Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 67
MINNINGAR 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
✝ Ragnar Jóhannfæddist á
Blönduósi 5. júlí
1924. Hann lést á
Hjúkrunarheimil-
inu Sunnuhlíð 7.
apríl 2016.
Foreldrar hans
voru hjónin Pétur-
ína B. Jóhanns-
dóttir, f. 22 ágúst
1896, d. 23 júlí
1985, og Lárus
Björnsson, f. 10. desember
1889, d. 27. maí 1987.
Ragnar Jóhann giftist Elínu
Jónsdóttur, 24. maí 1947. For-
eldrar hennar voru Karólína
Pálsdóttir, f. 14. apríl 1892, d.
29. desember 1988, og Jón
Jónsson bóndi á Teygingalæk,
f. 25. júní 1884, d. 21. október
1961. Systkini hans eru Helga
S. Lárusdóttir, f. 1916, d. 1920,
Björn J. Lárusson, f. 1918, d.
2006, Helgi S. Lárusson, f.
1920, d. 1939, Helga S. Lárus-
dóttir, f. 1922, Grímur H. Lár-
usson, f. 1926, d. 1995, Kristín
I. Lárusdóttir, f. 1931, Eggert
E. Lárusson, f. 1934, d. 2007.
Börn Elínar og Ragnars eru:
1) Lárus P. Ragnarsson, f.
Ragnarsdóttir, f. 1954. Maki
Þórður S. Magnússon, f. 1955.
Börn þeirra eru: a) Hannes
Páll, f. 1980, maki Bryndís
Stefánsdóttir, f. 1977. Dætur
þeirra eru Heiða María og
Þórdís Birta. b) Elín Ragna, f.
1984. 4) Ásdís L. Ragnars-
dóttir, f. 1963, maki Sigurður
Þ. Adolfsson, f. 1959. Dætur
þeirra eru Erna, f. 1987, unn-
usti Jón Brynjar Ólafsson, f.
1986, og Ýr, f. 1992, unnusti
Daníel Benediktsson, f. 1992.
Ragnar Jóhann ólst upp hjá
foreldrum sínum í Grímstungu
í Vatnsdal. Hann naut al-
mennrar barnauppfræðslu auk
þriggja mánaða náms í Ungl-
ingaskóla hjá séra Þorsteini B.
Gíslasyni, Steinnesi. Hann út-
skrifaðist frá Bændaskólanum
á Hólum í Hjaltadal árið 1946,
eftir tveggja ára nám. Elín og
Ragnar hófu búskap í Gríms-
tungu í Vatnsdal 1946, en
fluttu síðan að Keldunúpi á
Síðu árið 1953. Þar bjuggu þau
til ársins 1959, þegar þau
fluttu í Vesturbæ Kópavogs.
Lengst af var Ragnar Jóhann
verkstjóri hjá Kópavogsbæ.
Síðasta árið dvaldi hann á
Hjúkrunarheimilinu Sunnu-
hlíð.
Útför Ragnars Jóhanns
verður gerð frá Kópavogs-
kirkju í dag, 14. apríl 2016, og
hefst athöfnin kl. 13.
1947, maki Kar-
lotta B. Aðal-
steinsdóttir, f.
1949. Synir þeirra
eru: a) Sigurbjörn
Birkir, f. 1976,
sambýliskona
Brynhildur Magn-
úsdóttir, f. 1978.
Barn þeirra er
Kristmann. Jón
Bjartmar, f. 1984,
kona hans Ingi-
björg Sunna Þrastardóttir, f.
1986. Börn þeirra Ingibjörg
Andrea og Karl Birgir. b)
Ragnar Jóhann fæddur, 1970,
unnusta Ann-Sofie. Synir hans
eru Sander, Lárus og Terje
Pétur. Dóttir Ann-Sofie er
Ann-Cecilie. 2). Sigrún K.
Ragnarsdóttir, f. 1950, maki
Haraldur R. Gunnarsson, f.
1949. Synir þeirra eru: a) Vil-
hjálmur Kári, f. 1973. Maki
Fjóla Rún Þorleifsdóttir, f.
1973. Börn þeirra eru Margrét
Vala, Karólína Lea og Har-
aldur Leví. b) Kjartan Örn, f.
1977, maki Sæunn Stefáns-
dóttir, f. 1978. Dætur þeirra
eru Kristrún Edda og Auður
Embla. 3) Halldóra B.
