Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 76

Morgunblaðið - 14.04.2016, Síða 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2016 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Í undirbúningi þessarar hátíðar var mér frá upphafi tvennt efst í huga, auk höfundarverks kvenna. Annars vegar mannslíkaminn sem allar hugmyndir okkar um frelsi og mannréttindi byggjast á og hins vegar tímamótin sem Listahá- tíð stendur á,“ sagði Hanna Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, á blaða- mannafundi í gær þar sem 15 sviðslistaviðburðir hátíðarinnar 2016 voru kynntir. Hátíðin, sem haldin verður í 30. sinn, verður sett 21. maí og stendur til 5. júní. Yfirskriftin í ár er Síðari hluti og stendur í hún í sterkum tengslum við dagskrá Listahátíðar 2015 sem nefndist Fyrri hluti. „Hugmyndin að því að tengja há- tíðir tveggja ára með þessum hætti átti rætur sínar í því að það reyndist ógerningur á síðasta ári að koma að öllu því sem okkur þótti mikilvægt að gera skil á, á aldarafmæli kosningaréttar kvenna.“ Að sögn Hönnu verður Listahá- tíð sett formlega upp úr hádegi laugardaginn 21. maí í miðborg Reykjavíkur. „En dagskráin hefst óformlega nokkrum dögum fyrr með uppákomum í borginni, sum- um óvæntum og öðrum skipulögð- um. Þessar uppákomur tengjast opnunarsviðsviðburðinum í ár sem er sýning fimmtán afar liðugra Flex-dansara frá Brooklyn og Manchester undir yfirskriftinni FlexN Iceland,“ sagði Hanna, en sýning hópsins verður í Brim- húsinu við Geirsgötu að kvöldi 21. maí. Dansa undir stjórn Helga „Vladimir Ashkenazy var einn aðalhvatamaðurinn að stofnun Listahátíðar í Reykjavík árið 1970 og á þessum tímamótum í sögu há- tíðarinnar, þegar við höldum hana í 30. sinn, stjórnar hann tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á há- tíðinni í fyrsta sinn í 37 ár,“ sagði Hanna og benti á að í fylgd með honum væri franski verðlauna- píanistinn Jean-Efflam Bavouzet, en á efnisskránni er píanókonsert Ravel í G-dúr og Sveitasinfónía Beethoven. Tónleikarnir verða 25. maí. Líkt og fram hefur komið stígur San Francisco-ballettinn á svið í Eldborg Hörpu undir stjórn Helga Tómassonar dagana 28.-30. maí. „Ferill Helga er ævintýri líkastur, fyrst sem dansara og síðar dans- höfundar og listræns stjórnanda San Francisco-ballettsins sem hef- ur vaxið og dafnað undir stjórn hans í þrjá áratugi,“ sagði Hanna og upplýsti á efnisskránni yrðu verk eftir George Balanchine, Helga sjálfan, Marius Petipa, Hans van Manen og Christopher Wheeldon, flutt við tónlist eftir Jó- hannes Sebastian Bach, Antonio Vivaldi, Ezio Bossi, Tchaikovsky og Stravinsky. „Svo að ef ein- hverjum hefur þótt halla á hlut karla á Listahátíð undanfarið telst það nú leiðrétt.“ Blóðhófnir og Ur á svið Sú nýlunda verður á dagskrá Listahátíðar í ár að alþjóðlegur listamaður sækir hátíðina heim tvö ár í röð, en dansarinn Shantala Shivalingappa kemur að þessu sinni fram með Sidi Larbi Cherka- oui, sem er einn þekktasti dans- höfundur í evrópskum samtíma- dansi. Þau munu 31. maí í Þjóðleikhúsinu dansa tvíleikinn Play sem innblásinn er af og flutt- ur til heiðurs frumkvöðlinum Pinu Bausch sem leiddi þau saman. Í máli Hönnu kom fram að sem endranær yrðu nýjar tónsmíðar ís- lenskra tónskálda á dagskrá Listahátíðar samhliða stórvirkjum sígildrar tónlistar. „Tónlistar- hópurinn Umbra flytur til að mynda nýtt tónleikhúsverk eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur sem er byggt á mögnuðum ljóðabálki Gerðar Kristnýjar, Blóðhófni,“ sagði Hanna, en verkið verður flutt með upprunahljóðfærum og í sviðsetningu Sögu Sigurðardóttur í Tjarnarbíói 1. júní. Óperan Ur eftir Önnu Þorvalds- dóttur