Morgunblaðið - 14.04.2016, Blaðsíða 74
74 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mikið úrval!
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Sérverslun með teppi og parket
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Áhugi þinn beinist nú einkum að fjár-
málunum. Allir verða að gefa eitthvað eftir til
þess að samkomulag náist. Vandamálin eru
mörg og ærin en láttu þau ekki raska ró
þinni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt nokkuð gusti um þig núna skaltu
ekki láta það slá þig út af laginu. Mundu bara
að það eru fleiri en þú sem leggja hönd á
plóginn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert sérlega kraftmikil/l í dag og
vilt leggja þig alla/n fram við það sem þú ert
að gera. Varpaðu allri formfestu fyrir róða og
láttu berast með straumnum í dag.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það fer eftir því hver í hlut á hvernig
þú nálgast viðfangsefnið. Hin fullkomna vald-
beiting er nefnilega sú að þurfa ekki að beita
valdinu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú gætir hugsanlega tekið höndum
saman með vini til þess að hjálpa þeim sem
eru þurfandi eða mega sín minna. Gerðu fjár-
hagsáætlun og farðu líka eftir henni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Dagurinn í dag er ákjósanlegur fyrir
miklar endurbætur á heimilinu. Sættu þig við
það sem er og njóttu þess sem lífið hefur að
bjóða.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hvern gagnrýnir þú annan en sjálfan
þig? Górillur sýna ást sína með því að tína
lýsnar hver af annarri. En þegar upp er staðið
er enginn mikilvægari en annar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Svartsýni hvíslar í eyra þér - eða
kannski er það bara innsæið að vara þig við.
Einhver tekur eftir breytingu í þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ættir að setjast niður og fara
yfir skuldastöðu þína. Sagt er að markmið án
áætlunar sé bara ósk. Eini munurinn er sá að
nú hefurðu kraftinn til að gera eitthvað í mál-
inu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Félagslegir hæfileikar þínir gefa
orðinu "heillandi" nýja merkingu. Ef þú nærð
ekki árangri þar, tekst þér ekki ætlunarverkið
í lifanda lífi. Vertu óhræddur við að íhuga ný-
stárlegar lausnir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þolinmæði er dyggð, en ekki endi-
lega hátt skrifuð í samfélagi skyndifullnægj-
unnar. Talaðu um það sem þig langar í.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hugsanlegt er að smátæki á heimilinu
taki upp á því að bila í dag. Samt geturðu
ekki alltaf verið með þeim sem þú elskar.
Sumar vísur birtast manni einsog í kvikmynd. Svo er um þessa
eftir séra Björn Halldórsson:
Ráðskonan mín rís þar upp
rétt sem tungl í fyllingu.
Klórar hún sér á hægri hupp
með hátíðlegri stillingu.
Einhvern tíma var Tómas Guð-
mundsson beðinn um texta fyrir
nýtt (dægur)lag, – hann sló á létta
strengi:
Sólin hamast úti og inni
frá árdegi til sólarlags. –
En hvernig eru húsakynni
í Hafnarfirði nú til dags?
Júlíus Sigurðsson bankastjóri
orti eftir stórbruna á Akureyri:
Áfram líður ævibraut
eftir vegum duldum.
Drottinn leggur líkn með þraut
og líka eld með skuldum.
Ekki er allt sem sýnist í Biblíu-
sögunum – Jón Þorsteinsson á Arn-
arvatni orti:
Aldrei mundi Uria
orðið hafa viðskila,
hefði ekki Batseba
baðað sig við lindina,
Davíð með sinn kvæðaklið
klifrað upp á húsþakið
litið þennan sóma sið.
Svona er stundum hreinlætið!
- - -
Símaði Jóab heim í hlað:
„Hetitinn er orðinn spað –!“
Ýmsir heyrðu eftir það
öðling spila margraddað.
Þessi urðu eftirmæli Jóns um
gömlu hlöðuna:
Þeim, sem athvarf áttu sér
ýmislegt að gera,
gamla hlaðan horfin er.
Hvar á nú að vera?