Það er dásamlegt að eiga
minningar um yndislegan föður
sem elskaði mig af öllu hjarta
og vildi allt fyrir mig og fjöl-
skyldu mína gera. Söknuður yf-
ir því að fá aldrei aftur að
heyra sögurnar hans, hlusta á
hann kveða eða syngja, fara
með vísur, taka í nefið, súpa á
góðu koníaki eða að vera bara
til fyrir mig. Ég hef alltaf borið
virðingu fyrir föður mínum,
manni sem var hógvær, vand-
virkur, vel lesinn, þrjóskur,
skemmtilegur en umfram allt
var hann pabbi minn. Síðasta ár
dvaldi hann á Hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð og þar leið hon-
um vel. Starfsfólkinu ber að
þakka alla þá alúð og virðingu
sem þau sýndu honum. Ég trúi
því að Guð hafi gert hvert og
eitt okkar einstakt í sköpunar-
verki sínu svo að við gætum
gegnt því sérstaka hlutverki
sem hann ætlar okkur í tilver-
unni. Þegar þeim tilgangi er
náð fyllist hjartað ró og gleði.
Já, ég mun sakna hans.
Ásdís Lilja Ragnarsdóttir.
Hinsta sonarkveðja.
Hvað hjálpar þér í heimsins
glaumi,
að heiminum verðirðu ekki að
bráð?
Þá berast lætur lífs með straumi,
Og lystisemdum sleppir taumi, –
Hvað hjálpar, nema herrans náð?
Og þegar allt er upp á móti,
andinn bugaður, holdið þjáð,
andstreymisins í ölduróti
allir þó vinir burtu fljóti,
guðs er þó eftir gæska og náð.
Hver dugar þér í dauðans stríði,
er duga ei lengur mannleg ráð,
Þá horfin er þér heimsins prýði,
en hugann nístir angur og kvíði, –
Hvað dugir, nema drottins náð?
(Grímur Thomsen)
Þakkar þér uppeldið og sam-
ferðina, kæri faðir, og megir þú
njóta góðra samvista á þeirri
leið sem þú hefur lagt út á.
Lárus Pétur Ragnarsson.
Heyrið vella á heiðum hveri,
heyrið álftir syngja í veri:
Íslands er það lag.
Heyrið fljót á flúðum duna,
foss í klettaskorum bruna:
Íslands er það lag.
(Grímur Thomsen)
Elskulegur tengdafaðir minn,
Ragnar Jóhann frá Grímstungu
í Vatnsdal, andaðist þann 7.
apríl síðastliðinn á 92. aldursári.
Ragnari var margt til lista lagt,
hann var náttúruunnandi, hafði
einstaklega fallega söngrödd og
naut þess mjög að syngja í
góðra vina hópi. Handlaginn
var hann og fékkst m.a. við
bókband og glerlist hin seinni
ár. Þau hjónin nutu þess mjög
að ferðast um landið og heim-
sækja ættingjana og voru þau
ferðafélagar okkar hjónanna í
mörgum skemmtilegum ferðum
bæði norður í land og austur í
sveitir. Ragnar var fróður um
fjöll og aðra staðhætti sem við
nutum góðs af. Ég kveð tengda-
föður minn með innilegu þakk-
læti fyrir samskiptin á liðnum
árum.
Flýt þér, vinur, í fegra heim.
Krjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa Guðs um geim.
(Jónas Hallgrímsson)
Karlotta Aðalsteinsdóttir.
Í dag kveðjum við bræður
afa okkar, Ragnar Jóhann Lár-
usson. Afi var fæddur í Gríms-
tungu í Vatnsdal árið 1924. Síð-
asta æviárið, þegar gleymskan
hafði náð að smeygja sér inn í
hugsanir hans, var hugurinn oft
bundinn æskuslóðunum. Afi var
alltaf tilbúinn að ræða sveitina
sína og það gætti bæði stolts og
ánægju þegar hann var kominn
á flug í frásögn sinni. Oft kom
fyrir að hann bætti inn í vísum
um menn og málefni en afi
kunni kynstrin öll af vísum.
Þannig gátum við bræður upp-
lifað liðna tíð úr sveitinni hans
því afi var víðlesinn og bókelsk-
ur með eindæmum. Afi var
barngóður, hann tók ávallt vel á
móti barnabörnum og barna-
barnabörnum þegar þau komu í
heimsókn, hann veitti þeim
hlýju og áhuga.