í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar verður frumsýnd á Íslandi í Norðurljósum 4. júní. „Anna leggur til grundvallar upp- haf heimsins, hvorki meira né minna, eins og það birtist í græn- lenskum munnmælasögum,“ sagði Hanna og rifjaði upp að um væri að ræða afrakstur verkþróunar yf- ir tveggja ára tímabil, en verkið var heimsfrumsýnt í Trier sl. haust. Mistakasaga mannkyns „Á tónleikum sem bera yfir- skriftina Mistakasaga mannkyns fara hefðbundin ljóð og tónlist í gegnum nýstárlega, skapandi hakkavél í ádeilu tónlistarmann- anna Hallveigar Rúnarsdóttur, Erps Eyvindarsonar, Hilmars Arnar Hilmarsonar og Bjarna Frí- manns Bjarnasonar. Þau velta þar vöngum yfir „illri hneigð“ mann- kyns og hvort það sé okkur eðlis- lægt að endurtaka sömu mistökin kynslóð fram af kynslóð,“ sagði Hanna, en tónleikarnir verða í Gamla bíói 2. júní. Á sviði leiklistar má nefna að leikritið Sími látins manns eftir Söruh Ruhl í leikstjórn Charlotte Bøving verður frumsýnt í Tjarn- arbíói 23. maí. Félag leikskálda og handritshöfunda í samvinnu við Borgarleikhúsið og Listahátíð standa 22. maí fyrir höfunda- smiðju undir yfirskriftinni Af- hjúpun þar sem hálfsviðsettir leik- lestrar verða á verkum Sigurbjargar Þrastardóttur, Jó- hanns Þórssonar, Hildar Knúts- dóttur og Jóns Magnúsar Arnars- sonar. Phoenix – Reykjavík Edition nefnist þátttökusýning úr smiðju sviðslistahópsins Wunderland sem hlaut verðlaun í Danmörku fyrir sambærilega sýningu þar í landi. Upplifunin hefst í Snarfarahöfn í Elliðavogi dagana 21. maí til 5. júní. Íslenski dansflokkurinn frum- sýnir tvö verk eftir þrjá íslenska danshöfunda í byrjun maí undir yfirskriftinni Persóna, en lokasýn- ingin 22. maí er hluti af Listahátíð. Hæfileika- og tónlistarkeppnin Jaðarber Got hæfileikar verður haldin í Mengi 22. maí. Níu sellóleikarar og söngkona koma fram á tónleikum undir stjórn Gunnars Kvaran sem helg- aðir eru minningu sellósnillingsins Erlings Blöndal Bengtssonar í Laugarneskirkju 22. maí, en yfir- skrift tónleikanna er Selló, þú ba- rómeter hjarta míns. Barokkhóp- urinn Symphoniu Angelicu flytur kantötuna La Lucrezia eftir G.F. Händel og fleiri verk á tónleikum í Guðríðarkirkju 26. maí. „Lokaviðburður Listahátíðar eru djasstónleikar hins þrefalda Grammy-verðlaunahafa og yfir- burðatrommuleikara Terri Lyne Carrington undir yfirskriftinni Mosaic Project en með henni í för verður sjö manna djassband úr- valshljóðfæraleikara,“ sagði Hanna, en tónleikarnir verða í Eldborg 5. júní. Hanna áréttaði á fundinum að ákveðið hefði verið að halda Listahátíð í Reykjavík hér eftir á tveggja ára fresti og því verður næsta hátíð 2018. „Þess vegna er um að gera að njóta þess fjöl- breytta lífs og litar sem hátíðin mun gæða borgina í vor.“ Þess má að lokum geta að miðasala Listahátíðar hefst í dag kl. 10 á vefnum listahatid.is, en þar má finna allar nánari upplýsingar um dagskrána. Á næstu tveimur vik- um verður myndlistar- og hönn- unardagskrá Listahátíðar kynnt. Listahátíð stendur á tímamótum  Listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík kynnti 15 sviðslistaviðburði á blaðamannafundi í gær  Fram koma m.a. Vladimir Ashkenazy, Shantala Shivalingappa og Terri Lyne Carrington Morgunblaðið/Golli Síðari hluti Hanna Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar. Ljósmynd/Erik Tomasson Svífandi Maria Kochetkova dansar í verkinu Trio eftir Helga Tómasson, en San Francisco-ballettinn dansar undir hans stjórn í Hörpu 28.-30. maí. SPARI Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir Íslensk hönnun & handverk STOFNAÐ 1956 Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur sími 510 7300 www.ag.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.