Á efnaheimili í Borgarfirði voru
ávallt til fyrningar af keti og
skemmdist oft. Um sveitarómaga,
sem dó á heimlinu, orti Jón Eyjólfs-
sons frá Hvammi Hvítársíðu:
Illa fór hann Gvendargrey,
þó gamalt æti hann ketið.
Þeir eru til, sem þrífast ei,
þó þeir geti étið.
Að hann dáið hafi úr hor
hygg ég rengja megi.
En hitt er satt, hann var í vor
vel framgenginn eigi.
Sagt var, að kona nokkur hefði
ort þessa formannsvísu til bónda
síns:
Jón minn hefur litla lyst;
löngum betur aðrir sóttu.
Það var aðeins allra fyrst
að hann reri á hverri nóttu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gamlar vísur héðan og þaðan
Í klípu
„ÞETTA VAR EKKI ÞAÐ SEM ÉG MEINTI
ÞEGAR ÉG BAÐ ÞIG UM AÐ SETJA
HÁRBLÁSARANN Á ENDURSKOÐANDANN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„STENDUR ÞÚ VENJULEGA SVONA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fara í berjamó
saman.
LÆKNIR, ÞETTA LYFJAGLAS
SEM ÞÚ ÁVÍSAÐIR HEFUR GERT
MIG AFTUR AÐ ÞEIM MANNI
SEM ÉG VAR!
HVERT ER
INNI-
HALDIÐ?
AÐALLEGA
ALKÓHÓL
EINHVER VAR Í
ÍSSKÁPNUM
ERTU AÐ
DREKKA
TÓMATSÓSU?
ÆTTIR ÞÚ
EKKI AÐ VERA
ÚTI Í BÚÐ?
Þá er loksins kominn smá hiti ímannskapinn og annar hverfar-
inn að grilla. Víkverji kvíðir örlítið
fyrir grillvertíðinni, þar sem hann á
enn eftir að bera grillið upp úr
geymslunni og út á svalir eftir vetr-
ardvalann. Þá kvíðir Víkverji ekki
síður fyrir því þegar sumrinu lýkur
og hann þarf að bera allt heila klabb-
ið aftur niður.
x x x
Því að þó að Víkverja finnist grill-matur góður, þá hafa heimturnar
af grillinu hans ekki verið það miklar
síðustu sumrin. Það er nefnilega lítið
gaman að grilla nema veðrið haldist
þurrt og síðasta sumar var eitt hið
rakasta í manna minnum. Óttast Vík-
verji að hið sama verði upp á ten-
ingnum núna, og að grillið megi því
bara sitja, lítt notað, úti á svölum á
meðan hver rigningarstormurinn á
fætur öðrum bylur á því.
x x x
Í því samhengi ætti Víkverji kannskiað nefna það að grillið hans er svo-
kallað „ferðagrill,“ sem er sérstak-
lega ætlað til þess að vera auðflytj-
anlegt á milli staða. Nú er Víkverji
ekki verkfræðingur, en hann vill
leyfa sér að fullyrða það, að fá grill
séu einmitt óhentugri til ferðalaga en
þetta „ferðagrill“ hans. Fyrir það
fyrsta er grillið nokkuð stórt og mik-
ið um sig, og það er ágætlega þungt í
því. Víkverji er enginn sérstakur
kraftajötunn, en þrátt fyrir það
finnst honum svona eins og grillið
væri alveg hægt að nota í aflrauna-
keppnum.
x x x
Í öðru lagi er grillið hannað þannigað eftir notkun safnast öll fitan úr
grillkjötinu saman og myndar annað
hvort skán á botninum eða lekur
meðfram lokinu og á jörðina ef grillið
er flutt of snemma af stað, með miklu
óhagræði. Víkverji vill því helst bera
„ferðagrillið“ sitt saman við fyrstu
heimilistölvuna sem foreldrar hans
fengu sér á níunda áratugnum. Tölv-
an sú átti að heita „fartölva,“ en var á
stærð við saumavél, þurfti alltaf að
vera í sambandi við rafmagn og gaf
frá sér hávær viftuhljóð. Það er ald-
eilis hvað þróunin hefur verið hröð.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp
í nauðum. Því óttumst vér eigi þótt
jörðin haggist og fjöllin steypist í djúp
hafsins. Sálmarnir 46:2-3