Afa var í blóð borin mikil
nýtni og sparsemi, engu var
hent, allt var nýtt og engu var
spanderað að óþörfu. Þegar við
bræður vorum í mat hjá afa og
ömmu fannst okkur kjötið
stundum feitt sem boðið var
upp á og skárum við fituna
burt. Afi lét ekkert fara til spill-
is og bauðst til að borða fituna
sem honum fannst ákaflega
ljúffeng. Einu sinni sem oftar
reyndi amma að plata afa til að
gerast áskrifandi að Stöð 2 en
sá gamli svaraði að bragði:
„Hvað höfum við að gera við
aðra sjónvarpsstöð þegar við
náum ekki einu sinni að klára
dagskrána á einni stöð?“
Afi starfaði drjúgan hluta
starfsævinnar sem verkstjóri
hjá Kópavogsbæ. Með vand-
virkni og útsjónarsemi lagði
hann gangstéttir og stíga um
gervallan Kópavog. Afi var
ákaflega handlaginn og mikill
handverksmaður og gat útbúið
fallega hluti, borð, lampa, gler-
listaverk, bundið inn bækur og
margt fleira. Ef smíða þurfti
vandaðan hlut þá baðstu afa um
aðstoð. Afi var greiðvikinn og
hjálpsamur og eftir að við
bræðurnir fórum sjálfir að búa
þá var það ófáum sinnum að við
fengum hin ýmsu verkfæri að
láni hjá honum ásamt útlistun á
notkunareiginleikum þeirra.
Afi hafði skemmtilegan húm-
or og var hann ávallt léttur í
lund. Hann hafði einstaklega
gaman af kveðskap og fór með
stemmur eins og hann kallaði
þær. Hann hafði góða söngrödd
og naut sín vel í góðra vina hópi
við fjöldasöng og ekki spillti
fyrir ef smá vínlögg var við
höndina. Hann spilaði oft
rommý og ólsen-ólsen við okkur
bræður og þá var hlegið dátt,
sérstaklega ef hann var að
vinna okkur.
Eftir að amma flutti í Sunnu-
hlíð tók afi við heimilishaldinu.
Hann lagði metnað sinn í að
halda öllu hreinu og snyrtilegu
en sérstakan metnað lagði hann
í borðhald og kaffisamsæti.
Hann bauð oft upp á margs
konar veitingar. Á borð voru
bornar margar tegundir af kexi
með kremi og án þess, kleinur,
kökur og smurt brauð. Oft gat
verið erfitt að komast yfir allar
tegundirnar.
Að leiðarlokum þökkum við
bræður margar ánægjustundir
og eftir lifir minning um ein-
stakan afa sem var nægjusam-
ur, en umfram allt hlýr,
skemmtilegur og sáttur við sitt
fram á síðasta dag.
Vilhjálmur (Villi) og
Kjartan.
Mig langar með fáum orðum
að minnast Ragnars móður-
bróður míns.
Hann var fæddur og uppal-
inn í Grímstungu í Vatnsdal, og
fór þaðan ungur í bændaskól-
ann að Hólum, þar sem hann
kynntist Elínu konu sinni. Þau
byrjuðu búskap í Grímstungu,
en fluttu svo austur í Skafta-
fellssýslu þar sem Elín var
fædd og uppalin, og bjuggu þar
í nokkur ár. Með búskapnum
vann Ragnar á jarðýtu og kunni
margar skemmtilegar sögur frá
þeim tíma. Svo flutti fjölskyldan
suður og keypti lítið hús að
Borgarholtsbraut 45 í Kópa-
vogi. Á þeirri lóð byggði Ragn-
ar síðan stórt og myndarlegt
hús, enda börnin orðin fjögur
og Karólína móðir Ellu bjó alla
tíð hjá þeim. Ragnar var að eðl-
isfari yfirvegaður og vandvirkur
eins og sjá mátti á verkum
hans. Enda naut hans aðhalds
tengdamömmu stóran hluta ævi
sinnar. Hann var mikill söng-
og kvæðamaður. Kom hann
nokkrum sinnum fram opinber-
lega ásamt Grími bróður sínum.
