þeim hjónum með- an við vorum í námi og færi ég þeim bestu þakkir fyrir okkur. Á þessum árum var margt í heimili á Borgarholtsbrautinni og oft kátt á hjalla. Þá kom það fyrir að Ragnar setti spaugi- legu hliðarnar í vísuform, en hann fékk þá hæfileika með móðurmjólkinni. Að lokum þakka ég Ragnari samfylgdina og sendi börnum hans og ættingjum samúðar- kveðjur. Lárus Helgason. Elsku Raggi okkar. Okkur langar að þakka þér og Ellu fyrir það hversu góð þið hafið verið við okkur. Það var gaman að koma til ykkar í heimsókn í Sunnuhlíð og á Borgarholts- brautina. Þú tókst svo vel á móti okkur. Okkur langar að kveðja þig með þessu versi: Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku Lalli, Kæja, Dóra, Ás- dís og fjölskyldur, megi Guð blessa ykkur öll og styrkja. Ykkar frænkur, Bára og Alda. Ragnar Jóhann Lárusson Hjartkær móðir, dóttir, systir og mágkona, KRISTÍN HÖSKULDSDÓTTIR, Dalalandi 2, sem lést fimmtudaginn 7. apríl á Landspítalanum, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 15. apríl klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. . Höskuldur Pétur Halldórsson, Hólmfríður Rósa Halldórsdóttir, Hólmfríður J. Hannesd., Höskuldur A. Sigurgeirsson, Hannes Höskuldsson, Elfa Signý Jónsdóttir, Páll A. Höskuldsson, Jóhanna Hansen, Anna Helga Höskuldsd., Halldór Páll Gíslason, Sigurgeir Höskuldsson, Kristjana R. Magnúsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON, óperusöngvari og húsgagnasmiður, Sléttuvegi 19, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 11. apríl. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 20. apríl klukkan 15. . Kristín Bjarnadóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Grétar J. Unnsteinsson, Hafsteinn Guðmundsson, Helga Gylfadóttir, Erna Guðmundsdóttir, Kristján Viggósson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar bróður míns, GUÐMUNDAR ANTONSSONAR, Glæsistöðum. . Ástþór Antonsson. Útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GÍSLA GRÍMSSONAR frá Vestmannaeyjum, verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 16. apríl klukkan 14. . Bjarney Erlendsdóttir, Erla Gísladóttir, Kristinn Grímsson, Grímur Gíslason, Guðrún Hjörleifsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar og amma, LILJA EÐVARÐSDÓTTIR, lést á heimili sínu laugardaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 18. apríl klukkan 13. . Erna Hrund Grétarsdóttir, Eðvarð Þór Grétarsson, Kristel Ben Jónsdóttir, Rögnvar Grétarsson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐJÓN DANÍELSSON frá Kolmúla, lést laugardaginn 9. apríl á hjúkrunarheimilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði. Útförin fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 16. apríl klukkan 14. . Halla Guðjónsdóttir, Borgþór Guðjónsson, Kristín Gréta Óskarsdóttir, Dagný Guðjónsdóttir, Sigurður Jakob Jónsson, Elísa Guðjónsdóttir, Stefán Þór Jónsson, Bryndís Guðjónsdóttir, Gunnar Jósep Jónsson, Guðjón Guðjónsson, Hafdís Bára Bjarnadóttir, Stefanía Óskarsdóttir, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ELÍSABET GUÐMUNDSSON (BETTÝ), Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vestmannaeyjum föstudaginn 1. apríl síðastliðinn, verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 16. apríl klukkan 11. . Jóhann E. W. Stefánsson, Guðmundur W. Stefánsson, Ellý Elíasdóttir, Sigurður W. Stefánsson, Ásta Traustadóttir, Guðmar W. Stefánsson, Ragnhildur Ragnarsdóttir, Elías W. Stefánsson, Hjördís Guðbjartsdóttir, Katrín Stefánsdóttir, Steingrímur Svavarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.