Ragnari og fjölskyldu kynntist
ég mest á árunum í kringum
1970. En þá fengum við Gestur
heitinn, mágur minn, fæði og
húsnæði hjá þeim hjónum með-
an við vorum í námi og færi ég
þeim bestu þakkir fyrir okkur.
Á þessum árum var margt í
heimili á Borgarholtsbrautinni
og oft kátt á hjalla. Þá kom það
fyrir að Ragnar setti spaugi-
legu hliðarnar í vísuform, en
hann fékk þá hæfileika með
móðurmjólkinni.
Að lokum þakka ég Ragnari
samfylgdina og sendi börnum
hans og ættingjum samúðar-
kveðjur.
Lárus Helgason.
Elsku Raggi okkar. Okkur
langar að þakka þér og Ellu
fyrir það hversu góð þið hafið
verið við okkur. Það var gaman
að koma til ykkar í heimsókn í
Sunnuhlíð og á Borgarholts-
brautina. Þú tókst svo vel á
móti okkur. Okkur langar að
kveðja þig með þessu versi:
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku Lalli, Kæja, Dóra, Ás-
dís og fjölskyldur, megi Guð
blessa ykkur öll og styrkja.
Ykkar frænkur,
Bára og Alda.
Ragnar Jóhann
Lárusson
Hjartkær móðir, dóttir, systir og mágkona,
KRISTÍN HÖSKULDSDÓTTIR,
Dalalandi 2,
sem lést fimmtudaginn 7. apríl á
Landspítalanum, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju föstudaginn 15. apríl klukkan
13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
.
Höskuldur Pétur Halldórsson,
Hólmfríður Rósa Halldórsdóttir,
Hólmfríður J. Hannesd., Höskuldur A. Sigurgeirsson,
Hannes Höskuldsson, Elfa Signý Jónsdóttir,
Páll A. Höskuldsson, Jóhanna Hansen,
Anna Helga Höskuldsd., Halldór Páll Gíslason,
Sigurgeir Höskuldsson, Kristjana R. Magnúsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON,
óperusöngvari og húsgagnasmiður,
Sléttuvegi 19,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 11. apríl. Útförin fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 20. apríl klukkan 15.
.
Kristín Bjarnadóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Grétar J. Unnsteinsson,
Hafsteinn Guðmundsson, Helga Gylfadóttir,
Erna Guðmundsdóttir, Kristján Viggósson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar bróður
míns,
GUÐMUNDAR ANTONSSONAR,
Glæsistöðum.
.
Ástþór Antonsson.
Útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GÍSLA GRÍMSSONAR
frá Vestmannaeyjum,
verður gerð frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum laugardaginn
16. apríl klukkan 14.
.
Bjarney Erlendsdóttir,
Erla Gísladóttir, Kristinn Grímsson,
Grímur Gíslason, Guðrún Hjörleifsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar og amma,
LILJA EÐVARÐSDÓTTIR,
lést á heimili sínu laugardaginn 9. apríl.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 18. apríl klukkan 13.
.
Erna Hrund Grétarsdóttir,
Eðvarð Þór Grétarsson, Kristel Ben Jónsdóttir,
Rögnvar Grétarsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
GUÐJÓN DANÍELSSON
frá Kolmúla,
lést laugardaginn 9. apríl á
hjúkrunarheimilinu Uppsölum,
Fáskrúðsfirði.
Útförin fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 16. apríl
klukkan 14.
.
Halla Guðjónsdóttir,
Borgþór Guðjónsson, Kristín Gréta Óskarsdóttir,
Dagný Guðjónsdóttir, Sigurður Jakob Jónsson,
Elísa Guðjónsdóttir, Stefán Þór Jónsson,
Bryndís Guðjónsdóttir, Gunnar Jósep Jónsson,
Guðjón Guðjónsson, Hafdís Bára Bjarnadóttir,
Stefanía Óskarsdóttir,
tengdabörn, barnabörn,
barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR ELÍSABET GUÐMUNDSSON
(BETTÝ),
Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Vestmannaeyjum föstudaginn 1. apríl síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 16. apríl klukkan 11.
.
Jóhann E. W. Stefánsson,
Guðmundur W. Stefánsson, Ellý Elíasdóttir,
Sigurður W. Stefánsson, Ásta Traustadóttir,
Guðmar W. Stefánsson, Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Elías W. Stefánsson, Hjördís Guðbjartsdóttir,
Katrín Stefánsdóttir, Steingrímur Svavarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.